Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 31
...... Qf*
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987 31
Spánverjar vilja
kaupa eldislax
af Islendingum
Morgunblaðið/Bjami
Spænsku fulltrúunum var boðið að smakka lax frá Mánalax hf. á Neskaupsstað. Frá vinstri á myndinni
eru Róbert Pétursson frá Fiskeldi hf. og Pólarlax hf., Gylfi Gunnarsson frá Mánalax hf., José Sol-
ernou, Gylfi Þór Magnússon framkvæmdastjóri SH og Mario Rotllant.
Flugslysanefnd vill setja opinber lágmarksveðurskilyrði
fyrir flugvelli landsins:
Skiptar skoðanir hvort rétt
sé að selja slíkar reglur
- segir Pétur Einarsson, flugmálasljóri
GÓÐAR likur eru á að íslensk
laxeldisfyrirtæki geti hafið sölu
á eldislaxi til Barcelona á Spáni.
Fulltrúar frá fyrirtækinu Sefrisa
á Barcelona hafa verið á íslandi
Hanne-Lore
Kuhse heldur
söngnámskeið
í Skálholti
SÖNGNÁMSKEIÐ verður haldið
í lýðháskólanum í Skálholti dag-
ana 24. til 31. maí. Austur-þýska
sópransöngkonan Hanne-Lore
Kuhse leiðbeinir, en undirbúning
námskeiðsins hefur Ágústa
Ágústsdóttir óperusöngkona
haft með höndum. Vemdari
námskeiðsins verður séra Sig-
urður Árni Þórðarson í Skálholti.
Hanne-Lore Kuhse hefur sérhæft
sig sem Wagner-söngkona. Hún
kom til íslands fyrst í fyrra og hélt
hér námskeið við góðar undirtektir.
Ágústa sagði í samtali við Morgun-
blaðið að meiningin væri að halda
slík námskeið árlega og vonaðist
hún til þess að Hanne-Lore gæti
annast kennsluna áfram. Ágústa
sagðist hafa farið fimm sinnum á
námskeið til hennar í Weimar í
Austur-Þýskalandi, en sjálf er
Hanne-Lore búsett í Austur-Berlín.
Alls komast fjórtán söngvarar á
námskeiðið að þessu sinni og verða
þeir, sem áhuga hafa, prófaðir í sal
Nýja tónlistarskólans við Ármúla
sunnudaginn 24. maí kl. 16.00.
síðustu daga til að ræða við full-
trúa frá Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna um frekari viðskipti og
hafa þeir sýnt sérstakan áhuga
á íslenskum eldislaxi.
Spænsku fulltrúamir tveir eru
framkvæmdastjórar fjölskyldufyrir-
tækis á Barcelona og hafa þeir verið
í saltfiskviðskiptum við ísland
síðustu 150 árin, að eigin sögn.
Þeir eru nú að skoða möguleika á
innflutningi frystrar rækju og hum-
ars frá íslandi, auk fersks og frysts
lax. Þeir sögðust kaupa 200 tonn
af eldislaxi á ári, aðallega frá Nor-
egi og Færeyjum, en þeir vildu
gjaman treysta íslandsböndin enn
frekar en orðið er.
Gylfí Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Mánalax hf. í Neskaupsstað,
bauð spænsku fulltrúunum í lax á
Hótel Sögu fyrir skömmu ásamt
fulltrúum annarra laxeldisfyrir-
tækja og fulltrúum frá SH. Þeir
sögðu að laxinn hefði bragðast afar
vel og hefði verið mun þéttari í sér
en sambærilegar vömr annars stað-
ar frá. Þeir sögðu að augljóslega
væm gæðin góð, en vandinn væri
hinsvegar flutningsleiðin. Norð-
menn flytja ferska eldislaxinn sinn
með skipum til Hollands og þaðan
með kældum flutningabílum til
Spánar. Ferskur fískur getur
geymst í viku við 2 til 4 gráður.
Mario Rotllant, annar fram-
kvæmdastjóra Sefrisa, sagði í
samtali við Morgunblaðið að fyrir-
tæki hans væri tilbúið strax til að
kaupa frosin eldislax, og síðar yrðu
flutningsleiðir fyrir ferska laxinn
athugaðar nánar. Hann sagði að
eldislax væri orðin vinsæl neyslu-
vara á Spáni.
„ VIÐ tökum vel öllum tillögum
sem koma frá flugslysanefnd.
Þessi hugmynd hefur verið
lengi í athugun hjá Flugmála-
stjóm, en skiptar skoðanir
hafa verið um hvort rétt sé að
setja slíkar reglur,“ sagði Pét-
ur Einarsson flugmálastjóri er
hann var inntur álits á tillögu
flugsiysanefndar um opinber
lágmarksveðurskilyrði fyrir
flugvelli landsins.
í inngangi ársskýrslu flug-
slysanefndar fyrir árið 1986 setur
formaður nefndarinnar, Karl
Eiríksson, fram þá tillögu nefnd-
arinnar að Flugmálastjóm kanni
hvort ekki sé æskilegt að setja
opinber lágmarksveðurskilyrði
(State Minimas) fyrir flugvelli
landsins, eins og víða þekkist
erlendis. Með því móti væri reynt
að tryggja, að ekki sé flogið til
og frá flugvöllum, ef veður þar
er lakara en það sem talið er
nauðsynlegt fyrir lágmarksör-
yggi í flugstarfsemi. Telur
flugslysanefnd að með þessu
væri stigið stórt skref í örygg-
isátt.
Pétur Einarsson sagði það sína
skoðun að menntun flugmanna
væri meira virði en reglur sem
þessar, enda yrði alltaf að treysta
mati flugmannanna þegar á
reyndi.
GOODYEAR
Grand Prix S Radial
—
'rr' '"Mhv
Á GOODYEAR
KEMST ÉG HEIM
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNAR HJÓLBARÐA N > \ Í;J á
Laugavegi 170-172 Simi 695500
GOODfYEAR