Morgunblaðið - 16.05.1987, Side 3
r T
7 r
r n l t r < 'f > Aí
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
<>
3
Cerðu Góðan
Bíl Betri
Með MARSHAL
Dæmi um Hagkaupsverð:
155X12 kr.1999
165X13 kr.2199
175/70x13 kr.2499
175X14 kr.2699
Þorski „breyttu í ýsu eða ufsa?
Sjávarútvegsráðuneytið ber saman fiskkaup og útflutning fiskvinnslustöðva
NOKKUR dæmi eru um það,
að á undanförnum misserum
hafi þorski verið landað sem
öðrum fisktegundum og þann-
ig farið í kringum reglur um
Sveinafélag
rafeindavirkja:
Verkfall
aflamark. Vinnslustöðvar hafa
þá keypt þorskinn, sem hefur
verið skráður á hráefniskaupa-
nótur til dæmis sem ýsa eða
ufsi, en fluttur út undir réttu
nafni. Þessi misbrestur hefur
komið fram í könnun sjávarút-
vegsráðuneytisins á samræmi
hráefniskaupa og útflutnings
fiskvinnslustöðva, sem nú
stendur yfir.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur niðurstaða í
einstaka dæmum komið nokkuð
á óvart og sagt er að dæmi séu
um það, að bátar hafi fískað
þorskkvóta sinn sem aðra físk-
tegund og síðan selt öðrum
þorskinn á sporði. Ennfremur eru
sögð dæmi þess, að þó nokkur
munur hafí verið á keyptum
þorski til vinnslu og seldum
þorskafurðum. Þorskurinn skilar
mönnum oftast beztri afkomu og
því reyna menn frekast að kom-
ast framhjá reglum um veiðita-
kmarkanir á honum. Ýsan kostar
svipað upp úr sjó og ljær þorskin-
um því nafn sitt, þegar á þarf
að halda. Einnig getur komið til
greina að þorskur „verði að“ ufsa,
ef þörf krefur.
Morgunblaðið leitaði staðfest-
ingar á þessu hjá sjávarútvegs-
ráðherra, Halldóri Asgrímssyni.
Hann sagðist hvorki geta né vilja
staðfesta þetta. Hins vegar stæði
yfír könnun á þessum málum á
vegum ráðuneytisins. Henni hefði
meðal annars verið hleypt af
stokkunum vegna orðróms um
misferli. „Við fórum í gang með
nýjar aðferðir í eftirlitinu og
þeirri athugun er ekki lokið. Við
getum ekki liðið það, að ein-
hveijar sögusagnir séu í gangi.
Því er mikilvægt að eftirlitið sé
það virkt, að ekki verði komizt
framhjá því. Við viljum líka nota
þær aðferðir, sem eru vænlegast-
ar til að leiða sannleikann í ljós.
Þessi aðferð ætti að sýna ótví-
ræðar niðurstöður um það hvort
menn hafa svindlað á þorskkvót-
anum eða ekki,“ sagði Halldór
Ásgrímsson.
boðaðfrá
22. maí
SVEINAFÉLAG rafeinda-
virkja hefur boðað verkfall frá
og með föstudeginum 22. mai
næstkomandi.
Þeir félagsmenn, sem starfa
hjá Pósti og Síma, Vita- og hafn-
armálastjóm og Flugmálastjóm,
fara í verkfall 22. maí, en verk-
fall frá og með föstudeginum 29.
maí verður hjá þeim félagsmönn-
um, sem starfa hjá Ríkisútvarp-
inu og Ríkisspítölunum.
Verðlagsráð
sjávarútvegsins:
Miklar
líkur á
frjálsu
fískverði
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins ræddi á fundi sínum í gær
möguleika á fijálsu verði á
helztu nytjafiskum okkar. Engin
niðurstaðan náðist og ekki hefur
verið boðað til nýs fundar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu flestir fulltrúar innan
ráðsins hlynntir fijálsri verðlagn-
ingu, en samþykki allra aðilja þarf
til að svo megi verða. Stjóm SÍF
samþykkti á fundi sínum á fimmtu-
dag, að beina því til fulltrúa sinna
í Verðlagsráði að þeir legðu til að
fiskverðið yrði gefið fijálst að því
tilskyldu, að greiðslum í Verðjöfn-
unarsjóð fískiðnaðarins verði hætt.
Fulltrúar sjómanna og útgerðar-
manna munu hlynntir frelsinu og
fulltrúar kaupenda hafa einnig
sagzt vera það. Síðast, þegar ftjálst
fískverð var í deilgunni, strandaði
það á skilgreiningu á því, hvað
fælist í „fijálsu fiskverði". Talsverð-
ar líkur eru taldar á, að þeirri
hindrun megi ryðja úr vegi á næst-
unni, en nýtt fískverð á að taka
gildi frá og með næstu mánaðamót-
um.
■Hróóleikur og
JL skemmtun
fyrirháa semlága!
FLESTAR STÆRÐIR