Morgunblaðið - 08.02.1987, Side 18

Morgunblaðið - 08.02.1987, Side 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 BLÓMASKEŒ) SAFNA ÍHE3MJNUM Áður komu gestir mest til að endurnýja kynni af listaverkum sem þeir þekktu fyrir, en nú ekki síður til að uppdaga eitthvað nýtt. alltaf stendur þó hópur framan við Monu Lísu í Louvre-safninu. Stórsöfn rísa og þau gömlu þenjast út Tate Gallery hyggur á útibú í Li- verpool, en stórsöfnin í London eru með mikil stækkunaráform. National Gallery í Washington hefur síðan 1979 skartað nýjum Austur- væng. eftirElínu Pálmadóttur Miklar þjóðlífsbreytingar í ver- öldinni og nýir lífshættir hafa um þessar mundir gífurlega örv- - andi áhrif á alla safnastarf semi. Ofugt við það sem margir héldu þegar örtölvubyltingin hélt inn- reið sína með auðveldari heim- ildasöfnun og sjónvarpið tók að flytja myndaefni inn á hvert heimili. I heiminum er risin ný- bylgja, nokkurs konar renesansi í safnamálum. Alls staðar er ver- ið að byggja, gera upp og stækka gömlu söfnin. Einkum er þetta áberandi í gamalgrónum menn- ingarlöndum með eitthvert bolmagn til stórræða. Þetta kem- ur i kjölfar aukinnar aðsóknar að söfnunum, sem er að sprengja utan af sér stóru söfnin sem fyr- ir eru. Uppbyggingin er mest í stórborgunum, allt frá New York til Parísar með viðkomu í London og Köln. Mest áberandi í lista- söfnum, en einnig eru að risa ný stór vísindasöfn með nýjustu tækni í framsetningu. egar komið er í þessi stórsöfn nú orðið, er áber- andi hve mikið er þar af kennur- um með barna- og unglingahópa alla virka daga og fjölskyldur á helgidögum, for- eldrar með böm sín. Og þá verður einum íslendingi hugsað til almenns aðstöðumunar þessara bama og bama í löndum þar sem nær engin aðgengileg söfn eru til og fátækleg það sem þau eru. Því oft kviknar einmitt áhuginn á ákveðnum við- fangsefnum og ævistarfíð ræðst af einhveiju sem böm sjá eða kynnast í æsku, svo sem dæmin af mörgum stórmennum veraldarsögunnar sanna. Svo við höldum okkur við heimaslóðir segir Sigríður Hagalín leikkona í viðtali hér í blaðinu ný- lega að kveikjan að hennar leiklist- -arferli hafi orðið vestur á Isafirði, þegar hún sem bam sá ímyndunar- veikina og svo kvikmyndina um Rómeó og Júlíu. Haukur Gunnars- son leikstjóri hefur oft sagt frá því hvemig ævistarf hans réðist er for- eldrar hans sóttu hann fimm ára gamlan í hléi á japanska leiksýn- ingu í Þjóðleikhúsinu og bamið heillaðist svo að hann síðar lagði stund á leiklist og hélt til Japans til náms. íslenskir foreldrar sem fara með böm sín í utanlandsreisur virðast fæstir hafa áttað sig á því að þar eru e.t.v. komin tækifæri til að jafna þennan aðstöðumun, sem verður sífellt meira áberandi milli heimsins bama, og mætti bæta með því að láta áhugaverðar safnferðir fylgja í bland við strandferðir og Lególand. Á þessum áratug hefur orðið næstum sprenging í uppbyggingu listasafna í heiminum, ef borið er saman við fyrri áratugi 20. aldar- innar. Víða í Evrópu hafa verið opnuð ný stórsöfn. Um Vesturlönd er þegar í gangi uppbygging á söfn- um, sem mun tvöfalda móttökugetu stórsafnanna, þeirra er draga til sín gesti á alþjóðamarkaði. Louvre-safnið í París, sem er þeirra elst frá 1793, er að færa út kvíamar, bæði í gömlu húsnæði og nýju. Metropolitan-safnið í New York, frá 1870, með 1.400 starfs- menn og 95 sérfræðinga, teygir látlaust arma sína lengra út í Centr- al Park og fékk 1984 rými með því að byggja ofan á nýbygginguna skýjakljúf úr gleri. Náði þannig að sýna 25% af listaverkaeign sinni í stað 15% áður. National Gallery í Washington, eina bandaríska ríkis- safnið, hefur síðan 1979 getað skreytt sig með mjög fallegum Austurvæng, framlengingu á rós- rauðu þríhymings marmara- og glerbyggingunni. Fyrir 10 árum gerðu Florensbúar sér grein fyrir nauðsyn þess að tengja safn sitt við Pitti-höllina handan Amo-fljóts með því að gera upp hinn fræga Vasari-gang yfír Vecchio-brúna. í Vínarborg er verið að undirbúa við- gerð á hinum gömlu keisaralegu herskálum til að hýsa þar nútíma- listasafn. Prado-safnið í Madrid, sem í fyrra íjárfesti í nágrannahöll- inni Villamosa, heldur áfram að leggja undir sig gamlar byggingar í grenndinni og nýlega er búið að opna þar stórt nútímasafn, Reina Sofia-listamiðstöðina við Atocha- torg, í geysistórum spítala frá 18. öld. í London stóð til að stækkun National Gallerys sæi dagsins Ijós á árinu 1991, í umsjá páfa póstmod- ernismans Roberts Venturi. Og álman sem hýsir myndlistarsafnið við Trafalgar Square hefur þar að auki fengið heimild til að slá sér á konunglegan tannlæknaspítala við Leicester-Square. Þá er verið að grafa undir British Museum, þar sem Wolfsson Gallery með sínar grísk-rómversku fornminjar opnaði sl. vor. Bretar em jafnframt að dreifa safnastarfseminni. Tate Gall- ery, sem ekki sættir sig við að flytja Turner-verk sín í Glore Gall- ery í framtíðinni, er nú að búa sig undir að opna „útibú“ í alhliða menningarmiðstöð í uppgerðum hafnarhverfum Liverpool-borgar. Og þannig mætti lengi telja. Aðsóknin eykst hröðum skrefum Þessi stækkun öll fylgir eftir gífurlegri aðsókn að þessum söfn- um. Ekki er lengur hægt að gera sér vonir um að geta rölt um þau í miðri viku og verið einn með sjálf- um sér við að skoða listaverkin í einhveijum salnum. Einn liðurinn í þessu er að vísu hversu ferða- mannastraumurinn hefur aukist gífurlega og ferðafólk kemur til að sjá fræg verk í þessum söfnum. En það skýrir ekki alla þessa auknu aðsókn heimafólks. Þýskaland, sem fær t.d. miklu minna af erlendum ferðamönnum en Frakkland, skráði nálægt 50 milljón gesti í söfn sín á árinu 1984, eða fjórum sinnum fleiri en fyrir tíu árum. Og á árunum 1972 til 1977 óx aðsóknin að bandarísku söfnunum úr 40 milljónum í 60 milljónir, og hefur vaxið mikið síðan. í Louvre-safninu í París hef- ur gestum fjölgað úr 500 þúsundum fýrir stríð og upp í 3 milljónir núna. Óg Pompidou-safnið, sem svo mjög var deilt um í upphafi, er nú mest sótta stofnunin í Frakklandi með 8,4 milljónir gesta á árinu 1985, sem eru þá tvisvar sinnum fleiri en heimsækja Effeltuminn, og 1,7 milljónir þeirra sækja þar í nútíma- safnið. I Frakklandi koma söfnin númer þijú á vinsældalistanum þeg- ar heimafólk fer út, á eftir bíóferð- um og skoðun sögulegra minnismerkja, en vel á undan leik- hús- eða tónleikaferðum. Því hefur verið haldið fram að skoðunarmynstrið í stóru söfnunum hafi líka breyst. Áður hafí fjöldinn komið þangað til að endurnýja kynnin við listaverk sem menn þekktu áður, gengu beint að þeim. Nú komi sístækkandi hópur til að svala þorsta sínum með því að upp- götva eitthvað nýtt, engu síður en endumýja kynnin við þessa lista- fjársjóði. Þannig draga nýjar sérsýningar í söfnunum mjög að. Þá er bent á að gestahópurinn sé nú orðinn miklu breiðari en áður var, ekki síst fyrir það að menntun hefur aukist svo mjög við að fleiri ganga lengur í skóla og nær því til sístækkandi hóps. En löngum hafa betur upplýstir sótt söfn meira en fólk almennt. Góðar kynningar- myndir í sjónvarpi ná þá líka til að vekja áhuga fólks, sem aldrei hefði látið sér detta í hug að fara í safn til að skoða betur, ef því hefði ekki verið bent á það þar. Nýju söfnin og tískustefnur Það voru eiginlega Hollendingar sem fyrir stríð riðu á vaðið með að fela frægustu fáanlegum arkitekt- um byggingu nýrra listasafna. Og bygging Moma í New York á árinu 1939 ruddi leiðina fyrir Bobourg- safn framtíðarinnar. Á sjötta og sjöunda áratugnum sýndu ítalir fram á það með Paolo Scarpa að gamlar hallir gætu verið dýrðlegur rammi um listaverkin. Byggingam- ar sjálfar drógu að gesti, sem vom í sívaxandi mæli að læra að meta umhverfi listaverkanna og hvernig um þau væri búið til sýningar. Ein- mitt þá fékk Tomtankhamon-sýn- ingin í París meiri aðsókn en nokkurn tíma hafði þekkst eða 1,2 milljónir gesta. Og í Metropolitan- safninu í New York ríkti Thomas Hoving í 10 ár með þá sannfæringu sína að söfnin ættu að setja á svið atburði. Þar fór fæðing sérhæfðu, skammtíma safnasýninganna sam- an við stóraukinn frítíma fólks og byltingu í samgöngum. „Menn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.