Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Grænlenski vigfslubiskupinn
Chrístian Mörk ásamt samferðamanni
sínum Maríus Olsen.
Grænlenski vígslubiskupinn á íslandi
GRÆNLENSKI vígslubiskupinn,
Chrístian Mörk, kom til íslands
síðastliðinn mánudag, en hann
var á leið frá Scoresbysundi á
Norðaustur-Grænlandi til Nuuk
á suðvesturströnd Grænlands.
Mörk biskup fór til Scoresby-
sunds skömmu fyrir jól til að þjóna
þar yfir hátíðimar þar sem prest-
laust er þar nú. Til að komast aftur
til heimkynna sinna í Nuuk varð
hann að taka vél með millilendingu
í Reykjavík. Við komuna til íslands
hafði Mörk biskup samband við
herra Pétur Sigurgeirsson, biskup
íslands, og ræddust þeir við. Herra
Pétur Sigurgeirsson sagði í samtali
við Morgunblaðið að hann hefði
áður boðið Mörk biskup að vera við
vígslu Hallgrímskirkju en græn-
lenski víglsubiskupinn hefði þá ekki
átt heimangengt. Hann hefði því
notað tækifærið nú og skoðað kirkj-
una.
Biskup íslands sagði að þeir
hefðu átt saman ánægjulega sam-
verustund og meðal annars rætt
um þann merka atburð þegar græn-
lenski presturinn Sejer Abelsen var
vígður á Isafirði árið 1925, en
vígsluna framkvæmdi faðir Péturs,
séra Sigurgeir Sigurðsson, sem þá
var prófastur á Isafirði en síðar
biskup íslands. Pétur var þá sex
ára og kvaðst hann muna eftir þess-
um atburði.
Fyrirhugað var að Mörk biskup
héldi áfram ferð sinni til Grænlands
í dag, miðvikudag.
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 400 km suður af Hvarfi er 980 milli-
bara djúp og víðáttumikii lægð sem hreyfist norönorðaustur.
SPÁ: Suðaustan gola eða kaldi (3-5 vindstig) á landinu. Dálítil
súld verður á suður- og vesturlandi en þurrt um norðan- og austan-
vert landið. Hiti á bilinu 2 til 6 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Sunnanátt og hlýtt í veðri. Rigning eða súld á
sunnan- og vestanverðu landinu en að mestu þurrt norðaustan-
lands.
FÖSTUDAGUR: Útlit er fyrir suðvestlæga átt með slydduéljum
suðvestanlands en björtu veöri um norðaustan- og austanvert
landið. Heldur kólnandi veður.
TAKN:
Heiðskírt
OH,l!
Léttskýjað
4
Hálfskýjað
A
m Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celslus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CO Mistur
- ■ j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veSur
Akurayrí
Reykjavlk
Bergen
Helsinkl
Jan Mayen
Kaupmannah.
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Algarve
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Beriln
Chicago
Glasgow
Feneyjar
Frankfurt
Hamborg
Las Palmas
London
LosAngeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Mlaml
Montreal
NewYork
París
Róm
Vfn
Washington
Wlnnlpeg
-2 hálfslcýjað
0 skýjað
-3 skýjað
-27 helðsklrt
-1 skýjað
-6 rennlngur
6 rígnlng vantar
-11 skýjað
-14 hálfskýjað
2 skýjað
14 hálfskýjað
S skýjað
12 léttskýjað
11 láttskýjað
0 snjókoma
2 skýjað
4 láttskýjað
3 þokumóða
S skýjað vantar
19 skýjað
6 Mttskýjað
8 heiðsklrt
2 skúr
8 helðsklrt
13 léttskýjað
1S skýjað
16 alskýjað
-2 alskýjað
-2 léttskýjað
7 skýjað
18 léttskýjað
6 skýjað
-2 mlstur
-7 alskýjað
Innheimta
afnotagjalda
RÚV kærð
KONA í Reykjavík hefur kært
innheimtu á afnotagjöldum
Ríkisútvarpsins til rannsóknar-
lögreglu rikisins og óskað eftir
opinberri rannsókn á málinu.
í bréfi sem lögmaður konunnar,
Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður,
sendi rannsóknarlögreglu ríkisins á
mánudag kemur fram, að konan
telur skuldir sínar vegna afnota-
gjalda til Ríkisútvarpsins sendar
andstætt skýrum lagaákvæðum til
inriheimtu hjá lögmanni í
Reykjavík. Nefnt er dæmi um skuld
vegna afnotagjalda að fjárhæð kr.
2.928. Konan greiddi skuldina sam-
kvæmt kröfu lögmannsins í júlílok
1983 og var fjárhæðin þá 8.658
krónur. Var þó höfuðstóll skuldar-
innar, þ.e. 2.928 krónur með 10%
innheimtuálagi eftir gjalddaga.
Álagið sem lagt er á hjá umræddum
lögmanni er kr. 5.730 eða 196%
álag. Þar af er vaxtataka kr. 2.090
eða yfir 71% vextir, sem Jón Odds-
son segir í bréfi sínu að sé fjarri
að standist.
Jón segir að samkvæmt 20. grein
útvarpslaga nr. 19/1971 orki
tvímælis hvort Ríkisútvarpið hafi
heimild til að taka dráttarvexti. Um
sé að ræða kröfur er hafa lögveðs-
og lögtaksrétt og því aðfararhæfar
kröfur og í því sambandi óheirnilt
að taka innheimtuþóknanir sam-
kvæmt gjaldskrá Lögmannafélags
íslands eða annan kostnað á þann
hátt. Konan telur sig ekki hafa
fengið tilkynningu eða vitneskju um
lögtak eða aðrar opinberar aðgerð-
ir, enda komi fram á kvittun að
endurrit lögtaks liggi ekki fyrir og
sé sú gjaldtaka öll óréttmæt og
hreint lögbrot.
Jón Oddsson segir að þegar hann
hafi verið ráðgjafi f.h. Ríkisútvarps-
ins við samningu lagafrumvarps til
útvarpslaga hafi verið litið til þess
að innheimtan yrði hvorki Ríkisút-
varpinu né skuldurum þess kostnað-
arsöm, enda eigi skuldarar rétt á
því, að ódýrasta leiðin sé valin til
innheimtu vanskila og því óheimilt
að hrúga upp óþarfa kostnaði til
óþurftar. Allur óþarfa kostnaður
stangist á við réttarvemd hins al-
menna borgara og eigi það ekki
síst við þegar um er að ræða al-
menna innheimtu opinberrar stofn-
unar.
Kröfur konunnar eru að opinber
rannsókn fari fram á máli hennar
og kærir hún jafnframt til refsing-
ar. Hún gerir þær fjárkröfur, að
Ríkisútvarpinu og lögmanninum
verði gert að endurgreiða sér hinar
ólögmætu álögur og kröfur ásamt
dráttarvöxtum frá því hún þurfti
að greiða þær til greiðsludags,
ásamt innheimtukostnaði sam-
kvæmt gjaldskrá Lögmannafélags
íslands.
Hastingsmótið:
Margeir á jafnteflislega-
biðskák við Mestel
SKÁK Margeirs Péturssonar og
Englendingsins Mestel í 8. um-
ferð skákmótsins í Hastings fór
í bið gær eftir 42 leiki og þykir
jafnteflisleg. Mikið var um bið-
skákir í gær og er staðan óljós
á mótinu af þeim sökum.
Það bar helst til tíðinda í um-
ferðinni í gær að efsti maður
mótsins Lpjutan frá Sovétríkjunum
tapaði fyrir Large frá Bretlandi,
sem var í neðsta sætinu. Skákir
Chandlers og Adoijan og Larsens
og Kudrins fóru í bið og hefur Lars-
en unna stöðu, en fyrri skákin er
jafnteflisleg.
Margeir tapaði á mánudag fyrir
Speelman frá Englandi Mótið er nú
rúmlega hálfnað og í efstá sæti er
Lputjan frá Sovétríkjunum með 5
vinninga. Næstir koma Chandler
frá Englandi með fjóra og hálfan
vinning og tvær biðskákir og Bent
Larsen með 4 vinninga og einnig
með tvær biðskákir, þar af jafnte-
flislega biðskák við Chandlér.
Frídagur verður á mótinu í dag og
9. umferð verður tefld á fímmtudag.
Braust inn á barnaheimili
UNG kona var handtekin að-
faranótt sunnudagsins við
barnaheimilið á Mánagötu, en
þar reyndi hún að komast inn til
að ná í dóttur sfna.
Konan var fyrir nokkru svipt
yfírráðum yfir dóttur sinni, sem var
komið fyrir á vistheimilinu. Um kl.
4.30 aðfaranótt sunnudags var lög-
reglan kvödd á staðinn. Þá hafði
konan barið þar drukkin að dyrum
og sagst vera að ná í dóttur sína.
Þegar henni var synjað inngöngu
braut hún rúðu í útidyrum og skarst
við það á hendi. Lögreglan tók kon-
una í sína vörslu og var hún þá
alblóðug. Konan hefur verið nokkuð
í fréttum að undanfömu vegna þess
að hún er haldin sjúkdómnum eyðni.
Keflavík:
Samkomulag við sjúkraliða
Keflavík.
SAMKOMULAG náðist í launa-
deilu sjúkraliða við sjúkrahúsið
í Keflavík aðeins einum degi áð-
ur en uppsagnir þeirra fyrr-
nefndu áttu að taka gildi.
Sjúkraliðar höfðu sagt upp störf-
um og voru tilbúnir að ganga út
1. janúar ef ekki næðist samkomu-
lag um bætt launakjör. Menn voru
því að búa sig undir fækkun í starfs-
liði þegar skyndilega rofaði til hjá
deiluaðilum og nýr samningur var
gerður.
Samkvæmt nýja samkomulaginu
fá sjúkraliðar hækkun um einn
launaflokk frá 1. febrúar 1986 og
aftur um annan flokk frá 1. sept-
ember 1986 og verða þá í 64.
launaflokki. Helstu rök sjúkralið-
anna fyrir launahækkuninni voru
mikið álag í starfí og nefndu þeir
í því sambandi hjúkrun aldraða sem
í dag væri orðin að mestu þeirra
starf.
Enn fremur eru ákvæði í samn-
ingnum um að sjúkraliðar dragist
ekki aftur úr í launakjörum og hafí
sambæriieg kjör og sjúkraliðar er
starfa í sjúkrahúsunum á Akranesi,
á Akureyri og á Neskaupstað.
- BB
V