Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
33
Ríkisspítalar 1985:
Nýtt sljórnkerfi
tekið í notkun
Framkvæmdir hófust við K-byggingn
í ársskýrslu Ríkisspitala fyrir
árið 1985, sem er nýkomin út,
segir, að nýtt stjórnkerfi hafi
verið tekið upp á því ári. Sam-
kvæmt hinu nýja stjórnskipulagi
er starfseminni skipt i 14 svið
eftir sérgreinum og eðli starf-
seminnar. Sviðum er skipt i
blokkir (skorir) sem siðan skipt-
ast í deildir. Hveiju sviði er
stjórnað af framkvæmdastjóra,
sem ber ábyrgð gagnvart for-
stjóra og stjórnarnefnd. For-
stöðulæknar eru yfirmenn
blokka. Aðalmarkmið stjórnkerf-
isbreytingar er sögð að flytja
ákvarðanatöku eins nálægt
meinslækningadeild flytji í hið nýja
húsnæði í árslok 1988.
Af nýjum verkefnum nefnir
skýrslan undirbúning að aðgerðum
vegna áunninnar ónæmisbæklunar,
eyðni, mótefnamælingar og rann-
sóknir. Keypt var hús Vörumarkað-
arins við Armúla og er ætlunin að
rannsóknarstofa í veirufræði flytji
starfsemi sína þangað.
Legudagar á legudeildum vóru
370,485 1985 eða 3,45% færri en
1984. Tvær ástæður valda: styttri
meðallegutími og lengri lokanir
nokkurra deilda vegna skorts á
hjúkrunarfræðingum. Á dagdeildir
komu 3,840 sjúklingar, fjölgaði um
starfsvettvangi og frekast er
unnt, auka skilning á verðmæt-
um og aðgæzlu í meðferð
fjármuna. Fjárhagsleg ábyrgð
yfirmanna sviða, skora og blokka
var aukin.
Á árinu var hafist handa við
K-byggingu, sem ætlað er að hýsa
stoðdeildir Ladspítala, svo sem
krabbameinslækningadeild, rönt-
gen- og myndgreiningardeild,
skurðdeild, dauðhreinsun áhalda og
búningsherbergi starfsfólk. Ákveð-
ið er að K-bygging verði reist í
tveimur áföngum. í framkvæmdaá-
ætlun er gert ráð fyrir að krabba-
5,5%. Á almennri göngudeild
Landspítla vóru skráðar rúmlega
25 þúsund komur, á göngudeild
krabbameinslækninga 10.673 kom-
ur og á göngudeild húðlækninga-
deildar 4.160. Fjöldi röntgenrann-
sóknar var 40,230 1985.
Heildarfjöldi rannsókna á rann-
sóknarstofum var 847,738. Fjöldi
sónarskoðana á Kvennadeild jókst
úr 6,500 í 7,000.
Bókfærður rekstrarkostnaður
Ríkisspítala 1985 var 1,959 milljón-
ir króna. Þar af var launakostnaður
1,228 m.kr. eða tæp 63%. Bók-
færðar sértekjur vóru 202 m.kr.
HLUTFALLSLEG SKIPTING SJÚKLINGA 1985 EFTIR KJÖRDÆMUM LANDSINS
Morgunblaðið/pþ
Þorvaldur Jónsson formaður Björgunarsveitarinnar Oks fyrir fram-
an hinn nýja sjúkra- og leitarbíl.
Björgunarsveitin Ok Borgarfirði:
Nýr sjúkra-
Borgarfirði.
í desember sl. fékk Björgunar-
sveitin Ok nýjan sjúkrabíl, sem
jafnframt er unnt að breyta með
stuttum fyrirvara í leitarbíl fyrir
12 manns.
Bfllinn er af Chervolet-tegund,
árgerð 1981. Áður átti Björgunar-
sveitin Ok annan bíl, sem var seldur,
þegar þessi var keyptur. Sá bíll var
eingöngu sjúkrabíll og kemur þessi
nýi því í góðar þarfir, þegar skipu-
leggja þarf leit og flytja leitarflokka
á milli staða.
Um 13-20 útköll eru á ári hjá
Björgunarsveitinni. Sagði Þorvald-
ur Jónsson í Reykholti, formaður
og leitarbíll
sveitarinnar, að það væru sjúkraút-
köll, leitarbeiðnir og margs konar
aðstoð önnur, sem sveitin veitti.
Björgunarsveitin hefur aflað fjár
undanfarið til kaupa á bifreiðinni
með þvi að selja jólatré og með
gæslu á útihátíðinni í Geirsárbökk-
um í Reykholtsdal. Þá eru og
árgjöld félaga, sem eru á milli
80-90, auk stuðnings frá hreppun-
um.
Björgunarsveitin Ok var stofnuð
18. febrúar 1967 og verður því 20
ára í febrúar nk. Starfsvettvangur
sveitarinnar er norðan Skarðheiðar
og að Hvítá.
- pþ
Borgarspítalinn:
Morgunoiaoio/PorKeu
Frá fundi starfsfólks Borgarspítalans. Sigrún Knútsdóttir formaður starfsmannaráðs Borgarspítalans er
í ræðustól.
Starfsfólk mótmælir sölu
spítalans og skipan nefndar
Starfsfólk Borgarspítalans hélt
fund i gær vegna fyrirhugaðrar
sölu spítalans. Rætt var hvernig
réttindi starfsfólks yrðu best
tryggð og sjálfstæði spítalans
varðveitt. Á fundinum voru sam-
þykktar ályktanir þar sem sölu
spítalans og skipanar nefndar á
vegum heilbrigðisráðherra er
mótmælt.
Rætt var um möguleg rekstrar-
form spítalans, þar á meðal að
spítalinn yrði gerður að sjálfseign-
arstofnun, og lýsti Logi Guðbrands-
son frarnkvæmdastjóri Landakots-
spítala því fyrirkomulagi, en
Landakotsspítali var gerður að
sjálfseignarstofnun 1976 er ríkið
keypti spítalann. Þá var rætt um
réttindi starfsfólks, svo sem lífeyris-
sjóð, orlofshús og fleira og hvernig
þau réttindi yrðu best tryggð. í lok
fundarins voru þessar ályktanir
samþykktar samhljóða:
„Starfsmenn ítreka enn mótmæli
sín gegn sölu Borgarspítalans til
ríkisins enda er ekkert sem bendir
til að nein hagkvæmni fengist í
rekstri spítalans né að þjónusta við
Leiðrétting
í frétt í blaðinu í gær var mis-
hermt að myndir væru teknar á
jólatrésskemmtun hjá Sláturfélagi
Suðurlands. Hið rétta er að mynd-
imar voru teknar á jólatrésskemmt-
un hjá Plastprenti. Blaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
sjúklinga yrði betri þótt ríkið yfir-
tæki reksturinn.
Starfsmenn telja að ef Reykjavík-
urborg heldur eftir 15% eignarhluta
í Borgarspítalanum við hugsanlega
„sölu“ á spítalanum til ríkisins sé
spítalinn lögum samkvæmt sjúkra-
hús í eigu sveitarfélags og ætti því
að vera áfram undir stjóm sjúkra-
stofnana Reykjavíkurborgar.
Núverandi stjómskipulag sjúkra-
hússins er samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustu nr. 30.2. frá
1983 og gildir einnig, þótt ríkið
yfirtaki eignarhluta í sjúkrahúsinu
að 85%. Sjálfstæði spítalans yrði
áfram tryggt og starfsmenn spítal-
ans yrðu áfram starfsmenn
Reykjavíkurborgar eins og þeir
óska.
Verði hins vegar af sölu leggja
starfsmenn áherslu á að tryggja
verði sjálfstæði spítalans með öllum
ráðum, þannig að stjómun hans
fari á engan hátt undir stjómar-
nefnd ríkisspítalanna. Slíkt sjálf-
stæði yrði væntanlega best tryggt
með myndun sjálfseignarstofnunar
um rekstur Borgarspítalans.
Starfsmenn leggja einnig áherslu
á, ef af sölu verður, að öll réttindi
starfsmanna verði tryggð, bæði
hvað varðar launakjör, starfsaldur,
lífeyrissjóðsréttindi og önnur rétt-
indi, auk þess sem eignarhluti
félaga, í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar, bæði í sjóðum
og öðrum eignum félagsins, verði
tryggður þeim.“
„Almennur fundur starfsmanna
Borgarspítalans haldinn 6.1. 1987
lýsir furðu sinni á, og mótmælir,
skipan nefndar á vegum heilbrigðis-
ráðherra, sem ætlað er að fjalla um
rekstrarfyrirkomulag Borgarspítal-
ans í framtíðinni. Vakin er athygli
á því að starfsmanna- og læknaráð
hafa með bréfi dagsettu 31.12.
1986 leitað eftir viðræðum við full-
trúa ríkisvalds og borgarstjómar
varðandi framtíðarrekstur og
rekstrarform Borgarspftalans. I
þessu sambandi var tilnefnd sérstök
fímm manna viðræðunefnd en eng-
ar formlegar viðræður hafa enn átt
sér stað. I ijósi þessa telur fundur-
inn óeðlilegt að einstakir starfs-
menn Borgarspítalans taki þátt í
störfum framangreindrar nefndar
heilbrigðisráðherra."
Barna jazzballettskóli
í Suðurveri
Nýtt hjá JSB
Opnum 5 og 6 ára deildir einu sinni í viku,
6 vikna annir. Gjald kr. 1.500,-
Kennari: Bára Magnúsdóttir.
Innritun í síma 83730.