Morgunblaðið - 07.01.1987, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.01.1987, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 Staldrað við um áramót Stykkishólmi. Á NÝJU ári grennsLiðist ég nokk- uð fyrir um einstaka þætti í hinu almenna lífi hér í bæ og ræddi við ýmsa á þessum áfanga. Bar öllum saman um að árið 1986 hefði verið farsælt. Verslunin hefír verið góð, þótt í ríkara mæli hafi verið leitað á vit stórmarkaða höfuðborgarinnar, enda segir það sig sjálft, að það er erfitt fyrir landsbyggðarverslanir að keppa þar við, því verða lands- byggðarmenn að skilja, að þeir efla innviði byggðar með því að standa vörð um innanbyggðarverslun. Áramótin voru friðsæl og ekki vitað um nein slys. Lögreglumönn- um bar saman um að meira hefði verið um óhöpp og slys og árekstra á árinu 1986 en 1985. Mætti líka geta þess að bifreiðaeign væri meiri á sl. ári en áður. Þeir hefðu gert sitt besta til leiðbeiningar í umferð og með því átaki sem boðað væri nú mætti búast við batnandi um- ferð. Mikið vantaði á að vegakerfið væri komið í gott horf, vegir sums staðar mjög varasamir og hefðu þar orðið alvarleg slys og dauðsföll. Um ölvun við akstur hefðu kærðir orðið eins margir og 1985, og væri nú hert á eftirliti. Það skemmtilegasta í starfínu hafí verið að geta aðstoð- að fólk við ýmsar aðstæður. Það erfiðasta og um leið sorgleg- asta, sem þeir hefðu orðið þátttak- endur í, væri ekki efamál að það var hið hörmulega slys í mars í Ljósufjöllum þegar flugvélin frá ísafírði fórst í fárviðri. Viðureignin við að koma mönnunum til hjálpar hefði verið mjög erfíð. Við þær að- stæður sem þeir hefðu barist mætti segja að sá sigur sem vannst hefði verið ánægjulegur. En þetta atvik gleymist ekki, sagði lögregluþjónn- inn. Sjómennimir sem ég ræddi við voru ánægðir með síðasta ár og horfa vongúðir til næstu ára. Iðnað- ur er í sókn og framtíð hans er framtíð þjóðar, nátengt. Þetta voru orð eins iðnaðarmanns í viðtali við mig. En allar greinar atvinnulífs byggjast hver á annarri. Og vissu- lega er margt til í því. í Stykkishólmi er ekki landbúnaður lengur og á síðustu 40 árum hefír þeim farið fækkandi ár frá ári sem gerðu hann sér að atvinnu. Þó mun eitthvað smávegis vera eftir hér í hreppnum. Prentsmiðja þeirra St. Fransisk- ussystra hefir haft næg verkefni á sl. ári og vinnur mikið fyrir atvinnu- reksturinn og hið opinbera og öll vinna þeirra til fyrirmyndar. — Arni JASSUALIJHT Þið sem strengduð heit um þessi áramót á þann veg að hreyfing og hollir iifnaðarhættir sætu í fyrirrúmi ættuð að athuga það að jassballett er skemmtileg og fa/leg íþrótt sem allir geta lært og haft gaman af. Nu hafa allar stelpur og strákar 5 ara og eldrl kost a þvi að faraj jassballett. ) fyrlr Þ* u komnir■ ■erkennir.i Innritun er hafin í símum: 68-77-01 og 68-78-01 frá kl. 13-17 Kennslahefst 12. janúar og afhending skirteina er laugard. 10. janúar. I/ISA - EUROCARD. r;.:Í 1 SÓLEYJAR Engjateigi I . simar 687701 og 687801. Jón Leifs, tónskáld. Elzbieta Zajac-Wiedner, píanó- leikari. Páll P. Pálsson, hijómsveitar- stjóri. Sinfóníuhlj óms veitin af stað eftir jólaleyfi SJÖUNDU áskriftartónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands í vetur og hinir næst síðustu á fyrra misseri starfsársins verða í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 8. janúar. Flutt verða þijú verk, eftir Jón Leifs, Karol Szymanowski og Alexander Borodin. Einleikari verður pólski píanóleikarinn Elz- bieta Zajac-Wiedner og sljórn- andi Páll P. Pálsson. Fyrst á efnisskránni verða Þijú óhlutræn málverk, eftir Jón Leifs. Verk þetta samdi tónskáldið á árun- um 1955 til 1960. Annað verkið er Symphonie Concertante fyrir píanó og hljóm- sveit, op. 60 eftir Karol Szymanowski, en þetta verk tileinkaði tónskáldið vini sínum, píanósnillingnum Arth- ur Rubinstein. Einleikari í þessu verki verður pólski píanóleikarinn Elzbieta Zajac-Wiedner. Hún er nú kennari við Tónlistarháskólann í Vínarborg og hefur hlotið margvís- lega viðurkenningu fyrir píanóleik sinn. Síðasta verkið á efnisskrá Sin- fóníunnar að þessu sinni er Sinfónía nr. 2 í h-moll eftir rússneska tón- skáldið Alexander Borodin. Þessi sinfónía er meðal þekktustu verka tónskáldsins og það verka hans sem oftast er flutt á Vesturlöndum. Stjómandi Sinfóníuhljómsveitar- innar að þessu sinni verður Páll P. Pálsson. Páll er fæddur í Aust- urríki, en hefur fyrir löngu öðlast islenskan ríkisborgararétt og er íslenskt tónskáld og hljómsveitar- stjóri. Hann lauk komungur námi við Tónlistarskólann í Graz og flutt- ist hingað til lands rúmlega tvítug- ur. Frá 1971 hefur hann verið fastráðinn stjómandi Sinfóníunnar og hefur stjómað að jafnaði tvenn- um eða þrennum áskriftartónleik- um í Reykjavík á hveiju starfsári, auk margra skólatónleika. Hann hefur ennfremur stjómað sveitinni á tónleikaferðum innan lands og utan. Forskólanemendur spiluðu á blokkflautur og ásláttarhyóðfæri. Horgunblaðið/Kr.Ben. Lúðrasveit Tónlistarskólans í Grindavfk leikur á jólatónleikunum undir stjórn Jóns Hjaltasonar skóla- stjóra skólans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.