Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
17
Andvari kominn út
Ný námskeið Ætt-
fræðiþj ónustunnar
ÚT ER komið nýtt hefti af And-
vara, riti Hins íslenska þjóðvina-
félags. Þetta er 111. ár ritsins,
sem stofnað var árið 1874, en
28. árgangur þess í núverandi
formi, sem upp var tekið árið
1959. Andvari mun vera næst-
elsta rit í landinu sem enn kemur
út og er Skírnir einn eldri. Nú-
verandi ritstjóri er Gunnar
Stefánsson.
Meginefni Andvara hefur um
langt skeið verið æviágrip einhvers
forustumanna í íslensku þjóðlífí,
stjómmálaleiðtoga eða menningar-
frömuðar. Að þessu sinni ritar
Gunnar G. Schram prófessor og
alþingismaður um Gunnar Thor-
oddsen, alþingismann, borgarstjóra
og loks forsætisráðherra. Aðrar
greinar í ritinu em þessar: Andrés
Bjömsson fjallar um skáldskap Jóns
Helgasonar. Jónas Kristjánsson og
Hjálmar Sveinsson rita um Sigurð
Nordal. Gunnar Kristjánsson birtir
grein um trúarleg minni í ljóðum
Snorra Hjartarsonar. Þá er grein
eftir Áma Siguijónsson sem nefnist
Bjartur og sveitasælan. Gunnar
Stefánsson birtir grein um sögur
Indriða G. Þorsteinssonar. Þá er
ritgerð eftir Aðalgeir Kristjánsson
um Gísla Brynjúlfsson skáld og
tímarit hans Norðurfara. Hannes
Jónsson á ritgerð um utanríkis-
stefnu íslands og mótun hennar og
loks ritar Gils Guðmundsson um
ritsafn Vilmundar Jónssonar land-
læknis.
Skáldskapur er einnig í Andvara:
Ljóð eftir Jón úr Vör, Smásaga
1931 eftir Kristján Karlsson og
smásaga íþætt ljóðum eftir Matt-
hías Johannessen.
Andvari er rúmlega 170 síður.
Ritið er prentað hjá Leiftri, en út-
gáfu og dreifingu annast Bókaút-
gáfa Menningarsjóðs.
(Fréttatilkynning)
BRÁ'TT hefjast ný ættfræðinám-
skeið í Reykjavík á vegum
Ættfræðiþjónustunnar. Markmið
námskeiðanna er að gera menn
færa um að rekja ættir sínar og
annarra af öryggi og kunnáttu-
semi, með notkun aðgengilegra
heimilda.
Boðið verður upp á 8 vikna
grunnnámskeið, eins og þau sem
haldin vom fyrir sjö námshópa á
fyrri hluta vetrar, og einnig 4-5
vikna framhaldsnámskeið. Fjöldi
þátttakenda verður takmarkaður í
hverjum hóp. Gera má ráð fyrir,
að fyrstu námskeiðin hefjist í næstu
viku. Skráning fer fram hjá for-
stöðumanni.
Kennslan fer að hluta fram í fyr-
irlestrum, en umfram allt í rann-
sóknum frumheimilda um ættir
þátttakenda sjálfra. Leiðbeint verð-
ur um ættfræðileg vinnubrögð,
heimildimar, gildi þeirra og með-
ferð, hjálpargreinar ættfræðinnar,
aðferðir við samantekt ættartölu
og niðjatals, uppsetningu osfrv. Eru
þátttakendum útveguð þau frum-
gögn, sem til þarf, s.s. ættartré,
margvíslegar heimildaskrár og aðr-
ar leiðbeiningar. Gagnasafn og
tækjabúnaður Ættfræðiþjón-
ustunnar hefur verið stóraukinn
síðan í haust, og í ráði er að hefja
útgáfu ættfræðiverka á þessu ári.
(Fréttatilkynning)
Fasteigna-
gjöld hækka
um 35 prósent
^ Blönduósi.
Á FUNDI hreppsnefndar
Blönduóss 30. desember var sam-
þykkt af meirihluta hrepps-
nefndar að hækka fasteignagjöld
um tæp 35%. Tillaga sjálfstæðis-
manna um 26% hækkun þeirra
var felld.
Tillaga vinstri manna gengur út
að hækka álagningarprósentu fas-
teignaskattsins um 16% hjá ein-
staklingum og 4% á atvinnuhús-
næði. Meðalhækkun á
fasteignamati íbúðarhúsnæðis er
22%, en á atvinnuhúsnæði 33%.
Tillaga sjálfstæðismanna gekk
út á óbreytta álagningarprósentu
en verulega hækkun á gjaldi fyrir
sorpeyðingu þannig að hún stæði
undir sér. Með þessari hækkun fast-
eignagjalda hefur hreppsnefndin
nýtt til fulls heimild í lögum til fast-
eignaskatts á atvinnuhúsnæði.
Jón Sig.
Landfræðing-
ar stofna félag
STOFNFUNDUR Félags land-
fræðinga var haldinn 5. nóvemb-
er sl. í menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg. Alls mættu 19 manns
á stofnfundinn en rétt til inn-
göngu í félagið hafa allir útskrif-
aðir landfræðingar með BS-próf
eða sambærilega menntun.
Markmið félagsins eru: 1. Að
starfa sameiginlega að eflingu
fræðigreinarinnar landfræði, meðal
annars með stuðningi við Land-
fræðifélagið. 2. Að efla samvinnu
félagsmanna. 3. Að standa vörð um
hagsmunamál og réttindi land-
fræðinga, meðal annars varðandi
kaup og kjör.
Ifyrsta stjóm félagsins var kosin
á fundinum og skipa hana Þorvald-
ur Bragason formaður, Elín Erl-
ingsdóttir ritari og Ásta Urbancic
gjaldkeri.
Fyrsti fundur félagsins verður
haldinn fimmtudaginn 8. janúar kl.
19.30 í veitingasalnum Litlu-
Brekku í Bankastræti.
Fyrirlestur
hjá Geðhjálp
GEÐHJÁLP heldur fyrirlestur
fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30.
Ævar Kvaran flytur erindi um
Andlegan stuðning. Fyrirlesturinn
hefst eins og áður segir kl. 20.30
á geðdeild Landspítalans, í kennslu-
stofu á 3. hæð. Fyrirspumir,
umræður og kaffi verða eftir fyrir-
lesturinn. Allir em velkomnir.
Aðgangur er ókeypis.
. (Fr éttatilky nning)
. OG MALIÐ ER LEYST!
IKennt
fyrir útlendinga
Siðdegistímar kl 13_1 c- ' 22.35.
enska
þyska
FRANSKA
SPÆNSKA
ITALSKA
ISLENSKA
fyrir
ENSKUSKOLI
n .St*röiræö>
, Enska • 00_1S.'20 -
.; “ með roMa reynslu
Rituð
ENSKA/ÞYSKA
Átt þú erfitt með að
sKrifa ensku eða þýslcu?
26. janúar hefst 10
vikna námskeið. Kennt
verður einu sinni 1 vikú,
tvo klukkutíma í senn.
Z/ l
Upplýsingar
12 V I K N
N Á M S K E I
H E F J A S
19. JANÚA
Enskuskóli æskunnar er
fyrir bðrn á aldrinum
8-13 ára og þeim er skip
í hópa eftir kunnáttu.
Skólinn er starfræktur í
BREIÐHOLTI,
VESTURBÆ OG
Já HAFNARFIRÐI
ÆSKUNNAR
MÁLASKÓIJ
RÍTÁRASKÓLl