Morgunblaðið - 07.01.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 07.01.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 29 Sjálfvirkt þjóðfélag og vaxandi óyndi eftir C. Northcote Parkinson prófessor Þekkingarleysi mitt á Noregi stafar af því að ég hef verið of oft í Danmörku. Samt sem áður hef ég haft tengsl frá unga aldri með þeim hætti, að ég ólst upp í Jórvík eða York, sem ber að minnsta kosti norrænt nafn. Engu að síður var ég fræddur meira um Róm- veija (sem bjuggu þar áður) og hvattur til að læra tungumál þeirra. Kannski lá sú hugmynd að baki að þeir kæmu aftur. Það gerðu þeir ekki og tiltölulega fáir eru þeir, mér vitanlega, sem tala latínu. Leyfist mér að bæta við í skyndi, að ég heimsótti Noreg og ísland árið 1961. Nokkru áður var ég farþegi á norsku skipi á Kína- hafi. Það var aðfangadagskvöld, man ég eftir, og samkvæmi um borð (að sjálfsögðu), að hluta til norskt og að hluta kínverskt bæði í skreytingum og mat. Þegar sam- kvæmið stóð sem hæst tók ég eftir þvi að allir yfirmenn ofan þilja voru viðstaddir. „Hver er í brúnni," spurði ég. „A þessum eina degi ársins," svaraði skip- stjórinn „er bátsmaðurinn á vakt.“ Seinna sagði ég norskum skip- seigendum þessa sögu. Þeim var, að ég tel, ekki skemmt. Þeim líkaði greinilega ekki að bátsmað- ur stæði vakt þennan dag eða nokkum annan dag, en ég sagði þeim aldrei á hvaða skipi ég hefði siglt. Löngu seinna vildi' svo til að ég var sessunautur norsks skip- stjóra um borð í flugvél. Eg opinberaði fyrir honum það sem mér fannst vera nýtt lögmál sjó- mennskunnar: „Því stærra skip, því verri stjóm.“ Hann lét sér fátt um finnast, og sagði: „En þetta vitum við allir. “ „Hvemig stendur á því?“ spurði ég. „Skip- stjóri risatankskips situr í loft- kældri rannsóknarstofu, umkringdur rafeindabúnaði, fremur sem vísindamaður en sjó- maður. A hinn bóginn: Skipstjóri gamals ryðgaðs, veltandi og höggvandi strandferðaskips, með salt sjávarlöðrið í andlitinu, er nær raunveruleikanum. Skip hans steytir ekki á skeri.“ Þið hafið tekið eftir að ég nálg- ast Noreg frá hafínu. Það er rétta leiðin, er ekki svo? Ég kem úr grannlandi sem er umsetið vanda- málum og hættum, hættum sem þið standið einnig frammi fyrir nú eða máske síðar. Helzti vand- inn er vandi alls mannkyns. □ Vandinn og hættan liggja í andstæðu leikni og þekkingar vísindamanna annars vegar og þekkingarleysi, mglingi og klaufalegum flýti stjómmála- manna hins vegar. Vísindum hefur fleygt fram á óvæntan hátt. Margar breytingar af þeirra völd- um hafa orðið á minni ævi. í stjómmálum, menningu og listum hefur engin frámþróun orðið. Þar miðar öllu aftur á bak. Vísinda- menn hafa lagt stjómmálamönn- um til aðferðir við að eyðileggja hnöttinn sem við byggjum. Við getum vel trúað því, að stjómvöld Bandaríkjanna og Sovétrílqanna geri aldrei nokkuð svo heimsku- legt. En hugsanlega gætu t.d. Indónesía, Norður-Kórea og íran eignast sams konar búnað, og hvað þá? Þegar vel liggur á okkur gerum við ráð fyrir að þessi þróun- arríki verði orðin siðmenntaðri áður en þau eignast slík tól. En getum við verið viss um það? Með hjálp Þjóðverja og Breta fram- leiddu bandarískir stjómmála- menn atómsprengjuna. Aðrir bandarískir stjórnmálamenn or- sökuðu Watergate-hneykslið. Þar höfum við dæmið um andstæðuna milli tæknilegra ávinninga sem em afar áhrifamiklir og hins veg- ar afglöp skólastráka sem em einungis kjánaleg. Mér fínnst þessi andstæða ekki róandi. Það var Þýskaland sem „framleiddi" Einstein. Það var Þýskaland sem „framleiddi" Adolf Hitler. Á sínum hinsta degi hefði Hitler glaður viljað eyða jörðinni sem atriði í bálför sinni. Hann bjó ekki yfír tækjum til þess, en þau vom þeg- ar til, að hluta vegna þýsks framtaks. Sameiningu mikillar yfírborðsfágunar og algerrar heimsku var naumlega afstýrt. Hvað, ef íran byggi yfir leyndar- dómi kjamaklofnings? Það yrði ferleg uppákoma. En em vestræn- ir stjómmálamenn mikið gáfaðri? Bandarísk viðbrögð við Water- gatemálinu urðu að lokum þau, að frómur hnetubóndi var kjörinn forseti. Getum við ekki gert bet- ur? Okkar brýnasta þörf er að endurbæta stjómmálakerfi okkar þannig, að snilldin fái tækifæri. Til lausnar stjórnmálavanda ætt- um við að beita einhveijum hluta þess hugarafls sem við notum til vísinda. Að svo er ekki er helzti vandi okkar tíma. Ekkert mælir þó gegn því að hann verði leystur í Noregi. Oft er það minnsta skip- ið sem hefur hæfasta skipstjór- ann. Áður en ég leiði hugann að brýnum erfiðleikum við að leysa (eða jafnvel gera sér grein fyrir) meginvanda okkar daga, skal ég viðurkenna að mörg þessara vandamála era líklega enn óþekt í Noregi. Þetta er að öllu saman- lögðu farsælt land á margan hátt. Það er ekki of fjölmennt en land- rými tröllslegt. Landið er fagurt og býður upp á margt til íþrótta. Sú mynd sem daglega er dregin upp af Bretlandi í sjónvarpi er ekki eins ánægjuleg. Aftur er um . að ræða andstæðuna milli tækni- legrar fullkomnunar þessarar myndar og þeirra máttvana skila- boða, sem hún flytur. Hugleiðið hvert myndefnið er að líkindum: Enn annað uppþot hefur orðið á knattspymuleikvangi (er verra í Hollandi). Skólar lokaðir vegna verkfalla kennara. Jap- anir hafa yfirtekið eina verk- smiðju enn, og Egyptar enn eina verslun. Vopnað rán hefur verið framið, og ræningjamir komizt undan. Ringulreið ríkir í iðnaðarborg í höndum komm- únista. Nýr sjúkdómur hefur orðið farsótt og ástandið á ír- landi versnað. Þota brotlenti. Fjöldi glæpa eykst en uppljóstr- un þeirra ekki. Milljónir em atvinnulausar og gengi punds gagnvart dollar lækkar. Þannig gengur þetta og blöðin endurtaka sömu söguna um dmnga og hörmungar. □ Áður en ég lýsi einhverri einni hörmung verð ég að leggja áherslu á að þær eiga sér allar eða flestar sömu rætur. Upphaf erfíðleika okkar er að fínna í þeirri stað- reynd að við höfum skapað vélvæddan og sjálfvirkan heim, heim sem er stjómað af LÖG- MÁLI SJÁLFVIRKNINNAR. Þetta lögmál hljóðar svo: Helzta afurð sjálfvirks . Northcote Parkinson þjóðfélags er almennt og vaxandi óyndi Óeirðir, glæpir og vinnudeilur stafa af leiðindum. Fólk hefur lítið annað að gera eða hugsa um. Vélar hafa leyst menn af hólmi, við umgöngumst menn eins og vélar og það endar með því að við umgöngumst vélar eins og menn. Þegar við reynum að fást við vandamál, sem Qölmiðlar og skól- ar vekja athygli á vegna óeirða- seggja og þjófa eða verkalýðs- félaga og fíkniefnaneytenda, verður okkur ekkert ágengt fyrr en við komumst að kjama máls- ins. Það sem við verðum að fást við em fyrst og fremst leiðindi: örvænting fólks sem hvorki hefur áhuga á vinnu sinni né lífi. Sönnun þess að leiðindi séu helzta hættan er vaxandi neysla fíknilyQa. Hafa skyldi í huga, að fíknilyf em fyrst og fremst leið til að flýja raunvemleikann. Fíkni- lyf sem lengi hafa verið notuð em áfengi, fjárhættuspil, tóbak og kynlífsþráhyggja. Fínkilyf sem hafa komið fram á síðustu ámm em hávaði, hraði, hass og kókaín. Hávaða sem nautnaljrf má rekja til hljóðfalls svörtustu Afríku, sem getur skemmt hljóðhimnuna. Hraði og hávaði em framleidd af vélhjólamanninum, hinum óþekkta manni á urrandi óskapn- aði. Hliðarverkanir fíkniefna- neyzlu fela í sér sljóleika, vitstol og dauða. Ég geri mér grein fyrir, eins og ég sagði, að Noregur er frá náttúmnnar hendi allt annað en leiðinlegt land. Þið hafíð sigling- ar, klifur og skíðaíþróttina; þið funduð hana upp, en létuð Bretum eftir að kynna hana Svisslending- um. Þetta þýðir ekki að sjálfvirkni og leiðindi séu alls ijarlæg. Tíminn til að stöðva slíkt er áður en þau byija. Og við skulum muna að ekki er hægt að ráðast beint að vandamálum eins og atvinnuleysi og glæpum. Hamingjuna fínna þeir sem hafa leitað einhvers ann- ars. Flugvél er sjaldan stýrt beinustu leið á áfangastað. □ Leiðindi em óvinurinn og það em þijú tiltæk ráð, að ég held, sem myndu fara langt með að útrýma þeim. í fyrsta lagi, þeir sem hafa lokið námi ættu að gegna þegnskylduvinnu í tvö ár, áður en þeir fengju að ráða sig í aðra vinnu. Herþjónusta myndi taka við hluta hópsins, aðrir gætu farið í lögregluna, á sjúkrahús, í landbúnað, skógrækt eða garð- yrkju. Þeir myndu sæta aga, aðeins fá vasapeninga og ekkert tækifæri til fjárhættuspila eða fíknilyjaneyzlu. Þegar vinnu þeirra í þágu þjóðfélagsins lyki hefði hver þeirra sérþekkingu, sem þeir myndu ef til vill halda sambandi við og gætut síðan horf- ið til eftir starfslok. í öðru lagi, enginn ætti að vinna sjálfvirk störf lengur en þijá daga í viku. Hvert fyrirtæki með sjálfvirka verksmiðju ætti að bjóða launþeg- um tilbreytingaríkt og viðhlítandi starf tvo daga vikunnar. Verk- smiðjan ætti að hafa nálæg verkstæði, þar sem skapandi vinna veitti sérhveijum þriðju sér- hæfnina eða a.m.k. þeim sem kysu að þiggja hana. Vitað er, að fólk vill með glöðu geði vinna 56 stunda vinnuviku, ef séð er til þess að vinnan sé nægilega frjöl- breytt. í þriðja lagi, fólk sem er að fara á eftirlaun myndi hætta aðalstarfi en helga krafta sína opinberri þjónustu í hálfu starfí í tvö ár, e.t.v. í ábyrgðarmeiri stöðu í þjónustunni, sem það gegndi fyrst. Með einhveiju slíku kerfí gætum við haldið unga fólkinu okkar frá ýmiss konar misindi, ekki með boðum og bönnum held- ur með því að fá því viðfangsefni til að vinna að og hugsa um. Við ættum einnig að draga úr leiðind- um, sem hijáð geta þá eldri. □ Ég hef gerzt svo djarfur að draga upp í grófum dráttum her- ferð gegn leiðindum, sem líka dragi úr atvinnuleysi og kjaradeil- um. Fólk sem fer í verkfall úthrópar umkvörtunarefni sín og krefst meiri peninga fyrir minni vinnu. Leiðindi em oft eina raun- vemlega umkvörtunarefnið. Verkfall býður upp á æsing, leik- ræn tilþrif, átök eins og í fót- boltakeppni. Þeir sem rannsaka vinnudeilur safna raundæmum og reyna að komast að því hvað fór úrskeiðis í samskiptum við laun- þega. Ég fyrir mitt leyti skoðaði einu sinni verksmiðju þar sem deilur vom óþekktar. Ég reyndi að komast að því hvað hafði tekizt svo vel. Og svarið varð fljótlega augljóst. Fólk fer ekki í verkfall í öflugu fyrirtæki, þar sem vinnan sjálf býður upp á spennu. Þeir em að framleiða byltingarkenndan bíi, sem á að verða sá bezti í heimi. Nýi tennisspaðinn þeirra er smá undur, og vinna þeirra áríðandi og hulin leynd. Slíkt fyr- irtæki hefur aðdráttarafl vegna eigin uppgangs. Vinnuaflið dregst með í kjölfarið. En skoðum and- stætt dæmi: gömlu, dimmu og sóðalegu verksmiðjuna, þar sem úreltum aðferðum er beitt við að framleiða dýra vöm, sem enginn vill kaupa. Búast hefði mátt við að hið leiða starfsfólk dirfðist ekki að hnerra, hvað þá fara í verkfall vegna ótta við að verksmiðjunni yrði lokað og það missti vinnuna. En starfsfólkið á sér dulda dauða- ósk. Það fer í verkfall og fyrirtæk- inu er lokað. Það vom leiðindi sem drápu fyrirtækið og munu drepa mörg önnur. í fleiri en einu tilviki em leiðindi drápsaðili. Myndi það reynast erfítt að skipuleggja og fjármagna opin- bera þjónustu? Það er reyndar ekkert erfítt. I mörgum löndum er eða hefur verið þegnskyldu- vinna. Við getum gert það sem við höfum gert áður. Samt sem áður er eitt svið þar sem við þurf- um að gera betur. í Bretlandi stóðu herkvaddir menn sig vel, sumir jafnvel í virkri þjónustu, en ímyndunarafl hersins var of lítið. Herþjálfun getur verið leikur, ævintýri, áskomn. En of oft er efst í minni ungu hermannanna, að þeir þurftu að skræla kartöfl- ur, standa leiðigjamar vaktir og stunda vopnaþjálfun. Þegnskyldu- vinna er ekki eitthvað sem við getum látið æfíngaliðþjálfann um, þótt hann geti verið gagnlegur. En hvað um aga? Mín tillaga er sú að sérhver ungur þegnskyldur maður ætti að fá skírteini, þegar hann er leystur frá herþjónustu, og án slíks skírteinis myndi enginn atvinnurekandi ráða hann í vinnu. Skírteinin yrðu aðgreind í I, II, III með sérþekkingu í tiigreindu starfí svo og hæfni. Beztu at- vinnurekendumir myndu trúlega aðeins taka til greina umsælgend- ur sem hefðu skírteini I. Brota- menn yrðu að gegna þegnskyldu þriðja árið. Virðist öll þessi flokk- un ómannleg? Þetta er það sem gerist í háskólum og þeir sem ljúka prófí virðast ekki verri fyrir vikið. Allar áætlanir eins og þær sem ég hef nú mælt með, myndu krefj- ast mikillar vinnu, svo að þær yrðu fullkomnar, og jafnframt heilmikilla tilrauna. Kerfí til að draga úr miðstryingu væri nauð- synlegt til að einhvers árangurs mætti vænta af slíkum áformum, nokkurt sjálfsforræði hvers hér- aðs. I Bretlandi a.m.k. hafa mistök okkar verið þau að skipuleggja heilbrigðiskerfi fyrir landið í heild og þjóðnýta allar jámbrautir samtímis. Mun vísindalegri aðferð væri sú að meðhöndla hvert hérað fyrir sig og bera saman árangurinn. Auðvitað verða mis- tök, en við skulum gera þau í smáum stíl. í byijun hefði verið nóg að þjóðnýta eina jámbraut. Við hefðum lært eitthvað af því eina tilviki. □ Ég hef nú gerzt afar langorður um leiðindi. Það er samt sem áður ekki eina hættan, og á það vil ég minna ykkur. Ég hefí áður fyrr vakið athygli á öðmm hætt- um. Ein þeirra er hættan á yfírmönnun. Dæmigert tilfelli af þessu tagi rakst ég á í Noregs- heimsókn minni árið 1961. Mér var boðið til málsverðar í breska sendiráðinu og sat þar við hliðina á þýzka sendiherranum. Hann sagðist vera ákaflega ánægður með að dveljast á ný í Noregi. Hann hafði verið þar á sínum yngri ámm, fyrir meira en tfu áram, og hann var glaður að vera kominn aftur. Ég spurði hann um starfsliðið á þeim tíma. „Hvað vom margir starfsmenn?" „Sjö,“ svaraði hann. „Og hvað margir, yðar ágæti, starfa þar nú?“ „Sjötíu og þrír,“ var svarið. „Og hversu margir af þeim fjölda,“ hélt ég ótrauður áfram, „gegna störfum sem einhveiju máli skipta?" „Sjö,“ sagði hann og svarið er umhugs- unarvert. En hún er það einnig sagan af sendiherranum í Bmssel sem fékk að vita það með fárra daga fyrirvara að hann ætti að halda ræðu. Eins og sérhver mik- ilsháttar maður hefði gert, sendi hann eftir ungum manni í starfs- liði sínu og bauð honum að skrifa ræðuna. „Hve löng á ræðan að vera,“ var hann spurður. ,,Ein klukkustund," svaraði hann. Á til- skildum degi kom starfsmaðurinn til hans með vélritað handrit. „Hér er ræðan þín, herra.“ Sendi- herrann stakk handritinu í vasann og hélt á fundinn. Ræðan stóð í tvær klukkstundir, og bæði ræðu- maður og áheyrendur vom orðnir dauðuppgefnir. Sendiherrann snéri aftur í sendiráðið í vondu skapi. „Og hvers vegna léztu mig hafa tveggja tíma ræðu,“ spurði hann sökudólginn? „Hún átti að standa í eina klukkustund eins og ég tók greinilega fram.“ Sá ungi andmælti, fölur og skjálfandi: „Herra, ræðan er einnar stundar löng... Ég lét þig hafa tvö ein- tök.“ Og lýk ég hér ræðu minni. Höfundur er heimskunnur fyrir „lögmál“ sín. Grein sú, sem hér er birt, erað stofni til erindi böf- und&rá ársfundi fskannlnmininm í Osló 25. nóvember 1986.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.