Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
Farþegum Flugleiða
hefur fjölgað um 30%
VERULEG aukning hefur orðið
bæði í farþegaflutningum og
bókunum í millilandaflugi Flug-
leiða það sem af er þessu ári
miðað við síðasta ár. Þannig
hefur farþegafjöldi aukist um
tæplega 30% og það sem af er
hafa bókanir aukist um 15%.
Að sögn Sæmundar Guðvins-
sonar blaðafulltrúa Flugleiða
hefur félagið flutt 73.700 farþega
það sem af er þessu ári á flugleið-
inni milli Evrópu og Norður-
Ameríku. Á sama tíma í fyrra
höfðu Flugleiðir flutt 57.200 far-
þega á þessari flugleið og er
aukningin 28,8%. Þá hafa Flug-
leiðir flutt 66.800 farþega milli
íslands og Evrópu á móti 52.000
farþegum í fyrra sem er 28,2%
aukning. Alls hafa bókanir verið
267.000 það sem af er árinu á
móti 232.000 í fyrra sem er um
15% aukning.
Sæmundur sagði að skýringa á
þessari aukningu sé heíst að leita
í auknum ferðalögum íslendinga,
en komur íslendinga til landsins á
þessu ári hafa aukist um 26,9%.
Einnig hafa ferðamenn frá Norð-
urlöndum aukið komur sínar
hingað og eiga helgarferðir, sem
Flugleiðir hafa selt þar, sinn þátt
í því.
Fannst lát-
inn í hlöðu
UNGUR vinnumaður á bæn-
um Hnjóti í Vestur-Barða-
strandarsýslu fannst látinn í
hlöðu við bæinn á fimmtudag.
Ekki er vitað hvernig dauða
hans bar að, en rannsóknar-
lögreglan vinnur að máiinu.
Maðurinn, sem er 22 ára,
fannst látinn í hlöðunni á
fimmtudagskvöld og var með
áverka á höfði. Lögreglan á
Patreksfirði óskaði eftir aðstoð
Rannsóknarlögreglu ríkisins við
að upplýsa hvemig dauða
mannsins hefði borið að. Sam-
kvæmt upplýsingum rannsókn-
arlögreglu bendir ekkert til
annars en að um slys hafí verið
að ræða. Ekki er unnt að birta
nafn mannsins að svo stöddu.
Maður hrellir
telpur við
Breiðagerð-
isskóla
LITLAR telpur hafa orðið fyrir
áreitni manns við Breiðagerðis-
skóla að undanförnu og hefur
maðurinn sýnt þeim kynfæri sín.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu hefur nokkrum sinnum
orðið vart við mann í nágrenni
Hvassaleitisskóla, sem hefur sýnt
svipaða tilburði við ungar stúlkur.
Foreldrar í hverfínu hafa óskað eft-
ir því að há girðing við skólann
verði fjarlægð, þar sem hún veiti
manninum skjól til að iðka þennan
ógeðfellda leik. Rannsóknarlög-
regla ríkisins vinnur að rannsókn
málsins.
Morgunblaðið/Kristján Amgrímsson.
John Travolta ásamt unnustu, foreldrum og fylgdarliði fyrir utan Hótel Esju í gærkvöldi. Hópurinn
var að leggja af stað i veitingahúsið Broadway.
TRAVOLTA Á ÍSLANDI
BANDARÍSKA kvikmyndastjaman, söngvarinn
og dansarinn John Travolta kom á einkaþotu sinni
til íslands um kl. 18.00 í gær ásamt níu manna
fylgdarliði. Þeirra á meðal voru foreldrar hans
og kærasta. Hann er á leið sinni vestur um haf
til Bandaríkjanna og heldur för sinni áfram i dag.
Travolta var að koma frá kvikmyndahátíðinni í
Cannes í Frakklandi. Hann hafði búist við að fá verð-
laun fyrir kvikmyndaleik sinn á hátíðinni, en sú ósk
hans rættist ekki. Travolta bjó á Hótel Esju í nótt
og ætlaði að sjá sýninguna „Allt vitlaust" í Broadway
í gærkvöldi eftir að Björgvin Halldórsson hafði boðið
honum þangað.
Travolta er sem kunnugt er þekktastur fyrir leik
sinn í dans- og söngvamyndunum „Saturday Night
Fever" og „Grease", sem sýndar voru hér á landi
fyrir nokkrum árum við miklar vinsældir.
Upplagseftirlit Verslunarráðs í október til mars:
Morgnnblaðið selt í
47.363 eintökum á dag
MORGUNBLAÐIÐ var selt í til mars 1987, samkvæmt upp-
47.363 eintökum að meðaltali á lagseftirliti Verslunarráðs
dag á tímabilinu október 1986 íslands. Á sama tímabili árið
Bylgjan safnar fé fyrir Vímulausa æsku:
Milljónir hafa safnast
ÞAÐ var mikið um að vera á
Bylgjunni gær, en þá hófst mara-
þonútsending til styrktar Vímu-
lausri æsku. Frá því kl. 10 f
gærmorgun hefur hlustendum
Bylgjunnar staðið til boða að fá
leikið lag að eigin vali gegn lág-
marksgreiðslu. En það tryggir þó
ekki að viðkomandi fái að hlusta
á lagið sitt til enda því aðrir geta
fengið lagið tekið af með þvi að
borga hærri upphæð. Um mið-
nætti höfðu með þessu móti
safnast nær 2.5 miRjónir króna.
„Þátttakan og viðtökumar allar
hafa verið hreint með ólíkindum.
Við höfum ekki haft undan og fólk
því þurft að bíða eftir lögunum
sínum. Það hafa staðið yfír samskot
í fyrirtækjum og upphæðimar farið
hæst í 100 þúsund. Hagvirki greiddi
þá upphæð fyrir að fá lagið „Heim
í Búðardal" leikið. Það hefur komið
okkur geysilega á óvart hvað fólk
er örlátt," sagði Páll Þorsteinsson á
Bylgjunni þegar Morgunblaðið leit
þar við í gærkvöld. Hann sagði að
það væri sérstaklega gaman að sam-
eina söfnun til styrktar góðu málefni
og skemmtilegan leik og hann teldi
víst að Bylgjan ætti eftir að endur-
taka söfnun af þessu tagi til styrktar
einhverju öðru góðu málefni. „Það
má segja að það kerfí sem við kom-
um okkur upp hafi fljótlega sprung-
ið. Við settum í upphafi upp 300
króna lágmarksupphæð, en síðan
voru að berast hér inn á borð til
okkar tugir þúsunda. Við höldum
áfram til miðnættis laugardag,"
sagði Páll.
áður var blaðið selt í 45.085 ein-
tökum og er aukningin 2.278
eintök eða 5,05%.
í tölum upplagseftirlitsins um
sölu blaða og tímarita, sem birtar
voru í gær í fjórða sinn, kemur
fram að seld eintök af Degi á
Akureyri voru á umræddu tíma-
bili 5.401 eintak, á móti 4.908
eintökum árið áður og nemur
aukningin 10,04%. í upplagstölun-
um eru eingöngu innifalin greidd
eintök, en ekki tíundað hve mörg
eintök hafa verið prentuð. Morg-
unblaðið og Dagur eru einu
dagblöðin sem taka þátt í upplags-
eftirlitinu.
Upplagseftirlit Verslunarráðs-
ins birti í gær einnig tölur um
seld eintök að meðaltali árið 1986
hjá tveimur tímaritum. Gestgjaf-
inn var seldur í 7.930 eintökum
og Heilbrigðismál í 6.554 eintök-
um.
Eftirtalin tímarita, sem hafa
áður verið með í eftirlitinu eða
höfðu óskað eftir aðild, skiluðu
ekki upplýsingum eða tilkynntu
að þau væru hætt aðiid: Mannlíf,
Gróandinn, Viðskipta- og tölvu-
blaðið, Æskan, Skinfaxi, Tímaritið
Heimsmynd, Stefnir og Þjóðlíf.
©'
INNLENT
Voru gagnlegar
köimunarviðræður
- segir Þorsteinn Pálsson um fund
með forystumönnum Alþýðuflokksins
ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Friðrik Sop-
husson, varaformaður hans, ræddu í nokkrar klukkustundir við
formann og varaformann Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson,
og Jóhönnu Sigurðardóttur, siðdegis í gær. Fulltrúar beggja flokk-
anna vörðust frétta í gærkvöldi. Sögðu þetta hafa verið gagnlegar
könnunarviðræður og Þorsteinn Pálsson vildi ekki tjá sig um fram-
hald stjórnarmyndunarviðræðna sinna.
Morgunblaðið/Þorkell.
Ungmenni tóku á móti óskum um lög. Á myndinni eru Gunnar Fjal-
ar Helgason og Ólöf Kristinsdóttir.
„Þetta voru könnunarviðræður við
Alþýðuflokkinn, sem spönnuðu mjög
vítt svið og voru gagnlegar," sagði
Þorsteinn Pálsson í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta voru ekki
samningaviðræður og engar tillögur
voru lagðar fram. Báðir aðilar reif-
uðu sjónarmið sín til þess að kanna
málefnastöðuna. Ég tel að fundurinn
hafi verið gagnlegur. Að loknum
þessum ítarlegu könnunarviðræðum
við Alþýðuflokkinn, munum við meta
stöðuna og ákveða við hveija við
óskum að eiga könnunarviðræður
við næst.
Það hefur ekki verið ákveðið hvort
rætt verður við fulltrúa allra stjórn-
málaflokkanna, sem eiga fulltrúa á
Alþingi, en svo gæti farið. Það er
ekki víst og það er heldur ekki
ákveðið við hvaða flokk við ræðum
við næst. Við erum ekki enn búnir
að setja ákveðið stjómarmynstur
niður. Við viljum kanna hug fleiri
aðila áður en við leggjum slíkt mat
á stöðuna. Það er ljóst að nokkum
tíma tekur að mynda ríkisstjóm í
þeirri flóknu stöðu, sem upp er kom-
in að loknum þessum kosningum.
Það er heldur engin hengingaról í
einhverri dagsetningu eins og síðast,
þegar ríkisstjóm var mynduð," sagði
Þorsteinn Pálsson.
Ekki tókst að ná tali af forystu-
mönnum Alþýðuflokksins í gær-
kvöldi.