Morgunblaðið - 23.04.1987, Qupperneq 13
13
MORGUNBLAÐE), FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Samanburður á elli- og örorkulífeyri
og lágmarkslaunum
Fjárhæðir á mánuði % af lægstu launum
Ellilí-
feyrir,
Ellilífeyrir, Ellilí- telqutr.
Ellilífeyrir tekjutr., Lægstu Ellilí- feyrir,, heim.
Ellilífeyrir ogtekjutr. heim.upph >. laun feyrir tekjutr. . uppb.
1982 1.999,0 4.191,8 4.940,7 6.845,8 29,2 61,2 72,2
l.ársfj .1.721,0 3.554,0 4.198,0 5.874,0 29,3 60,5 71,5
2. “ 1.867,0 3.856,0 4.554,0 6.464,0 28,9 59,7 70,5
3. “ 2.124,0 4.489,0 5.282,0 7.264,0 29,2 61,8 72,7
4. “ 2.284,0 4.868,0 5.728,7 7.781,0 29,4 62,6 73,6
1986 5.938,3 14.639,5 17.256,5 18.664,3 31,8 78,4 92,5
l.ársf j. 5.606,0 13.821,0 16.291,0 17.212,0 32,6 80,3 94,6
2. “ ' 5.849,0 14.419,0 16.997,0 17.957,0 32,6 80,3 94,7
3. “ 6.034,0 14.876,0 17.536,0 18.527,0 32,6 80,3 94,7
4. “ 6.264,0 15.442,0 18.202,0 20.961,0 29,9 73,7 86,8
ingu hins vegar. Þess vegna er að
okkar mati nauðsynlegt að:
1. Hækka elli- og örorkulífeyrir
með tekjutryggingu í lágmarks-
laun í áiöngum á þessu ári.
2. Hækka vasapeninga aldraðra og
öryrkja á stofnunum þar sem
allur lífeyririnn fer til vistgjalda.
3. Auka umbun til þeirra sem
fresta töku ellilífeyris.
4. Sjá til þess að spamaður vegna
frestumar töku ellilífeyris sé
greiddur út til lífeyrisþegans
sjálfs eða maka hans, ef lífeyris-
þeginn dvelst á stofnun þar sem
tryggingar greiða dvölina.
Stuðningur við öryrkja
Flest það sem að framan greinir
um ýmsa þætti þjónustu og
greiðslna á einnig við um öryrkja.
Um nokkur atriði er þó ástæða til
að fjalla sérstaklega. Markmiðið
með þjónustu við öryrkja er að
skapa þeim jafnrétti á við aðra þjóð-
félagsþegna og auðvelda þeim sem
mest þátttöku í hinu fjölbreytilega
mannlífi.
Styðjum sjúka til
sjálfsbjargar
Undir þessu sterka og rökrétta
kjörorði raddi Oddur Ólafsson
iæknir og síðar alþingismaður
brautina sem síðan hefur verið fetuð
í málefnum öryrkja með höfuð-
áherslu á endurhæfingu. Reynsla
Odds og samheija hans á Reykja-
lundi nýtist síðan öðram öryrkjum
hver sem orsök örorkunnar er. Ein-
mitt á þessum sviðum hafa samtök
einstaklinga unnið hvert stórvirkið
af öðru. Slíkri starfsemi vill Sjálf-
stæðisflokkurinn veita sem bestan
stuðning. Þess sér dæmi í fjölmörg-
um stofnunum fyrir öryrkja, t.d. í
byggingum við Hátún, smærri sam-
býlum og stóraukinni endurhæf-
ingu.
Áhersluatriði
vegna öryrkja
1. Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á stuðning við vemdaða
vinnustaði. Við teljum að réttur
til örorkubóta þurfi að haldast í
þrjá mánuði á meðan hin starfs-
lega endurhæfing stendur yfir,
ennfremur að Ijóst sé að öryrk-
inn geti fyrirvaralaust fengið
bætur sínar á nýjan leik ef í ljós
kemur innan árs að hann hafi
ekki getu til starfsins.
2. Til að auka öryggi á eigin heimil-
um hefur verið ákveðinn aukinn
styrkur til öryrkja og aldraðra
vegna „öryggishnappsins".
3. Lögfest hafa verið réttindi til
mæðralauna vegna öryrkja í
langlegu.
4. Gengið er um þessar mundir frá
nýjum reglum vegna bílakaupa
öryrkja.
5. Unnar hafa verið nýjar tillögur
um úrlausn í vistunarmálum
þeirra sem hlotið hafa varanlega
heilasköddun og þunga fötlun,
fyrst og fremst í slysum.
6. Sjálfstæðisflokkurinn leggur hér
eftir sem hingað til höfuðáherslu
á endurhæfingu öryrkja.
Hér hafa verið nefnd fá atriði
af mörgum sem verið er að vinna
að og þarf að gera. Einnig má vísa
til þess sem framar var nefnt. Aðal-
atriðið er að unnið sé í þeim anda,
að réttur og virðing hvers einstakl-
ings sitji í fyrirrúmi hvemig sem
heilsu hans er háttað þannig að
hver og einn njóti getu sinnar svo
sem verða má.
Höfundur er heilbrígðis- og trygg-
ingamálaráðherra
Haukur Dór ásamt einu verka sinna.
Haukur Dór sýnir
á Kjarvalsstöðum
kvennalistakonur era á móti aðild
íslands að Atlantshafsbandalaginu.
Þær vilja óvarið ísland eins og Sov-
étríkin og Alþýðubandalagið. Þetta
er stefna kommúnista og liður í
■ heimsvaldastefnu Sovétríkjanna.
Einkafjármagn og
Kvennalistinn
Á Bylgjunni þann 20. apríl sl.
sagði Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, alþm. Kvennalistans, að hún
treysti ekki einkafjármagni í út-
varpsrekstri. Ekki kom fram, að
hún treysti einkafjármagni á öðram
sviðum.
í þessari afstöðu felst róttæk
vinstri stefna. Á venjulegu máli
myndi þetta flokkast undir komm-
únisma.
Róttækar sem
kommúnistar
Þótt Sigríður Dúna reyndi að
sveija af sér stimpil kommúnisma
í umræddum þætti, er það tilgangs-
iaust. Verkin tala. Kvennalistakon-
ur hafa á Alþingi íslendinga og úti
í þjóðlífinu tekið sterka, róttæka
vinstri afstöðu í launa- og kjaramál-
um, vamar- og öryggismálum og
kynt undir stéttaátök.
Þess vegna getur Kvennalistinn
verið hættulegur borgaralegu lýð-
ræði. Þetta er pólitískur flokkur
sem reynir að hagnýta sér erfíða
stöðu kvenna.
Konur eiga sama
rétt og karlar
Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir
stéttlausu þjóðfélagi. Hann spilar
ekki með tilfinningar fólks, en er
virkur í daglegu starfi þess. Við
tökum virkan þátt í uppbyggingu
atvinnulífsins og viljum m.a. með
þeim hætti bæta kjör fólksins.
Konur eiga sama rétt og karlar.
Sá réttur verður tryggður í framtíð-
inni með samstarfi kynjanna.
X-D
Höfundur skipar 5. sætiá fram-
boðslista Sjálfstæðisfiokks í
Reykjavík.
HAUKUR Dór opnar nk. laugar-
dag, 25. apríl, myndlistarsýningu
í austursal Kjarvalsstaða. Þetta
er ellefta einkasýning Hauks
Dórs, sem búsettur hefur verið
í Bandaríkj unum, á Spáni og í
Danmörku á undanförnum sex
árum og unnið þar fyrir sér sem
listmálari og keramíker. Á sýn-
ingunni eru málverk gerð með
akrýllitum á pappir og striga.
Fjalla myndirnar meðal annars
um mannlíf og íslenska náttúru,
séða úr fjarlægð.
Haukur Dór hefur búið sl. fjögur
ár nálægt Kaupmannahöfn og hald-
ið sýningar í Galleri Marius og
LANDSVIRKJUN hefur sent
borgarráði minnisblað þar sem
fram kemur að stefnt er að því
að olíutankarnir við Elliðaár
verði fjarlægðir í sumar.
í stað þeirra er gert ráð fyrir að
mæta olíuþörfinni með því að aka
olíu til varaaflsstöðvarinnar eftir
þörfum á meðan á rekstri hennar
stendur. Þá segir: „Væntanlega
Galleri Tiro í Kaupmannahöfn. A
vegum Galleri Tiro era nú fyrir-
hugaðar sýningar á verkum hans í
Bandaríkjunum, Þýskalandi og
Svíþjóð.
Haukur Dór er fæddur 1940 og
nam við Myndlistarskólann í
Reykjavík 1958-1962, The Edin-
burgh College of Art 1962-1964,
Kunstakademiet í Kaupmannahöfn
1965-1967 og Visual Art Center,
Maryland, USA 1982.
Haukur Dór er einn af stofnend-
um SÚM-samtakanna árið 1965.
Sýning Hauks Dórs á Kjarvals-
stöðum verður opin daglega kl.
14.00-22.00 oglýkurþann 10. maí.
verður stöðin síðan lögð niður þegar
hinn svonefndi Suðurpunktur verð-
ur að veraleika sem nýr afhending-
arstaður rafmagns um 1990 með
auknu afhendingaröryggi fyrir Suð-
vesturlandið. Þá er til athugunar
hvort jafnframt þurfi að gera ráð
fyrir tilkomu gasaflsstöðvar um
svipað leyti í nágrenni Reykjavíkur
til þess að ekki verði slakað á örygg-
iskröfum."
Olíutankarnir við Elliða-
ár fjarlægðir í sumar
Meira grjót
Frá glæstrí höll úr glerí
Gróa hurtu snéri
flengdist stað úr stað.
Hvað með það, já, hvað með það?
Ég hafði verk að vinna
um velferð bræðra minna
hirti ekki hót.
Meira grjót — meira grjót.
Ég sat og grýtti og grýtti
grjótið vel ég nýtti
ýmsum angur bjó.
Dátt ég hló og dátt ég hló.
Magnaði eftir mætti
mína eðlisþætti
svarta eins og sót.
Meira gijót — meira gijót.
Dagur kom að kveldi
ég kúrði undir feldi
um glugga gjóstur fer.
Glerbrot þar — glerbrot hér.
Samt við mér völdin skína
enn veg ég bræður mína
það er búningsbót.
Meira grjót — meira gijót.
Undir þær sem
aldrei gróa
Það má sjá er seglum þöndum
siglt er óskábyr.
Oldur dansa út með ströndum
eins og löngum fyrr.
Aftanroðirm fjöll og flóa
í faðmi sínum ber.
Undir þær sem aldrei gróa
enginn maður sér.
Það má sjá að hausti hnígur
héla strýkur kinn.
Ólánskráka flýgur — flýgur
fyrír gluggann minn.
Þeir sem annars auðnu sóa
illa hugnast mér.
Undir þær sem aldrei gróa
enginn maður sér.
Það má sjá í vetrarveldi
visna hveija rós.
í hljóðrí bæn — á kyrru kveldi
kveiki öll mín Ijós.
Minn andi er fijáls — það glitra og glóa
gull í hendi mér.
Undir þær sem aldrei gróa
enginn maður sér.
Brynhildur H. Jóhannsdótdr
—Feiti er okkar fag —
Djúp
steÍKÍngar
feiti
gq»
Dreifing: Smjörlíki hf. Þverholti 19.
Framleiðandi: Hydrol hf. v/Köllunarklettsveg Reykjavík