Morgunblaðið - 23.04.1987, Qupperneq 26
26
MORGUNBLABIÐ, PIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
ERLENT
Stöðugt
fjölgar
starfsfólki
við þjón-
ustustörf
Ævisaga Lech Walesa kemur út í flrakklandi í dag:
Vigdís Finnbogadóttir
hefur látið sig sjóðsstofnunina
miklu varða frá upphafi og hefur
þegar sett saman tillögur um
rekstur slíks sjóðs. Samkvæmt
þeim á sjóðsstjómin að vera skip-
uð fámennri nefnd, sem metur
innsendar tillögur um kvikmynda-
verkefni og úthlutar styrkjum.
Lagt er til, að bama- og unglinga-
myndir njóti forgangs við úthlut-
un, en lánað verði bæði til
einstaklinga, hópa og fyrirtækja
í kvikmyndagerð.
Og sem fyrr segir hefur sjóðs-
stofnuninni nú borist liðsauki, sem
Ingmar Bergnmn
munar um, og fer Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, þar
fremst í flokki, að sögn Dagblad-
et, en einnig eru tilnefndir sænski
kvikmyndaleikstjórinn Ingmar
Bergman, danski rithöfundurinn
Klaus Rifbjerg o.fl. Hefur þessi
hópur velunnara norrænnar kvik-
myndalistar unnið að því að stytta
leiðina í gegnum kerfið og nokkr-
ir þeirra, þ.á m. þau þrjú, sem
talin voru hér að framan, sam-
þykkt að sitja I fyrstu stjóm
sjóðsins.
Talað hefur verið um, að Norr-
Noregur:
Er hugmyndin um norrænan kvik-
myndasjóð að verða að veruleika?
Vigdís Finnbogadóttir, Ingmar Bergmann og Klaus Rifbjerg meðal
þeirra sem beitt hafa sér fyrir að flýta framgangi málsins
Ósló. Frá ÁsLaugu Þormóðsdóttur,
fréttarítara Morgunbladsins.
FORSETI íslands, VigdSs Finn-
bogadóttir, hefur ásamt fleiri
þekktum velunnurum kvik-
myndagerðarlistar á Norður-
löndum unnið að þvi að
hugmyndin um stofnun norr-
æns kvikmyndasjóðs verði að
veruleika, að þvi er fram kemur
í frétt í Dagbladet í Ósió fyrir
skömmu.
Óvæntur arður af starfsemi
Norræna Qárfestingarbankans
varð kveikjan að þeirri hugmynd,
að vænlegra væri að láta fé þetta
renna til stofnunar fjármögnunar-
sjóðs í þágu norrænnar kvik-
myndaog sjónvarpsþáttagerðar en
skila því aftur í ríkissjóði land-
anna. Máhð kom til umfjöllunar á
þingi Norðuriandaráðs í Helsinki
nú á dögunum og hlaut góðar
undirtektir allra þeirra þing-
manna, sem tjáðu sig um það.
Þar voru samþykkt tilmæli til
menntamálaráðherra Norðurland-
anna um stofnun sjóðsins, en
afgreiðslu að öðru leyti frestað. Á
eftir að reyna á, hvemig byr
málið fær hjá ríkisstjómum land-
anna.
Sænska kvikmyndastofnunin
Klaus Rifbjerg
æni fjárfestingarbankinn leggi
sjóðnum til um 150 milljónir
sænskra króna (923 millj. ísl. kr.)
á þriggja ára tímabili og íjárfesti
síðan í norrænum kvikmynda-
verkefnum.
Takist að hrinda stofnun kvik-
myndasjóðsins í framkvæmd,
gefst kostur á að auka til muna
framleiðslu á heimaunnu kvik-
mynda- og sjónvarpsefni fyrir
Norðurlöndin. Þar eru þó, þrátt
fyrir fámennið, sem oft er rætt
um, yfir tuttugu milljónir sjón-
varpsáhorfenda.
Ólympíuleikarnir 1988:
Suður-Kóreumenn
vilja ekki bjóða
frekari skiptinefu
Genf, Reuter. ^
SUÐUR-Kóreumenn eru harðir á því að bjóða ekki Norður-Kóreu-
mönnum að halda fleiri keppnisgreinar ólympíuleikanna á næsta
ári en þeir hafa þegar gert, að sögn Kim Chong-Ha, formanns
Ólympíunefndar Suður-Kóreu.
Kim sagði nefndina andvíga því
að bjóða Norður-Kóreumönnum
fleiri keppnisgreinar, m.a. vegna
hótana þeirra um að hvetja komm-
únistaríki til að sniðganga leikina.
Suður-Kóreumönnum var á
sínum tíma falin framkvæmd
ólympíuleikanna 1988. Vegna
kröfu Norður-Koreumanna buðust
þeir fyrmefndu til að hluti lei-
kanna færi fram í Pyongyang,
höfuðborg Norður-Kóreu. Fengu
sunnanmenn Alþjóðaólympíu-
nefndina (IOC) til að samþykkja
skiptingu af þessu tagi, en fyrir
því eru engin fordæmi í sögu lei-
kanr.a að þeim hafí verið skipt
milli ríkja.
Norður-Kóreumönnum hafði
tæpast verið réttur litli fíngurinn
þegar þeir seildust eftir hendinni
allri. Þeim var boðið að halda skot-
fími og borðtennis en gerðu síðan
kröfu um að fá til viðbótar keppni
í hnefaleikum, fjölbragðaglímu,
fímleikum, lyftingum og knatt-
spymu.
Til þess að reyna að miðla mál-
um bar Juan Antonio Samaranch,
formaður IOC, fram málamiðlun-
artillögu. Fól hún í sér að auk
keppninnar í bogfími og borð-
tennis yrði riðlakeppnin í knatt-
spymu haldinn að hluta í
Norður-Kóreu og að 100 kílómetra
reiðhjólakeppnin hæfíst í Pyongy-
ang en lyki í Seoul.
Norður-Kóreumenn höfnuðu
málamiðlunartillögu Samaranch í
febrúar sl. og mun ekki verða frek-
ar aðhafst í málinu af hálfu IOC.
Kim Chong-Ha sagði í gær að
Suður-Kóreumenn treystu sér ekki
til að koma frekar til móts við
óskir þeirra en tillaga Samaranch
gerði ráð fyrir.
Genf, Reuter.
SEXTÍU af hundraði allra vinn-
andi manna í vestrænum ríkjum
starf a við ýmiss konar þjónustu-
störf, samkvæmt upplýsingum
Alþjóða vinnumálastofnunar-
innar (ILO).
Á sama tíma og starfsfólki við
þjónustustörf fjölgar hefur þeim
fækkað hlutfallslega sem vinna
við landbúnað og verksmiðjustörf.
Er ekkert lát á þeirri þróun.
Miðað við skiptingu milli landa
voru hlutfallslega fæstir við þjón-
ustustörf í Portúgal eða 42% en
flestir í Kanda, eða 69%. í róm-
önsku Ameríku og Asíu voru 55%
íbúa að meðaltali við þjónustu-
störf. Upplýsingarnar eru fyrir
árið 1985 og er að fínna í nýútko-
minni árbók ILO.
Um 30% vinnuaflans í þróuðum
ríkjum vann við hefðbundinn iðn-
að. Það hlútfall hefur verið að
minnka alls staðar nema í Japan.
í Asíu starfar þriðji hver maður
við hefðbundinn iðnað og fjórði
hver í rómönsku Ameríku.
K Stöðugt færri hafa atvinnu
af landbúnaði í vestrænum ríkjum,
en algengt er að hlutfallið sé á
milli þijú og átta prósent. Er það
þó innan við 3% í Austurríki,
Belgíu og Bretlandi.
Claude Durant, forsljóri Fayard-forlagsins í París, með fyrstu eintök-
in af ævisögu Lech Walesa. Bókin, sem heitir „Á vonarvegi“, kemur
út í dag en um rúmt ár er liðið síðan handritinu var smyglað frá
Póllandi.
Styrkurmn felst í böm-
unum osr fiölskyldunni
O U 17
París, Reuter.
LECH Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, hinna bönnuðu verkalýðs-
félaga í Póllandi, segir m.a. frá
ótta sinum við að vera ráðinn af
dögum í ævisögu, sem smyglað
hefur verið til Vesturlanda og
kemur í dag út i Frakklandi.
í formála að ævisögunni, sem er
600 síðna verk og heitir „Á vonar-
vegi“, segir Walesa: „Örlaganom-
imar hafa verið mér hliðhollar um
stund en svo getur farið, að þær
snúist gegn mér. Ég get alltaf búist
við, að einhver verði til að stytta
mér aldur."
Walesa rifjar upp atburðina í
Lenin-skipasmíðastöðvunum í
Gdansk en þeir urðu til þess, að
stjómin lét undan kröfum verka-
manna. „Ef þeir ráðast á okkur
munu þeir ekki hlífa mér — slys
eða annað óhapp, þeir fínna leið til
þess," sagði Walesa þá við einn
félaga sinn. „Munið eftir konu
minni og bömum."
Það er Fayard-forlagið í París,
sem gefur bókina út, og gátu for-
svarsmenn þess ráðfært sig á laun
við Walesa um ýmislegt, sem að
útgáfunni sneri. Walesa segir þar
sögu sína frá því hann var bam að
aldri í sveitinni og þar til hann varð
rafvirki í skipasmíðastöðvunum í
Gdansk og leiðtogi fyrstu fijálsu
verkalýðsfélaganna í ríkjum komm-
únismans. Sagt er frá aðdraganda
herlaganna í desember 1981, bann-
inu á Samstöðu og bókinni lýkur
með morðinu á prestinum og Sam-
stöðumanninum Jerzy Popieluszko
árið 1984.
Walesa varar kommúnistastjóm-
ina í Póllandi við og segir, að
verkamenn muni aftur rísa upp ef
breytingamar í lýðræðisátt verði
of hægar. Hann telur þó ýmis teikn
á lofti um, að betri tíð sé í vændum
og er bjartsýnn á framtíð Pólverja,
þessarar þjóðar, sem öldum saman
hefur verið eins og milli steins og
sleggju í átökum Þjóðverja og
Rússa.
„Við stöndum nú á tímamótum,"
skrifar hann. „Kjamorkuflaugamar
virða engin landamæri og land-
fræðilega lega lands eins og okkar
skiptir nú ekki máli ... þessi gamli
ótti heyrir brátt sögunni til."
Walesa, sem er sanntrúaður ka-
þólikki, segir styrk sinn felast í því
að hafa alist upp í stórri fjölskyldu
og hafa sjálfur eignast mörg böm.
„Bamahjörðin og stór frændgarður
— það er þetta, sem gerir mér
kleift að halda áfram á hveiju sem
gengur."