Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 1
128 SÍÐUR B/C/Ð
STOFNAÐ 1913
91.tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Júgóslavía:
Hóta verk-
faUsmönnum
uppsögnum
Belgrad, Reuter.
STJÖRNVÖLD í Júgóslavíu hafa
hótað að gripa til „viðeigandi
ráðstafana" gegn námuverka-
mönnum, sem verið hafa i
verkfalli frá 8. april. Tanjug, hin
opinbera fréttastofa Júgóslaviu,
skýrði frá þessu i gær.
I tilkynningu fréttastofunnar
sagði að embættismenn kommún-
istaflokksins í Króatíu hefðu
ákveðið að þeir verkamenn, sem
ekki mættu til starfa í dag, fimmtu-
dag, væru fjarverandi án tilskilins
leyfis. Samkvæmt júgóslavneskum
lögum má reka verkamenn úr starfi,
sem eru fjarverandi í þijá daga án
heimildar. „Óábyrgi'r æsingamenn
hafa fengið verkamennina til að
leggja niður störf," sagði í tilkynn-
ingunni.
Þann 8. þessa mánaðar lögðu
1.700 verkamenn niður vinnu í
Labin-námunum í norðvesturhluta
Júgóslavíu. Þeir hafa krafist 100
prósent hækkunar launa og að að-
búnaður þeirra verði bættur.
Sri Lanka:
Loftárás-
ir í hefnd-
arskvni
Colombo, Reuter.®'
FLUGHER stjórnarinnar á Sri
Lanka gerði loftárásir á stöðvar
skæruliða tamfla á Jaffna-skaga
í gær. Að sögn talsmanns stjórn-
arinnar féllu 80 skæruliðar í
árásunum.
Árásimar vom gerðar í hefndar-
skyni við sprengjutilræði í miðborg
Colombo, höfuðborg Sri Lanka, á
þriðjudag, en þá létu að minnsta
kosti 150 manns lífið og um 300
særðust. Stjómin telur fullvíst að
skæruliðar tamíla beri ábyrgð á til-
ræðinu. í gærmorgun gerði flug-
herinn árásir á stöðvar tveggja
stærstu hreyfínga tamfla á Jaffna-
skaga, sem þeir hafa að mestu á
valdi sínu.
Sjá „Tvær ólíkar
þjóðir_“ á bls. 25.
Morgunblaðið/ RAX
Halldór Laxness 85 ára
Halldór Laxness er 85 ára í dag á sumardaginn fyrsta. Af því tilefni verður efnt til hátíðardagskrár í
Þjóðleikhúsinu kl. 14 í dag (sjá frétt á baksíðu). Myndin af frú Auði og Halldóri var tekin á Gljúfrasteini í
gær. Morgunblaðið sendir þeim sumarkveðjur og hamingjuóskir i tilefni dagsins.
Suður-Afríka:
Sex blökku-
menn felldir
Jóhannesarborg, Reuter.
LÖGREGLUMENN í Suður-
Afríku skutu sex blökkumenn til
bana í Jóhannesarborg í gær.
Flutningaverkamenn hafa verið
í verkfalli undanfarnar sex vikur
og í gær var 16.000 þeirra sagt
upp störfum en þá rann út frest-
ur, sem þeim hafði verið gefinn
til að mæta aftur til vinnu.
I tilkynningu lögreglunnar sagði
að lögreglumenn hefðu reynt að
dreifa fjölda verkfallsmanna sem
safnast hefðu saman í Jóhannesar-
borg. Fólkið hefði þá ráðist að
lögreglunni vopnað kylfum, hnífum
og öxum. Lögreglumennimir hefðu
þvf neyðst til að grípa til skotvopna.
18.000 þeldökkir verkamenn
lögðu niður vinnu fyrir sex vikum
og sneru 2.000 þeirra aftur til
starfa í gær. Talsmaður hins ríkis-
rekna samgöngufyrirtækis Suður-
Afríku sagði að þeir 16.000 sem
ekki mættu hefðu þar með misst
störf sín. Verkalýðsleiðtogar vöruðu
í gærkvöldi við því að búast mætti
við frekari átökum á næstunni.
Undanfama viku hefur verið
mikil ólga í Suður-Afríku vegna
verkfallsins og hefur það komið sér
illa fyrir stjómina sem boðað hefur
til kosninga 6. maí. Það sem af er
kosningabaráttunni hefur Þjóðar-
flokkurinn, flokkur Bothas forseta,
lagt megináherslu á gildi þess að
viðhalda lögum og reglu í landinu.
Öfgafullir hægri menn hafa gagn-
rýnt forsetann fyrir að hafa ekki
tekið á mótmælum blökkumanna
af fullri hörku.
Afvopnunarviðræður hefjast á ný:
Deilur um Evrópuflaug-
ar helsta umræðuefnið
^ Genf, Reuter.
ÁGREININGUR stórveldanna
um hvernig taka skuli á yfir-
burðum Sovétmanna á sviði
skammdrægra flauga í Evrópu
Réttarhöldin yfir ívan grimma:
Skilríkin viðurkennd
sem sönnunarfföffn
Jerúsalem. Reuter. ^ ^ 1 ^
Jerúsalem, Reuter.
DÓMARI í máli Johns Demj-
anjuk, sem sakaður er um að
hafa framið stríðsglæpi! þágu
nasismans, hefur úrskurðað að
persónuskilríki hans séu full-
gilt sönnunargagn. Skilríki
þessi eru talin vera mikilvæg-
asta sönnunargagn ákærend-
anna. Þeir hyggjast sanna að
John Demjanjuk sé í raun ívan
grimmi, sem stjórnaði fjölda-
morðum nasista í Treblinka-
útrýmingarbúðunum í Póllandi.
Skilríkin voru gefin út á nafn
Úkraínubúans Demjanjuks í
Trawinki-búðunum í Póllandi, en
þar þjálfuðu nasistar stríðsfanga
til öryggisgæslu í Treblinka. Sér-
fræðingur, sem tilnefndur var af
réttinum, komst að þeirri niður-
stöðu að skilríkin væru ekki
fölsuð, en því hafa verjendur
Demjanjuks haldið fram allt frá
því þau voru lögð fram sem sönn-
unargagn í málinu. Veijendumir
fullyrða að mynd af Demjanjuk
hafi verið límd á skilríkin til að
unnt væri að sakfella hann. Sjálf-
ur segist Demjanjuk aldrei hafa
komið til Treblinka. Hann hefur
sagt að Sovétmenn standi að baki
þessum fölsunum til að ófrægja
þá Úkraínubúa, sem flust hafa til
Bandaríkjanna. Þar bjó Demj-
anjuk þar til fyrir 14 mánuðum
er hann var framseldur til ísraels.
ívan grimmi stjómaði skipuleg-
um fjöldamorðum á gyðingum í
Treblinka-búðunum. Talið er að
850.000 gyðingar hafi verið tekn-
ir af lífí þar á ámm síðari
heimsstyijaldarinnar.
mun einkenna afvopnunarvið-
ræður samningamanna þeirra
sem hefjast í Genf í dag,
fimmtudag.
Alexei Obukhov, samningamað-
ur Sovétstjómarinnar, sagði að
drög að samkomulagi um útrým-
ingu meðaldrægra kjamorku-
flauga í Evrópu yrðu lögð fram í
þessari lotu viðræðnanna. Kvaðst
hann hafa fengið fyrirskipanir um
að ná slíku samkomulagi á þessu
ári.
Bandaríkjastjórn heldur fast við
þá skoðun sína að samningur um
upprætingu meðaldrægra flauga í
Evrópu þurfí jafnframt að tryggja
jafnvægi á sviði skammdrægra
kjamorkueldflauga. Sovétstjómin
hefur á hinn bóginn boðist til að
fjarlægja skammdrægar flaugar
sínar innan árs eftir undirritun
samkomulags um hinar meðal-
drægu. Bandaríkjastjóm og
Atlantshafsbandalagsríkin telja
þetta tilboð með öllu óviðunandi
þar eð yfirburðir Sovétmanna á
sviði hefðbundins herafla yrðu enn
ógnvænlegri ef jafnframt yrði
samið um að útrýma skammdræg-
um flaugum í Evrópu.
Maynard Glitman, samninga-
maður Bandaríkjastjómar, sagði á
fréttamannafundi í gær að tryggja
bæri jafnvægi á sviði skamm-
drægra flauga með því að samið
yrði um að stórveldin bæði skyldu
ráða jrfir sama fjölda þess háttar
vopna. Kvaðst hann vera hóflega
vongóður um að unnt yrði að ná
slíku samkomulagi en bætti við
Bandaríkjastjóm hefði ekki sett
sér nein tímamörk í því sambandi.
Þeir Glitman og Obukhov munu
ræðast við í sendiráði Sovétríkj-
anna í Genf í dag. Sérfræðingar
risaveldanna munu hefja viðræður
um langdrægar kjarnorkueld-
flaugar og geimvopn þann 5. maí.
Sjá einnig „Reagan varar
við ...“ á bls. 24.