Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
27
pT*
f
Harmleikur
í Baltimore
í gfær var vitað um 15 manns,
sem farizt höfðu í lestarslys-
inu við Baltimore í Banda-
ríkjunum um helgina. Að
auki slösuðust þar um 170
manns, þar af sumir mjög
alvarlega. Slysið varð með
þeim hætti, að farþegalest,
sem ekið var með 160 km
hraða, rakst á tvær eimreiðar
nærri Baltimore. Mynd þessi
sýnir, hvernig umhorfs var
eftir áreksturinn.
Hitler sveik
undan skatti
Frankfurt, AP.
ADOLF Hitler, sem alla tíð sagð-
ist ekki vera efnishyggjumaður,
varð rikasti maðurinn í Þýska-
landi þegar hann var við völd og
komst hjá öllum skattgreiðslum,
að þvf er segir í nýjasta hefti
þýska vikuritsins Quick.
Hitler skipaði embættismönnum að
strika álagða skatta hans út af opin-
berum skrám árið 1934 og mælti svo
fyrir um að honum bæri aldrei að
greiða skatta af tekjum eða eignum
sínum. Hann þáði hins vegar stórfé
frá þýskum iðnfyrirtækjum auk þess
sem hann fékk svimandi háar höfund-
argreiðslur fyrir sölu á bók hans
„Mein Kampf". Landsmönnum öllum
bar skylda til að lesa þá bók og brúð-
hjón fengu hana í gjöf frá ríkinu á
brúðkaupsdaginn.
Hitler eignaðist einnig gríðarlega
verðmætt safn listaverka og listmuna
og voru fyrri eigendur þeirra neyddir
til að selja þá fyrir lítið fé. Listaverk
þessi komu flest frá Frakklandi, Hol-
landi og Belgíu.
Bandaríkin:
Tólf katólskir
prestar með alnæmi
San Francisco, AP.
Í DAGBLAÐINU San Franc-
isco Examiner var á sunnudag
greint frá því að a.m.k. tólf
katólskir prestar í Banda-
ríkjunum væru með sjúkdóm-
inn alnæmi.
í fréttinni var vitnað í krikjuleið-
toga og fólk sem aðstoðar alnæmis-
sjúklinga. Þar kom fram að prestar
og munkar á Hawaii, í Massachu-
setts, Missouri, New York, Kali-
fomíu og Washington hefðu fengið
sjúkdóminn og hann hefði dregið
þá til bana.
„Ótrúlega margir hafa reynst
hafa mótefni gegn alnæmisveirunni
í blóði," er haft eftir David McEwan
lækni, sem stofnaði sérstaka al-
næmishjálparsveit á Hawaii.
Ýmsir hafa haldið fram að kirkj-
an reyni að hylma yfir þetta vegna
afstöðu hennar til homma og banns
við kynmökum presta. Meirihluti
alnæmissjúklinga í Bandaríkjunum
eru hommar, en sjúkdómurinn smit-
ast við kynmök og blóðgjöf og við
notkun sprauta.
Munkurinn Mario Riveccio er
einn af fáum kirkjunnar mönnum,
sem hefur viðurkennt opinberlega
að vera með alnæmi. „Ég vil að
þetta mál komi fyrir almennings
sjónir vegna þess að ég hygg að
kirkjan taki ekki á raunveruleikan-
um. Kirkjan verður að gera sér
grein fyrir því að trúað fólk er ekki
ónæmt fyrir alnæmi. Einn katól-
ikki, sem hefur verið prestur í tfu
ár, hefur verið einn á báti síðan
læknar greindu að hann væri með
alnæmi. Þeir borga reikningana
har.s en að öðru leyti vilja þeir ekk-
ert með hann hafa.“
Ellemann-Jensen í Saudi-Arabíu:
Fordæmir vopna-
flutninga með
dönskum skipum
Riyadh, Reuter.
UFFE Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Danmerkur, for-
dæmdi á sunnudag að vopn
skyldu flutt til írans með dönsk-
um skipum meðan á leynilegum
vopnaviðskjptum Bandaríkja-
manna og írana stóð.
Ellemann-Jensen er nú staddur
í Saudi-Arabíu og ræddi á sunnudag
við Fahd konung. Ráðherrann sagði
á blaðamannafundi að danska
stjórnin væri ekki flækt í málið en
bætti við: „Það er rétt að svo virð-
ist sem vopn hafi verið flutt um
borð í skipum í eigu Dana, sem sum
hver eru skráð í öðrum ríkjum.
Við getum ekki komið í veg fyrir
að þessi skip sigli með vopn, en við
fordæmum slíka flutninga," sagði
Ellemann-Jensen.
Hann kvaðst eftir viðræðurnar
við Fahd konung vera vonbetri um
frið fyrir Persaflóa.
UTSALA
Karlmannaföt kr. 4.495,-
Stakirjakkar kr. 3.995,-
Terelynebuxur kr. 850,-995,-
Gallabuxur 1.095,- og 1.395 kr. 750,- og 795,-
Flannelsbuxur kr. 695,-
o.m.fl. ódýrt Andrés
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Aramot
á skrífstofunni
"s&ýito.
Brefabmdi
Bréfabakkar
Timaritabox
Pappabox
Spjaldskrárkassar
Skrifundirlegg
Reikniritarúllur
Gatapokar
Umslög — allar stæróir
Stafróf
Dagbækur, dagatöl, dagamióar
Geymslukassar
Ártalsmióar
Kjölmióar
Dálkadagbækur
Sjóósbækur
Disklingakassar
T ölvubréfabindi
Geymslukassar
Heftarar
Gatarar
Byrjadu áríð
á réttum stað!
—M—
Bókabúð
LMÁLS & MENNING AR J