Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Andlitslýti
Igær minntist ég á hið manneskju-
lega sjónvarpsleikrit Gísla J.
Ástþórssonar; Öskubuska og maður-
inn sem átti engar buxur, og endaði
þá greinina nánast á upphrópun:
Spymum við fótum meðan enn er
stætt á íslenskri grundu og eflum
útvarps- og sjónvarpsleikhúsið á
Fossvogshæðum til dæmis með því
að setja það leikhús á sérstök fjárlög
líkt og önnur atvinnuleikhús eykrílis-
ins. Auglýsendur munu seint sjá hag
í að fjármagna slíkt leikhús og því
ber okkur að taka höndum saman
til vemdar íslenskri menningu og
þjóðfrelsi!
Ég efast um að Milton Friedman
samsinni þessari kenningu minni en
það er nú einu sinni svo með harð-
snúnar stjómmálakenningar, hvort
sem þær eru kenndar við Friedman
eða Marx, að þá verður að sníða
þeim stakk eftir vexti. Smæð
íslenska sjónvarpsmarkaðarins er
slík að ég held að það liggi í augum
uppi að auglýsingatekjur og jafnvel
afnotagjöld muni seint skjóta styrk-
um stoðum undir íslenskt sjónvarps-
leikhús. Friedmansinnar telja þá að
okkur beri bara að láta markaðinn
ráða og kaupa erlend sjónvarpsleik-
rit. En þá gleymist blessuð þjóð-
menningin sem stendur ef til vill í
vegi markaðsaflanna því einsog við
vitum er hinn ftjálsi markaður í raun
og veru landamæralaus. Litil saga
af þroskaheftri stúlku mitt í smá-
borg norður á hjara veraldar er ekki
vænleg söluvara á hinu landamæra-
lausa markaðstorgi og því í raun og
veru einskis virði í augum þeirra er
þar ráða ríkjum. Þó gæti svo farið
að góðviljaður auðjöfur fyndi til með
stúlkunni og keypti handritið og léti
þýða textann yflr á það tungumál
er blífur á markaðinum og svo
blómstraði Öskubuska eitt tvö og
þijú þar til tárakirtlamir væru þurr-
ausnir. En þá er hún Maja er við
kyntumst í leikrit Gísla ekki lengur
Maja heldur toppflgúra í Spielberg-
stíl. Sá guli er við drögum úr
hvítfextum íslandssænum er nátt-
úrulega ekki frekar íslenskur þá
brauðmylsnan hjúpar flökin en hér
er ég ekki að tala um þorsk heldur
manneskjuraf holdi og blóði. Ein-
hvers staðar hljótum við að spyma
við fæti og taka saman höndum til
vamar mannhelginni. Við getum
ekki selt sál okkar í nafni fijálsra
viðskipta, nei, leggjum í púkkið svo
þeir sem minna meiga sín — Maja
eða íslensk þjóðmenning — fái skjól.
Og hér sé ég ekki betra ráð en
öflugt Sjónvarps- eða útvarpsleikhús
rekið af íslensku þjóðinni. í slíku
leikhúsi mættust rithöfundar þjóðar-
innar, leikarar, kvikmyndagerðar-
menn og færðu fomsögumar í
gimilegan sjónvarpsbúning og ekki
má gleyma þjóðsögunum né þeim
hversdagsveruleika er við íslend-
ingar þekkjum af eigin raun. Svo
má ekki gleyma því að kvikmynda-
fyrirtæki í einkaeign eru þegar risin
hér á evkrílinu og slík fyrirtæki geta
orðið öflugir undirverktakar hjá
sjálfu „höfuðbólinu" á Fossvogs-
hæðum. RÚV og Stöð 2 gætu einnig
pantað sjónvarpsverk hjá hinu nýja
leikhúsi og hvarflar þá hugurinn til
Nykurævintýrisins er sýnt var á Stöð
2 á föstudaginn langa en þessa
fslensku sjónvarpsmynd sem gerð
var eftir þjóðsagnaminninu um Nyk-
urinn hefði að ósekju mátt vinna af
fagmönnum og þá á ég einkum við
að leikstjómin var í molum og hæfði
ekki handriti Aðalsteins Asbergs
Sigurðssonar. Þá var full mikið
sungið í myndinni. Þessi fyrsta sjón-
varpsmynd hinnar nýfæddu Stöðvar
2 var sumsé byggð á ágætu hand-
riti en því miður vom fagmenn ekki
við stjómvölinn. Ef hins vegar bæði
RÚV og Stöð 2 hefðu aðgang að
atvinnumönnunum uppí Sjónvarps-
leikhúsi þá væri hægt að lyfta
grettistaki. Vilji er raunar allt sem
Íiarf eins og sannaðist þegar andlit
slands var fegrað með Leifsstöð en
hvað um „sál íslands" er leynist í
verkum skáldanna?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Rás 1:
Laxnes
á leiksviði
Útrás:
Sumar-
gleði
■1 Fjölbreytt dag-
00 skrá sem nefnd
— er Sumargleði
er á dagskrá útvarpstöðvar
framhaldsskólanema, Út-
rás, frá ,kl. 10 til 17 í dag.
Þar verður sungið, dansað
og trallað að hætti húsins,
tekin viðtöl, haldnar spum-
ingakeppnir og getraunir
lagðar fyrir. Útrás útvarp-
ar á FM 88.6 að venju.
Frá höfuðstöðvum Útrás-
ar. Ingólfur Birgir
Bragason og Stefán
Baxter.
■i Halldór Laxnes
30 er 85 ára í dag
““ og minnist út-
varpið þess með klukku-
stundarlangri dagskrá sem
flutt verður eftir hádegið í
dag. Dagskráin nefnist
Laxnes á leiksviði en
umsjónarmaður er Gylfí
Gröndal. Eins og naftiið
bendir til er hér staldrað
við leikrit Halldórs og leik-
gerðir af sögum hans.
Sveinn Einarsson flytur
pistil um þetta efni og flutt-
ir verða kaflar úr íslands-
klukkunni, Dúfnaveislunni,
Sölku Völku og Sjálfstæðu
fólki, en síðasttalda leik-
gerðin var gerð fyrir
fjörutíu ámm. Þá verða
flutt brot úr gömlum út-
varpsviðtölum við skáldið
frá ýmsum tímum, þar sem
hann ræðir um verk sín og
segir frá tildrögum nokk-
urra hinna frægustu
þeirra.
ÚTVARP
©
FIMMTUDAGUR
23. apríl
Sumardagurinn fyrsti
8.00 Sumri heilsað
a. Ávarp formanns útvarps-
ráðs, Ingu Jónu Þóröardótt-
ur.
b. Sumarkomuljóð eftir
Matthías Joohumsson.
Herdís Þorvaldsdóttir les.
8.10 Fréttir
8.15 Veðurfregnir. Dagskrá.
8.26 Vor- og sumarlög sung-
in og leikin.
8.00 Fréttir.
8.03 Morgunstund barn-
anna: „Antonia og Morgun-
stjarna" eftir Ebbu Henze.
Steinunn Bjarman þýddi.
Þórunn Hjartardóttir les (4).
9.20 Morguntónleikar
Sinfónía nr. 1 í B-dúr op 38,
„Vorhljómkviðan", eftir Ro-
bert Schumann. Nýja
Fílharmóníusveitin f Lund-
únum leikur; Otto Klemper-
er stjórnar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.35 „Vorsónatan"
Fiðlusónata nr. 5 í F-dúr op.
24 eftir Ludwig van Beet-
hoven.
11.00 Skátaguösþjónusta í
Hallgrímskirkju. Arnfinnur
Jónsson skólastjóri og fyrr-
verandi skátahöfðingi pré-
dikar. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson þjónar fyrir altari.
Orgelleikari: Hörður Áskels-
son.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tilkynningar.
FIMMTUDAGUR
23. apríl
Sumardagurinn fyrsti
19.00 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá
páskum. Umsjón: Agnes
Johansen. Stjórn: Gísli Snær
Erlingsson.
19.30 Noröurland vestra
Sjónvarpsumræður fulltrúa
allraframboöslista. Umræð-
um stýrir Gfsli Sigurgeirs-
son.
21.15 Noröurland eystra
Sjónvarpsumræður fulltrúa
allra framboðslista. Umræð-
um stýrir Erna Indriöadóttir.
23.00 Dagskrárlok.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Laxness á leiksviði.
Dagskrá á 85 ára afmæli
Halldórs Laxness. Fjallað
um leikrit Halldórs og leik-
gerðir skáldsagna, fluttir
kaflar úr þeim og enn frem-
ur brot úr gömlum útvarps-
viötölum við skáldið.
14.30 Kór Fjölbrautaskóla
Suðurlands syngur á tón-
leikum í Langholtskirkju.
15.10 Barnaútvarpið.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Á framboðsfundi. Út-
varpað beint frá fundi
frambjóðenda i Reykjavíkur-
kjördæmi sem haldinn er f
nýja útvarpshúsinu við
Efstaleiti. I upphafi flytja
frambjóðendur stutt ávörp
en sfðan leggja fundargestir
spurningar fyrir fulltrúa
flokkanna. Stjórnendur. Atli
Rúnar Halldórsson og Ingi-
mar Ingimarsson.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 Leikrit: „Sitthvað má
Sanki þola" eftir James
Saunders í útvarpsleikgerö
Guðmundar Ólafssonar.
Þýðandi: Karl Guömunds-
son. Leikstjóri: Guðmundur
Ólafsson. Leikendur: Erling-
ur Gíslason, Róbert Arn-
finnsson, Guðrún Þ.
Stephensen. Sólveig Páls-
dóttir, Kjartan Bjargmunds-
son, Steindór Hjörleifsson,
Randver Þorláksson, Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Viðar
Eggertsson, Margrét Guð-
mundsdóttir og Jóhann
FIMMTUDAGUR
23. apríl
§17.00 Myndrokk
§18.00 Knattspyrna. Um-
sjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.05 Opin lína.
Áhorfendur Stöðvar 2 á
beinni línu í síma 673888.
20.25 Ljósbrot.
Valgeröur Matthíasdóttir
kynnir helstu dagskrárliöi
Stöðvar 2 næstu vikuna og
stiklar á helstu viðburðum
menningarlffins.
21.05 Morögáta. Óupplýst-
um morðum fer fækkandi
eftir að Jessica Fletcher
(Angela Lansbury) kom til
sögunnar.
§21.50 Af bæ í borg (Perfect
Strangers). Bandarískur
Sigurðarson. (Leikritið verð-
ur endurtekið nk. þriöju-
dagskvöld kl. 22.20).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Sumarspjall. Inga Eydal
sér um þáttinn. (Frá Akur-
eyri).
23.00 Túlkun í tónlist. Rögn-
valdur Sigurjónsson sér um
þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
FIMMTUDAGUR
23. apríl
7.00— 9.00 Sumri fagnað
með Siguröi G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgun-
kaffinu. Sigurður lítur yfir
blöðin og spjallar við hlust-
endur og gesti. Fróttir kl.
07.00, 08.00 og 09.00.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapaö fundið,
opin lína, mataruppskrift og
sitthvaö fleira. Fréttir kl.
10.00 og 11.00.
12.00—12.10 Fréttir
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn, Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk í bland við létta tón-
list. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn (f
gamanþáttur.
§22.15 Þrjú andlit Evu (Three
Faces Of Eve).
Bandarísk kvikmynd frá ár-
inu 1957 með Joanne
Woodward, David Wayne
og Lee J. Cobb. Leikstjóri
er Nunnally Johnson. Sönn
saga um unga konu sem
tekur aö bregða sér í ólfk .
gen/i. I stað þess að vera v ?
hlédræg og feimin verður
hún ýmist skemmtanafíkin
og lostafull eða yfirveguð
og ákveöin. í Ijós kemur að
hún þjáist af sjaldgæfum,
sálrænum sjúkdómi. Joanna
Woodward hlaut Óskars-
verðlaun fyrir leik sinn f
þessari mynd.
§23.45 Gríski auðjöfurinn
(Greek Tycoon).
Bandarísk kvikmynd frá
1978 með Anthony Quinn
og Jacqueline Bisset í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er J.
Lee Thompson. Myndin
fjallar um unga og fagra
ekkju bandarísks forseta og
grískan skipakóng.
01.25 Dagskrárlok.
sumarskapi) á réttri bylgju-
lengd. Pétur spilar síðdegis-
poppið og spjallar við
hlustendur og tónlistar-
menn. Fréttir kl. 15.00,
16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík síðdeg-
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkið sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
20.00-21.30 Jónfna Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónfna
FIMMTUDAGUR
23. apríl
00.10 Næturútvarp. Erna Arn-
ardóttir stendur vaktina.
6.00 í bítiö. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
8.05 Morgunþáttur ( umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Siguröar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tvennir tímar
á vinsældalistum, tónleikar
um helgina, verðlaunaget-
raun og Feröastundin með
Sigmari B. Haukssyni.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.06 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal. Meðal efn-
is er lýsing á leik Islendinga
og Norðmanna á Norður-
landamótinu í körfuknattleik
í Horsens f Danmörku.
19.00 Kvöldfréttir
ALFA
MrtlH ÉBinnlll-
FM 102,9
FIMMTUDAGUR
23. aþríl
8.00 MorgunstuncT: Guös
orð og bæn.
8.15 Tónlist
12.00 Hlé
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist að þeirra
smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
stýrir getraun um popptón-
list.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
í umsjá Karls Garðarssonar
fréttamanns. Fréttir kl.
23.00.
24.00— 7.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur og flug-
samgöngur. Fréttir kl.
03.00.
19.30 Vinsældalisti rásar 2.
Gunnar Svanbergsson og
Georg Magnússon kynna
og leika tíu vinsælustu lög-
in.
20.30 í gestastofu. Stefán Jök-
ulsson tekurá móti gestum.
22.05 Sumargleði. Sigurður
Gröndal leikur lög tengd
sumarkomunni.
23.00 Við rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr
hlustendur undir svefninn
með tali og tónum.
24.00 Næturútvarp. Gunn-
laugur Sigfússon stendur
vaktina til morguns.
02.00 Á frívaktinni. Þóra Mar-
teinsdóttir kynnir óskalög
sjómanna. (Endurtekinn
þáttur frá mánudegi, þá á
rás 1.)
Fréttirsagðarkl. 8.10, 9.00,
10.00, 12.20, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Bein lína til stjórnamála-
flokkanna. Fulltrúar Alþýðu-
flokks, Þjóðarflokksins og
Framsóknarflokksins svara
spurningum hlustenda.
(Einnig útvarpaö á mið-
bylgju með tíöninni 737
KHz.)
20.00 Tónlist
21.00 Kynning á viðhorfum
stjórnmálaleiðtoga til kristi-
legra málefna.
Borgaraflokkurinn: Albert
Guðmundsson. Bandalag
jafnaðarmanna: Anna Kristj-
ánsdóttir. Alþýðubandalag-
ið: Svavar Gestsson.
22.45 Tónlistarþáttur
23.00 Dagskrárlok
Dagskrár útvarps og sjónvarps á föstu
dag er á bls. 51.
SJÓNVARP
16.00 “FÍÍé