Morgunblaðið - 07.01.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
25
Uppreisn og átök
í skosku fangelsi
Glasgow, AP. *
TUTTUGU og- fjórir fangar í
Barlinnie-fangelsinu í Glasgow í
Skotlandi komu sér í gær fyrir
uppi á þaki byggingarinnar og
grýttu þaðan fangaverði með
flöskum og öðru lauslegu. 34
fangaverðir meiddust i átökun-
um en enginn alvarlega.
í tilkynningu frá Skotlandsmála-
skrifstofunni, sem fer m.a. með
stjóm fangelsismála í landinu,
sagði, að óvopnaðir fangaverðir
hefðu reynt að hjálpa um 40 félög-
um sínum, sem fangamir höfðu
lokað inni í einni fangelsisálmunni,
en orðið frá að hverfa í fyrstu und-
an flöskuhríðinni ofan af þakinu.
Síðan hefði tekist að leysa alla verð-
ina nema 14.
í Barlinnie-fangelsinu em 1200
fangar, en eins og fyrr segir tóku
aðeins 24 þátt í þessari uppreisn.
Neituðu þeir að ræða við fangelsis-
yfírvöld fyrr en þeim hefði verið
heitið rannsókn á „ofbeldisfullri
framkomu" sumra fangavarðanna
og því til áréttingar settu þeir upp
stóran borða, sem á stóð: „Gallag-
her er ofbeldi". Heitir fangelsis-
stjórinn Andrew Gallagher.
Ekki hafði verið orðið við kröfum
fanganna seint í gær og virtist sem
fangelsisyfírvöldin ætluðu að bíða
þess, að vetrarkuldinn og vosbúðin
á þakinu kæmu fyrir þá vitinu.
Öflug sprenging í
slj órnar skrifstofu
m Prag, AP.
ÖFLUG sprenging varð snemma
í gærmorgun í aðalstöðvum
tékkneska áætlanaráðsins í
Prag. Er það haft eftir vitnum,
að einn maður a.m.k. hafi látið
lífið og að annars sé saknað.
Fréttaritari AP-fréttastofunnar
hafði það eftir fólki, sem ekki vildi
láta nafns getið, að einn maður
hefði látist og sex slasast í spreng-
ingunni. Tékkneska ríkisfréttastof-
an CTK skýrði ekki frá sprenging-
unni fyrr en fimm stundum eftir
að hún varð og sagði þá, að gasleki
hefði valdið henni. Afgreiðslukona
í verslun skammt frá sagði hins
vegar, að í byggingu áætlanaráðs-
ins væri ekkert gas notað enda
hefði gasið ekki verið tekið af hverf-
inu eins og venja væri þegar
gassprenging yrði.
Ljóst er, að sprengingin varð í
framhluta byggingarinnar, sem
stendur á bakka Moldár, gegnt að-
alstöðvum kommúnistaflokksins á
hinum bakkanum.
Seint í október varð mikil spreng-
ing í bænum Ceske Budejovice í
Bæheimi. Var sprengju komið fyrir
í almenningsgarði, beint á móti
safni um sögu tékkneska kommún-
istaflokksins, og urðu á því miklar
skemmdir.
Reagan reiðist þing-
nefnd fyrir að
hafna bón sinni
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandarikja-
forseti lýsti í gær yfir reiði sinni
yfir því að leyniþjónustunefnd
öldungadeildar þingsins neitaði
að verða við bón hans um að birta
niðurstöður bráðabirgðarann-
sóknar á vopnasölumálinu.
„Við viljum að sannleikurinn og
staðreyndir málsins komi í ljós,“
sagði Larry Speakes, talsmaður
Bandaríkjaforseta í gær. „Og í þess-
ari skýrslu um niðurstöður bráða-
birgðarannsóknarinnar er að fínna
bestu greinargerð um málið til
þessa. Þar eru staðreyndir um mál-
ið, eiðsvarinn vitnirburður og svo
framvegis."
Nefndin samþykkti að birta ekki
árangur rannsóknar sinnar, sem
fram fór fyrir luktum dyrum, með
sjö atkvæðum gegn sex. Speakes
sagði að þessi ákvörðun nefndarinn-
ar hefði reitt Reagan, sem nú er á
Bethesda sjúkrahúsinu í Washing-
ton eftir uppskurð á blöðruhál-
skirili, til reiði.
Rebúblikanar eru í meirihluta í
nefndinni, en einn þeirra gekk til
liðs við demókrata og greiddi at-
kvæði gegn birtingu skýrslunnar.
Þeir sögðu að hún gæfi ranga og
ófullkomna mynd af hneykslinu,
sem nú skekur Hvíta húsið.
Robert Byrd, forseti öldunga-
deildarinnar, sagði að nefndin hefði
rasað um ráð fram hefði hún birt
skýrsluna. „Það hefði ekki verið í
þágu bandarísku þjóðarinnar vegna
þess að hún hefði fengið ófullgerða
mynd af málinu í hendur."
Byrd sagði einnig að skýrslan
myndi einnig hafa áhrif á þá sem
eftir eiga að rannsaka malið. Nokk-
ur lykilvitni í málinu neituðu að
vitna fyrir nefndinni, þ. á m. Oliver
FNorth, fyrrum starfsmaður þjóða-
röryggisráðsins, og John Poindext-
er, fyrrum öryggisráðgjafí.
Líbýsk herfluff-
vél skotin niður
N’Djamena, Reuter, AP.
YFIRVÖLD í Afríkuríkinu Chad
tilkynntu í gær, að líbýsk her-
þota hefði verið skotin niður á
mánudag, er Líbýumenn gerðu
loftárás á bæinn Fada í norð-
austur Chad. Herinn í Chad náði
bænum á sitt vald sl. föstudag
úr höndum líbýskra hermanna.
Efnt var til mikilla mótmælaað-
gerða gegn Líbýumönnum í höfuð-
borg Chad, N’Djamena í gær,
tveimur dögum eftir að fjórar sov-
étsmíðaðar MiG 23-herþotur gerðu
loftárásir á svæði sunnan við línu
þá er skipt hefur landinu milli
stjómar Chad og Líbýumanna.
Krafðist mannfjöldinn, er þátt tók
í aðgerðunum, þess, að Frakkar,
fyrrum nýlenduherrar í Chad, er
lofað hafa að veija landið sunnan
línunnar fyrrnefndu, berðust við
hlið hermanna frá Chad, eins og
íbúar Chad hefðu gert, er þeir börð-
ust í liði Frakka í heimsstyijöldinni
síðari.
22 Líbýumönnum, er handteknir
voru í bardögunum í síðustu viku,
var ekið um götur höfuðborgarinnar
og lét reiður mannfjöldinn dynja á
þeim svívirðingar, gijót og ýmislegt
lauslegt. Stjórnvöld segja að tug-
þúsundir manna hafi tekið þátt í
mótmælaaðgerðunum.
Fangar á þaki Barlinnie-fangelsisins í Glasgow. Þaðan létu þeir flöskum og öðru lauslegu rigna yfir
fangaverðina.
Aðalumboðid hf.
Eigum til fyrirliggjandi:
Wagoneer LTD 1986 m/öllu:
ss. 6 cyl. vökvastýri, litað gler, álfelgur, rafdrifnar rúð-
ur, rafdrifin sæti, 5 dyra, 6 Jensen-hátalarar, útvarp
og segulband, fjarstýrður hurðaopnari, veltistýri, sjálf-
virkur hraðastillir, sentrallæsingar, leðurklædd sæti,
loftkæling, toppgrind.
Sýningarbíll á staðnum.
Getum útvegað allar gerðir bíla eftir óskum hvers og eins.