Morgunblaðið - 18.02.1987, Síða 57
Þyska knattspyrnan:
A Stuttgart mögu-
leika þrátt fyrir mikil
meiðsli lykilmanna?
Frá Sigurði Björnssyni f V-Þýskalandi.
HÉR á eftir fer annar htuti samantekar um þýsku Bundesliguna í
knattspyrnu og að þessu sinni athugum við lið Asgeirs Sigurvinsson-
ar, Stuttgart, Kaiserslautern, Werder Bremen og Dortmund. Hvort
þessi lið eiga eftir að komast ofar á listanum yfir efstu lið er ekki
gott að segja en keppnin um sœti í Evrópukeppnunum verður hörð
og mikil og þessi lið eiga öll möguleika á að blanda sér í hana.
\
Stuttgart
Lið Ásgeirs Sigurvinssonar er nú
í fjórða sæti, aðeins tveimur stig-
um á eftir. Hamborg og Bayern.
Það hefur gengið á ýmsu hjá
Stuttgart í vetur og þá oftast í
kringum þjálfara liðsins, Egon Co-
ordes, en hann er nú í fyrsta skipti
aðaiþjálfari liðs í Bundesligunni,
hann var áður aðstoðarþjálfari Udo
Latteks hjá Bayern. Menn bjug-
gust við miklu af Stuttgart í upphafi
tímabilsins, en mikil meiðsl lykil-
leikmanna settu strik í reikninginn.
Sérstaklega í Evrópukeppninni
höfðu menn gert sér góðar vonir,
en Stuttgart var slegið út af rússn-
eska liðinu Torpedo Moskva í
annarri umferð og fékk Stuttgart
skell á heimavelli gegn þeim. Fór
þá allt í háaloft og kröfðust áhang-
endur liðsins að Coordes segði af
sér. En Stuttgart varð fyrir enn
einu áfallinu er Ásgeir meiddist
eins og kunnugt er, og má segja
að það hafi verið vendipunkturinn.
Eftir að Ásgeir meiddist hefur
Stuttgart ekki tapað leik í Bundes-
ligunni og hefur náð að halda í við
hin toppliðin. í seinni umferðinni
má búast við að Stuttgart bíti frá
sér, en að öllum líkindum getur
Coordes þá teflt fram sínu sterk-
asta liði, en Stuttgart getur státað
af sterkustu miðjunni í Bundeslig-
unni með leikmenn eins og lands-
liðsmennina Buchwald, Allgöwer,
Schröder og svo Ásgeir, sem var
í mjög góðu formi áður en hann
meiddist. Haldist friðurinn í her-
búðum Stuttgart og sleppi lykilleik-
menn við meiðsli er Stuttgart til
alls líklegt.
A
Werder Bremen W
Werder hefur valdið nokkrum von-
brigðum sem af er, en það verður
að taka með í reikninginn að marg-
ir af lykilleikmönnum þess eins og
Rudi Völler, Bruno Pezzey og fyrir-
liðinn Benno Möhlmann hafa verið
meira og minna meiddir. Eftir að
Bremen varð í öðru sæti tvö
síðastliðin ár og rétt misst af titlin-
um til Bayern voru menn í Bremen
orðnir langeygir eftir titlinum og í
ár átti það svo að takast. Að vísu
er Bremen aðeins fjórum stigum
eftir Hamborg og Bayern, en liðið
sýnir ekki þessa léttu skemmtilega
knattspyrnu sem þeir voru svo vin-
sælir fyrir. En eftir þetta langa frí
leikmanna og þegar allir leikmenn
liðsins ganga heilir til skógar, er
liðið til alls líklegt og eins og Rudi
Völler sagði: „Sá sem afskrifar
okkur á eftir að verða hissa".
Kaiserslautern er það lið sem
mest hefur komið á óvart, það sem
af er tímabilinu. Menn bjuggust
við liðinu í botnbaráttunni, en ann-
aö kom á daginn og er iiðið nú í
fimmta sæti með 20 stig. Hannes
Bongartz þjálfari og áður leikmað-
ur með Kaiserslautern, hefur náð
að byggja upp skemmtilegt lið og
sýnir Kaiserslautern skemmtilega
sóknarknattspyrnu hvort sem liðið
leikur heima eða á útivelli. Á
heimavelli sínum, Fritz Walter
Stadion, hefur liðið enn ekki tapað
leik og hefur það og gengi liðsins
gert það að verkum að heimaleikir
liðsins eru mjög vel sóttir. Fyrir
tímabilið höfðu forráðamenn Kais-
erlautern sagt að þeir þyrftu að
meðaltali um 15.000 áhorfendur
til þess að endar næðu saman og
í fyrri umferðinni hafa þeir haft um
30.000 áhorfendur að meðaltali á
hverjum heimaleik. Landsliðsmað-
urinn Wolfram Wuttke sem áður
var hjá Hamborg og Schalke og
þótti hinn mesti vandræðageml-
ingur, blómstrar undir stjórn
Bongartz og í vetur endurheimti
hann landsliðssæti sitt. Einnig
hafa leikmenn sem aldrei hafa leik-
ið í Bundesligunni blómstrað eins
og sóknarleikmennirnir Sergio
Allevi og Harald Kohr sem var fyr-
ir tímabilið áhugamaður hjá
Eintracht Trier en er nú ásamt
Hartmann markhæstur leikmanna
Kaiserslautern.
Borussia
Dortmund
Gengi Dortmund-liðsins hefur
komið nokkuð á óvart, en liöið
hefur síðastliðin ár staðið meira
og minna í fallbaráttunni. Hér
munar mikið um þá leikmenn sem
liðið keypti eftir síðasta tímabil en
það eru sóknarleikmennirnir Frank
Mill, sem þeir keyptu frá Mönch-
engladbach og Norbert Dickel sem
áður lék með Köln, en þeir tveir
til samans hafa skorað tuttugu
mörk fyrir Dortmund það sem af
er. Dortmund er mjög sterkt á
heimavelli, en á útivelli þykir liðið
ekki eins sterkt og hafa þeir tapaö
sínum flestum stigum þar, en Dort-
mund hefur sýnt að liðið er til alls
líklegt en Dormund var áður eitt
af sterkustu liðum Þýskalands og
eru forráðamenn liðsins og áhang-
endur mjög ánægðir með árangur-
inn til þessa.
Fyrirliði Stuttgart, Ásgeir Sigurvinsson, á fullri ferð gegn fyrrum
samherjum sínum f Bayern Munchen.
getrmina-
VINNINGAR!
26. leikvika - 14. febrúar
1987
Vinningsröð: 1 1 1 -XXX-1 X 1 - 1 2 1
1. vinningur: 12 réttir, kr. 69.010,-
4578+ 63114(4/11)+ 126509(6/11) 217615(16/11)+ 220751(7/11)
49609(4/11) 125245(6/11) 127285(6/11) 218792(11/11) 220853(9/11)
• Rudi Völler reynir að leika á varnarmenn Stuttgart f lelk liðanna fyrr í vetur. Werder Bremen er nú í
sjötta sæti en Stuttgart er f þvf fjórða og bæði liðin hafa fullan hug á að komast í Evrópukeppni næsta ár.
2. vinningur: 11 réttir, kr. 1.103,-
13 44168* 54519+ 95086 125083* 130215* 217868 220857
600 44330 54524+ 95806+ 125105 130271 218803 220580
3224 45284 55763 96668 125356 130283 215249 564562*
3910 45447 56337 56665 125554 130404 219368 564729
4588 + 46472+ 56706 57037 125553* 130416+ 219600 564737
4601 + 46841 56721*+ 9812 7 125657 130654 219680 564740
6778 47317 57095 58141* 125824 130708 215843 564743
10226 47478* 57117+ 98344 125838 201614 219855* 564744*
12712 45610 57118+ 58855 126054+ 210361* 220075+ 600795
13258 50728 57583 98896 126151* 210614 220138 600801
15585*’ 51131 5807*) 99053 126162 210744 220312 600807
16326 51231 58523 59332 126730 211024 220317* 613744
17541+ 51666 58546 100456 126741 211724* 220382* 638389
17543+ 52141 55073 100647 127071 212545 220397 638394
17547+ 52408+ 55770 100834 128261 213405 220400*+ 640174
17667+ 52424 59885 101167+ 128262 213515 220401*+ 640873
40473 52509 60556+ 101715 128377 214283 220685 669263
40753 52868 60846 102074 128701* 214507 220686
42020 53422 62778 102457 125199 216178 220759
42225* 53428 62792+ 102734 129201 216551 220860
43098 53751+ 62910+ 125044 125509 216768 220864
43215' 53880 62511 125057 129573 217616*+ 220865’ * - 2/11
43457 54516+ 63404+ 125067 125843 217766* 220874
Kærufrestur er til mánudagsins 9. mars 1987 kl. 12.00 á hádegi.
Kænir skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kænjr verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsirtgar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna fyrir lok kænifrests.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík