Morgunblaðið - 07.01.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
19
Opinber rannsókn á bók-
haldi Helgarpóstsins?
Standast eigendur blaðsins prófið?
eftir Kristján
Þorgeirsson
Á nýliðnu ári gætti í fjölmiðlum
hér á landi harðari og óvægnari
stefnu í umfjöllun um menn og
málefni en þekkst hefur áður.
Stefna þessi hefur oftast verið
mörkuð í nafni svokallaðrar rann-
sóknarblaðamennsku og fjölmiðla-
siðferðis. Þjóðkirkjan og stofnanir
hennar hafa ekki farið varhluta af
þessum vinnubrögðum en einkum á
þar í hlut Hjálparstofnun kirkjunnar
sem varð fyrir miklum áföllum á
síðastliðnu hausti eftir að Helgar-
pósturinn hóf vægðarlausa gagn-
rýni á starfsfólk og starfsemi
stofnunarinnar og krafðist opin-
berrar rannsóknar sem og varð
eins og kunnugt er. Blaðið taldi að
um grundvallarsiðferðismál væri að
ræða sem upplýsa þyrfti fyrir opn-
um tjöldum því almenningur ætti
heimtingu á því. Ég er ekki að deila
um það.
En enginn veit sína ævina fyrr
en öll er og nokkrum vikum eftir
að Helgarpósturinn hafði heimtað
opinbera rannsókn á Hjálparstofn-
un kirkjunnar flæktist hann sjálfur
í hið versta hneykslismál eins og
landsmönnum er í fersku minni.
Það var rétt fyrir jólahátíð að end-
anlega komst upp um strákinn
Tuma, Ingólf Margeirsson fyrrver-
andi ritstjóra Helgarpóstsins, þegar
Ragnar Kjartansson fyrrum stjóm-
arformaður Hafskips hf. sannaði á
hann ósannindi frammi fyrir alþjóð
og að hann hafi þegið skattfijálsar
gjafír frá Hafskip hf. og komið með
tilbúinn auglýsingareikning í stað-
inn frá Helgarpóstinum. í framhaldi
Helgarpógturinn:
Ný stjórn og hluta-
fé aukið í 6 millj.
Nt OTJÓRN tu kMáa (khrtidókr tatli
ira Gatgá, ttftlkfdagi Haigar aoai
á aáalhiBdi fHagriu mi ata
rate. U« » w faw.
tnttuga
a* afafa lafáir* Margeira-
laoara rMMjára biaáail
* jafafraait á soti i mjkrm fáiaga-1
kkrtafá fáiagdaa aaUI ár 2,4 adity
áaaai f ari og «ra Uatkalkr ai aai
Formaftur nýju ftjórnarinnar ar
Róbsrt Arni Hreiftaraaon, hdl., og
varaformaftur Giall Guftmundaaon,
framkvaamdaatjórl Bifreifta on
iandbúnaftarvála. Auk þeirra
tveggja og Ingólfa Margeiraaonar
aitja i atjórninni þeir Arni Samú-
elaaon, foratjóri Bióhaliarlnnar,
Ami Anderaen, prentari, Gunnar
Hilmar Hlnrfkaaon, atarfamaftur
Helgarpóataina, og Þóroddur Stef-
ánaaon, framkvnmdaatjóri Sjón-
varpabúðarinnar.
Meirihlutl hlutafjár Goðgár hf.
mun enn vera i eigu atarfamanna
Helgarpóatalna, eina og nvinlega
hefur verift i útgáfufélagi blaftaina.
Blaðaúrklippa þessi er frétt frá í desember 1985 um aðalfund og
stjórnarkjör hjá Goðgá hf., sem er útgáfufélag Helgarpóstsins.
af þessu sagði Ingólfur Margeirsson
af sér sem ritstjóri Helgarpóstsins
og er óhætt að segja að fall Ingólfs
hafí vakið þjóðarathygli.
En er málið þar með búið? Ekki
getur það verið þegar litið er til
hinnar hörðu stefnu Helgar-
póstsins gagnvart því að upplýsa
hneykslismál fyrir opnum tjöld-
um. Það hlýtur að gilda það sama
Mataruppskriftabók
frá Miðausturlöndum
Erlendar baekur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Claudia Roden: A New Book of
Middle Eastern Food
Útg. Penguin 1986
Áhugi á matargerðarlist eykst
hér sem víða annars staðar. Nú er
ekki bara soðin ýsa og flot eða
hefðbundinn sunnudagshryggur.
Okkur þykir mörgum gaman að
þreifa okkur áfram að nýta hráef-
nið á sem fjölbreytilegasta hátt. Það
er að mínum dómi allt til bóta og
til þess fallið að gera matartilbún-
ing langtum skemmtilegri. Með æ
meiri ferðalögum kynnast menn
einnig matargerðarlist annarra og
oft er gaman að prófa að útbúa
þessa framandlegu rétti, þegar
heim kemur. Þessi bók Claudiu
Roden er til hins mesta gagns og
gamans hvaö það snertir.
Hefðir í mat spegla fleira en
matarlystina hjá viðkomandi. Þær
birta einnig þjóðfélagsmynd og
segja sögu um smekk, ilman og til-
finningu. Matargerð í Miðausturl-
öndum er að sjálfsögðu ekki alls
staðar eins. En margt er þjóðunum
þó sameiginlegt á þessu sviði. Þeg-
ar að er gáð má trúlega segja, að
flest í matargerð þessa heimshluta
verði rakið til Tyrklands, Sýrlands
og Persíu, sem var. Matarsmekkur
fólks á þessum svæðum dregur dám
af trúarsiðum í ríkara mæli en í
Evrópulöndum. Yfírgnæfandi
meirihluta íbúa í Miðausturlöndum
neytir til dæmis ekki svínakjöts af
trúarástæðum. I matargerð Mið-
austurlandafólks er lambakjöt
langsamlega algengasta hráefnið.
Svo að við ættum ekki að vera í
vandræðum með uppskriftir úr
þessari bók. Til dæmis nefni ég
hinn fræga lambakjötsrétt, kúskus,
um þá sjálfa og þeir hafa krafíst
að giiti um aðra eins og Hjálpar-
stofnun kirkjunnar og fleiri. Ég er
í hópi hinna fjölmörgu sem beðið
hafa allt frá afsögn Ingólfs eftir
yfírlýsingu frá stjóm og eigendum
Helgarpóstsins um að þeir óski eft-
ir opinberri rannsókn á bókhaldi
blaðsins sem leiði í ljós hvort aug-
lýsingareikningaútgáfa Ingólfs til
Hafskips hafí verið einsdæmi. Fólk
spyr nú vitanlega hvort þessi leikur
hafí ekki verið leikinn oftar og
gagnvart fleiri fyrirtækjum? Var
Ingólfur eini starfsmaðurinn/ eig-
andinn sem stundaði reikningaút-
gáfu af þessu tagi? Léku e.t.v. fleiri
starfsmenn, stjómarmenn eða eig-
endur blaðsins sama leikinn? Og
þá hvenær, gagnvart hvaða fyrir-
tækjum og í hvaða mæli? Fólk veltir
því líka fyrir sér hvemig auglýs-
ingareikningur Ingólfs Margeirs-
sonar til Hafskips hf. var færður í
bókhaldi Helgarpóstsins. Fram kom
á ljósriti sem birtist af honum í
Morgunblaðinu að reikningurinn er
nr. 1305 og því hluti af númeruðum
reikningum fyrirtækisins. Hvemig
getur það komið heim og saman
við bókhald og skattauppgjör blaðs-
ins árið 1983?
Það er ekki skiýtið að fólk velti
þessum spumingum fyrir sér því
hér gæti verið á ferð bókhaldslaga-
og skattalagabrot hjá útgáfufyrir-
tæki Helgarpóstsins til viðbótar við
áður upplýst skjalafals og persónu-
legt skattalagabrot Ingólfs Mar-
geirssonar fyrrverandi ritstjóra
Helgarpóstsins. Hér verður að taka
af öll tvímæli og hreinsa andrúms-
loftið. Stjóm Helgarpóstsins
verður að óska eftir opinberri
rannsókn til að upplýsa allt í
þessu máli og öðrum skyldum
málum hjá blaðinu ef til staðar
era. Hér er um svo alvarlegt mál
að ræða fyrir fjölmiðil með harða
stefnu í siðferðismálum að ekki er
hægt að bjóða upp á óvissu og að-
gerðarleysi þegar fjölda brennandi
spuminga er ósvarað. Það er engin
goðgá að segja að almenningur eigi
heimtingu á að öllum þessum spum-
ingum verði svarað fyrir opnum
tjöidum og það án ástæðulausrar
tafar.
Sú krafa hlýtur að vera gerð til
a.m.k. lögfræðinganna í stjóm út-
gáfufélags Helgarpóstsins að þeir
vilji ekki una við margar ósvaraðar
spumingar sem snúa að hugsanleg-
um lögbrotum hjá blaðinu. Og í
anda blaðsins sjálfs hlýtur
krafan að vera sú að slík rann-
sókn fari fram fyrir opnum
tjöldum. Stjómarformaður Helgar-
póstsins er þekktur lögfræðingur
og fasteignasali, Róbert Arai
Hreiðarsson. Varaformaðurinn er
líka lögfræðingur, Gísli Guð-
mundsson forstjóri Bifreiða og
landbúnaðarvéla hf. Aðrir í stjóm-
inni eru Arai Samúelsson forstjórí
sem margir þekkja, hér eru nokkrar
frábærar útgáfur af honum. Sömu-
leiðis sjiskebabið af ýmsum gerðum.
Claudia Roden vekur athygli okk-
ar á því, að matargerð í Miðausturl-
öndum er ekki flókin og krefst ekki
mikils tíma eða að við séum stöðugt
að hræra í pottunum og fylgjast
með því, að ekkert brenni við. Flest
má sumsé malla lengur en gefið er
upp. Og hér eru ekki sams konar
hefðir í skreytingum og smátil-
standi og er einatt í Austurlöndum
fjær. Hráefni er heldur ekki mjög
dýrt og nú til dags fæst sjálfsagt
allt það krydd, sem til þarf. Clau-
dia Roden hefur sent frá sér
nokkrar bækur aðrar um matar-
gerðarlist þessa heimshluta. Þær
þekki ég ekki, en finnst sú sem hér
um ræðir afskaplega þægileg og
uppskriftir auðveldar. Höfundur er
sephardim gyðingur frá Egyptl-
andi. Hún er nú búsett í Englandi.
Dömur og herrar:
Nú drífið þið
ykkur í leikfimi!
Tímarvið allra hæfi
5 vikna námskeið
byrjar 12. janúar
Leikfimi fyrir konur á öllum
aldri.
Hressandi. mýkjandi. styrkj-
andi ásamt megrandi
æfinaum.
mtmam § -
Bjóðum einnig eldhressa
eróbikktíma
Karlmenn
Hinir vinsælu herratimar eru
í hádeginu.
Þarftu að missa
15 kíló?
Sértímar fyrir konur sem vilja
léttast unr 15 kg eða meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og
þær sem eru slæmar í baki eða
þjást af vöðvabólgum.
Frábær aðstaða
Ljósalampar, nýinnréttuð
gufuböð og sturtur. Kaffi og
sjónvarp í heimilislegri setu-
stofu.
Kristján Þorgeirsson
„En er málíð þar með
búið? Ekki getur það
verið þegarlitið er til
hinnar hörðu stefnu
Helgarpóstsins gagn-
vart því að upplýsa
hneykslismál fyrir opn-
um tjöldum. Það hlýtur
að gilda það sama um
þá sjálfa og þeir hafa
krafist að gilti um aðra
eins og Hjálparstofnun
kirkjunnar og fleiri.“
Bíóhallarinnar, Þóroddur Stefáns-
son sem er kunnur athafnamaður
kenndur við Sjónvarpsbúðina,
Andersen prentari og Gunn-
ar Hilmir Hinriksson starfsmaður
blaðsins. Ingólfur Margeirsson átti
sæti í stjóminni og hefur væntan-
lega sagt af sér um leið og hann
lét af ritstjóm. Meðal annarra hlut-
hafa má nefna Rolf Johansen
stórkaupmann, Þóri Lárusson raf-
virkjameistara og svo nokkra
starfsmenn blaðsins.
Helgarpósturinn hefur verið
kröfuharður við aðra. Nú reynir á
stjóm blaðsins og eigendur við að
upplýsa almenning um meint lög-
brot fyrirtækisins því menn og
fjölmiðlar verða að vera sjálfum sér
samkvæmir ef þeir eiga að geta
gert sér vonir um að vera teknir
alvarlega. Standast þeir prófíð?
Höfundur á aæti í kirkjuráði
íslensku þjóðkirkjunnar.
SOáráí
, 1957-1987 (
Brautryðjendur
Júdódeild Ármanns, sem
verður 30 ára á þessu ári, er
brautryðjandi i frúarleikfimi.
Mörg hundruð, ef ekki þús-
undir kvenna, hafa tekið þátt
i starfi okkar-viltu ekki slást
í hópinn? Fyrsti prufutíminn
ókeypis.
Innritun Wtk
og frekari upplýsingar
alla virka daga frá kl.
13-22 i síma
83295
JúdódeildÁrmanns
Ármúla 32.