Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
48
Minning:
VigbergÁ. Einars-
son verkstjóri
Fæddur 20. ágúst 1905
Dáínn 16. april 1987
Vigberg Agúst Einarsson verk-
stjóri lést á heimili sínu, Melbæ 12,
Reykjavík, hinn 16. apríl sl. 81 árs
að aldri. Útför hans verður gerð frá
Neskirkju á morgun kl. 15.00.
Vigberg var alla jafna heilsu-
hraustur um ævina, en sl. haust
fékk hann vægt slag. Enda þótt
hann virtist ætla að ná sér bærilega
eftir það, var vel frískur og em í
besta lagi, varð hann bráðkvaddur
hinn 16. þ.m.
Vigberg var borinn og bamfædd-
ur Reykvíkingur, sonur Einars
Jónssonar sjómanns Einarssonar
bónda í Skildinganesi (í Skeijafírði)
og konu hans, Gunnvarar Sigurð-
ardóttur. Föðurbróðir Vigbergs
heitins var Sigurður Jónsson í Görð-
unum í Skerjafírði, þekktur sjósókn-
ari og útgerðarmaður.
Böm þeirra Einars og Gunnvarar
vom fímm. Elstur var Jón Ástvald-
ur. Hann lést á unga aldri, liðlega
tvítugur. Næstur var Sigurður, en
hann er látinn fyrir allnokkm. Vil-
berg var þriðji í röð þeirra systkina.
Og enn lifa Asgeir Valur veggfóðr-
arameistari og Díana, húsmóðir í
Reykjavík.
Að loknu bamaskólanámi gekk
Viggi, eins og hann var jafnan kall-
aður af ættingjum og vinum, að
þeim störfum sem buðust. Var þá
aðallega um að ræða eyrarvinnu
+
Móðir okkar,
ÞÓRNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR,
StigahHð 34,
Reykjavlk,
andaðist í Landspítalanum 21. apríl.
Nína Sveinsdóttir,
Sólrún Svelnsdóttir,
Þorsteinn Sveinsson.
eða fískverkun í landi, en þess á
milli var oft um sjósókn að ræða
og nokkur sumur fór hann á síld.
En sakir einstakra mannkosta,
dugnaðar og samviskusemi ávann
Viggi sér traust yfirboðara sinna
og varð verkstjóri, fyrst í Njarðar-
stöðinni hjá Valdimar Þórðarsyni
frá Brekkholti (við Bræðraborg-
arstíg), en síðar kenndur við
Kirkjusand. Á stríðsámnum hafði
Vigberg á hendi verkstjóm við
höfnina við sandflutninga fyrir her-
inn til notkunar í iqolfestu (ballest),
því að flutningaskip hersins sigldu
að öllu jöfnu tóm frá landinu.
Eftir stríð varð hann verkstjóri
hjá Einarsson og Zoega hf. og sá
um losun skipa. Síðar varð hann
verkstjóri hjá Vélaleigu Valdimars
Þórðarsonar, þar til hún var lögð
niður um 1960. Síðast starfaði hann
hjá Júpíter og Mars, þar til hann
fór á eftirlaun.
Viggi var alla tíð áhugasamur
um íþróttir, einkum fótbolta, og á
sínum yngri ámm tók hann virkan
þátt í glímu og leikfimi hjá Glímufé-
laginu Ármanni. Síðar gekk hann
í Val og æfði knattspymu eftir því
sem tími vannst til. Var Viggi góð-
ur félagi og einkar prúður, eftir því
sem æskuvinur hans, Þorkell Ingv-
arsson hefur tjáð mér.
Árið 1934 kvæntist Vigberg
móður móðursystur minni, Elin-
borgu Þórðardóttur. Hún lést árið
1980. Þau Vigberg og Elinborg
+
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
VIGBERG ÁGÚST EINARSSON,
Melbæ 12,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 24. apríi kl. 15.00.
Ásta Vigbergsdóttir,
Axel Björnsson,
Björn Axelsson,
Egill Axelsson.
9
Móðir okkar,
SESSEUA KON RÁÐSDÓTTIR,
fyrrverandi skólastjór) f Stykkishólmi,
lést á Hrafnistu 22. apríl sl.
Auður Jónsdóttir Colot,
Inglbjörg M. Jónsdóttlr,
Þóra M. Jónsdóttir,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR M. NORÐFJÖRÐ,
Sléttahrauni 24,
Hafnarflrðl,
andaöist 21. apríl.
Guðbjörg Haraldsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
I
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
ÓLAFUR KJARTANSSON,
Hraunbæ 47,
andaöist í Landakotsspítala 21. apríl.
Hulda Kristinsdóttir
og börn.
+
Bróðir minn og föðurbróðir,
ÁGÚST GUÐBRANDSSON,
Mánagötu 10,
lést í Borgarspítalanum 8. apríl sl.
Útförin hefur farið fram.
Vigdfs Guðbrandsdóttir,
Margrét Sigrún Guðjónsdóttir.
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaðir og afi,
AGNAR FRIÐBERG ÞÓR HARALDSSON
vélfræðingur,
Túngötu 11, Siglufirði,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 17. apríl sl., verður
jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 24. april kl. 14.00.
Guðlaug Konráðsdóttir,
Sigrún Viktórfa Agnarsdóttlr, Sveinn Aðalbjörnsson,
Haraldur Þór Agnarsson, Sigrún Halldóra Jóhannsdóttir,
Óli Andrés Agnarsson, Ásta Katrfn Helgadóttir,
Kristrún Konný Agnarsdóttir
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
STEFANÍA M. JÓNSDÓTTIR,
Snorrabraut 30,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. apríl kl.
16.30.
Fjóla Gísladóttir,
Elfn Karlsdóttir Beittel,
Jón Karlsson,
Lfna Karlsdóttir,
Magnús Karlsson,
Bryndfs Karlsdóttir,
barnabörn
Gunnlaugur Lárusson,
James Beittel,
Hulda Frlðriksdóttir,
Snorri Jónsson,
Guðbjörg Viggósdóttir,
Páll Helgason,
barnabarnabörn.
og
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN LAUFEY HELGADÓTTIR BERNDSEN,
Karlsskála,
Skagaströnd,
andaðist á Héraðshælinu Blönduósi 15. apríl sl. og verður jarð-
sungin frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 25. apríl kl.
14.00.
Helga Berndsen, Gunnlaugur Arnason,
Karl Berndsen, Frfða Hafstelnsdóttir,
Adolf Berndsen, Hjördfs Sigurðardóttlr,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ERLINGUR EYSTEINN HJALTESTED
fyrrverandl bankaritari,
Karfavogi 43,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 24. apríl kl.
10.30.
Guðrföur Sigurbjörg Hjaltested,
Gunnar Hjaltested, Gyða Hjaltested,
Stefán B. Hjaltested, Margrét Pálsdóttir,
Kristján B. Hjaltested,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN SIGURÐSSON
bóndi,
Traðarkotl,
Vatnsleysuströnd,
er lést í Landakotsspftala 15. apríl, verður jarðsunginn frá Kálfa-
tjarnarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15.00.
Margrét Ásgeirsdóttir, börn,
tengdabörn og barnabörn.
stofnuðu heimili sitt á Njálsgötu
15 hér í borg og bjuggu þar til
ársins 1970, er þau fluttu á Rauða-
læk 2. Eftir lát Elinborgar fluttist
yigberg til dóttur sinnar, Ástu
Önnu, og tengdasonar, Axels
Bjömssonar, í Melbæ 12, þar sem
hann hafði til umráða góða og
bjarta íbúð og þar naut hann hlýju
og umönnunar þeirra og dótturson-
anna tveggja á ævikvöldinu.
Þau Vigberg og Elinborg eignuð-
ust þijár mannvænlegar dætur, en
þann skugga bar á, að tvær þeirra
létust á ungra aldri.
Edda Svanhildur fæddist 18.
mars 1934. Á fermingaraldri veikt-
ist hún skyndilega af erfiðum
taugasjúkdómi, en náði sér síðar
að nokkru og gat farið að vinna
fyrir sér við verslunarstörf. En áður
en varði tók sjúkdómurinn sig upp
aftur og varð ekki við neitt ráðið,
uns hún lést tæplega 21 árs að aldri
árið 1955.
Selma Sigþóra fæddist 22. febr-
úar 1940. Hún varð stúdent árið
1960 með framúrskarandi vitnis-
burði og lauk MA-prófí frá Háskól-
anum í Edinborg árið 1964. Síðan
gerðist hún kennari við Hagaskól-
ann í Reykjavík. En síðla dags 1965
veiktist hún hastarlega og lést eftir
skamma sjúkdómslegu í ársbyijun
1966.
Yngsta dóttirin, Ásta Anna,
fæddist 12. janúar 1942. Var hún
foreldrum sínum til ómetanlegs
stuðnings og gleði í raunum þeirra
allra. _Hún lauk námi frá Kennara-
skóla íslands og stundaði síðan nám
í þýsku og uppeldisfræði þegar hún
var komin til Göttingen í Þýska-
landi ásamt eiginmanni sínum, dr.
Axel Bjömssyni jarðeðlisfræðingi.
Synir þeirra tveir, Bjöm og Egill,
vom augasteinar afa og ömmu. Það
var þeim Vigberg og Elinborgu
ógleymanlegt ævintýri, þegar þau
heimsóttu dóttur sína og tengdason
í Göttingen. Hvorugt þeirra hafði
áður komið út fyrir landsteinana,
en það var samt enginn viðvanings-
bragur á ferðalögunum.
Þau Vigberg og Elinborg hjúkr-
uðu ekki aðeins dætmm sínum á
sjúkra- og dánarbeði, heldur og
foreldrum sínum og venslafólki.
Einkum er mér minnisstæð áralöng
umhyggja og aðhlynning við ömmu-
systur sína, Vigdísi Þorkelsdóttur,
sem bjó hjá þeim á Njálsgötu 15
og andaðist í hárri elli.
Sjálfur var ég heimagangur á
heimili þeirra hjóna frá því að ég
man eftir mér. Á ég margar af
mínum ljúfustu endurminningum
frá því, er ég bjó í nábýli við þau
Vigberg og Elinborgu á Njálsgötu
15. Einkum verður mér jafnan
minnisstætt, hve vel þau tóku konu
minni og bömum okkar, er við flutt-
umst heim frá útlöndum. Fjölskylda
mín og ég verðum ætíð þakklát
fyrir alla þá greiðasemi og alúð, er
við nutum á frumbýlisárum okkar
og jafnan síðan.
Viggi var myndarlegur maður á
velli og bjart yfír honum. Hann var
hið mesta snyrtimenni, bæði til orðs
og æðis. Hann var traustur maður
og vinafastur og svo ættrækinn,
að lengi verður munað. Viggi hafði
sérstakt dálæti á garðyrkju og frá
því ég man eftir og langt fram á
efri ár, ræktaði hann sínar eigin
kartöflur. Fyrst var það í Kringlu-
mýrinni og síðast uppi í Smálönd-
um. Man ég glöggt eftir því, hversu
snyrtilegum Vigga tókst að halda
bæði skúrum og áhöldum í kringum
þessa óþrifalegu vinnu. Enn eru
mér minnisstæðir þeir hátíðisdagar
á vorin, þegar sett var niður, og
þeirrar stórhátíðar á haustin, þegar
uppskeran hófst. Á síðustu æviár-
unum lagfærði hann leiði sinna
nánustu og hélt þeim við af sinni
einskæru alúð. Einnig hlúði hann
að leiði afa míns og ömmu og bama
þeirra í Gamla kirkjugarðinum.
Þegar við nú kveðjum Vigberg
hinstu kveðju, hrannast minning-
amar um þennan öðlingsmann upp,
en í mínum huga ber hæst minning-
in um góðan eiginmann og föður,
sem allra götu vildi greiða.
Ástu Önnu, Axel, Bimi og Agli,
systkinum og öðru vensla- og
frændfólki vottum við okkar dýpstu
samúð.
Þórir Á. Ólafsson