Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Nýárssund fatlaðra barna og unglinga:
, Sigrún HulcJ Hrafnsdóttir
setti fjögur íslandsmet og
hlaut sjómannabikarinn
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir,
— ifþróttafélaginu Ösp, satti fjögur
Islandsmet á nýárssundmóti fatl-
aóra barna og unglinga, sam fram
fór í Sundhöllinni i Reykjavík á
sunnudaginn, og hlaut sjómanna-
bikarinn fyrir besta árangur á
mótinu annað áriö í röð. Sigrún
hlaut 517 stig fyrir 50 m skrið-
sund, sem er með því besta, er
gerist á Norðurlöndum.
Sigrún, sem er 16 ára og keppir
í flokki þroskaheftra, synti 50 m
skriðsund á 37 sekúndum, en fyrra
íslandsmet hennar var 37,7 sek-
úndur. Þessi árangur gaf henni
517 stig, sem er mesti stigafjöldi
er náðst hefur á sundmóti fatlaðra
hér á landi.
- Þá bætti Sigrún íslandsmet sín
í 50 m bak-, bringu- og flugsundi.
Hún synti baksundið á 43,8, en
fyrra metið var 46,04, bringusund-
ið á 45,1, en átti best áður 45,82,
og 50 m flugsund fór hún á 46,3,
en íslandsmet hennar var 47,85.
Baksundið gaf henni 471 stig og
bringusundiö 468 stig.
Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR,
sem keppir í flokki hreyfihamlaðra,
fékk 427 stig fyrir 50 m baksund
og Sóley Axelsdóttir, ÍFR, sem
^einnig keppir í flokki hreyfihaml-
aðra, fékk 420 stig fyrir 50 m
skriðsund.
20 blindir, sjónskertir, hreyfi-
hamlaðir og þroskaheftir krakkar
tóku þátt í mótinu. Hólmfríður
Karlsdóttir, fyrrverandi alheims-
fegurðardrottning og heiðursgest-
ur mótsins, afhenti hverjum
þátttakanda viðurkenningarskjal
og Sigrúnu sjómannabikarinn, sem
Sigmar Ólason, sjómaður á Reyð-
arfirði gaf, og veittur var í fjórða
sinn. A fyrsta nýárssundmótinu
1984 hlaut Sigrún Pétursdóttir,
ÍFR, bikarinn fyrir árangur sinn í
50 m baksundi, en hún fékk 482
stig. Bára Bergmann Erlingsdóttir,
Ösp, fékk 493 stig fyrir bringusund
1985, sem var besti árangur á því
móti, og í fyrra var Sigrún stiga-
hæst, hlaut 418 stig fyrir 50 m
baksund.
Keppendum er skipt í flokka eft-
ir fötlun, en vegna fámennis keppa
flokkarnir meira eða minna saman.
Hreyfihamlaðir skiptast í 5 flokka,
þar sem R1 er mesta fötlun en
R5 minnsta fötlun, Þ merkir
þroskaheftur, B1 blindur og B2
sjónskertur. Stigin eru síðan reikn-
uð út miðaö við tíma og flokk.
Úrslit á mótinu urðu annars þessi:
50 m flugsund drengja:
Ólafur Eirfksson, RS, 41,2
Halldór Guðbergsson, B2, 47,1
50 m baksund stúlkna:
Slgrfður Ósk Pótursdóttir, R4, 2.33,7
Sasunn Jóhannesdóttir, Þ, 1.48,8
Ásdfa Úlfarsdóttir, R3, 1.28,1
Bára B. Erlingsdóttir, Þ, 52,3
Elfn Reynisdóttlr, Þ, 1.06,4
Elfsabet Sigmarsdóttir, R4, 1.25,7
Sóley Axelsdóttir, R3, 1.10,6
Sigrún Huld Hraf nsdóttir, Þ, 43,8
Kristfn Rós Hókonardóttir, R4, 49,2
Guðrún Óiafsdóttlr, Þ, 48,6
50 m baksund drengja:
Snorri S. Karlsson, R4, 1.35,23
Jón Heiðar Jónsson, R3, 1.36,5
Gunnar Örn Eriingsson, Þ, 1.16,7
Priðbergur Ólafsson, R4, 1.24,2
Öm Bragl Rafnsson, R5, 1.02,2
Ólafur Eirfksson, R5, 42,0
Halldór Guðbergsson, B2, 44,7
50 m bringusund stúlkna:
Esther Guðbrandsdóttlr, Þ, 1.01,1
Ásdfs Úlfarsdóttir, R3, 1.40,2
Sigrún Bessadóttlr, B1, 1.24,9
Morgunblaðið/Einar Falur
• Sigrún Huld Hrafnsdóttir með sjómannabikarinn. Til vinstri er Kristfn Rós Hákonardóttir, sem hafnaði
í 2. sæti, og til hægri er Sóley Axelsdóttir, sem var þriðji stigahæsti keppandinn á mótinu.
Morgunblaðið/Einar Faiur
Vésteinn íþróttamaður Selfoss
Þótti vænst um kjötbitann
„ÉG VONA að þú fáir góðan kraft
úr þessu,“ sagði Kolbeinn Krist-
insson framkvæmdastjóri Hafnar
■~<hf um leið og hann afhenti Vá-
steini Hafsteinssyni fþróttamanni
Selfoss væna rúllu af gómsætu
london lambi á verðlaunahátfð
ungmennafálagsins á Hótel Sel-
foss 30. desember.
Það er venja að verðlaunahafar
fá auk hefðbundinna viðurkenn-
inga fyrir íþróttaafrek afhentar
framleiðsiuvörur af heimaslóð.
Þetta er gert f þeim tilgangi að
vekja athygli á hollum framleiöslu-
vörum og nauðsyn þess að neyta
hollrar fæðu. Afreksmenn Selfoss
á nýliðnu ári fengu væna rúllu af
london lambi sem Höfn hf gaf.
Vésteinn Hafsteinsson lýsti
ánægju sinni með kjörið sem
íþróttamaður Selfoss og því að
geta verið viðstaddur afhending-
una. „Ég er sérstaklega ánægður
með kjötbitann og þykir vænt um
slíkar viðurkenningar," sagði Vé-
steinn. Hann hvatti ungt íþrótta-
fólk til að sýna þolinmæði og að
trúa á eigin möguleika til afreka.
Sig. Jóns.
Sæunn Jóhannesdóttlr, Þ, 1.21,5
Elln Reynlsdóttlr, Þ, 1.08,4
Guðrún Ólafsdóttir, Þ, 54,0
Helga P. Sigurðardóttir, Þ, 1.18,1
Kristfn Rós Hákonardóttir, R4, 54,8
Slgrún Huld Hrafnsdóttir, Þ, 45,1
Bára B. Erlingsdóttir, Þ, 49,9
50 m bringusund drengja:
Ólafur Eirfksson, R4, 53,3
HalldórGuðbergsson, B2, 45,3
BirklrRúnarGunnarsson, B1, 1.00,8
Gunnar Örn Erlingsson, Þ, 58,8
50 m skriðsund stúikna:
Elfsabet Sigmarsdóttir, R4, 1.05,0
• Ólafur Eirfksson sigraði í 50 m
skriðsundi drengja.
Sóley Axelsdóttir, R3, 57,5
Ásdfs Úlfarsdóttir, R3, 1.34,9
Guðrún Ólafsdóttir, Þ, 46,0
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Þ, 37,0
Bára B. Erlingsdóttir, Þ, 46,0
Kristfn Rós Hákonardóttir, R4, 56,1
50 m skriðsund drengja:
Friðbergur Ólafsson, R4, 1.25,0
Jón H. Jónsson, R3, 1.30,5
Birkir Rúnar Gunnarsson, B1, 1.20,1
Öm Bragl Rafnsson, R5, 50,6
Halldór Guðbergsson, B2, 37,1
Ólafur Eirfksson, R5, 35,7
50 m flugsund stúlkna:
Guðrún Ólafsdóttir, Þ, 56,0
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Þ, 46,3
Bára B. Erlingsdóttir, Þ, 61,1
Ásdfs Úlfarsdóttir, R3, 2.28,8
Vésteinn bestur
_ áSelfossi
VÉSTEINN Hafsteinsson frjáls-
fþróttamaður var kjörinn íþrótta-
maður Selfosskaupstaðar á
nýliðnu ári. Útnefningin fór fram
á verðlaunahátfð Ungmennafé-
lagsins f Hótel Selfoss 30.
desember þar sem fjöldi fþrótta-
fólks fákk viðurkenningar fyrir
afrek sfn á árinu.
Vésteinn var einnig útnefndur
frjlálsíþróttamaður ársins. Kolbrún
Ylfa Gissurardóttir sundkona Sel-
foss var önnur að stigum í útnefn-
ingunni um íþróttamann ársins.
Aðrir sem til greina komu við
þessa útnefningu voru Grímur
Hergeirsson handknattleiksmað-
ur, A.nton Hartmannsson knatt-
spyrnumaður, Ragnar Pálsson
júdómaður, Jón Birgir Guðmunds-
son körfuknattleiksmaður og
Sigurþór Pálsson karatemaður.
Auk hefðbundinna viðurkenn-
inga fékk afreksfólkið íþróttavörur
frá Adidas, aðgangskort frá heilsu-
ræktarstöðinni Heilsusporti og
kjötvörurfrá kjötvinnslu Hafnar hf.
íþrótta og tómstundaráð Sel-
fossbæjar veitti 11 unglingum
viðurkenningu fyrir góðan rangur
í 11 mismunandi íþróttagreinum.
Auk hinna hefðbundnu íþrótta-
greina var veitt viðurkenning fyrir
árangur í hestaíþróttum og íþrótt-
im fatlaöra. Hinar einstöku deildir
félagsins veittu afreksmönnum
viðurkenningar fyrir unnin afrek á
árinu.
Verölaunahátíð þessi er haldin
árlega í lok ársins og er þá gestum
boðið upp á veislukaffi í boði ban-
kanna fjögurra á Selfossi.
Sig. Jóns.