Morgunblaðið - 07.01.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Leitað að
nýjum yfir-
manni CIA?
Washington, Reuter.
BANDARÍSKA sjónvarpsstöð-
in ABC greindi frá því á
mánudagskvöld að embættis-
menn í Hvita húsinu hefðu nú
hafið leit að nýjum yfirmanni
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA.
Núverandi formaður CIA, Will-
iam Casey, gekkst undir upp-
skurð vegna heilaæxlis fýrir
tveimur vikum og er ólíklegt að
hann geti snúið aftur til starfa.
í frétt ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar sagði að Casey væri með
meðvitund og gæti hugsað skýrt.
Aftur á móti gæti hann hvorki
talað, gengið, né stjómað hægra
hluta líkamans.
Haft var eftir embættismönn-
um að í Hvíta húsinu væri vonast
til þess að Ronald Reagan
Bandarílcjaforseti gæti lagt til-
lögu um eftirmann Caseys fyrir
öldungadeild Bandaríkjaþings
áður en hann heldur stefnuræðu
sína í lok mánaðarins.
í frétt sjónvarpsstöðvarinnar
kom ennfremur fram að Vemon
Walters, sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun-
um, Howard Baker, fyrrnrn
leiðtogi repúblikana í öldunga-
deildinni, og John Tower, fyrmrn
öldungadeildarþingmaður og
samningamaður í afvopnunar-
málum, komi helst til greina í
embættið.
í Hvíta húsinu fengust ekki
svör við því hvað hæft væri í
fréttinni utan hvað Larry Speak-
es, talsmaður Bandaríkjaforseta,
hefði þráfaldlega sagt að það
væri ekki á dagskrá að finna FORELDRAR eru bestu lestrar-
MacMillan borinn til grafar
Útför Harolds MacMilian, fymun forsætisráðherra Bretlands, fór fram á mánudag i St. Giles kirkj-
unni i Horsted Keynes á Englandi. Um 200 manns voru viðstaddir útförina, þeirra á meðal ýmsir
helztu stjórnmálamenn Breta fyrr og nú eins og Margaret Thatcher núverandi forsætisráðherra
og tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, þeir Douglas Home lávarður og Edward Heath.
Bresk rannsóknarskýrsla um lestrarkennslu:
Langheilladrýgst að
kenna börnunum heima
eftirmann Caseys.
kennarar, aem völ er á, ef marka
Vanunu með lófann á gluggarúðu lögreglubílsins. Þar stendur, að honum hafi verið rænt í Róm
30. september '86.
Vanunu farinn í
hungurverkfall
Tel Aviv, AP, Reuter.
MORDECHAI Vanunu, tækni-
fræðingurinn, sem sakaður er
um að hafa Ijóstrað upp kjarn-
orkuvopnaleyndarmálum ísra-
ela, hefur byrjað hungurverk-
fall til að mótmæla illri
meðferð í fangelsinu. Sagði
ísraelska dagblaðið Haaretz frá
þessu í gær.
„Það er komið fram við mig
eins og hund, ég er í algerri ein-
angrun í 23 stundir á sólarhring
og allt gert til að brjóta mig á
bak aftur," sagði Vanunu við for-
eldra sína og bróður, Asher
Vanunu, sem komu til hans í fang-
elsið sl. sunnudag. í viðtali við
Haaretz sagði Asher, að bróðir
sinn væri enginn njósnari, „aðeins
dálítið bamalegur maður, sem
vildi vinna þjóð sinni vel. Honum
fínnast leiðtogar þjóðarinnar
óheiðarlegir og var að reyna að
vekja athygli á því“.
Vanunu vann í tíu ár yið Dim-
ona-kjamorkustöðina í ísrael en
var sagt upp fyrir tveimur ámm
þegar starfsmönnum þar var
fækkað. í október birti breska
blaðið The Sunday Times þá frétt
og hafði eftir Vanunu, að í stöð-
inni hefðu verið smíðaðar á laun
alls um 200 kjamorkusprengjur.
Það gerir málið gegn honum dálí-
tið vandræðalegt fyrir stjómvöld,
að hann hafði alla tíð mikla sam-
úð með Palestínumönnum og fór
ekki í launkofa með það þann
tíma, sem hann starfaði í Dim-
ona. Finnst sumum, sem réttast
væri að lögsækja leyniþjónustuna
fyrir að hafa ekki staðið í stykk-
inu.
ísraelska leyniþjónustan hafði
hendur í hári Vanunus og var
fyrst talið, að honum hefði verið
rænt í London en sjálfum tókst
honum að upplýsa, að það hefði
gerst í Róm. Skrifaði hann þær
upplýsingar í lófa sér og sýndi
fréttamönnum þegar verið var að
flytja hann til réttarsalarins í Tel
Aviv.
má niðurstöður rannsóknar, sem
kynnt var á ráðstefnu í Bretlandi
nýlega. Fyrirlesarinn, dr. Jenny
Hewison, sálfræðikennari við
Leeds-háskóla, sagði m.a., að for-
eldrar, sem tækju með skipuleg-
um hætti þátt í lestrarnámi bama
sinna, gætu bókstaflega gjör-
breytt stöðu þeirra til hins betra,
ef við erfiðleika væri að etja.
Þá sagði hún, að engin áþreifan-
leg rök hefðu komið fram um,
að hjálparkennsla í skólum hefði
nein langtíma áhrif.
Samkvæmt fyrmefndri rann-
sókn, sem sagt er frá í breska
blaðinu The Independent fyrir
skömmu, er tvisvar sinnum líklegra,
að námsárangur bama, sem reglu-
lega njóta aðstoðar foreldra sinna
við lestramámið, verði fyrir ofan
meðallag á seinni helmingi grunn-
skólastigsins.
Það hefur verið háttur margra
kennara að hvetja foreldra til að
láta við það sitja að lesa fyrir böm
sín. Þar hefur valdið það viðhorf
kennaranna, að foreldrar, sem
hlýddu á bömin lesa og reyndu að
hjálpa þeim yfir erfiða hjalla, kynnu
að koma bömunum úr jafnvægi eða
rugla þau. Þar að auki mætti búast
við því, að foreldrar væru annað-
hvort of önnum kafnir við önnur
verkefni eða of sinnulausir til að
árapgurs væri að vænta.
Á áratugnum frá 1970-1980
gerðu þau dr. Hewison og Jack
Tizard, prófessor við háskólann í
London, tilraun í tveimur skólum í
Haringey-skólahverfinu í London,
en þar býr efnalítið fólk af mörgum
kynþáttum.
Sumir átta ára bekkjanna vom
látnir taka lestrarbækumar með sér
heim eftir skólatíma annan hvem
dag og foreldramir hvattir til að
hlusta á bömin lesa - og hjálpa
þeim með erfið orð, ef þurfa þætti.
Þegar bömin voru prófuð í lestri,
reyndist meira en helmingur þeirra
ná einkunnum fyrir ofan meðallag
í þessum aldursflokki.
í bekkjunum, sem ekki voru látn-
ir taka bækumar með sér heim, var
ástandið hins vegar óbreytt: tveir
þriðju nemendanna reyndust undir
meðallagi.
En það, sem vakti ef til vill enn
meiri athygli, var útkoman hjá
þriðja hópnum, sem naut hjálpar-
kennslu reynds kennara í skólanum,
og aðeins fáum kennt í senn. Eink-
unnir þeirra hækkuðu ekki miðað
við meðaltal skólahverfisins. Að
sögn dr. Hewison höfðu fleiri kann-
anir leitt til sömu niðurstöðu.
„En enn ríkir andstaða gegn
heimakennslu í lestri," sagði hún.
„Það er algengt, að bekkir séu ekki
látnir taka bækumar með sér heim,
af því að skólastjórar og kennarar
telja, að lestrarkennsla sé aðeins á
færi atvinnumanna; foreldrar muni
ætla bömunum um of og ýta þeim
út í ófæmr.
Dr. Hewison hefur rannsakað
lestrareinkunnir, sem Haringey-
bömin fengu á prófi, þegar þau
vom 11 ára gömul. í ljós kom, að
63,4% þeirra, sem tekið höfðu lestr-
arbækumar með sér heim þremur
ámm fyrr,- fengu einkunnir fyrir
ofan landsmeðaltal, en aðeins 36,2%
bamanna í hinum bekkjunum.
Evrópubandalagið:
Framlag til endumýj-
unar fiskveiðiflotans
BrUssel. Reuter.
FRAMKVÆMDANEFND Evr-
ópubandalagsins tilkynnti í gær
um 83 miRjóna dollara (rúmlega
3,3 milljarða ísl. kr.) framlag tii
endumýjunar á fiskveiðiflota
bandalagsins.
Nærri þriðjungi upphæðarinnar
var úthlutað til 137 verkefna á
Spáni, sem hefur á að skipa stærsta
en jafnframt aldurhnignasta físk-
veiðiflotanum af bandalagsríkjun-
um tólf.
Vemlegar upphæðir gengu enn
fremur til 136 verkefna á Ítalíu og
121 í Frakklandi.