Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987 17 stakra hópa. Athugið þó að skólaíþróttimar eru oft kveikjan að góðum afreksmanni, hvort sem er á sviði íþrótta eða í öðr- um þáttum þjóðfélagsins. — Kapp er best með forsjá. Ekki er ég með skrifum mínum, nema síður sé, að segja að íþrótta- kennslan sé fullkomin eins og hún er í dag og ekki sé hægt að bæta hana. Sem námsstjóri hef ég m.a. þurft að glíma við eina spumingu. Hvem- ig má ná til hinna fámennu skóla víða um landið sem ekki geta ráðið til sín sérmenntaðan íþróttakenn- ara. í skólum þessum er íþrótta- kennsla víða í höndum ófaglærðs fólks eða hinn almenni kennari reynir að gera henni einhver skil, þó svo að mikið vanti á. Hér vantar fmmkvæði íþróttakennaraskóla ís- lands. Hvert er markmið hans að þessu leyti? Hér þarf breyting að verða á. Hún þarf að koma frá ráðu- neyti og/eða stjómendum skólanna er útskrifa kennara fyrir böm okk- ar. Hér má því ekki sofa lengur á verðinum. Nokkur umhugs- unaratriði Nefna mætti nokkra þætti til að styrkja íþróttakennslu í skólum og um leið koma til móts við hreyfing- arleysi bama í grunnskólum lands- ins, sem og að tryggja að hægt væri að þjóna betur meginmarKmið- um sem sett eru fram í námsskrá fyrir grunnskóla: — Leiða íþróttir og leiki inn á dag- heimilin og nýta íþróttahúsin að sumarlagi undir slíka starfsemi. — Gefa 6 ára (forskóla) kost á íþróttakennslu. — Iþróttatímum yrði fjölgað í 4—5 á viku. Tveir af þessum 4—5 tímum yrðu fastir grunnþjálfun- artímar þar sem á dagskrá yrðu fimleikar og leikfimi, uppbyggj- andi æfingar úr frjálsum íþrótt- um, auk kerfisbundinnar grunnþjálfunar fyrir efri bekki grunnskólans. — Bæta menntunaraðstöðu íþróttakennaraskóla íslands, lengja námið og gera það mark- vissara. Tengja og samræma nám íþróttakennaraskóla ís- lands og Kennaraháskóla ís- lands. — Hefla reglulegar kannanir á líkamsfari íslenskra skólabama. Tengja betur iþróttakennslu við aðrar greinar skólans. Hafa ber í huga að námsskrá í íþróttum á að vera sniðin fyrir alla á grunnskólaaldri og geta þjónað þörfum þeirra, hvetjar sem þeir em og hvar sem þeir búa. Að lokum Það er skylda kennara að þjóna aðalmarkmiðum grunnskólalag- anna. Námsskrár í hinum ýmsu greinum gefa til kynna fjölbreytt markmið grunnskólanna. Náms- skrá í íþróttum í grunnskóla var síðast gefin út 1976. Drög að nýrri námsskrá liggja nú fyrir. En kemur hún til með að breyta einhveiju ef einhver framangreind atriði fá ekki að sjá dagsins ljós? Áherslubreyt- ingar á kennslu kennara þurfa að eiga sér stað. Kennslan þarf að vera i stöðugri endurskoðun og skólinn er útskrifar kennara einnig. Viðhorf ráðamanna skóla til íþrótta þarf að vera jákvæðara en það er í dag. Breytingar á lögum um Iþrótta- kennaraskóla íslands er nú i endurskoðun. Nefnd sú er vinnur að breytingum þyrfti að hraða ferð- um sínum. Ég tel að íþróttakenn- aranám ætti að fylgja öðru kennaranámi í landinu, bæði hvað varðar lengd þess og menntun, auk þess sem betri tengsl þurfa að kom- ast á milli íþróttakennaraskóla íslands og Kennaraháskóla íslands. Hér sé ég að efni er þegar komið í aðra grein. Það er og mun ávallt verða styrkur hvers skóla að búa yfir góðri íþróttakennslu. Ekki síður er það styrkur hvers barns að hljóta góða kennslu. Margar starf sgrein- ar búa víð manneklu Atvinnuástandið í nýliðnum aprílmánuði var mjög gott, þegar litið er til landsins í heild segir í fréttatilkynningu frá vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðu- neytisins. Það litla atvinnuleysi sem fram kemur er stað- og árstí- ðabundið en margar starfsgrein- ar búa hins vegar við manneklu. Samtals voru skráðir 12.100 at- vinnuleysisdagar á landinu öllu, en það svarar til þess að 560 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum. Það jafngildir 0,5% af áætluðum mann- afla á vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar og er nánast óbreytt ástand frá mánuðinum á undan en þriðjungi minna en í sama mánuði sl. 2 ár. Hefur ekki verið skráð minna atvinnuleysi f apríl- mánuði síðan 1982. Víða gætir manneklu og virðist umframeftirspum eftir mannafla svipuð og á sama tíma í fyrra en þá var sem kunnugt er veruleg eftir- spumarþensla. Þær þúsundir, sem nú bætast á vinnumarkað við skóla- lok, ættu því að hafa góða atvinnu- möguleika á komandi sumri, segir í fréttatilkynningunni. Síminn er 68-10-40. Opnunargengi til 22.5.1987 Kaupgengi Sölugengi Sjóösbréf 1 985 1.000 Sjóösbréf 2 985 1.000 * Sjódsbréfin bera nú 9-11% ávöxtun umfram verðbólgu. Leitaðu ráða hjá öðrum en taktu ákvörðun sjálfur. Verðbréfamarkaóur 7 Iðnaðarbankans hf. eres 10 40 FJÓRHJÓLADRIFINN SKUTBÍLL FRÁ ALFA R0ME0 Á UNDRAVERÐI Við klófestum nokkur eintök af þessum glæsilega draumabíl: ALFA 33 GIARDINETTA 4x4 árg.'87 í staðlaðri útfærslu á undraverði: AÐEINS KR.518.300.- INNIFALIÐ í VERÐI: Rafdrifnar rúður og læsingar, litað gler, fjar- stilltir útispeglar, þokuljós framan og aftan, þurrkur og sprautur á afturrúðu, þrýstisprautur á framljósum, digital klukka, veltistýri o.m.fl. 6 ára ryðvarnarábyrgð. Sýning í dag kl. 1-5. JÖFUR HF NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600 Jogginggallar 5urnarjakkar Qallabuxur Vinnuskyrtur Tréklossar 5etubílar FATMAÐUR 5KOR BU5AHOLD LEIKFOMQ Uærbuxur 5okkar frá kr. 20 frá kr. 45 Sportskór Kvenskór fré kr. 290 frá kr. 490 Vaskaföt frá kr. 33 Kjúklingastandur á kr. 170 Mótorhjól Trukkur kr. kr. 360 215 ! Opið virka daga frá 12 til 18.00. Laugardaga frá 10 til 16.00. Höfuadur er íþróttakennari og nánisstjóri ííþróttum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.