Morgunblaðið - 18.02.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987
Neytendasamtökin:
Hárskerar endur-
skoði gjaldskrár
sínar hið bráðasta
Myndum fagna verðlagseftirliti til
að losna við Neytendatrúboðið, segir
talsmaður hárskera
NEYTENDASAMTÖKIN hafa farið þess á leit við rakara að þeir
endurskoði gjaldskrár sínar hið bráðasta svo samtökin þurfi ekki
að hlutast til um að krafist verði verðlagsákvæða að nýju vegna
þessarar þjónustu eða til upplýsingaherferðar þurfi að koma varð-
andi gjaldskrárnar.
%
Fífíll GK keyrir Út nótina á miðunum Morgunblaðið/J6n Páll Ásgeirsson
Mjög mikil loðnuveiði
Þróarrými víðast hvar á þrotum
MJÖG mikil loðnuveiði hefur verið undanfarna daga og því er þróar-
rými á þrotum í höfnunum næst veiðisvæðinu. Verksmiðjurnar í
Reykjavík taka við mjög litlu þar sem þær vilja hafa nægilegt pláss,
þegar að frystingu hrogna kemur. Vegna þessa hafa skipin farið
með afla norður á Siglufjörð og í Krossanes svo og til Færeyja, en
þangað er styttra en norður fyrir. Verð fyrir hveija lest er nú 2.200
krónur fjærst miðunum en lækkar eftir því, sesm nær þeim dregur.
Skortur á þróarrými veldur meðal annars vændræðum fyrir þau
skip, sem frysta um borð, þar sem þau þurfa að losna við úrganginn
í bræðslu.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið, tilkynntu eftirtalin um
Ályktun þessi var samþykkt á
stjómarfundi Neytendasamtakanna
5. febrúar sl. í framhaldi af verð-
könnun Verðlagsstofnunnar á
gjaldskrám hársnyrtistofa, sem birt
var fyrir skömmu. í ályktuninni
segir að í verðkönnuninni hafí kom-
Gott verð á
fiskmörkuð-
um erlendis
VERÐ á fiskmörkuðunum í
Bretlandi og Þýzkalandi er
nokkuð gott um þessar mund-
ir. Tæplega 60 krónur fást
fyrir kíló af karfa í Bremer-
haven og verð á kola fór að
meðaltali i 70 krónur í Bret-
landi á mánudag.
Snorri Sturluson RE seldi á
þriðjudag 237 lestir, mest karfa í
Bremerhaven. Heildarverð var
13,5 milljónir króna, meðalverð
57,13. 35 lestir af ufsa voru í aflan-
um og dró það verðið nokkuð niður.
Á mánudag voru seldar í Bret-
landi 179 lestir af físki úr gámum
héðan. Heildarverð var 10,8 millj-
ónir króna, meðalverð 60,50. 102
lestir voru af þorski á 57,43 krón-
ur á kíló, 34 lestir af ýsu á 67,02
og 24 af kola á 70,55. Síðdegis á
þriðjudag höfðu LÍÚ borizt upplýs-
ingar um sölu á 76 lestum með
sama hætti. Heildarverð var 4,1
milljón króna, meðalverð 54,14.
62 lestir af þorski fóru að meðal-
tali á 51,75, 7 lestir af ýsu á 64,54
og ein lest af kola á 68,15.
Umræður útvarpsráðsmanna
spunnust í kjölfar þáttarins síðast-
liðinn miðvikudag, sem sendur var
út frá vararafstöð Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. í þættinum var rætt
við Jón Pál Sigmarsson sem klædd-
ur var flík sem auðkennd var
fyrirtækisheiti og drakk Svala á
meðan á viðtalinu stóð, en hann
Leiðrétting
Greinin „íslensk abstraktlist —
seinni hluti", sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær er eftir Braga
Ásgeirsson, en nafn hans féll niður.
Þá stóð í myndatexta að myndin
væri eftir Guðmundu Daníelsdóttur
en átti auðvitað að vera Guðmunda
Andrésdóttir. Eru þau og lesendur
beðnir velvirðingar á þessum mis-
tökum.
ið í ljós að verð á hárklippingu hafí
víðast hvar hækkað mjög mikið að
undanfömu og langt umfram al-
mennar verðhækkanir.
Torfi Geirmundsson, formaður
Sambands hárgreiðslu- og hár-
skera, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hér á landi væri klipping
mjög ódýr miðað við nágrannalönd-
in og hefðu gjaldskrár lækkað til
muna miðað við almenna verðlags-
þróun síðan gjaldskrár hárskera
hefðu verið gefnar fijálsar fyrir
rúmum tveimur árum. Hann sagði
að áður hefði klipping verið tekin
með í útreikningi framfærsluvísi-
tölunnar, en aldrei gefíð rétta mynd
af verði hárskera, þar sem þær töl-
ur hefðu aðeins verið liður í fölsun
vísitölunnar eins og svo margt ann-
að. „Við myndum fagna því að
komast undir eftirlit aftur í stað
þess að vera stöðugt undir smásjá
Neytendatrúboðsins. Við gætum þá
lagt fram okkar réttlætingu á
hækkun taxta án þess að verða
fyrir áróðri þessara verðkannanna,"
sagði Torfí.
Hann sagði að nú væri verðmis-
munur hárskera allt upp í 80 til
90% sem ætti í sjálfu sér að vera
gott fyrir neytandann. Þetta fijáls-
ræði hefði hinsvegar gengið að
félagasamtökunum nær dauðum,
þar sem verðlagsmálin haldi félags-
mönnum ekki saman lengur.
„Samtökin standa að vísu fyrir
námskeiðum, en þeir hárskerar sem
lægstir koma út í verðkönnunum,
sækja þau aldrei og kynna sér
hvorki nýjungar hér heima né er-
lendis. Sá kostnaður sem fylgir
kynningum og námskeiðum, hlýtur
hinsvegar að koma fram í verði
þeirra hárskera, sem leita eftir
slikum nýjungum,“sagði Torfí.
vinnur meðal annars fyrir sér með
auglýsingastarfsemi, að eigin sögn.
Pétur Guðfínnsson, framkvæmda-
stjóri sjónvarpsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að Jón Páll hefði
leikið þennan auglýsingaleik sinn
áður í þættinum „Itakt við tímann"
er Jón Gústafsson var fyrirliði
stjómenda.
í þættinum síðastliðið miðviku-
dagskvöld voru einnig kynntar
nýjungar í tölvubúnaði og tölvufor-
ritum. Gagnrýni útvarpsráðsmanna
var hinsvegar ekki eins eindregin á
þann hluta þáttarins, þrátt fyrir að
nöfn tölvufyrirtækja hafí komið
fram.
Eftir þáttinn „í takt við tímann"
sem á dagskrá var um miðjan jan-
úar síðastliðinn og sendur var út
frá skíðaskálanum í Bláfjöllum þótti
útvarpsráðsmönnum einnig of langt
afla á föstudag: Hilmir II SU 580,
Bjami Ólafsson AK 1.170, Sigurður
RE 1.400 og Höfmngur AK 920
lestir.
ins varðandi starfsleyfi fyrir
síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
urnar að Kletti og í Örfirisey,
gengið í svokallaðri óbeinni auglýs-
ingastarfsemi og var Ólafi Hauks-
syni þá ritað áminningarbréf. í þeim
þætti var meðal annars tískusýning
þar sem greint var frá hvar viðkom-
andi fatnaður fékkst og verði hans,
að sögn Péturs.
Jón Hákon Magnússon, fyrirliði
þáttarins „í takt við tímann" annað
hvert miðvikudagskvöld, er að fá
til liðs við sig nýja dagskrárgerðar-
menn, þau Olaf H. Torfason
blaðafulltrúa bændasamtakanna og
Elísabetu Þórisdóttur forstöðu-
manns Gerðubergs, í stað þeirra
Karítasar Gunnarsdóttur og Elísa-
betar Sveinsdóttur.
Elísabet Sveinsdóttir hefur að
eigin ósk látið af störfum vegna
nýs spumingaþáttar, „Gettu betur",
sem hún nú verður meðal umsjónar-
manna að. Framkvæmdastjóm
sjónvarpsins hefur hinsvegar óskað
eftir þvf að Karítas verði falin önn-
ur verkefni, þar sem hæfileikar
hennar munu nýtist betur, að sögn
Péturs.
Á laugardag vom eftirtalin skip
með afla: Víkurberg GK 300 í fryst-
ingu, Beitir NK 1.250, Eskfírðingur
SU 610, Grindvíkingur GK 1.020,
Víkingur AK 1.350, Þórður Jónas-
.son EA 700, Guðmundur Ólafur
sem send hefur verið heilbrigð-
isráði Reykjavíkurborgar, er
harmað að ekki skuli vera gert
ráð fyrir auknum búnaði til lyk-
teyðingar.
í umsögninni segir enn fremur:
„Heilbrigðisráð fagnar því að vinnu
við starfsleyfístillögur fyrir físki-
mjölsverksmiðjur Sfldar- og fisk-
mjölsverksmiðjunnar í Reykjavík
h.f. er nú lokið. Jafnframt er það
harmað, að ekki skuli í tillögunni
gert ráð fyrir auknum búnaði til
lyktareyðingar.
Ráðið telur nauðsynlegt vegna
fenginnar reynslu af núverandi
hreinsunarbúnaði, að í verksmiðjun-
um verði tekin upp besta lyktareyð-
ingaraðferð, sem völ er á. í ljósi
þess, hve margir verða fyrir óþæg-
indum af völdum ólyktar frá
verksmiðjunum telur ráðið að nauð-
synlegum breytingum til að koma
þessu í kring þurfi að vera lokið
eigi síðar en árið 1991.“
ÓF 530, Þórshamar GK 600, Dag-
fari ÞH 470, Gísli Ámi RE 300 í
frystingu, Bergur VE 530, Guð-
mundur VE 900, Gígja VE 350 í
frystingu, Kelfvíkingur KE 540,
Hilmir II SU 590, Erling KE 700
og ísleifur VE 350 í fyrstingu.
Á sunnudag voru þessi skip með
afla: Bjami Ólafsson AK 1.150,
Albert GK 600, Höfrungur AK 900
Öm KE 400 í frystingu, Gullberg
VE 300 í frystingu, Hilmir SU 600
í frystingu, Huginn VE 600, Sigurð-
ur RE 1.380, Hákon ÞH 800,
Eskfírðingur SU 550, Guðrún Þor-
kelsdóttir SU 700, Jón Finnsson
RE 1.250, Helga II RE 570, þar
af 40 um borð í Siglfirðing á miðun-
um, Dagfari ÞH 530, Grindvíkingur
GK 1.020, Magnús NK 400 í fryst-
ingu, Víkurberg GK 560, Júpíter
RE 550 í frystingu, ísleifur VE 300
í frystingu, Rauðsey AK 200, átti
að fara í frystingu, en hrognafylling
var ekki næg, Eldborg HF 1.450,
Hilmir II SU 590, Sighvatur Bjam-
asaon VE 350 í frystingu, Guð-
mundur Ólafur ÓF 600 og Erling
KE 700 lestir.
Á mánudag vom eftirtalin sksip
með afla: Kap II VE 550 í fryst-
ingu, Börkur NK 900, Keflvíkingur
KE 540, Bjami Ólafsson AK 1.100,
Eskfirðingur SU 600, Harpa RE
300 í frystingu, Albert GK 600 til
Færeyja, Huginn VE 600 til Fær-
eyja, Gísli Ámi RE 450 í frystingu,
Helga II RE 530, ísleifur VE 280
í frystingu, Þórshamar GK 600 til
Færeyja, Sigurður RE 1.300, Berg-
ur VE 510, Víkingur AK 1.400,
Höfmngur ÁK 800, Öm KE 500 í
frystingu, Víkurberg GK 560, Gígja
VE 300 í frystingu, Gullberg VE
450 í frystingu, Jón Finnsson RE
1.250 og Guðrún Þorkelsdóttir SU
550.
Um miðjan dag á þriðjudag höfðu
eftirtalin skip tilkynnt um afla: Sig-
hvatur Bjamason VE 310 í fryst-
ingu, Beitir NK 650 í frystingu,
Guðmundur VE 885 í frystingu,
Fífíll GK 650 til Færeyja, Eskfírð-
ingur SU 620, Hilmir II SU 590
og Magnús NK 350 í frystingu.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík:
Fiindur haldimi um
skattamál í kvöld
GEIR H. Haarde aðstoðarmað-
ur fjármálaráðherra mun fjalla
um skattamál á fundi Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna i
Reylqavík, sem haldinn verður
í kvöld, miðvikudaginn 18. feb-
rúar. Fundurinn hefst kl. 20.30
í sjálfstæðishúsinu Valhöll.
Ennfremur verður á fundinum
gengið frá kosningu fulltrúa á
landsfund Sjálfstæðisflokksins,
sem haldinn verður dagana 5.-8.
mars nk. í Laugardalshöll.
Mannabreytingar í
„I takt við tímann“
Olafur Hauksson verði ekki ábyrgðarmaður þáttarins
LAGT var til á fundi útvarpsráðs sl. föstudag að einhver annar en
Ólafur Hauksson, einn stjómenda þáttarins „I takt við tímann“ yrði
fenginn til að bera ábyrgð á þættinum. Aðrir umsjónarmenn þáttar-
ins eru Ásdís Loftsdóttir og Ásthildur Bernharðsdóttir. Ólafur
Hauksson gæti þó starfað áfram sem dagskrárgerðarmaður.
Heilbrigðisráð:
Betri hreinsibúnað
að Kletti og í Örfir-
isey fyrir árið 1991
í UMSÖGN Heilbrigðiseftirlits-