Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
45
Líf svon og Borgaraflokkurinn
eftir Ólaf I. Hrólfsson
Þann 14. þ.m. réðst fram á rit-
völlinn Hulda Jensdóttir formaður
Lífsvonar og setti X-S fyrir framan
nafn samtakanna. 22. apríl ítrekar
svo Jón Valur Jensson flokksmerk-
inguna og lýsir stuðningi við hana.
Reyndar nefnir Jón nokkra þing-
menn Sjálfstæðisflokksins sem
stuðningsmenn við þá hugsjón að
vernda ófæddu börnin. Hugsjónin
er háleit, hugsjónin er góð. En
hvemig stendur á því að ófæddra-
bamavinurinn mikli, Albert
Guðmundsson, kom ekki til liðs við
þetta mál fyrr en til hans var leitað
eftir að ákveðið var að stofna Borg-
araflokkinn? Hvar var stuðningur
hans við tillöguflutning og baráttu
annarra sjálfstæðismanna þegar
hann skipaði sæti í þingliði Sjálf-
stæðisflokksins?
Það er ekkert vandamál fyrir
málefnasnauðan mann að sam-
þykkja að taka hin ýmsu mál upp
á arma sína í kosningabaráttunni.
Hitt er meira um vert, að það sé
staðið við þau eftir kosningar. Rétt-
ara hefði verið fyrir forystusveit
Lífsvonar að leita eftir raunhæfum
stuðningi við þetta mál en ekki hjá
Glistrup. Þar sem Hulda Jensdóttir
hefur ákveðið að Lífsvon skuli vera
'deild í Borgaraflokknum eða öfugt
segi ég mig hér með úr samtökun-
um Lífsvon því Glistrup-sinni verð
ég ekki. Það er illt til þess að vita
að kona á borð við Huldu Jens-
dóttur skuli misnota það traust sem
henni var sýnt með því að gera
hana að formanni Lífsvonar. Fólk
bar traust til hennar en því trausti
hefur hún fyrirgert. Það er líka
ástæða til þess að vorkenna Jóni í
vanda hans við stuðning við mál-
Vortónleikar
Karlakórs
Reykjavíkur
V ORTÓNLEIKAR Karlakórs
Reykjavíkur verða haldnir í
Langholtskirkju dagana 26., 28.,
29. og 30. apríl nk. Tónleikarnir
26. apríl hefjast kl. 16.00, en hin-
ir allir kl. 20.30.
Á efnisskránni eru íslensk, nor-
ræn og þýsk lög. Aðalstjómandi
kórsins er Páll P. Pálsson, en Odd-
ur Bjömsson mun stjóma kómum
í nokkrum lögum. Undirleikari á
píanó er Guðrún A. Kristinsdóttir.
Ennfremur leika undir í nokkmm
lögum þeir Bemharður Wilkinsson
á flautu og Ámi Áskelsson á slag-
verk.
Þessir tónleikar em fyrir styrkt-
arfélaga kórsins, en hægt er að
kaupa miða við innganginn á öllum
tónleikunum.
MALLORKA
Royal Playa
de Palma
Gistislaður í sérflokki.
Fcrðaskrilslola, Hallveigarstfg 1 símar 26388 og 28580
„Þar sem Hulda Jens-
dóttir hefur ákveðið að
Lífsvon skuli vera deiid
í Borg'araflokknum eða
öfugt segi ég mig hér
með úr samtökunum
Lífsvon því Glistrup-
sinni verð ég ekki.“
flutning hans.
Stuðningsmenn lífsréttinda á
þingi em þeir sömu menn (konur
em líka menn) og Jón og hinir
Glistmp-amir vilja fella af þingi.
Er furða þótt fólk spyiji, hvar er
stefna og skoðanir þessa fólks?
Lífsréttur er ekki bara nauðsynleg-
ur fyrir ófæddu bömin. Hann er
líka réttur þeirra sem fæddir em
og þess vegna styð ég Sjálfstæðis-
flokkinn því þar fer saman baráttan
fyrir rétti lifenda og ófæddra. Þeim
flokki treysti ég til þess að halda
um stjómartaumana þannig að líf-
vænlegt verði í þessu landi, þrátt
fyrir vinstri upphlaup með 130%
verðbólgu í eftirrétt en kjaraskerð-
ingar í aðalrétt.
Höfundur ersölumaður.
Byggingavörur
án heilsuspillandi
eiturefna.
NATURACASA
Nýbýlavegi 20, 200 Kópavogi,
sími 91-44422
FJALLALAMBÁ
MINUTUM
Ef ekki er hægt að fá beinlausa
lambavöðva hjá kaupmanninum er
lærið úrbeinað, vöðvamir fítuhreinsaðir og
sinar skomar burtu. Vöðvamir síðan
skomir í sneiðar, nema þunnir vöðvar, þeim
er skipt í hæfílegar steikur. Leginum hellt
yfir sneiðamar þannig að hann hylji kjötið
alveg. Matarfilma breidd þétt yfir. Geymt í
kæliskáp í 3 sólarhringa. Ekki er
nauðsynlegt að berja kjötið fyrir steikingu.
Kjötsneiðamar teknar upp úr, þerraðar
varlega, þannig að kryddið fari sem minnst
af og steiktar á pönnu eða grilli. Best er að
hafa kjötið miðlungssteikt. Síðan em
sneiðamar teknar af pönnunni og haldið
heitum.
Púrtvíninu hellt á pönnuna og soðið í 1-2
mínútur. 2 dl af rjóma, vínberjunum og
kryddinu bætt út í og soðið í nokkrar
mínútur. Ef sósan er ekki nógu þykk má
þykkja með örlitlum sósujafnara.
Meðlætið valið eftir smekk.
Sósa:
200gr vínber, skorín í tvennt og
steinhreinsuð.
2 dl púrtvín, dökkt.
lá tsk myntlauf.
1 tsk basilikum.
2dlrjómi
Salt eða grænmetiskraftur.
(maísena sósujafnari).
Þykir þér gaman að koma á óvart með
spennandi matargerð - en ert ekki alltaf
viss um árangurinn? Settu þá traust þitt á
lambakjötið. Það bregst þér ekki, ef þú
meðhöndlar þetta öndvegis hráefni eins og
það á skiiið. Þú færð spennandi
lambakjötsuppskriftir víða núna enda
margir að læra að meta þetta safaríka og
meyra kjöt á nýjan hátt.
Hér er ein til að byrja með.
Ingvar H. Jakobsson matreiðslumeistari á
Vertshúsinu á Hvammstanga gaf okkur
þessa úrvals uppskrift sem örugglega slær í
gegn.
Kryddlegnar lambasneiðar
m/yínbeijum.
^þegi
arþu
,.v»^ígeg0‘
1 kglambakjötsvöðvar
t.d. úr læri.
Kryddlögur:
lítrí sólblómaolía.
1 dlmysa.
2 tsk basilikum.
2 tsk mvntlauf.
1 lítill blaðlaukur saxaður.
3 msk sítrónupipar.
Öllu blandað saman.
MARKAÐSNEFND