Morgunblaðið - 18.02.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Litlir borg-
unarmenn
í bílavið-
skiptum
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur undanfarið rannsakað mál
þriggja manna vegna meints
víxlamisferlis. Mennirnir voru
úrskurðaðir i 5, 6 og 7 daga
gæsluvarðhald, en þeim hefur
nú verið sleppt úr haldi.
Að sögn Arnars Guðmundssonar,
deildarstjóra hjá RLR, hafði lög-
reglan spumir af því að mennirnir
þrír hefðu gefið út víxla í nokkru
magni. Lögreglan hefur áður haft
afskipti af þeim vegna fjármálamis-
ferlis og vissi að þeir eru litlir
borgunarmenn. Því var farið á stúf-
ana til að koma í veg fyrir notkun
þeirra á víxlunum. Lögreglan lagði
hald á bróðurpartinn af víxlunum,
en alls munu mennimir hafa gefið
út víxla upp á rúmar 2 milljónir.
Þeir víxlar sem þegar vom komnir
í umferð höfðu verið notaðir í bíla-
viðskiptum. Mennirnir notuðu nafn
fyrirtækis sem þeir höfðu stofnað
í tilefni viðskiptanna.
VEÐUR
Ræktunarsamband Flóa- og Skeiða eru verktakar að grunni hússins á horni Garðarstrætis og Vesturgötu. Homið er ein samfelld klöpp
enda kostar 10 milljónir að sprengja niður í eðlilega hæð.
Sprengíngar valda usla í miðbænum:
Húsið hristist allt og nötrar
segir Guðjón Egilsson, annar eigandi Naustsins
MIKLAR sprengingar eiga sér
stað á horni Garðastrætis og
Vesturgötu þar sem verið er að
vinna í grunni að heimili fyrir
aldraða, heilsugæslustöð ogþjón-
ustumiðstöð en í kjallara hússins
er gert ráð fyrir bifreiðageymslu
á tveimur hæðum. Veitingahúsið
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurslofs islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gaer)
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Um 700 km suðaustur af landinu er
hægfara 1032 millibara hæð. Skammt norðaustur af Nýfundna-
landi er 972 millibara djúp lægð og á Grænlandshafi er grunnt
lægðardrag sem þokast norðaustur.
SPÁ: Fremur hæg sunnan- og suðvestanátt og hlýtt í veðri. Víða
verður súld eða rigning öðru hverju nema á norðaustur- og austur-
landi. Þar veröur þurrt að kalla.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR OG FÖSTUDAGUR: Hæg breytileg átt og súld
um landið sunnanvert en smáél á annesjum norðanlands. Hiti á
bilinu 2 til 5 stig sunnanlands en nálægt frostmarki fyrir norðan.
y. Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r /
/ r / / Rigning
r r r
* / *
r * / * Slydda
r * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’ , » Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tima
hlti veður
Akureyrl 4 skýjað
Reykjavík 4 súld
Bergen vantar
Helslnkl -6 snjókoma
Jan Mayen vantar
Kaupmannah. -1 skýjað
Narssarssuaq 10 alskýjað
Nuuk 0 skýjað
Osló vantar
Stokkhólmur -2 snjókoma
Þórshöfn vantar
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 3 skýjað
Aþena 16 skýjað
Barcelona S skýjað
Berlfn -1 kornsnjór
Chicago -3 skýjað
Glasgow 3 skýjað
Feneyjar 8 rigning
Frankfurt 1 skýjað
Hamborg -1 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
London 3 skýjað
LosAngeles 9 heiðskirt
Lúxemborg -2 snjókoma
Madríd 12 skýjað
Malaga 18 skýjað
Mallorca 9 alskýjað
Miami 19 skýjað
Montreal -21 þokaígr.
NewYork -7 lóttskýjað
París 0 snjóél
Róm 12 hátfskýjað
Vín 3 mlstur
Washington 0 alskýjað
Winnipeg —6 snjókoma
Naustið er hinumegin götunnar
og sagði Guðjón Egilsson annar
eigandi staðarins að húsið, sem
er gamalt tæki mikið á sig í
sprengingunum.
„Húsið hristist allt og nötrar
enda ekki nema fjórir metrar milli
okkar og grunnsins," sagði Guðjón.
„Gestum í hádeginu er að vonum
illa við gauraganginn enda tökumst
við stundum á ioft. Þetta var allt í
lagi í fyrstu en nú eru þeir að fær-
ast nær okkur og eru farnir að
sprengja alveg á hominu. Við fórum
upphaflega fram á að ekki yrði
sprengt frá hádegi tit 15:30 og
ekki eftir kl. 18 en því hefur ekki
verið sinnt.“
Að sögn Guðmundar Pálma
Kristinssonar forstöðumanns bygg-
ingadeildar Reykajvíkurborgar
verður endanlegur grunnur 6 til 7
metrar á dýpt og á verkinu að vera
lokið síðast í mars. Hann sagði að
húsin í nágrenninu hefðu öll verið
sprungumæld áður en framkvæmd-
ir hófust og yrðu þær mælingar
hafðar til hliðsjónar ef um ein-
hveijar skemmdir yrði að ræða
vegna sprenginganna.
Það er Ræktunarsamband Flóa-
og Skeiða sem er verktaki að grunn-
inum og var tilboð þeirra í verkið
4 milljónir króna en kostnaðaráætl-
unin var 10 milljónir.
Ullarverksmiðjurnar stöðva móttöku á ull:
Stéttarsamband-
ið vill rannsókn
Ullarverksmiðjurnar hafa stöðvað móttöku á ull vegna óvissu
um verðlagningu hennar. Álafoss og iðnaðardeild SÍS auglýstu
þetta um helgina. Af þessu tilefni hefur stjórn Stéttarsambands
bænda ritað Jóni Helgasyni landbúnaðarráðherra bréf þar sem
farið er fram á rannsókn á ullarmálunum.
í bréfi Stéttarsambandsins kem-
ur fram að ullarverksmiðjurnar
hafi tilkynnt að þær séu ekki reiðu-
búnar til frekari ullarkaupa vegna
mikilla birgða frá fyrra ári og að
íslenska ullin henti ekki til þeirrar
fataframleiðslu sem verksmiðjurn-
ar nú stunda vegna þess hvað hún
er gróf. Að mati verksmiðjanna
væri einungis hægt að greiða
10—12 krónur fyrir hvert kíló ullar
við_ núverandi aðstæður.
í ályktun sem samþykkt var á
fundi stjórnar Stéttarsambandsins
segir að sambandið líti mjög alvar-
legum augum á þá stöðu sem við
blasi í sölumálum ullarinnar. Minnt
er á að á sínum tíma hafí tekist
að vinna markað fyrir íslenskar
ullarvörur vegna sérkenna íslensku
ullarinnar og að fyrir fáum árum
hafí ullarverksmiðjumar krafíst
þess að ull yrði ekki flutt úr landi
svo að íslenskur iðnaður sæti einn
að þessu úrvals hráefni.
Síðan segir í ályktuninni:
„Stjóm Stéttarsambands bænda
telur óhjákvæmilegt að fram fari
hlutlaus rannsókn á þróun þessara
mála og vinnslu og markaðsmálum
ullariðnaðarins í heild. Einnig verði
kannað hvort skapa megi aðra
vinnslumöguleika fyrir íslenska ull
eða flytja hana óunna úr landi að
öðrum kosti.“
Leiðrétting
1 frétt um útkomu blaðsins
Reykjanes sl. sunnudag var nafn
ritstjórans ranglega skrifað.
Hann heitir Sigmundur Ó. Stein-
arsson. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Vankantar sniðnir
af kosningalögum
TILLOGUR um breytingar á kosningalögunum frá 1984 komu fram
á Alþingi í gær og stendur kosningalaganefnd neðri deildar sameigin-
lega að þeim. Þar er gert ráð fyrir ýmsum lagfæringum á reiknireglum
laganna og orðalagi. Miða breytingarnar að því að gera lögin einfald-
ari og nákvæmari og sníða af þeim ýmsa vankanta. Ekki er um að
ræða neinar efnislegar grundvallarbreytingar.
Ýmsir þingmenn hafa beitt sér úr 60 í 63. Þingmenn Reykjavíkur
fyrir því, að gerðar verði róttækar
breytingar á úthlutunarreglum
kosningalaganna. Hugmyndir þar
að lútandi hafa verið ræddar ýtar-
lega í kosningalaganefnd, en engin
samstaða hefur tekist.
Samkvæmt kosningalögunum,
sem kosið verður eftir í fyrsta sinn
á þessu ^PíðͧHtf^¥]@|¥{önnunl
verða 18, þar 14 kjördæmissæti og
4 svonefnd jöfnunarsæti; Reykjaness
11 (9+2); Norðurlands eystra 7
(6+1); Suðurlands 6 (5+1); Vestur-
lands 5 (4+1); Vestfjarða 5 (4+1),
Norðurlands vestra 5 (4+1); Austur-
lands 5 (4+1) og eitt sæti verður
óbundið.