Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 6

Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987 Blómgun Innlend dagskrárgerð blómstraði svo sannarlega á skjánum á mánudagskveldið: Spaugstofan Spaugstofan hefir nýhafíð göngu á ríkissjónvarpinu. Þessi 15 mínútna grínþáttur er í umsjón Amar Ámasonar, Þórhallar Sig- urðssonar, Sigurðar Sigurjónsson- ar, Randvers Þorlákssonar og Karls Ágústs Úlfssonar. í þættinum er brugðið upp misfyndnum grín- myndum í anda liðins Áramóta- skaups. Er gleðilegt nýmæli skjáprentun söngtexta. Ég fagna annars þessum grínþætti, ekki veit- ir okkur af léttmeti í skammdeginu. Þó mættu þáttarstjómendur vera ögn hvassari í ádeilunni í anda meistara Sigmund svo dæmi sé tekið. Væri ekki úr vegi að leita til almennings um skondinn háðs- ádeilutexta og hvað fyndist ykkur um að bjóða gestum í þáttinn? FjallaskáldiÖ Er Spaugstofan kvaddi sjón- varpsáhorfendur tók við þáttur í umsjón Matthíasar Viðars Sæ- mundssonar er hann nefndi: Nú er frost á Fróni. í þætti þessum var lýst ævi og kveðskap Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds. Litaðist Matthías Viðar um á æskuslóðum skáldsins og svo var skroppið uppí Lærða skóla þar sem Kristján dvaldi í fjóra vetur og að lokum hvarf Matthías til Vopnaflarðar þar sem Kristján lést árið 1869 af of- neyslu áfengis. Andinn í þættinum var reyndar mjög dimmleitur líkt og lífsferill Kristjáns en vönduð vinnubrögð Matthíasar Viðars ieiddu áhorfandann inní þann tíma er Fjallaskáldið lifði og þótti mér merkilegt hversu náið andlegt sam- býli sumir viðmælendur Matthíasar hafa við hinn horfna tíma er þjáði Fjallaskáldið. Þáttur Matthíasar Viðars á svo sannarlega erindi á bókasöfn skólanna við hlið Skóla- ljóðanna. Ekki veitir okkur af að standa vörð um þjóðlega menningu í landi varaflugvallanna. Opin lína Nýr þáttur, Opin lína, hófst á Stöð 2 á mánudagskveld. í þessum fyrsta þætti hringdu hlustendur til Páls Magnússonar og fyrsta gests- ins, Ellerts B. Schram ritstjóra DV, og ræddu um efni nýritaðs Velvak- andabréfs þar sem ákveðnir fjöl- miðlar voru átaldir fyrir að birta mynd af ónefndum sakamanni. Ekki voru nú viðmælendur þeirra Páls og Ellerts á sama máli og bréfritari og vildu hiklaust birta myndir af dæmdum kynferðisaf- brotamönnum og eiturlyQasmygl- urum. Vona ég bara að línan hans Páls verði opin sem lengst því sjald- an lýgur almannarómur. SviÖsljós Að lokum vil ég minna á Sviðs- ljós mánudagsins þar sem Jón Óttar nam land á Djöflaeyju Einars Kára- sonar vestur í leikskemmu Leik- félags Reykjavíkur. Tókst Jóni Óttari bærilega að nálgast þá braggastemmningu er ríkir í verk- inu þótt sviðsljósunum hafí fremur verið beint að utangarðsmenning- unni sem slíkri. Þótti mér gaman af rimmu þeirra Einars Kárasonar og Atla Heimis. Bubbi lýsti enn einu sinni erfíðri æsku sinni og Herdís Egilsdóttir höfundur Rympu á ruslahaugnum lýsti utangarðs- bömum húsnæðislánakerfísins þar sem ekki er nóg með að kallinn sé aldrei heima. Léttur og leikandi þáttur í viðjum ágætrar tónlistar. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNYARP Stöð tvö: Opin lína Stöð tvö hefur Rás 1: Mál mála 00 nú tekið upp enn ein nýmælin, en þau eru fólgin í því að gefa áhorfendum kost á því að hringja inn í beina útsend- ingu og spyrja stjómanda og gesti hans spuminga um hvað það sem hugurinn gimist. Þetta hefur tíðkast í útvarpi um áratugaskeið, en hefur ekki gert í sjón- varpi hér á landi fyrr. Það er Bryndfs Schram, sem ríður á vaðið og í þess- um fyrsta þætti ætlar hún að ræða við sr. Þorvald Karl Helgason, sóknar- prest í Njarðvíkum. Hann hefur verið með ýmsa ný- breytni í safnaðarstarfí og má nefna að hann hefur boðið hjónafólki til sam- verustundar í Skálholti, þar sem ræddir eru ýmsir erfíð- leikar, sem hjónabandinu eru samfara og sambýlis- vandamál brotin til mergj- ar. Þátturinn stendur í stundarfjórðung hveiju sinni og fyrst um sinn verð- ur hann fjórum sinnum í viku — á miðvikudögum, fimmtudögum, föstudög- um og mánudögum. Umsjónarmenn verða ýms- ir og skipta þeir málaflokk- um sín á milli. Þannig fær Bryndís ýmsa áhugaverða einstaklinga til sín, frétta- menn stöðvarinnar munu fá til sín menn sem tengj- ast fréttum, Helgi Hjörvar Bryndís Schram. verður með málefni ungl- inga á sinni könnu o.s.frv. Beinn sími þáttarins er 673888. ■i í kvöld er á dag- 40 skrá þátturinn Mál mála, en í honum fjalla þeir Sigurður Jónsson og Sigurður Kon- ráðsson um íslenskt mál frá ýmsum hliðum. I kvöld fjalla þeir nafnar um skýrslu nefndar, sem starfaði á vegum mennta- málaráðherra á árunum 1985-86 og skilaði nýlega niðurstöðu _ sinni undir nafninu „Álitsgerð um málvöndun og frambu'rðar- kennslu í grunnskólum". Höfundar eru engir ný- græðingar í faginu, en í nefndinni sátu Guðmundur B. Kristinsson, yfírkennari og fonnaður nefndarinnar, Baldur Jónsson, prófessor og formaður íslenskrar málnefndar, Höskuldur Þráinsson, prófessor, og Indriði Gíslason, dósent. Jafnmikið og rætt hefur verið um framburð og mál- vöndun á undanfömum árum hlýtur skýrsla af þessu tagi að vekja tals- verða forvitni. Álitsgerðin er býsna viðamikið plagg — og hluta þess er ætlunin að rýna í til gagns í þættin- um. Umsjónarmenn ætla að einbeita sér að nefndar- álitinu sjálfu og tillögum um framkvæmd málvönd- unar og kennslu framburð- ar í grunnskólum. Verður umfjöllunin þó síst gagn- rýnislaus. ÚTVARP MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 6.45 Veðurfregnir. Bæn 7.00 Fréttir 7.03 Morgunvaktin Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Lára Marteinsdóttir. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 9.00 Fréttir 9.03 Morgunstund barn- anna: „Fjörulalli" eftir Jón Viðar Gunnlaugsson. Dóm- hildur Sigurðardóttir les (3). (Frá Akureyri.) 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesið úrforustugreinum dagblaðanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir 10.30 Úr fórum fyrri tíöar. Umsjón: Ragnheiöur Viggósdóttir 11.00 Fréttir 11.03 íslenskt mál Endurtekinn þáttur frá laug- ardegi sem Ásgeir Blöndal Magnússon flytur. 11.18 Morguntónleikar: a. „Konuljóð", lagaflokkur op. 42 eftir Robert Schu- mann. Sigríður Ella Magn- úsdóttir syngur þýðingu Daníels Á. Daníelssonar. Ólafur Vignir Aibertsson leikur á píanó. b. Sónata í g moll op. 22 eftir Robert Schumann. Rögnvaldur Sigurjónsson leikur á píanó. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Börn og skóli. Umsjón: Sverrir Guðjónsson. 14.00 Miödegissagan: „Það er eitthvað sem enginn veit." Liney Jóhannesdóttir les endurminningar sínar sem Þorgeir Þorgeirsson skráði (6). 14.30 Noröurlandanótur. Svíþjóð. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá Vestfjörðum. Umsjón: Finn- bogi Hermannsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá 16.15 Veöurfregnir 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir 17.03 Síðdegistónleikar a. Oktett í Es-dúr Wetphal- kvartettarnir leika. b. Cansonetta I Es-dúr op. 12. Herzfeld-kvartettinn leikur. 17.40 Torgiö — Menningar- straumar. Umsjón: Þorgeir Ólafsson. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir 19.30 Tilkynningar. Fjölmiðla- rabb. Gunnar Karlsson flytur. Tónleikar. 20.00 Ekkert mál. Bryndís Jónsdóttir og Sigurður SJÓNVARP MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 18.00 Úr myndabókinni — 42. þáttur. Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Umsjón: Agnes Johansen. Kynnir Sólveig Hjaltadóttir. 19.00 Prúðuleikararnir — Valdir þættir 20. Með Julie Andrews Brúðumyndasyrpa með bestu þáttunum frá gullöld prúðuleikara Jim Hensons og samstarfsmanna hans. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 19.25 Fréttaágrip á táknmáli. 19.30 Spurt úr spjörunum Spyrlar: Ómar Ragnarsson og Kjartan Bjargmundsson. Dómarar: Baldur Her- mannsson og Friðrik Ólats- son. 20.00 Fréttir og veður 20.35 Auglýsingarogdagskrá 20.40 í takt við tímann Blandaður þáttur um fólk og fréttnæmt efni. Umsjónarmenn: Jón Hákon Magnússon, Elísabet Þóris- dóttir og Ólafur Torfason. Útsendingu stjórnar Marí- anna Friðjónsdóttir. 21.35 Sjúkrahúsið í Svarta- skógi (Die Schwarzwaldklinik) 22. þáttur Þýskur myndaflokkur sem gerist meðal lækna og sjúkl- inga í sjúkrahúsi í fögru héraði. Aöalhlutverk: Klausjúrgen Wussow, Gaby Dohm, Sascha Hehn, llona Grúbel, Angelika Reissner og Karin Hardt. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. 22.20 Rokkhátíö i Mainz (Peter's Pop Show) Frá hljómleikum í Þýska- landi í desember 1986. Þetta kvöld skemmta hljóm- sveitin Europe, Samantha Fox, Billy Idol og Robert Palmer. Hljómleikarnir halda áfram sunnudaginn 22. febrúar kl. 22.30. (Evróvision — þýska sjón- varpið) 22.65 Fréttir I dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar § 17.00 Besta litla hóruhúsiö í Texas (Best Littie Whore- house in Texas). Bandarísk kvikmynd með Burt Reyn- olds, Dolly Parton og Dom Deluise í aðalhlutverkum. í nágrenni bæjar nokkurs hefur verið rekið vændishús í 150 ár með vitund og sam- þykki bæjarbúa. Allt gengur sinn vanagang þar til sjón- varpiö kemst í máliö. Endursýning. § 18.30 Myndrokk. 19.00 Gúrnmíbirnirnir. Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.000pin llna. Áhorfendum gefst kostur á að hringja í síma 673888 og spyrja stjórnanda og gest hans um allt milli himins og jaröar. ( kvöld er það Bryndís Schram, sem sér um þátt- inn. 20.15 Bjargvætturin. (Equal- izer.) §21.06 Húsið okkar. (Our house.) Bandarískur fjöl- skylduþáttur. §21.60 Tískuþáttur. Umsjón- armaöur er Helga Bene- diktsdóttir. §22.20 Zardoz. Bandarísk bíómynd með Sean Conn- ery og Charlotte Rampling í aðalhlutverkum. Leikjstóri er John Boorman. Heldur nöturleg framtiðarsýn er greinir frá lífi á plánetunni Zardoz árið 2293. Sean Connery leikur mann sem sættir sig ekki við ríkjandi skipulag og hefur baráttu gegn ráðamönnum. 00.00 Dagskrárlok. Blöndal sjá um þátt fyrir ungt fólk. 20.40 Mál máia. Sigurður Jónsson og Siguröur Kon- ráðsson fjallá um íslenskt mál frá ýmsum hliðum. 21.00 Gömul tónlist. 21.20 Á fjölunum. Þáttur um starf áhugaleikfélaga. Um- sjón: Haukur Ágústsson. (Frá Akureyri.) 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les 3. sálm. 22.35 Hljóð-varp Ævar Kjartansson sér um þátt í samvinnu við hlust- endur. 23.10 Djassþáttur Jón Múli Árnason. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 9.00 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Kristjáns Sigurjónssonar. Meöal efnis: Plötupotturinn, gestaplötusnúður og get- raun um íslenskt efni. 12.00 Hádegisútvarp ' með fréttum og léttri tónlist í umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Kliður. Þáttur i umsjá Ólafs Más Björnssonar. . 15.00 Nú er lag. Gunnar Salv- arssonar kynnir gömul og ný úrvalslög. MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 07.00—09.00 Á fætur með Siguröi G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blööin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Opin lina til hlustenda, mataruppskriftir og sitthvað fleira. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn. Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla við fólk. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar síödegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. 16.00 Taktar. Stjórnandi: Heiðbjört Jóhannsdóttir. 17.00 Erill og ferill. Þáttur með tali og tónum i umsjá Ernu Arnardóttur. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagöar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30-18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavik og nágrenni - FM 90,1 AKUREYRI 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 Héðan og þaöan. Frétta- menn svæðisútvarpsins fjalla um sveitarstjórnarmál og önnur stjórnmál. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Haligrimur Thorsteinsson í Reykjavik siðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. 19.00—21.00 Hemmi Gunn í miðri viku. Létt tónlist og þægilegt spjall eins og Hemma einum er lagið. 21.00—23.00 Ásgeir Tómas- son á miövikudagskvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Ljúf tónlist og fréttatengt efni. Dagskrá (umsjá Karls Garð- arssonar fréttamanns. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veöur. ALFA Krlatllef átruftaiM. FM 102,9 MIÐVIKUDAGUR 18. febrúar 13.00 Tónlistarþáttur r lestri úr Ritningunni. 16.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.