Morgunblaðið - 07.01.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 07.01.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 íris Grönfeldt íþrótta- maður Borgarfjarðar 1986 „Allur undirbúningur minn miðastvið heimsmeistaramótið í Róm“, segir íris Morgunblaðið/Helgi Bjarnason • íris Grönfeidt (þróttamaöur Borgarfjaröar 1986 og Jón Valur Jóns- son sem varð f 2. sœti. • Æglr Ágústsson til hœgri og Tómas Bartlett. Opna breska meistaramótið í pílukasti: ÆgirogTómas slegnir út í 1. umferð Alan Larkhan, en þeir höfnuðu í 9. sæti. „Strákarnir byrjuðu mjög vel og náðu 180 stigum eftir fyrstu 3 pílurnar, en Bretarnir kunnu sitt fag og sigruðu auðveldlega," sagði Óðinn, en hann er að reyna að koma á landskeppni við Hollend- inga á Islandi á árinu. Ji w . 1 ÆGIR Ágústsson, íslandsmeist- ari í pílukasti, og Tómas Bartlett, sem hafnaði f 2. sæti á fslands- mótinu, tóku þátt f opna breska meistaramótinu í pflukasti um helgina, en fóllu úr keppni f 1. umferð. „Þetta er fjölmennasta alþjóð- lega mótið í pílukasti og voru keppendur rúmlega 2000. Bretar einoka þessa íþrótt og komst eng- inn útlendingur í úrslitakeppnina. Bob Anderson vann Steve Cusick 2:1 í úrslitum, en Anderson er stigahæsti pílukastari heims," sagði Óðinn Helgi Jónsson, form- aður íslenska Pílukastsfélagsins við Morgunblaðið eftir mótið. Ægir Ágústsson lék gegn John Dunn frá Bretlandi, var langt frá sínu besta og tapaði 3:1. Það var samt ekkert til að skammast sín fyrir, því Dunn hafnaði í 33. sæti í keppninni. Tómas Bartlett tapaði fyrir Bret- anum Jeff Foster. Tómas lék vel, en átti ekkert í atvinnumanninn. Þá léku þeir í parakeppni og töpuðu 2:0 fyrir Bob Philipps og ÍRIS Grönfeldt spjótkastari hefur verið útnefnd íþróttamaður Borg- ■íirfjarðar 1986. Val íþróttamanns ársins fór nýlega fram hjá Ung- mennasambandi Borgarfjarðar og voru úrslit tilkynnt á uppskeru- hátíð UMSB sem haldin var síðastliðinn föstudag. Við það tækifæri var írisi afhentur farand- bikar sem fylgir sæmdarheitinu. íþróttamaður Borgarfjarðar er valinn með atkvæðagreiðslu stjórnar- og íþróttanefndarmanna UMSB. íris fékk 40 atkvæði. Annar varð Jón Valur Jónsson sundmaður með 39 stig, þriðji Hafsteinn Þóris- son (frjálsar íþróttir, körfuknatt- leikur) með 26 stig, fjórði Einar Freyr Jónsson (fjálsar íþróttir) með 25 stig og í fimmta sæti varð Sigríður Geirsdóttir (badminton) með 18 stig. Fjöldi annarra íþrótta- manna fékk stig í atkvæðagreiðsl- unni, reyndar fleiri en nokkru sinni við þetta val. Þegar vali íþróttamanns ársins var lýst á uppskeruhátíðinni sagði Ingimundur Ingimundarson fram- kvæmdastjóri UMSB að íris hefði bætt borgarfjarðarmetið í spjót- kasti úr rúmum 32 metrum í tæpa 60 metra á þeim tíu árum sem hún hefði fengist við þessa íþrótta- grein. Hann sagði að hún hefði fyrst íslenskra kvenna kastað spjótinu yfir 40 metra markið og einnig yfir 50 metra markið. Nú væri hún komin að 60 metra múrn- um og benti allt til þess að hún yrði fyrst íslenskra kvenna til að kasta spjótinu yfir 60 metra. „Við Borgfirðingar eru stoltir af því að eiga þessa afrekskonu og það er gleðilegt hve mikla tryggð hún heldur við sitt gamla samband,“ sagði Ingimundur. Iris hefur verið við háskólanám, æfingar og keppni í Bandaríkjunum undanfarin ár en hefur nú útskrif- ast sem íþróttafræðingur og kom heim fyrir jólin. Á síðasta ári bætti hún íslandsmetið í spjótkasti enn einu sinni, kastaði 59,12 metra, og vann ýmis afrek í Bandaríkjun- um. Þá keppti hún á Evrópumeist- aramótinu í Stuttgart. íris verður i Borgarnesi fram á vor við þjálfum frjálsíþróttafólks sem meðal ann- ars stefnir að þátttöku í Landsmóti UMF( á Húsavík næsta sumar. íris sagði í samtali við Morgun- blaðið hún hefði byrjað keppnis- tímabilið í fyrravor vel en síðan orðið fyrir meiðslum og hefði það ásamt öðru orðið til að ekki kom það út úr sumrinu sem stefnt hefði verið að. Hún sagðist vera búin að setja stefnuna á Olympíuleik- ana í Suður-Kóreu á næsta ári en Heimsmeistaramótið í Róm í sum- ar væri næsta stórmót og miöaðist allur undirbúningur í vetur við það. Hún sagðist ætla að byrja seinna að keppa í sumar en oftast áður og hafa keppnistímabilið stutt og reyna að ná sem bestum árangri í Róm. íþróttamaður Borgarfjarðar hef- ur sjö sinnum verið valinn og hafa eftirtaldir borið sæmdarheitið: 1980 Jón Diðriksson. 1981 Einar Vilhjálmsson. 1982 íris Grönfeldt. 1983 Einar Vilhjálmsson. 1984 Einar Vilhjálmsson. 1985 íris Grönfeldt. 1986 íris Grönfeldt. Einar og íris hafa þannig unnið titilinn þrisvar og Jón einu sinni á þeim sjö árum sem útnefningin hefur farið fram. Jón og Einar hafa gengið til liðs við önnur félög. - HBj 1X2 •ö (0 JO c 3 e o 5 > Q Tíminn C c ? s s* Dagur a tm (0 i (0 r* cc Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Aston Villa — Chelsea 2 1 1 1 1 1 1 X 1 X 2 X 7 3 2 C. Palace — Nott. Forest 1 2 X 2 X 2 2 - - - - - 1 2 4 Everton — Southampton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0 Grimsby — Stoke 2 1 1 X 1 1 X X 2 X X 2 4 5 3 Ipswich — Birminghám 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 X 0 Man United — Man. City X 1 2 1 X 1 1 1 1 1 1 1 9 2 1 Portsmouth — Blackburn 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 1 1 12 0 0 QPR — Leicester 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 1 0 Reading — Arsenai 2 2 2 X 2 2 2 2 2 2 2 2 0 1 11 Sheffield Wed. — Derby 2 1 1 2 1 1 1 1 - - - - 6 0 2 Shrewsbury — Hull 1 1 1 1 X 1 X - - - - - 5 2 0 Wimbledon — Sunderland X 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 1 0 • Á uppskeruhátíð UMSB voru afhent verðlaun til stigahæstu manna á íþróttamótum sumarsins og ýmis önnur sérverðlaun, auk þess sem árleg útnefning íþróttamanns Borgarfjarðar fór fram. Á myndinni eru flestir verðlaunahafarnir. Kjartan sigraði KJARTAN Óskarsson (til vinstri) varð slgurvegari á tennismóti ÍK, sem lauk á gamlársdag. Hann vann Arnar Arinbjarnar f úrslitum 6:2 og 6:4. I undanúrslitum vann Kjartan Reyni bróður sinn 6:1 og 6:2, en Arnar vann þriðja bróðurinn, Einar Óskarsson, 6:1 og 6:3 í hinum undanúrslitaleiknum. 15 keppendur tóku þátt í mót- inu, en Úlfur Þorbjörnsson, íslandsmeistari, varð að hætta keppni vegna veikinda. Tennismót IK:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.