Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 25
Ví?Gt JIJtHA rs Jttií'AnirrMMr.T (rtflA.iflvntr>íTOV
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
25
FJÁLGIR FRÉTTALESENDURIJERUSALEM
Myndin var tekin í austurhluta Jerúsalem á mið-
vikudag, þegar arabiskir íbúar þar sökktu sér
ofan í fréttir af út lagaþingi PLO, sem nú stend-
ur yfir í Algeirsborg. Staða Arafats þykir hafa
styrkzt verulega eftir að ýms samtök, sem höfðu
klofið sig frá aðalsamtökunum sóttu nú þingið
og virtust tilleiðanleg að hlíta forsjá Arafats.
Fréttir benda þó til, að þinghaldið geti orðið
sviftibyljasamt, eftir að Arafat gaf á miðvikudag
þá yfirlýsingu, að hann vildi fá samtökin til að
samþykkja samvinnu við Egypta, en þetta hefur
verið einna stærstur ásteytingarzsteinn innan
PLO, eftir að Egyptar gerðu friðarsamning við
ísraela.
Suharto um kosningarnar í dag:
„Þetta verður
sannkölluð
lýðræðisveizla“
Jakarta, Reuter.
„Indónesar leggja deilumál á hilluna og taka nú þátt í sannkall-
aðri lýðræðisveizlu,“ sagði Suharto, forseti Indónesíu á miðviku-
dagskvöldið, er hann flutti lokaræðu vegna kosninganna sem fara
fram í landinu í dag, fimmtudag.Kjömir verða 400 af þeim 500
þingmönnum, sem eiga sæti á þinginu. Suharto sagði að það væri
stærsta stund í lífi hverrar þjóðar, þegar hún kysi og þvi efndi
hann nú til kosninganna til að
að finna til sem mestrar gleði.
Suharto hefur stjómað Indónesíu
í 21 ár og einatt verið gagnrýndur
fyrir einræðislega stjómarháttu og
mannréttindabrot. Andstæðingar
hans, innan sem utan lands, segja
að kosningamar séu fullkomin vit-
leysa og þjóni þeim tilgangi einum
að láta líta út fyrir að Suharto njóti
óskoraðs stuðnings, þótt fjarri sé
það öllum sanni.
Samkvæmt fréttum er talið alveg
víst að Golkarflokkur forsetans fái
mikinn meirihluta atkvæða, en þó
kunni að leika nokkur vafi á að
hann fái yfir 70 prósent. Töluverð
gefa þegnum smum
óánægja sé vegna erfíðs efnahags-
ástands í landinu. Á síðasta ári var
gjaldmiðill landsins felldur um 31
prósent og verðbólga hefur vaxið.
Þá hefur lækkun olíuverðs á
heimsmarkaði haft afleit áhrif á
efnahagsstöðuna, en Indónesar em
eina Asiuþjóðin, sem er í OPEC,
Samtökum olíuframleiðsluríkja. Þá
hefur atvinnuleysi vaxið. Meðaltekj-
ur í landinu vom á síðasta ári um
tuttugu þúsund krónur.
Á kjörskrá nú em um 94 milljón-
ir manna. Indónesar er fimmta
fjölmennasta þjóð í heimi.
Ófriður tamíla og sinhalesa á Sri Lanka:
Tvær mjög ólíkar
þjóðir að tungu,
menningu og trú
Colombo, Sri Lanka, Reuter.
WHY ARE GUARDIANS OF
HUMAN RIGHTS SO SILENT ?
Átökin milli þjóðarbrotanna hafa verið
mjög blóðug, ekki síst hafa tamílskir
skæru'liðar gerst sekir um mörg skelfileg
hryðjuverk. Á veggspjaldinu er mynd
af einu fórnarlamba þeirra og þeirrar
spurningar spurt hvers vegna umheim-
urinn láti sig litlu varða um mannrétt-
indabrotin á Sri Lanka.
Hryðjuverkin á Sri
Lanka og átökin milli
þjóðanna tveggja, sem
eyjuna byggja, hafa
kostað 5.500 manns
lífið á fjórum árum.
Rætur ófriðarins má
rekja langt aftur í
timann og þjóðirnar
eru ólíkar um flest, þær
hafa hvor sína tungu
og trúarbrögðin og
menningin eru önnur.
Tamílar komu fyrst til
Sri Lanka á þriðju öld e.
Kr. og settust að í norð-
ur- og austurhluta eyjar-
innar. Eru þeir um 13%
af 15 milljónum íbúa alls,
játa flestir hindútrú og
tala sömu tungu og ætt-
bræður þeirra á Suður-
Indlandi, sem eru 50
milljónir og búa aðallega
í ríkinu Tamil Nadu.
Flestir sinhalesar eru
búddatrúar og tala sin-
hala, hið opinbera tungu-
mál á Sri Lanka, en það
er skylt þeim tungum,
sem talaðar eru á Norð-
ur-Indlandi.
Bretar réðu Sri Lanka
eða Ceylon eins og það hét þá í 150
ár, fram til 1948, og studdust þá
einkum við tamíla, sem skipuðu
mörg há embætti í nýlendustjóm-
inni. Sinhalesar þóttust því eiga
þeim grátt að gjalda og eftir að
landið varð sjálfstætt hafa tamílar
sakað sinhalesa um yfírgang og um
að hafa svikið samninga um, að
þjóðunum skyldi gert jafn hátt und-
ir höfði hvað varðar tungumálið,
menntun, atvinnu og jarðnæði.
Þessi óánægja olli því, að þrír
stærstu stjómmálaflokkamir meðal
tamíla sameinuðust árið 1975 og
kröfðust þess, að stofnað yrði sjálf-
stætt ríki á norður- og austurhluta
eyjarinnar. Sameinaða frelsisfylk-
ingin, eins og flokkurinn heitir,
bauð fram í kosningunum 1977 og
var að þeim loknum stærsti stjóm-
arandstöðuflokkurinn á þingi, sem
skipað er 168 mönnum. Vann flokk-
urinn öll 16 þingsætin í byggðum
tamfla.
Árið 1983 var öllum mönnum
Sameinuðu frelsisfylkingarinnar
vikið af þingi vegna þess, að þeir
neituðu að fara að lögum, sem sett
vom í ágúst það ár, og sveija eið
að einingu alls landsins. Voru þessi
lög samþykkt í miklum flýti á þingi
eftir alvarleg átök milli þjóðarbrot-
anna.
Stjórnvöld á Sri Lanka hafa boð-
ist til að veita tamílum nokkra
sjálfstjórn og að þeir hafí sín eigin
héraðaþing en tamílskir skæmliðar
vilja enga málamiðlun, aðeins full-
valda ríki.
Junius Jayewardene forseti sagði
sl. sunnudag, að hann neyddist til
að leita hemaðarlegrar lausnar ef
skæmliðar yrðu ekki við beiðni ind-
versku ríkisstjórnarinnar um að
þeir settust að samningaborðinu og
í gær átti að fjalla um þetta mál í
ríkisstjóminni. Var almennt búist
við, að þá yrði ákveðið að láta til
skarar skríða gegn skæruliðum.
Baráttukveðjur
Við undirritaðir höfum fylgst
með því hvemig Ámi Johnsen
alþingismaður hefur unnið að
málum af miklum krafti um
allt Suðuriandskjördæmi. Við
viljum vekja athygli á því að
Ámi hefur einnig á Alþingi
unnið af eigin frumkvæði að
mörgum mikilvægum málum,
sem varða alla landsmenn,
mál á sviði öryggismála, heil-
brigðismála, mannúðamnála,
atvinnumála og menntamála.
Við viljum hvetja íbúa Suður-
landskjördæmis til að tryggja
áframhaldandi setu Áma á
Alþingi íslendinga.
Páll Halldórsson
þyrluflugmaður,
Sigmund
teiknari,
Davið Sch. Thorsteinsson
framkvæmdastjóri,
Hermann Gunnarsson
útvarpsmaður,
Guðlaugur Friðþórsson
sjómaður,
Björgvin Halldórsson
hljómlistamaður.