Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
43
Fuglaverndarfélag íslands:
Þórshanastofninn
kannaður 1 sumar
Myndlistarsýning
í Gerðubergi
AÐALFUNDUR Fuglavemdar-
félags íslands var haldinn í
Norræna húsinu 28. mars fyrir
nokkm. í skýrslu formanns,
Magnúsar Magnússonar, prófess-
ors, kom fram að nú em um 38
hafaraarpör á landinu og hefur
þeim heldur fjölgað þótt sú fjölg-
un sé hæg. Sl. sumar komust
einungis 16 ungar upp og er það
lakasti árangur síðan 1979. Að
mati félagsins er það mikið
áhyggjuefni hve fáir ungar kom-
ast upp.
Undirbúningur á könnun á
ástandi þórshanastofnsins er vel á
veg kominn og fer sú könnun fram
í sumar í samvinnu við Náttúru-
fræðistofnun íslands. Er biýn þörf
á þessari könnun, því að ýmislegt
bendir til þess að stofninn hafi
minnkað mjög. Vill félagið óska
eftir því að þeir sem vitneskju hafa
um þórshana að sumarlagi hafi
samband við Náttúrufræðistofnun.
Aðalfundurinn samþykkti að
hefja útgáfu fréttabréfs, sem koma
skal út tvisvar á ári. Verður það
sent félagsmönnum.
Aðalviðfangsefni félagsins und-
anfarin ár hefur verið vemdun
hafamarstofnsins. Allnokkuð hefur
áunnist, en enn er langt í land, sem
sést best á því hve varp misferst í
mörgum hreiðmm. Ýmsar ástæður
liggja þar að baki, en ýmiss konar
tmflun vegur hér þungt. Vill félag-
ið hvetja fólk á amarsvæðum til
að forðast umgang í grennd við
amarhreiður. Á þetta m.a. við um
minkaveiðimenn og vill félagið vin-
samlega beina þeim tilmælum til
þeirra að þeir forðist að leita í hólm-
um og öðmm stöðum þar sem emir
verpa. Ekki þarf að hrekja ömin
af eggjum nema skamma stund til
Keflavík:
Urðu að
setja netin
niður í lest
Keflavík.
FREMUR lítill afli barst á land
í Keflavík í síðustu viku, enda
vom allir bátar í höfn yfir pásk-
ana. Tveir bátar, Rán KE og
Jóhannes Jónsson KE, áttu í erf-
iðleikum þegar þeir vora að taka
upp netin í slæmu veðri út af
Jökli fyrir páskana. Urðu skip-
veijar að setja netin niður í lest
af öryggisástæðum á leiðinni til
lands. Bátarnir lönduðu um 230
tonnum í vikunni.
Trollbátamir Öm SH og Hafdís
ÍS fengu ágætis afla á stuttum tíma
fyrir páskahelgina og Öm 29,5 tonn
og Hafdís 13,6 tonn. Boði KE var
aflahæstur netabátanna með 23,3
tonn, Ágúst Guðmundsson GK 19
tonn, Stafnes KE 14,6 tonn, Harpa
RE sem veiðir kvóta Barðans GK
er strandaði við Snæfellsnes var
með 13,2 tonn, Happasæll KE 10,7
tonn og Svanur KE 10,1 tonn.
Minnstu netabátamir og færa-
bátamir réru ekki í síðustu viku.
- BB
Hafnarborg:
Sýningu Gests
að ljúka
SÝNINGU Gest Guðmundssonar
í Hafnarborg, Strandgötu 34 í
Hafnarfirði er að ljúka. Sýningin
stendur til 26. apríl nk.
Þetta er fjórða einkasýning
Gests. Á sýningunni em 10 málverk
og um 18 teikningar. Flest verkin
á sýningunni eru til sölu.
að eggin eyðileggist.
Einnig vill félagið leggja áherslu
á að það vonast til að eiga góð
samskipti við æðarræktarbændur
og aðra hagsmunaaðila.
Nú fer sá tími senn í hönd þegar
fálkar hefja varp. Má því eiga von
á hinum árvissu eggja- og ungaþjóf-
um hingað til lands. Verða bæði
yfirvöld og landsmenn að vera á
varðbergi.
Stjómarkjör fór fram á aðalfund-
inum að þessu sinni. Aðalstjómina
skipa: Magnús Magnússon, formað-
ur, Kjartan Magnússon, ritari,
Reynir Ármannsson, gjaldkeri,
Hjörtþór Ágústsson og Sverrir
Þórðarson.
HALLDÓR C. hefur opnað mynd-
listarsýningpi í menningarmið-
stöðinni í Gerðubergi í Breið-
holti. Sýningin ber heitið „Genio
infantil" og er haldin í minningu
Gísla Gíslasonar frá Uppsölum
og Andy Warhol.
Sýningin í Gerðubergi verður
opin kl. 9.00-21.00 virka daga og
á laugardögum kl. 13.00-17.00.
Sýningin stendur fram í miðjan maí.
Fallegir íþróttagallar
fyrir böm á öllum aldri
HAGKAUP
REYKJAVIK AKUREYRI NJARÐVÍK
Póstverslun: Sími 91-30980