Morgunblaðið - 01.04.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987
45
Séð yfir sal 10 þar sem allar hrossasýningarnar fóru fram. Á grind-
inni í loftinu má sjá ljóskastarana sem óspart voru notaðir á
kvöldsýningunum.
[ dýralæknadeildinni er alltaf margt fróðlegt að sjá eins og þessi
uppþornaði hestur, sem hefur verið fleginn á annarri hliðinni, og
meira en það því ef grannt er skoðað má sjá hluta af innyflum hans.
Anna Bretaprinsessa gengur hér ásamt forstjóra Equitana, eða herra
Equitana eins og hann er kallaður, um eina sýningarhöllina eftir
að hafa horft á sýningu íslensku hestanna.
íslendinganna, Spánverjarnir með
Andalúsíu-hestana, sér ekki á strik
og hafði maður oft séð þá betri.
Þá daga, sem sýningin stóð yfir,
var mikið rætt um hvers vegna ís-
lendingar tækju ekki meiri þátt í
þessari sýningu, en raun ber vitni.
Töldu sumir að við ættum að_ mæta
þarna með hesta fædda á Islandi
og yera með okkar eigin sýningu,
en leyfa Þjóðveijum og öðrum út-
lendingum að vera með sína ís-
lensku hesta sér. Einnig voru
margir undrandi á því að íslensk
fyrirtæki skuli ekki notfæra sér í
ríkari mæli þessa sýningu því hana
sækja um 300 þúsund manns.
Spánverjarnir, sem voru með
Andalúsíu-hestana, höfðu töluvert
meira pláss en íslandsdeildin hafði
og voru þar stöðugt í gangi ein-
hverjar sýningar eða uppákomur
sem trekktu fólk að. Þá voru marg-
ir með ýmiss konar matvælakynn-
ingar. í íslandsdeildinni var Herbert
reyndar með sölu á íslenskri rækju,
graflaxi og reyktum laxi. Var
óhemju sala í þessu allan tímann
og mætti sjálfsagt margfalda söl-
una með meira plássi. En sjálfsagt
er með þetta eins og margt annað
að auðveldara er um að tala en í
að komast. En altént voru menn
upprifnir af góðum hugmyndum og
töldu möguleikana vannýtta fyrir
íslenska framleiðslu á þessum vett-
vangi. Væri án efa til bóta ef
íslenskir aðilar, sem hugsanlega
eiga eftir að taka þátt í þessari
sýningu á komandi árum, ynnu
saman við skipulagningu og fram-
kvæmd. Varðandi sýningu íslensku
hestanna virðist brýnt að fslending-
ar hafi hönd í bagga með útfærslu
sýningarinnar. Einnig er ljóst að
fleiri íslenskir knapar eiga brýnt
erindi í sýninguna þó ekki væri
nema til að bjarga skeiðsprettunum
sem vekja ávallt mesta hrifningu
áhorfenda á Equitana.
Púað á prinsessuna
Á þriðja degi sýningarinnar bar
það til tíðinda að Anna Bretaprins-
essa mætti á staðinn ásamt miklu
fylgdarliði. Átti hún að ganga í
sýningarsalinn klukkan 2 eftir há-
degi og fyrir þann tíma var flokki
lúðraþeytara stillt upp við enda
vallarins og byrjuðu þeir nokkrum
sinnum á inngöngustefi sem leika
átti þegar prinsessan birtist. En
ekkert bólaði á henni og var fólkið
tekið að ókyrrast í salnum. Loks
þegar svo prinsessan gekk inn pú-
aði og blístraði mannfjöldinn á
hennar hátign og kom greinilega í
ljós að Þjóðveijar kunna ekki að
meta óstundvísi jafnvel þó að prins-
essa eigi hlut að máli. Á sýningunni
var svo boðið upp á valin sýningar-
atriði og þar á meðal komu íslensku
hestamir fram og var ekki annað
að sjá en þeir vektu nokkra athygli
prinsessunnar, í það minnsta opnaði
hún munninn af undrun, að því er
virtist, og bros færðist yfir varir
hennar. Vom það reyndar einu við-
brögðin sem hún sýndi þá stuttu
stund sem hún dvaldi þama. Virtist
hún frekar alvömgefin og sýndi
engin svipbrigði fyrir utan það sem
hér var getið.
Þegar hún svo yfírgaf stúkuna
var gengið með henni inn í aðra
sýningarhöll og var hún umkringd
ljósmyndumm og forvitnu fólki all-
an tímann, auk lífvarða, þannig að
ekki var hægt að sjá að hún sæi
nokkuð af því sem verið var að
sýna henni enda virtist hér um að
ræða táknræna athöfn. Að síðustu
fór hersingin að bílalestinni, sem
flutt hafði prinsessuna og fylgdarlið
hennar á staðinn, og þar var staldr-
að við í nokkrar mínútur þar sem
hún átti, virtist vera, „fróðlegar og
ánægjulegar“ samræður við
frammámenn Equitana. Sem sagt
allt mjög formlegt og yfirborðs-
kennt eins og oft vill verða í
opinbemm heimsóknum.
Stykkishólmur:
Grjóthólar sprengdir
Stykkishólmi.
MIKLAR hafnarframkvæmdir
standa fyrir dyrum eins og áður
hefur verið sagt frá í fréttum
héðan úr Stykkishólmi. Þegar
er byrjað að undirbúa stórt at-
hafnasvæði fyrir ofan nýju
höfnina í Skipavík, en einnig
þarf að leggja varanlegt slitlag
á sjálfan hafnargarðinn og
nokkuð upp frá honum.
Með þessum framkvæmdum
fær Stykkishólmshöfn varanlegt
og ágætt athafnapláss fyrir varn-
ing bæði smærri og stærri skipa.
Fyrir ofan höfnina em grjóthólar
sem nú er verið að sprengjá í
burtu og slétta umhverfið og hef-
ir verið mikið aðhafst í þessu
undanfarna daga. Viss sjónar-
sviftir er að þessum hólum, mikið
svæði er um að ræða og vel hefir
gengið að vinna þetta verk. Grjó-
tið sem úr hólnum er svo notað í
gmnna, vegi og aðra mannvirkja-
gerð sem nauðsynleg er fýrir
Stykkishólm sem framtíðarbæ.
Sumum er eftirsjá að hólnum.
Hann er almennt kallaður grjót-
hóll. Og von er að eftirsjá, því
eldra fólk hefir fullyrt við mig að
þarna sé bústaður álfa og hefi ég
heyrt um það nokkrar sögur. Eldri
kona, sem átti heima á þessum
slóðum í sinni bernsku, hefir sagt
mér draum sem hana dreymdi sem
bam og fer ekki úr hennar minni.
Draumurinn var á þá leið að henni
fannst hún vera að leika sér á
þessum slóðum og þá sá hún í
hólnum byggð, konu með þrjú
börn sem þar voru bæði að starfi
og leik. Og einnig var þar eldri
stúlka sem hún kvaðst hafa leikið
sér við. Hún var viss um að þessi
stúlka var ekki héðan úr Hólmin-
um heldur hafí hún tilheyrt þessari
byggð. Fór vel á með þeim og
alltaf leit hún til þessarar byggðar
með lotningu.
Nú er þetta fólk sjálfsagt búið
að hafa bústaðaskipti. Það er með
það eins og annað fólk, það flyst
um set og jafnvel í íjarlægar
byggðir. En hvað um það, það er
eftirsjá í hólnum, en huggun að
þarna verður gott athafnasvæði
og það verður vonandi farsælt.
En hvað sem öðru líður eru
miklar framkvæmdir í Hólminum
sem skila í framtíð byggilegra
byggðarlagi og það er það sem
gildir.
— Árni
Nýtt — Nýtt
Páskavörurnar eru komnar:
Blússur, pils, peysur. — Glæsilegt úrval.
Glugginn,
Laugavegi 40, Kúnsthúsinu.
AS E A Cylinda
þvottavélar^sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skolun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
3a iFOnix
HATUNI 6A SÍMI (91)24420
Skemmtiferð
um borgina
Laugardaginn 4. apríl
bjóða sjálfstæðisfélögin í Reykjavík uppá hina árlegu
skemmtiferð sína um borgina.
Ekið verður um borgina undir leiðsögn frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins til alþingiskosninga nú í vor, svo og
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Rútur munu leggja
af stað frá Valhöll kl. 13.00, 14.00 og 15.00. Að lokinni
ökuferð verður boðið í kaffi í Valhöll.
Yið væntum þess að sem flestir
sjái sér fært að koma.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.