Morgunblaðið - 18.02.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
3
Troðarinn í vökinni í Ólafsfjarðarvatni. Morgunbiaðifl/SvavarMagnúswn.
Troðaranum bjargað
úr Olafsfjarðarvatni
ólafsflrði.
í GÆR tókst að ná upp snjó-
troðaranum sem féll niður í
gegnum ís síðastliðinn sunnu-
dag á Ólafsfjarðarvatni.
Flokkur björgunarmanna undir
stjóm Kristins Gíslasonar bæjar-
verkstjóra hefur unnið við þetta
og höfðu við þetta stórvirka fjór-
hjólaskóflu sem gat verið á landi
við björgunina. Tókst henni að
draga troðarann upp á ísinn og
til lands. Troðarinn virðist lítið
skemmdur nema rafbúnaður sem
mun þurfa endumýjunar við.
- Jakob
Kröf u um að ríkissaksóknari víki úr
sæti í Hafskipsmálinu vísað frá:
MáJinu skotið
tildómstóla
komi til áæru
TROMPREIKNINGUR
SPARISJÓÐANNA
*ÖRUGGUR og verðtryggður reikningur
með raunvöxtum
nVEXTIR trompreiknings og verðtrygging er
borin saman við sérstaka trompvexti á 3ja mánaða
fresti og þú færð þau kjör sem hærri eru
HEKKERT
úttektargjald
- segir Jón Magnússon hdl
JÓN Magnússon lögmaður Ragn-
ars Kjartanssonar segist reikna
með þvi að ef gefnar verði út
ákærur í Hafskipsmálinu, verði
dómstólar látnir skera úr um
hvort Hallvarður Einvarðsson
ríkissaksóknari sé hæfur til að
reka málið af opinberri hálfu
vegna afskipta hans af því áður
sem rannsóknarlögreglustjóri
ríkisins. Dómsmálaráðuneytið
hefur komist að því að ekki sé
ástæða til að ríkissaksóknari víki
úr sæti meðan Hafskipsmálið er
til meðferðar en Jón Magnússon
hafði óskað eftir því.
„Ef gefnar verða út ákæmr í
þessu máli verður látið á þetta
reyna íyrir dómstólum," sagði Jón
Magnússon í samtali við Morgun-
blaðið. „Á þessu stigi málsins er
ekki verið að draga hæfni ríkissak-
sóknara sem embættismanns í efa,
heldur eingöngu verið að benda á
að það teljist óeðlilegt að hann sitji
báðum megin við borðið sem rann-
sóknaraðili og sem ákærandi. Ég
hef talið að hans afskipti af málinu
séu þess eðlis að það sé óeðlilegt
að hann sé þar í dómarastöðu en
dómstólar verða þá að kveða upp
úr um það,“ sagði Jón Magnússon.
Pétur Ólafsson
*
í Isafold látinn
PÉTUR Ólafsson fyrrverandi
forstjóri ísafoldarprentsmiðju
hf. lést í Reykjavík í fyrrinótt.
Pétur fæddist í Reykjavík 8.
ágúst 1912, sonur Ólafs Bjömsson-
ar, ritstjóra og Borghildar Péturs-
dóttur. Pétur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1931 og prófi í hagfræði frá háskól-
anum í Kiel árið 1934 og stundaði
framhaldsnám við London School
of Economics árið 1935. Hann var
blaðamaður við Morgunblaðið með
námi árin 1929 til 1931, 1935 til
1942 og 1953 til 1955. Á árunum
1942 til 1953 var hann forstjóri
Sænsk-íslenska verslunarfélagsins
og síðan forstjóri ísafoldarprent-
smiðju hf., Bókaverslunar ísafoldar
og Ritfangaverslunar ísafoldar frá
1955 til 1969. Hann átti jafnframt
sæti í stjóm ísafoldarprentsmiðju
frá 1935 til 1969.
Pétur var einn af stofnendum
Bókfellsútgáfunnar hf. og átti sæti
í stjóm hennar frá upphafi. Hann
var formaður Blaðamannafélags
íslands 1938 til 1942. Pétur var
einn af stofnendum Lionshreyfing-
arinnar á íslandi og var kjörinn
Pétur Ólafsson.
ævifélagi hreyfingarinnar. Auk
þess átti hann sæti í stjóm German-
iu frá árínu 1958 og í stjóm
Heimdallar, FUS 1928 til 1929.
Kona Péturs var Þómnn Magn-
úsdóttir, sem lést árið 1966. Þau
eignuðust fimm böm, Magnús, Ól-
af, Soffíu, Pétur Bjöm og Borghildi.
ífcÞÚ
grípur til peninganna hvenær
sem þú þarft á þeim að halda því
Trompreikningurinn er alltaf laus