Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 51

Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 51 "MÉRSKIL^T ÞEIRSEGIST EINUNGIS HflFR SKRIFRO UNDIR FYRIR OKKUR RFÞVÍ ÞElR HRFl EKKI HRFT HOGMYNO UM HVRÐ ÞEIR VORU RO SKRIFR UNDIR FYRIROKKOR" Þessir hringdu . . . Taska tapaðist á Hótel Borg Lilja Sveinbjörnsdóttir hringdi: Ég tapaði svartri tösku, sem í voru m.a. skilríki, á Hótel Borg á gamlárskvöld. Finnandi vinsamleg- ast hafi samband í síma 37945. Sýnið fleiri vestra Guðrún hringdi: Ég vil koma þeirri ósk á fram- færi til forráðamanna sjónvarps- stöðvanna tveggja að þeir sýni mun meira af vestrum en hingað til hef- ur verið gert. Til dæmis mætti sýna einhvem vestra með Clint Eastwood eða þá endursýna einhveija gamla góða sem áður hafa sést á skjánum. Fleiri torfæru- keppnir í Sjónvarpið Sölvi Lárusson Ólafsfirði hringdi: Ég vil beina þeim tilmælum til ríkissjónvarpsins að sýna meira af torfærukeppnum og allskyns röllum. Góð þjónusta hjá gull- smiðnum Nýstúdent hringdi: Ég fékk gullkeðju úr 14 karata gullií stúdentsgjöf sem var 42 sm. iHEILRÆÐI VARÚÐ Geymið lyf þar sem börn ná ekki til. á lengd. Keðjan reyndist vera gölluð og fór ég með hana til Jóhannesar Leifssonar, gullsmiðs, Laugavegi 30, þar sem hún hafði verið keypt. Keðja af þessari gerð reyndist ekki vera til í sömu lengd. Einungis var til 60 sm. keðja en hana vildi ég ekki. Gullsmiðurinn gat þó reddað annari keðju, 50 sm. langri og fékk ég hana án nokkurar milligreiðslu. Ég vil þakka Jóhannesi fyrir þessa góðu þjónustu. Ég held að þeir séu fáir gullsmiðimir sem hefðu ekki stytt keðjuna um 8 sm. og notað gullið í t.d. hringa. Úr tapaðist í miðbænum Sigrún Stefánsdóttir hringdi: Ég tapaði úrinu mínu 30. des- ember sl. einhversstaðar í miðbæ Reykjavíkur. Úrið er af gerðinni Seiko með dökkblárri skífu og gylltri festi. Fundarlaunum heitið. Finnandi vinsamlegast hafi sam- band í síma 71089. Hreinsar ein- hver hljóm- plötur? Akureyringur hafði samband: Mig langar til þess að spyijast fyrir um það hvort einhversstaðar sé hægt að fá hljómplötur hreins- aðar ef þær eru til dæmis orðnar kámugar af fingraförum og lói. Svo langar mig einnig til þess að athuga hvort einhver viti eitt- hvað um „örlög“ blaðsins Smells. Ég er áskrifandi en hef einungid fengið eitt blað af fimm. Ég hef reynt að skrifa til blaðsins en ekki fengið neitt svar. Vísa vikunnar Hann var áralangt aleinn að sýsli, enda varð röddin að hvísli. Kyrrðin svo hljótt kjökrar í nótt, því að genginn er Uppsala- Gísli. Hákur BÖRNIN OKKAR Þegar börnin fá martröð Óli litli er aðeins átta ára og það tekur mjög á móður hans vaknar með martröð og situr með hræðslusvip og veinar án þess að hún fái nokkuð að gert. Heimilislæknirinn hafði fyrir löngu sagt henni að þetta væri eðlilegt og hún þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. En Óla skánaði ekki og hann hélt áfram að hrökkva upp skelkaður að næturlagi, svo móðir hans leitaði aðstoðar hjá bamalækni. Ráðin sem hún fékk voru í stuttu máli þessi: Það er gott að sitja með bamið, leggja hönd á bak þess eða handlegg og stijúka því blíðlega um leið og þú hall- ar höfði þess upp að barmi þfnum. Þessi snerting veitir baminu nýja öryggiskennd — og fyrir alla muni farið ekki að hella neinum meðulum í bamið. Bömin eiga sinn eigin heim utan heimilisins, sem ef til vill er öðmvísi en þau áttu von á, og ef bamið býr ekki við fyllsta öryggi getur margt gerzt í huga þess. Ef öryggisleysið á til dæmis rætur að rekja til ósam- lyndis á heimilinu, missættis for- eldra, flárhagserfiðleika, eða skilnaðar gæti atvik á borð við ógn- vekjandi atriði í sjónvarpinu valdið martröð þótt þetta sama atriði hafí engin áhrif á böm er búa við meira öryggi. Ekkert bam kemst þó hjá því að finna til ótta, þótt það búi við fyllsta öryggi. Þótt foreldramir tali um hvað gott sé að fara að sofa í niða myrkri er bamið ekki alltaf á sama máli. ímyndunarafl bama er fijótt, og þau geta átt erfitt með að finna öryggi alein inni í myrku herbergi. En fyrst og fremst: Allt sem gerist í lífi foreldranna hefur gífurleg áhrif á bömin, og enginn sjúkdómur er meira smitandi en ótti, ekki einu sinni mislingar. Ef angist og öryggisleysj hijáir foreldrana smitast bömin. Kaffiboliinn hættulegi Það er sárt að brenna sig, það eru allir sammála um, bæði böm og fullorðnir. Svo geta bmnasár verið lengi að gróa, og jafhvel skilið eftir sig ör. Bömum er hættast við að brenna sig, og það getur verið erfitt að halda þeim frá öllu sem reynzt getur þeim hættulegt. En vissuð þið að það er kaffibollinn okkar sem veldur flestum brunasámm bama? Þetta er staðreynd sem fram kom í nýlegri könnun erlendis. Oftast brenndu böm- in sig á heitu kaffinu sem foreldramir dmkku í rúminu á sunnudagsmorgn- um. Það væri því ef til vill réttast að hætta að fá sér sopa í rúminu — f það minnsta þar til bömin em orðið það stór að þau em hætt að skrfða upp í hjá pabba og mömmu á morgnana. Börn með sjóngalla Árfðandi er að finna fljótt ef böm em með sjóngalla, því ella getur hann valdið varanlegum skaða. Ekki er miklum erfiðleikum bundið að komast að því hvort bömin em með sjóngalla eða skerta sjón, ef foreldr- amir þekkja einkennin. Sérstaklega ber að vera á verði ef bamið er pfreygt eða ef augun em á iði, ef það dregur annað augað í pung, ef augun em of rök eða ef bamið klæjar óeðlilega í augun. Einnig ber að hafa gætur á því ef bamið hallar höfði óeðlilega eða bókinni þegar það er að lesa eða skoða myndir. Og að sjálfsögðu ef bamið heldur bókinni of langt eða of stutt frá sér. Það er ekki óalgengt að bammeð sjónskekkju kvarti yfir þreytu við lest- ur eða sviða í augum, höfuðverk og því finnist myndir eða lesmál titra. Það er einnig merki um sjóngalla ef bamið þolir illa ljós eða ef það kvart- ar yfir að eitthvað sjáist ógreinilega. Flest böm með sjóngalla fá gleraugu sem sérstaklega em ætluð bömum, meðal annars með óbijótandi gleijum. En böm sem nota gleraugu þurfa að fara reglulega í augnskoðun. Það er n\jög áríðandi, því sjónin breytist ört f uppvextinum. Börn sem detta Þegar böm detta geta þau oft fengið mikið högg, og oft er það höfuð- ið sem höggið fær. Þá er árfðandi að fylgjast með því hvort um alvarlega byltu var að ræða, því hafi bamið fengið snert af heilahristing er nauðsyn- ■ legt að leita læknis. Heilahristingur lýsir sér meðal annars í meðvitundar- leysi f styttri eða skemmri tíma, ógleði, uppköstum og höfuðverk. Þú ber strax að kalla á lækni eða fara með bamið á slysavarðstofu. Og ef bam- ið sofnar eftir höfuðhögg ber að fylgjast með því hvort andardráttur sé eðlilegur. Ef korrar í baminu eða það hrýtur óeðlilega gæti það verið meðvitundarlaust, og þá ber að velcja það. Takist það ekki verður strax að sækja lækni. Þetta læt ég nægja að sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.