Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 43

Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 43 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Getraun Grein dagsins verður í léttum dúr, við getum sagt að hún fjalli um bæjarrölt stjörnu- spekings á góðviðrisdegi. Og vegna þess að sólin skín verð- ur umræðan kæruleysisleg og tilviljanakennd. Kannski ættum við setja upp getraun fyrir lesendur, svona til að dragast ekki aftur úr í fjöl- miðlabyltingunni. Spuming- inn er: I hvaða merki er afgreiðslumaðurinn í tölvu- umboðinu. Svör stílist á Getraun. Stjömuspekiþáttur, Morgunblaðið. Verðlaun em tvö stjömukort að eigin vali frá Stjömuspekimiðstöðinni. Hress Ég þurfti um daginn að leggja leið mína á tölvuum- boð. Þeta er á þriðju hæð í austurborginni, fremst er skrifstofa og innar tvö her- bergi sem gegna hlutverki verkstæðis, birgðalagers, eldhúss og ef til vill einhvers fleira sem ég kann ekki að nefna. Beint á móti inn- göngudyrunum er skrifborð, tölvur og fleira dót. Þar ræð- ur ríkjum ungur og hress maður. Hann er í símanum er ég geng inn, lítur upp, brosir og kallar til mín: „Blessaður, komdu inn fyrir. Ég verð enga stund." Snöggur Ég tylli mér, lít í kringum mig, gríp prentarabækling, blaða í honum án þess þó að taka eftir nokkm sérstöku. Enda er ég fyrst og fremst að bíða. „Já, já, ertu búinn að athuga umboðið. Þú veist að Commodore er með sér- stakt umboð á íslandi. Þeir hljóta að geta reddað þér. Ef ekki þá kemurðu bara til mín og ég græja þetta ein- hvem veginn.“ Hann þagnar smástund og segir síðan: „Allt í lagi vinur, vertu bless- aður. Já, einmitt. Blessaður." Hreyfanlegur Hann skellir símanum á og rýkur upp úr stólnum, veður fram í innra herbergið og þýtur inn aftur. Sest niður, grípur möppu, snýr sér að tölvuskjánum og byijar að pikka inn. „Hvað segirðu, get ég bjargað þér?“ Hann hætt- ir að pikka, snýr stólnum snögglega, hallar sér aftur og setur hendur aftur fyrir hnakka. Lítur brosandi á mig. Óþolinmóður „Jú,“ segi ég rólega, „mig vantar borða í prentara." „Ekkert mál,“ segir hann og þýtur á fætur og fer inn í innra herbergið. Hann kemur að vörmu spori og réttir mér borða. Síminn hringir. Hann lítur brosandi á mig. „Síminn stoppar ekki, enginn friður." Hann svarar, talar smástund og leggur hann aftur frá sér. „Það hlýtur að vera gott að síminn hringi mikið," segi ég, „það táknar að mikið er að gera." „Jú, ef þetta væri allt sala, þá væri allt í lagi, en meirihlutinn er kvabb.“ Hann brosir þó, þannig að ég sé að honum leiðist ekki að hafa nóg að gera, jafnvel þó hluti þess skili sér ekki strax í kassann. Einlœgur Til að gefa betri lýsingu get ég sagt þetta. Hann er alltaf almennilegur og greiðvikinn. Algengt viðkvæði er: „Bless- aður, það er lítið mál, við drífum bara í þessu.“ Aber- andi er hversu hvatvís, ör og einlægur hann er í fasi. HvaÖa merki Ég geng niður stigann og hugsa, já hann er dæmigerð- ur ... Og spumingin er: í hvaða merki er vinur minn í tölvuumboðinu? GARPUR &EINl ER TRUFLAPUR PE&AR HANN SNVR. SÉR AÐ FAN&ANUM 5TEINPÓIZI... HLÝpDý) /her t Et5A POTTIR p/N F/FR ao kfnna 'a pvi! X-9 tjAF/P T/trPAf/A ; ///>/? T/L £6 SAM8ANPÁ j-tP Safn/p vopnon h&PRA SANAN- 'APÁT-V'OPN- IACJS/P. © l*tJ Kinfl Featores Syndicele. Inc World righlt ri TOMMI OG JENNI ranjcst/ y og> vip OKKAR BR PAPjÆTLUM A£> &BSTA!^P\ C.ANNA pAÐ1 LJOSKA þETTA SRFiOTT ALEXANDER/ I FERDINAND SMAFOLK THIS 15 0JHERE U)E LL CATCH THE SCHOOL BUS NEXT WEEK... - 1 /j -'JsSz1 ■ Hérna tökum við skóla- En ef það verður rigning? Þá bíðum við þarna í litla Hvað, ekkert sjónvarp? bilinn í næstu viku ... skýlinu ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sænskir atvinnuspilarar, Ben- net og Wigren, unnu tvímenn- ingskeppni Bridshátíðar, sem spiluð var á Hótel Loftleiðum föstudag og laugardag. Sigur íeirra var verðskuldaður, en alls ekki öruggur, því þegar þremur umferðum var ólokið sátu íjögur pör í hnapp á toppnum. Énda- spretturinn var bestur hjá Svíunum, og þeir enduðu með liðlega 50 stigum meira en parið í öðru sæti, sem voru ungir og skæðir Islendingar, Rúnar Magnússon og Stefán Pálsson. Hér er spil frá upphafi keppn- innar, sem var á hvers manns vörum á tímabili. Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♦ DG108764 ¥- Vestur 4 D9g75 ♦ DG1098432 4^ ♦ 7653 „ , M nn a Suður ▼ ' ” ^ 4 Á ♦ KDG1092 ¥ ÁK5 +G ♦ Á8 ♦ ÁK106432 Á öllum borðum hafði ýmis- legt skrautlegt dregið til tíðinda áður en suður komst að með* kólguna. Vesturspilaramir opn- uðu á þremur eða fjórum hjört- um, og fæstir í norðrinu gátu stillt sig um að nefna spaðann sinn. Austur gat líka verið með, og það gerðu allmargir í því sæti, tóku undir hjarta makkers eða jafnvel sögðu tígul. Eftir öll þessi læti hlaut ákvörðun suðurs að vera skot í myrkri. Allmargir þokuðu spil- inu upp í sjö grönd og urðu fyrir geysilegum vonbrigðum þegar blindur kom upp. Meðal þeirra var Zia Mahmood, einn af fasta gestum Bridshátíðar. Han: hristi höfuðið vondaufur fleygði spaðaásnum í djúpur boga á borðið. Þegar kóngurim kom ráku áhorfendur upp fagn aðaróp, en AV sáu enga ástæðu til að kætast. Þeir sem spiluðu spaða- slemmu urðu að sæta því sumir hverjir að fá út einspil í laufí, sem trompað var með einspili í trompi. Slíkt gerist ekki á hveij- um degi. En meistararnir, sem komust í besta samninginn, sjö lauf, hafa líklega orðið fyrir mestum vonbrigðum. Það er súrt að fá aðeins meðalskor fyr- ir það spil. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á World Open-mótinu í Phila- delphia í sumar kom þessi staða upp í skák bandaríska alþjóða- meistarans Jay Bonin, sem hafði hvítt og átti leik, og júgó- slavneska stórmeistarans Stefv an Djuric. Svartur lék síðast 17 ... Bd7-g4? I A: W Stó \lUl IAS §||I ám IAI 18. Rxf7! - Kxf7, 19. Dg5 (Svartur er nú glataður, því hvítur hótar bæði 20. Dxg4 og 20. Hxe7+ - Dxe7, 21. d6+ - De6, 22. De7+. Svartur reyndi því í örvæntingu:) 19. — Rg8, 20. Dxg4 - Rf6, 21. He7+! - Dxe7,22. d6+ — Ke8,23. Bb5+ og Júgóslavinn hafði nú fengið nóg og gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.