Morgunblaðið - 07.01.1987, Side 31

Morgunblaðið - 07.01.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 31 Morgunblaðifl/Skapti Hallgrfmaaon Rauðhærði riddarinn að verða tilbúinn HVENÆR kemurðu aftur rauðhærði riddari? verð- ur frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar á föstudags- kvöldið, eins og fram kom i blaðinu í gær. Æft er af krafti nú siðustu daga fyrir frumsýningu, allt á fullu í leikhúsinu með tilheyrandi frumsýning- arskrekk og látum. Þessar myndir voru teknar á æfingu í Samkomuhúsinu í fyrrakvöld og sýna Ingu Hildi Haraldsdóttur og Guðjón Pedersen í hlutverkum sínum. Inga fer með hlutverk af- greiðslustúlkunnar á veitingastaðnum þar sem leikritið gerist en Guðón einn viðskiptavinanna. Inga er þarna að brjóta egg af mikilli snilld en Guðjón situr á „glymskrattanum" sem var ómiss- andi á stöðum sem þessum á sjöunda áratugnum. Innheimta bæj- argjalda 90,73% INNHEIMTA bæjargjalda á ár- inu 1986 að meðtöldum dráttar- vöxtum nam 522.887.963 kr., sem Öllu starfsfólki hjá er 90,73%, en samtals voru til innheimtu kr. 576.323.577. Af útsvörum og aðstöðugjöldum álögðum á árinu voru innheimt 91,59%, af fasteignagjöldum ársins 97,93%, af gjöldum fyrri ára 67,75% og af dráttarvöxtum reiknuðum á árinu 53,95%. Ofangreindar upplýsingar lagði bæjarritari Akreyrar fram á fundi bæjarráðs sl. mánudag, 5. janúar. Bæjarráð: Launanefnd sveitar- félaga fái samn- ingsumboð bæjarins BÆJARRÁÐ lagði til á fundi sinum sl. mánudag, að launanefnd sveitarfélaga verði að þessu sinni falið umboð til gerðar kjarasamn- ings við Starfsmannafélag Akureyrar. Þá var og lagt til, að bæjar- stjórn kjósi þrjá menn í launanefnd sveitarfélaga og þijá til vara. Kjarasamninganefnd kom saman til fundar með bæjarráði sl. mánu- dag vegna beiðnar launanefndar sveitarfélaga um að fá umboð tii kjarasamninga við Starfsmannafé- lag Akureyrar (STAK). Kjarasamn- inganefndin lagði til við bæjarráð, að launanefndin fengi slíkt umboð og er eftirfarandi skráð í fundar- gerð kjarasamninganefndar: „Framkvæmdin verði eins og launa- nefnd sveitarfélaga hefur ákveðið, nema verði samningi hafnað af Akureyrarbæ eða STAK gengur samningsumboðið aftur til kjara- samninganefndar Akureyrarbæjar. Launanefnd sveitarfélaga á rétt á áheymarfulltrúa í þeim samninga- viðræðum." Norðurverk sagt upp ÖLLU starfsfólki Norðurverks hf. hefur verið sagt upp störf- um. 15 manns fengu uppsagnarbréf í byijun desember og 80 síðan um áramót. „Við gerum þetta vegna verk- efnaleysis. Uppsagnarfrestur þeirra sem lengst hafa verið hjá okkur er þrír mánuðir og við höfum vinnu fyrir þá þann tíma. Að þeim tíma liðnum kemur í ljós hvort við fáum fleiri verkefni og fólk verði þá end- urráðið en í dag er ekkert í sjónmáli," sagði Franz Ámason framkvæmdastjóri Norðurverks í samtali við Morgunblaðið. Franz var fyrir áramót ráðinn hitaveitu- stjóri Hitaveitu Akureyrar og lætur af störfum hjá Norðurverki um miðjan þennan mánuð. Ekki er ákveðið hver tekur við starfi hans eða hvort fyrirtækið verður rekið áfram í núverandi mynd. Hann sagði þó mestan áhuga á að rekst- urinn yrði óbreyttur, unnið yrði að því að afla frekari verkefna til að halda fólkinu í vinnu. Eins og fram kom í blaðinu í gær hafa bæjaryfirvöld ákveðið að skrif- stofuhúsnæði Akureyrarbæjar verði áfram í Geislagötunni, þar sem skrifstofumar em til húsa nú — en til umræðu var einnig að kaupa húsnæði sem Norðurverk á við Gler- árgötu. Þar hefur fyrirtækið reist þriggja hæða hús og á tvær efri hæðimar fokheldar. Franz sagði forráðamenn Norðurverks hafa gert sér vonir um að Akureyrarbær mjmdi kaupa húsnæðið við Glerár- götu „vegna þess að bæinn vantar húsnæði af þessari stærð. Við feng- um svo að vita af þessari ákvörðun bæjaryfirvalda og þá sögðum við fólkinu upp,“ sagði Franz. Sjónvarp Akureyri Dagskrá Sjónvarps Akureyrar verður sem hér segir í kvöld, miðvikudagskvöld: Kl. 20.30 Matreiðslumeistarinn - Ari G. Garðarsson. Kl. 21.00 Myndrokk - Vinsældar- listinn Top 40. Kl. 22.00 Handbolti. Kl. 23.00 Gjöf ástarinnar (The Gift Of Love), seinni hluti. Kl. 23.45 Dagskrárlok. Samstarfsnefnd námsmannahreyf- inganna: Lýsir yfir undr- unáummæl- um ráðherra Laun sjómanna árið 1986 ekki kynnt á samningafundum Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi yfirlýsing Sam- starfsnefndar námsmannahreyf- inganna: Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfínganna lýsir yfir undrun á þeim ummælum Sverris Hermanns- sonar menntamálaráðherra að hann íhugi nú að leggja fyrir Alþingi upphafleg drög sín að frumvarpi um námslán, með smávægilegum breytingum. Það var fullljóst í upphafi við- ræðna námsmanna og fulltrúa ríkisstjómarinnar að eina markmið- ið með breytingum á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna væri að ná endurgreiðsluhlutfalli námslána í svipað horf og gert var ráð fyrir við setningu laga um námslán 1982. Þetta hafa mennta- málaráðherra og fulltrúar hans margítrekað. Einnig var það sam- þykkt að leggja drög menntamála- ráðherra til hliðar og leita nýrra leiða að þessu markmiði. Námsmenn hafa af ábyrgð rætt við stjómvöld í 3 mánuði og með loka „sáttatilboði" sínu 19. des. síðastliðinn, gengu námsmenn að fullu til móts við markmið fulltrúa ríkisstjómarinnar. Tillögur þær sem námsmenn settu fram 19. desember sl. ná því markmiði að hækka endurgreiðslu- hlutfall námslána upp í svipað horf og gert var ráð fyrir þegar núver- andi lög um LÍN voru samþykkt 1982. Því lýsa námsmenn yfir furðu á þeim ummælum ráðherra að ekki geti náðst samkomulag við náms- menn. Viðræðumar eru á lokastigi og hafa fulltrúar menntamálaráð- herra staðfest að þessum viðræðum sé ekki lokið. Það væru því um alger svik á fyrri loforðum að ræða ef ráðherra hygðist slíta þessum viðræðum nú og leggja fram á Alþingi upphafleg drög sín, með smávægilegum breyt- ingum. Námsmenn neita algerlega að dragast á þennan hátt inn f eijur stjómmálaflokkanna og benda Sverri Hermannssyni menntamála- ráðherra á að leita annarra leiða til að ná fram hefndum á Framsókn- arflokknum og Finni Ingólfssyni aðstoðarmanni sjávarútvegsráð- herra. Samstarfsnefnd námsmanna- hreyfinganna (BÍSN, SHÍ, INSÍ, SINE). í FRÉTT Morgunblaðsins á þriðjudag var sagt að upplýsing- ar um áætluð laun sjómanna á siðasta ári hefðu verið kynntar af Bolla Þór Bollasyni, aðstoðar- forstjóra Þjóðhagsstofnunar, á fundi með deiluaðilum í kjara- deilu útvegsmanna og sjómanna. Það er ekki rétt. Þessa upplýs- ingar liggja fyrir í vinnuskjölum hjá stofnuninni, en voru ekki kynntar á þessum fundi. Bolli Þór Bollason sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að hann hefði í stórum dráttum farið yfír breyt- ingar á skiptahlutfalli milli útgerðar og sjómanna frá árinu 1983 og komið inn á afkomu útgerðar. Töl- umar um laun sjómanna á síðasta ári væru aðeins til sem áætlaðar í vinnuskjölum og hefðu ekki verið ætlaðar til almennrar dreifingar. Þórður Sveinbjömsson, fram- kvæmdastjóri Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Öldunnar, sem sæti á í samninganefnd yfírmanna, sagði f samtali við Morgunblaðið, að ekk- ert hefði verið rætt um laun sjómanna á umræddum fundi. Rétt væri að geta þess, að á þessum fundi hefði komið fram, að miðað við núverandi forsendur og verðlag á olíu og eftir síðustu fiskverðs- hækkun, væri gert ráð fyrir 9% hagnaði útgerðar af tekjum. Þegar olíuverð hefði verið hvað hæst hefði olíukostnaður verið um 20% af kostnaði en væri nú 8 til 8,5%. Nauðsynlegt væri að þessa upplýs- ingar kæmu einnig fram svo ekki yrði hallað á annan deiluaðila í fréttaflutningi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.