Morgunblaðið - 07.01.1987, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Heather Gamble á Eskifirði í gær:
Lauk lofsorði á bj örgiinar m enn
Símamynd/Einar Falur
Hjalti Sigurðsson sem stjómaði björgnnaraðgerðum og Heather Gamble í brúnni á Sæljóninu.
Eskifirði, frá Benedikt Stefánssyni, blaða-
manni Morgnnblaðsins
HEATHER Gamble, systir
Mark Books 2. stýrimanns á
tankskipinu Synetu telur að
óaðfinnanlega hafi verið stað-
ið að björgunaraðgerðum
þegar skipið fórst við eyna
Skrúð I mynni Fáskrúðsfjarð-
ar á jóladag. Hún sagði að
afskiptaleysi breskra stjórn-
valda og villandi fréttaflutn-
ingur fjölmiðla hafi aukið
mjög á vanlíðan ættingja
skipverjanna. Hafa þeir ekki
getað fengið upplýsingar um
rannsókn slyssins hér á landi
né hvar lík ástvina þeirra
væru niður komin. Gamble
vísar á bug öllum getgátum
um að áhöfnin hafi gert sigl-
ingafræðileg mistök né að
bilun í tækjabúnaði sé skýr-
ingin á því að Synata villtist
af leið og strandaði.
„Heimsóknin hefur sannfært
mig um að allt var gert sem í
mannlegu valdi stóð til að bjarga
áhöfninni," sagði Gamble. „Eftir
stendur að enginn getur útskýrt
hvemig vanir sjómenn gátu silgt
skipi í strand á þessum stað né
hvers vegna áhöfnin yfírgaf
skipið í slíkum flýti og stökk út
í opinn dauðann. Viðbrögð tals-
manna útgerðar Synetu í
Liverpool og afskiptaleysi
stjómvalda verður mér hvati til
að krefjast opinberrar rann-
sóknar á slysinu í Bretlandi."
Gamble hitti í gær að máli
stjómanda björgunaraðgerð-
anna Hjalta Sigurðsson, sem
rakti fyrir henni hvemig að
henni var staðið. Einnig ræddi
hún við íjölda björgunarmanna
meðal annars Grétar Rögn-
valdsson skipstjóra á Sæljóninu,
sem náði Mark bróður hennar
um borð röskum klukkutíma
eftir að áhöfnin yfírgaf skipið.
Mark var þá enn með lífsmarki,
en allar lífgunartilraunir reynd-
ust árangurslausar.
„Heimsóknin er í mínum aug-
um árangursrík. Við höfum ekki
fram á þennan dag fengið hald-
bæra vitneskju um það sem
gerðist þessa nótt nema í gegn-
um fjölmiðla f Bretlandi og það
hefur allt verið fullt af missögn-
um, mótsögnum og uppspuna.
Það er vissulega hræðileg
reynsla að koma á vettvang at-
burða sem snerta mann á
þennan hátt en ég varð að
koma,“ sagði Gamble.
„Af lýsingu sjónarvotta dreg
ég þá ályktun að þama hafí
verið mikil brotalöm í öryggis-
málum áhafnarinnar. Af reynslu
minni sem sjómaður veit ég að
hafíð er hættulegasti vinnustað-
ur sem til er og það má ekkert
til spara að tryggja öryggi
áhafnarinnar. Að mínu mati
ættu allir sjómenn sem sigla um
þetta hafsvæði að vera útbúnir
björgunarsamfestingum sem
hefðu sennilega getað bjargað
mörgum mannslífum í þessu til-
felli.“
Gamble hyggst með fulltingi
John Prescott þingmanns
breska Verkamannaflokksins
knýja á um að fram fari í Bret-
landi opinber rannsókn á slys-
inu. Hún telur að rannsóknin
þurfí að leiða í ljós hveijir séu
hinir raunverulegu eigendur
Synetu og hvort þeir hafí staðið
við skyldur sínar í því að tryggja
sjóhæfni skipssins og öryggi
áhafnarinnar.
„Ég tel mig vita af eigin
reynslu að undir venjulegum
kringumstæðum á slík ekki að
geta komið fyrir sjómann. Jafn-
vel þó bilun hafí verið um borð
og skipveijar ókunnir á þessum
slóðum getur það ekki útskýrt
þennan atburð. Ég geri mér
fyllilega grein fyrir því að aldrei
verður hægt að komast endan-
lega til botns í því hvað olli
slysinu. Hins vegar er það þess
virði að rannsaka slysið ofaní
kjölinn til að girða megi fyrir
að slíkur atburður endurtaki
sig,“ sagði Heather Gamble.
Beiðni komin um að flytja lík
skipverja Synetu til Englands
Breskur þingmaður hefur krafist opinberrar rannsóknar
BEIÐNI barst til íslenskrar út-
fararstofu í gærkvöldi um að
flytja lik þeirra sjö skipverja,
sem fundust af flutningaskipin
Syneta, til Englands en líkin hafa
verið í líkhúsi rannsóknarstofn-
unar Háskólans i veirufræði frá
því réttarkrufning fór fram fyrir
áramótin. Beiðni þessi barst fyrir
milligöngu útfararstofu í London
frá því fyrirtæki í London sem
sá um að manna Synetu fyrir
hönd útgerðar skipsins sem
skráð er í Gibraltar.
Sýslumaðurinn á Eskifirði fór
fram á réttarkrufningu á líkum
skipveijanna sem fundust eftir að
Syneta fórst við Skrúð, en alls fór-
ust 12 menn með skipinu. Aður
hafði John Taylor, forstjóri þess
fyrirtækis í Bretlandi sem mannaði
skipið, borið kennsl á líkin. Lik
mannanna voru send til rannsókn-
arstofnunar Háskólans til krufning-
ar 27. desember. Að sögn
Jóhannesar Bjamasonar yfírlæknis
þar var réttarrannsókninni lokið um
áramótin og dánarvottorðin undir-
rituð og þá hefði mátt flytja líkin
til Bretlands en enginn hafði í gær
enn sem komið var haft samband
við stofnunina þess efnis.
Vaninn í svona tilvikum er að
útgerðarfélög eða sendiráð sjái um
að láta flytja lík til síns heimalands
og hafí þá samband við útfararstof-
ur í heimalandinu sem síðan hafí
samband við útfararstofur í því
landi sem líkin eru. Davíð Ósvalds-
son hjá Líkkistuvinnustofu Eyvind-
ar Ámasonar staðfesti við
Morgunblaðið að í gærkvöldi hafí
þeim borist beiðni um að sjá um
flutning á skipveijunum á Syneta
til Bretlands.
Systir stýrimannsins á Syneta er
nú stödd hér á landi eins og fram
kemur á öðmm stað í Morgun-
blaðinu, og í samtali við blaðið á
þriðjudag sagði hún að ekkert sam-
band hefði verið haft við fjölskyldu
hennar af opinberri hálfu vegna
slyssins utan að lögregla tilkynnti
henni um strand Synetu og að bróð-
ir hennar væri talinn af. Morgun-
blaðinu tókst ekki í gær að ná í
John Taylor, sem komið hefur fram
sem fulltrúi útgerðarfélags Synetu,
í gær en Steven Parrett, sá starfs-
maður breska sendiráðsins í
Reykjavík sem fylgst hefur með
Synetamálinu, sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa talað við John
Taylor í gærmorgun sem hefði sagt
sér að hans fyrsta verk, þegar hann
kom aftur til Bretlands að loknum
sjóprófum á Eskifírði vegna slyss-
ins, hefði verið að hafa samband
við ættingja SKÍpveijanna og til-
kynna þeim hvaða lík hefðu fundist.
Og í tilfelli stýrimannsins Mark
Brooks, hefði verið haft samband
við foreldra hans.
Breski þingmaðurinn John Pres-
cott, sem situr á þingi fyrir
Verkamannaflokkinn í Hull, hefur
krafíst opinberrar rannsóknar á
strandi Synetu og að sú rannsókn
fari fram í Bretlandi en ekki Gi-
braltar þar sem skipið er skráð.
Prescott þessi tók meðal annars
þátt í viðræðum Breta og íslendinga
fyrir 10 árum til lausnar þorska-
stríðsins.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Prescott að hann krefðist þessarar
rannsóknar á þeirri forsendu að
skipið væri breskt og þar um borð
hefðu verið breskir þegnar. Hins-
vegar væru lagalegar flækjur vegna
tengsla Bretlands og Gibraltar því
þó Gibraltar væri í orði kveðnu í
sambandi við Bretland og að hluta
undir lögum þess, væri þama grátt
svæði að ræða og því lögfræðilegt
álitamál hvort Gíbraltar eigi að
stjóma rannsókninni eða Bretland.
Prescott sagði að verið væri að
undirbúa fyrir sig lögfræðilega
álitsgerð um ábyrgð bresku stjóm-
arinnar í þessu máli.
Prescott sagði að þrátt fyrir sjó-
prófíð á íslandi væri mörgum
spumingum enn ósvarað, svo sem
hversvegna slysið varð, hvort staða
þess hafí verið rétt, hvort vaktmað-
ur hafí verið á verði, hvort skipið
hefði rétt mannað og rétt stjómað.
En það væri í höndum yfírvalda í
Gibraltar að ákveða hvort og þá
hvar frekari rannsókn fer fram.
Þegar Morgunblaðið spurði
Prescott hvers vegna hann hefði
farið fram á þessa rannsókn svar-
aði hann: „Ég var sjómaður í 10
ár og hef alltaf barist fyrir hags-
munum sjómanna. Breska ríkis-
stjómin hefur verið að hvetja
skipaeigendur til að færa skráningu
skipa til staða eins og Gíbraltar og
þetta atvik hefur varpað ljósi á
veilumar í slíku. Breski kaupskipa-
flotinn hefur minnkað á síðustu
árum úr 1200 skipum í um það bil
600 og skipunum fækkar óðfluga.
Við höfum sagt sjóminni að eyja
eins og Bretland geti ekki lofað
flota sínum að flytja úr landi ef svo
má segja og það var raunar leiðari
í dagblaðinu The Guardian um þetta
í dag,“ sagði John Prescott.
Varnarliðið fylgd-
ist ekki með Syneta
VARNARLIÐIÐ á Keflavíkur-
flugvelli hefur borið til baka
fréttir um að það hafi fylgst
sérstaklega með flutningaskip-
inu Syneta á ferð þess hingað
til lands fyrir jólin, en getgátur
um það hafa birst í breskum
fjölmiðlum undanfarna daga.
Friðþór Eydal blaðafulltrúi
vamarliðsins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að flugvélar
varnarliðslins hefðu ekkert eftirlit
haft með Syneta og vamarliðinu
hafí ekki verið tilkynnt um eftirlit
annara aðila með skipinu. Eina
flug vamarliðsins 25.desember
hafi verið við leit og björgun skip-
veijanna af ms. Suðurlandi og
eftirlitsflugvélar varnarliðsins
hafi ekki verið að störfum fyrir
austan land síðustu dagana fyrir
slysið.