Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
90-110 þús. krónur fyr-
ir 42 stunda vinnuviku
Laun flugumf er ðarst] óra:
Ekki samkomulag um að vísa sameiginlega
lögmæti verkfallsboðunar til Félagsdóms
EKKI varð samkomulag um að visa sameiginlega lögmæti boðaðs
verkfalls Félags flugumferðastjóra til Félagsdóms á fundi hjá ríkis-
sáttasemjara í gær. Fundinum lauk án þess að til nýs væri boðað
og segir Indriði H. Þorláksson, formaður samninganefndar ríkis-
ins, að ríkið muni höfða mál fyrir Félagsdómi.
„Það kom okkur dálítið á óvart,
miðað við yfirlýsingar þeirra, að
þeir skyldu ekki vilja standa sam-
eiginlega með okkur að þessari
málsmeðferð," sagði Indriði. Hann
sagði að mánaðarlaun flugum-
ferðastjóra með álögum, þ.m.t.
vaktaálagi, væru 90-110 þúsund
krónur á mánuði fyrir 42 stunda
vinnuviku. Hann sagði að flugum-
ferðastjórum hefði verið boðið það
sama og samið hefði verið um við
aðra ríkisstarfsmenn, en að mati
þeirra væri það alltof lítið. Þá hefði
samninganefnd ríkisins, til við-
bótar, einnig verið með tillögu um
það að færa hluta aukagreiðslna
inn í föst mánaðarlaun, en það
skilaði sér meðal annars í auknum
lífeyrisréttindum.
Félag flugumferðastjóra hefur
boðað verkfall frá klukkan 8 að
morgni mánudagsins 25. maí
næstkomandi. Félagið telur sig
hafa verkfallsrétt samkvæmt
samningsréttarlögum opinberra
starfsmanna, sem tóku gildi í vet-
ur, og vísar til þess að í verkfalls-
boðun komi fram að félagsmenn
muni þrátt fyrir verkfallið sinna
nauðsynlegustu öryggisgæslu,
sjúkra- og neyðarflugi, flugi sem
nauðsynlegt er végna varna lands-
ins og flugi tengdu löggæslu, svo
sem landhelgisgæslu, í samræmi
við 19. grein 3. tölulið samnings-
réttarlaga. Félagið vísar á bug
lögmæti skrár þeirrar, sem lögð
var fram sem fylgisskjal með frum-
varpi til samningsréttarlaga, og
tekur til þeirra sem ekki hafa rétt
til verkfalls. Slíka skrá eigi að
leggja fram 1. febrúar ár hvert og
það hafí ekki verið gert. Ekki hafí
verið haft samráð við félagið um
gerð slíkrar skrár, eins og kveðið
sé á um í lögunum og félagið hafí
mótmælt innan tilskilins tíma
þeirri skrá, sem lögð var fram með
frumvarpinu.
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Á Grænlandssundi er 993 millibara djúp
lægð og önnur álíka við Hvarf, báðar á leið norðaustur.
SPÁ: Framan af degi verður rigning á suðaustur- og austurlandi
en léttir til síðdegis með vestan eða norðvestan golu. í öðrum lands-
hlutum verður suðvestlæg eða breytileg átt og skúrir á víð og
dreif. Hiti á bilinu 6 til 9 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Suölæg eöa suðvestlæg átt og
ýmist rigning eða skúraveður um landið sunnan- og vestanvert.
Norðaustanlands verður úrkomulítið. Hiti á bilinu 5 til 10 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j Q'J Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 7 súld
Reykjavík 5 rígning
Bergen vantar
Helsinki 11 skúr
Jan Mayen 1 alskýjað
Kaupmannah. 9 rigning
Narssarasuaq 1 súld
Nuuk -2 akýjað
Osló vantar
Stokkhólmur 8 skúr
Þórshöfn S alskýjað
Algarve vantar
Amsterdam 10 rigning
Aþena 21 alskýjað
Barcelona 18 lóttskýjað
Berifn 14 skýjað
Chicago 10 heiðskfrt
Feneyjar 17 skýjað
Frankfurt 11 skýjað
Hamborg 10 skúr
Las Palmas 22 lóttskýjað
London 12 skúr
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg vantar
Madrfd 23 lóttskýjað
Malaga 23 lóttskýjað
Mallorca 19 alskýjað
Miami 26 skýjað
Montreal 10 skúr
NewYork 14 súld
Parfs 10 skúr
Róm 18 skýjað
Vfn 1S skýjað
Washington 17 skúr
Winnipeg 14 heiðskfrt
Morgunblaðið/Einar Falur.
Fulltrúar ríkisins og flugumferðarstjóra ræðast við hjá sáttasemjara
i gær. Lengst til hægri er Indriði Þorláksson, formaður samninga-
nefndar rikisins, og síðan Árni Þorgrímsson, formaður Féiags
flugumferðarstjóra, og Jón Árni Þórðarson, varaformaður.
Sakadómur:
Verjendur banka-
sljóranna kröfð-
ust frávísunar
MÁL ákæruvaldsins gegn sjö bankastjórum Útvegsbanka íslands
var þingfest í Sakadómi Reykjavíkur í gær. Veijendur bankastjó-
ranna lögðu fram kröfu um að málinu yrði vísað frá dómi og er
úrskurðar þar um að vænta eftir helgina.
Bankastjóramir sjö, sem
ákærðir voru fyrir vanrækslu og
hirðuleysi í starfí 1982-1985
vegna viðskipta bankans við Haf-
skip hf., eru þeir Axel Kristjáns-
son, Halldór Guðbjömsson, Lárus
Jónsson, Ólafur Helgason, Ár-
mann Jakobsson, Bjami Guð-
bjömsson og Jónas Rafnar.
Veijendur þeirra byggðu fráví-
sunarkröfu sína á því, að ríkissak-
sóknari hljóti að hafa staðið
frammi fyrir því álítaefni, þegar
ákæra var gefín út, hvort hún
ætti jafnframt að beinast að bank-
aráðsmönnum. Þeir bentu á að
Albert Guðmundsson hafí verið
formaður bankaráðs frá 1982 til
júní 1983 og komið hafí fram að
ríkissaksóknari hafí fengið pen-
ingalán hjá Albert, þegar hann
gegndi stöðu fjármálaráðherra. Þá
hafí bróðir ríkissaksóknara verið
varaformaður bankaráðs árið
1985. Ríkissaksóknari verði því
að teljast svo riðinn við málið eða
aðila þess að honum hafi borið að
víkja sæti.
Þegar verjendur höfðu lagt
fram frávísunarkröfu sína gerði
sækjandi málsins, Bragi Steinars-
son, vararíkissaksóknari, athuga-
semd við hana. Hann sagði meðal
annars að við rannsókn málsins
hafi enn engin þau efni eða atriði
komið fram sem bendi til refsiá-
byrgðar eða veiti gmndvöll til
saksóknar gegn neinum bankar-
áðsmanni Útvegsbankans árin
1982-1985. Því breyti engu þótt
bróðir ríkissaksóknara hafí verið
kjörinn af Alþingi í bankaráð Út-
vegsbankans í desember 1984.
Ríkissaksóknari sé því ekki á neinn
hátt svo viðriðinn málið eða aðila
þess að honum beri að víkja sæti.
Krafðist Bragi þess að frávísun-
arkröfunni verði hafnað og málið
tekið til dómsmeðferðar á grund-
velli útgefinnar ákæru.
Pétur Guðgeirsson, sakadómari,
mun að öllum líkindum úrskurða
umn frávísunarkröfuna á mánu-
dag. Ekki er enn ljóst hvort Pétur
mun kveðja til meðdómendur í
málinu, en líklegt þykir að svo
verði.
Veijendur bankastjóranna eru
hæstaréttarlögmennimir Þor-
steinn Júlíusson, Helgi V. Jónsson,
Eiríkur Tómasson, Sveinn Snorra-
son, Hákon Ámason, Benedikt
Blöndal og Gunnar M. Guðmunds-
son.
Viðræður flugmaima og viðsemjenda:
Sammngar stutt
á veg komnir
VIÐRÆÐUR standa nú yfir við
Félag íslenskra atvinnuflug-
manna um nýjan kjarasamning
og eru samningar stutt á veg
komnir. Síðasti samningafund-
urinn var á miðvikudaginn var
og annar fundur hefur ekki
verið boðaður, en Vilhjálmur
Þórðarson, formaður félagsins,
sagði í gær í samtali við Morg-
unblaðið, að hann byggist við
að af nýjum fundi yrði fljót-
lega. Hann vildi ekki gefa upp
launakröfur félagsins í samn-
ingunum að svo komnu máli.
Ennþá er einnig ósamið við
Flugfreyjufélag íslands. Síðasti
samningafundurinn var fyrir um
mánuði síðan og hefur annar fund-
ur ekki verið ákveðinn. Sigurlín
Scheving, formaður félagsins, seg-
ir kröfur þess svipaðar og samið
hafí verið um við opinbera starfs-
menn undanfama mánuði og krafa
væri gerð um 33-35 þúsund króna
lágmarkslaun. Hún nefndi að flug-
freyjur hefðu ekki vaktaálag ofan
á laun sín og skæru þær sig úr
öðrum stéttum, sem ynnu á öllum
tímum sólarhrings alla daga vi-
kunnar, hvað það snerti.