Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
(Jr mynd Bíóhússins, Strákurinn sem gat flogið.
Fljúgandi furðukrakkar
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Strákurinn sem gat flogið (The
Boy Who Could Fly). Sýnd í
Bíóhúsinu. Stjörnugjöf:
☆ ☆'/2.
Bandarisk. Leikstjóri og
handritshöfundur: Nick Castle.
Framleiðandi: Gary Adelson.
Tónlist: Barbara Miller. Kvik-
myndataka: Steven Poster og
Adam Holender. Helstu hlut-
verk: Lucy Deakins, Jay
Underwood, Fred Savage og
Colleen Dewhurst.
Strákurinn sem gat flogið er
ekki súperensk unglingamynd
þótt nafnið gæti bent til þess,
heldur þvert á móti hugljúf og
elskuleg og stundum hæfilega
væmin dæmisaga um ástina, fjöl-
skylduna, drauma og þrár og
hvers maður getur verið megnug-
ur ef maður aðeins elskar nógu
heitt og þráir nógu sterkt að gera
hlutina. Maður getur jafnvel flog-
ið þótt það sé yfirleitt aðeins
bundið við draumaverksmiðjuna
Hollywood.
Með sinn mjög svo uppbyggj-
andi boðskap að leiðarljósi dregur
handritshöfundurinn og leikstjór-
inn, Nick Castle, uppúr pússi sínu
dæmigerða ameríska millistéttar-
Qölskyldu í kröggum. Að vísu
nýtur hún ekki heimilisföðurins
því hann er iátinn úr krabba-
meini, mömmunni gengur ekki vel
að fóta sig á vinnumarkaðinum
eftir margra ára húsmóðurstörf,
dóttirin passar ekki í nýja skólann
og litli sonurinn á við erfíð tilvist-
arvandamál að stríða. Og ná-
granni þeirra er einrænn strákur
sem er haldinn þeirri dellu að
hann geti flogið.
Og það er ekki bara della.
Castle lætur sig ekki muna um
að stíga skrefíð til fulls og láta
hann fljúga mitt í raunsæi fjöl-
skylduerfíðleikanna. Castle tekst
einmitt að setja saman á skemmti-
legan hátt raunsæið og draumór-
ana svo úr verður dramatísk
ævintýramynd fyrir alla fjölskyld-
una, sem lætur sig varða um
viðfangsefni sitt en fer ekki með
það eins og fímmaurabrándara.
Og ekki má gieyma ástarsögunni
á milli dótturinnar Milly og flug-
drengsins Eric, sem rís bókstaf-
lega í hæstu hæðir.
Síðasta mynd Castle, The Last
Starfígther, var ágæt gaman-
mynd um strák sem átti vingott
við geimverur og í henni blandaði
Castle líka skemmtilega saman
ævintýrinu og hversdagleikanum.
Hann vinnur vel með krökkunum
í þessari mynd, þeim Lucy Deak-
ins og Jay Underwood, sem leika
dótturina og flugstrákinn, Colleen
Dewhurst túlkar vel skilningsríka
og hjartagóða kennslukonu og
Louise Fletcher bregður fyrir í
örlitlu hlutverki indæls sálfræð-
ings.
Strákurinn sem gat flogið gæti
vel snert hjörtu manna á góðum
degi ef þeir trúa á ævintýrið og
drauma sem kannski rætast.
Andartak Lúkasar
Hetjan Hávarður og Lea Thompson í myndinnl um Hávarð önd.
Hetjan Hávarður (Howard the
Hero). Sýnd i Laugarásbíó.
Stjömugjöf: ☆
Bandarísk. Leikstjóri: Will-
ard Huyck. Handrit: Willard
Huyck og Gloria Katz, byggt á
vinsælum teiknimyndasögum
eftir Steve Gerber. Framleið-
andi: Gloria Katz. Fram-
kvæmdastjóri: George Lucas.
Kvikmyndataka: Richard M.
Kline. Helstu hlutverk: Lea
Thompson, Jeffrey Jones, Tim
Robbins og Ed Gale, sem leikur
Hávarð önd.
Það þarf hugmyndaflug til að
setja eitthvað eins og vindilreykj-
andi og síblaðrandi önd í aðal-
hlutverk, jafnvel þótt menn eigi
ýmsu að venjast frá Hollwyood.
Eftir það hefur hugmyndaflugið
þrotið hjá þeim sem gerðu brellu-
myndina Hetjan Hávarður, sem
hét Hávarður önd áður en fór að
halla undan fæti hjá henni úti í
Ameríku.
Það er ósköp lítið vit í þessu
nýjasta afsprengi tengdu George
Lucas. Vinur hans Willard Huyck
Ieikstýrir og skrifar handritið að
myndinni ásamt framleiðandan-
um Gloriu Katz en eins og við var
að búast taka persónur hennar
að drukkna í sérstökum tækni-
brellum Lucas-fyrirtækisins
Industrial Light and Magic um
hléleytið og söguþráðurinn, sem
var heldur kindarlegur fram að
þvf, verður bókstaflega ókindar-
legur þegar geimskrýmsli hyggst
hrifsa til sín völdin á Jörðinni.
Ekki þannig að mikil eftirsjá
sé að persónunum. Titilpersónan,
öndin Hávarður, er að vísu engin
venjuleg brabra en í höndunum á
Huyck og Katz er hún nánast eins
athyglisverð og hver önnur önd á
Tjöminni í Reykjavík. Þessi
ameríska teiknimyndahetja er
svona Jón Jónsson á sinni egglaga
plánetu en fyrir tæknileg mistök
er henni skotið á Jörðina úr And-
arheimi og hún tekur að sér að
bjarga Jarðarbúum frá tortímingu
þegar við blasir að sömu tækni-
legu mistökin muni draga til sín
margfalda vítisdjöfla af himnum
ofan, sem hafa á stefnuskránni
að þurrka út lífíð á Jörðinni.
Minna má það ekki vera. En
Hetjan Hávarður verður aldrei
neitt meira en einskonar leikin
teiknimynd. Tæknibrellumar eru
að vísu vel gerðar en hver hefur
ekki fengið nóg af þeim. Persón-
umar eru hverri annarri ómerki-
legri og einhliða en öndin dregur
auðvitað mesta athyglina að sér
áður en ILM stelur senunni, ekki
bara af því hún þykist vera fynd-
in og skemmtileg og nöldrar og
þvargar yfír að vera lent á Jörð-
inni, heldur vegna þess að hún
er það sem hún er, ÖND. Tilraun-
ir til að skapa einmana- og
samkennd með henni líkt og E.T.
forðum mistakast eða það vinnst
ekki tími til þess vegna tækni-
brellanna. Hún býr ekki yfír
nokkrum töfrum eða Ieyndardóm-
um en er eitthvað furðufrík, sem
maður vonar bara að komist sem
fyrst heim til sín aftur.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Framhaldsaðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins í
Keflavík
verður haldinn fimmtudaginn 8. janúar kl. 20.30 í Glaumbergi, efri
sal, að Vesturbraut, Keflavík.
Dagskrá:
f. Aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
3. Önnur mál.
Mætum öll.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvennafélag
Borgarfjarðar
minnist 20 ára afmælisins nk. laugardag þann 10. janúar 1987 í
Sjálfstæðishúsinu Borgarnesi. Opið hús verður frá kl. 15.00-19.00.
Allt sjáifstæðisfólk hjartanlega velkomiö.
Aðalfundur sjálfstæðis-
félags Skagafjarðar
verður haldinn í
Höfðaborg, Hofsósi
föstudaginn 9. jan.
kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kosning fulltrúa á
landsfund.
Önnur mál.
Pálmi Jónsson, Vil-
hjálmur Egilsson og
Karl Sigurgeirsson mæta á fundinn.
Stjórnin.
Framtíðarsýn
Hádegisverðarfundur Stefnis FUS verður
haldinn á veitingahúsinu A. Hansen í Hafn-
arfirði laugardaginn 10. janúar kl. 12.00.
Efni fundarins er framtíðarsýn Þorsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæöisflokksins.
Allir velkomnir ungir sem aldnir.
Stefnir.
Vestlendingar
Aðalfundur kjördæmisráös sjálfstæðis-
félaganna i Vesturlandskjördæmi verður
haldinn í Hótel Stykkishólmi föstudaginn
16. janúar kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjörnefnd og stjórn leggja fram tillögu
að framboðslista fyrir komandi alþingis-
kosningar.
3. Friðrik Sófusson alþingismaður, vara-
lormaöur Sjálfstæöisflokksins mætir á
fundinn og ræðir um stjórnmálaviðhorf-
in.
4. Önnur mál.
Atlantshafsbandalagið
ídag
Fimmtudaginn 8. janúar heldur Samband
ungra sjálfstæðismanna umræðufund um
Atlantshafsbandalagiö, stöðu þess I dag
o.fl.
Fundurinn hefst kl. 20.00 og verður gestur
fundarins dr. Gunnar Pálsson er starfar hjá
alþjóöastjórnmáladeild Nato í Brussel.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Stjórnin.
Stjórn SUS.