Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 21
MÖRÖÖÍÍéLAÖÍÐ,1 lAÖÖAKÖÁGUR'16.1 MAT '1987"
21?
Kaffisala Kvenfé-
lags Háteigssóknar
Bókasafnið er bjart og vistlegt... en það mætti vera meira í hillunum.
segulböndum og núorðið líka á
geisladiskum. Svo þurfa að vera til
nótur af því sem er til hljóðritað á
safninu. I bókum á svo að vera að
finna fræðilegar útgáfur verkanna
með athugasemdum, auk handbóka
og bóka um aðskiljanlega þætti
tónlistar.
En hvemig er bókasafn í góðum
tónlistarskóla? Þorsteinn Hauksson
hefur verið við háskólann í Illinois
og Stanford-háskóla og auk þess í
IRCAM, tónmiðstöðinni við Pompi-
dou-safnið í París. Hann kann að
segja frá því, að í þessum skólum,
eins og öðram slíkum, sé mikið
gert af því að láta nemendur hlusta
á tónverk með raddskrá tii hliðsjón-
ar og á söfnunum séu því hlustunar-
básar, sem nemendur nota óspart.
Þessi stóra söfn eiga líka handrita-
söfn með nótum, bæði í framriti
og á örfilmum. Þannig hafa nem-
endur aðgang að flestum verkum
bæði í framgerð, hljóðritun og svo
því sem hefur verið skrifað um
þau. Þorsteinn bendir á, að með
þessu móti veiti söfn aðgang að
umheiminum og í einangran eins
og hér sé þetta hlutverk safnanna
ekki sízt mikilvægt!
Karólína bendir á, að meðan
safnið er jafn fátæklegt og nú sé
erfitt að skipuleggja námið eins og
tíðkast annars staðar, þar sem er
hægt að vísa á margs konar heim-
ildir og leiða fram sem flestar hliðar
á hveiju máli.
Það er mikilvægt fyrir svona
safn, að þangað berist ný tónlist,
svo nemendumir geti fylgst með
því, sem er að gerast í tónlist hér
og þar um heiminn. Rétt áður en
ég lagði leið mína á safnið hafði
borist gjöf frá dönsku tónverkamið-
stöðinni, 10 nýjar plötur og nótur
með. En hagur safnsins er svo bág-
borinn, að það er erfitt að þiggja
svo góðar gjafir. Það þarf nefnilega
að greiða söluskatt og stundum
toil af gjöfunum. Það er því ríkið,
sem græðir á svona sendingum,
þegar allt kemur til alls, þó ríkis-
kassann muni minna um summuna
en saftiið. Og það má halda áfram
og segja að tónlistarmenn verði að
kaupa plötur og borga toll af þessu
efni, sem ríkið leggur bókasöfnun-
um ekki til. Vel á minnzt gjafir.
Ef þið lúrið á bókum, plötum eða
nótum, sem þið hafið ekkert að
gera við, þá er tilvalið að láta safn-
ið njóta þess.
Þá er að heyra rödd nemandans
í fjáröflunamefndinni. Eyþór er að
læra á selló og píanó, en er í tón-
fræðideild skólans. Sú deild er
ætluð þeim, sem hyggjast leggja
fyrir sig tónsmíðar eða tónfræði.
„Það er mjög hressandi að sjá þá
vakningu, sem hefur orðið í kring-
um safnið. Akademískt nám felst
ekki eingöngu í því að læra náms-
greinar, heldur einnig í hvers konar
gXÚski og sjálfsnámi, sem safnið
eitt getur boðið upp á. Aðstaða
nemenda hér á íslandi til að kynn-
ast því, sem er að gerast og hefur
gerst í tónlist, er ákaflega takmörk-
uð. Fyrir okkur era tvær leiðir
mögulegar. Önnur er að vera stöð-
ugt í útlöndum, hin er að hafa öflugt
bókasafn." Og betur er varla hægt
að segja það . ..
Þeir sem vilja sjá íslenzkt tónlist-
arlíf eflast og styrkjast enn ættu
að hygla bókasafni Tónlistarskólans
og leggja þannig inn á tónlistar-
trompreikning framtíðarinnar!
— En hvemig þreyfið þið ykkur
áfram með verkin?
SE: Við byijum á því að spila
verkin í gegn og hlusta.
SG: Síðan snúum við okkur að
atriðum eins og hraða og svo heild-
aráhrifum. En við ræðum þetta
ekki mikið, það kemur bara þegar
við spilum. Við tökum þá einstaka
þætti fyrir, en spilum svo allt í gegn.
— Hlustið þið á plötur, til að
heyra túlkun annarra?
SE: Já, ef við eigum plötur, þá
er það ágætt, einkum ef við eram
í vafa um einhver atriði.
SG: Það er gott að hlusta á fleiri
og heyra hvemig aðrir hafa farið að.
— Á efnisskránni er sitthvor són-
atan eftir Mozart og Beethoven,
einleikspartíta eftir Bach og Carm-
en, fantasía eftir Sarasate, spænskt
tónskáld, sem fæddist um miðja
síðustu öld og var innblásinn af
þjóðlegri tónlist heimalandsins.
Sigrún leikur útsetningu fanta-
síunnar, sem var gerð af fiðluleikar-
anum Efrem Zimbalist. Hvað um
verkefnavalið?
SE: Við höfum þegar spilað
Brahms og Franck, en okkur lang-
aði að spila Beethoven og Mozart.
En það er varla hægt að velja úr
sónötunum þeirra, þær eru allar svo
fallegar. Við tókum nokkrar út úr
og völdum svo úr þeim.
SG: Beethoven samdi sfna sónötu
ungur og tileinkaði hana kennara
sínum, Salieri, sem flestir kannast
við eftir Amadeus. Hann var mjög
virtur kennari á sínum tíma.
— Hugsið þið eitthvað um bak-
grann verkanna, sem þið erað að
æfa?
SG: Oft, en ekki nauðsynlega.
Stundum er það þó gagnlegt.
SE: Mozart-sónatan var upphaf-
lega skrifuð fyrir píanó og það sagði
mér heilmikið um hana. Annars les
ég helzt það sem ég rekst á, en tek
ekki sérstaklega tíma í að lesa.
SG: Ég hef fengist við að spila
undir í ljóðasöng og þar skiptir
máli að þekkja bakgranninn. Þar
er tónlistin lýsandi, innihald ljóðsins
skiptir meginmáli í sambandi við
túlkun. Sónatan er tónlistarform,
sem er algjörlega sjálfstætt. Það
hvorki styðst við, né leitast við að
túlka eitthvað, sem hefur gerst eða
hægt er að tala um. Hún er það
sem á ensku er kallað „absolute
music“. 1 túlkun sónötu skiptir
mestu að þekkja vel stíl höfundar
og vera trúr textanum, sem hann
lætur í té, það er sjálfum nótunum
og því sem er skrifað í þær.
SE: Andstæða þess sem er kallað
„absolute music“ er svo það sem
nefnist „programme music", eða
tónlist sem segir sögu eða lýsir ein-
hveiju, án orða. Þannig er einmitt
Carmen-fantasían. Þar verður að
þekkja til bakgrannsins, sem er
óperan Carmen. Það er varla hægt
að túlka tilfinningar, sem liggja að
baki tónlistarinnar, án þess að
þekkja efni óperannar.
— Og það þarf varla að spyija
hvort þið hugið á frekara samspil?
SG: Vonandi. Mér finnst það for-
réttindi að spila með Sigrúnu.
Og Sigrún tekur hlæjandi undir
þetta með áframhaldandi samspil,
svo tónleikagestir hér hafa eitthvað
til að hlakka til.
Á MORGUN, sunnudag, kl. 15
hefst kaffisala Kvenfélags Há-
teigssóknar í Domus Medica við
Egilsgötu.
Auk frábærra, aðlaðandi og
gimilegra veitinga mun Hrönn Haf-
liðadóttir, óperasöngvari, syngja við
undirleik föður síns, Hafliða Þ.
Jónssonar, píanóleikara.
Kvenfélag Háteigssóknar stend-
ur nú í stórræðum, er að festa kaup
á kórmynd sem Benedikt Gunnars-
son, listmálari, gerði framdrög að.
Þessi mynd verður af mósaík-gerð
og er nú verið að leita hagstæðra
tilboða meðal erlendra verkstæða.
Vonandi verður hægt að hefja fram-
leiðslu á þessu árí.
Allt frá stofnun Háteigssafnaðar
hefur Kvenfélagið lagt dijúgan
skerf til félags-, menningar- og
líknarmála innan safnaðarins og
veitt kirkjunni margar góðar og
fallegar gjafir, sem bæði koma að
miklum notum og era til ágætrar
prýði.
Því hvet ég íbúa Háteigssafnaðar
og velunnara Háteigskirkju að
koma í Domus Medica á sunnudag-
inn og styrkja Kvenfélagið til stórra
átaka um leið og notið er góðra
veitinga.
Tómas Sveinsson
sóknarprestur
Verzlun í U.S.A.
Til sölu er verzlun sem selur íslenskar ullar-
vörur og skandinavískar gjafavörur.
Verzlunin er á besta stað í verzlanamiðstöð
(Mall) á Bostonsvæðinu.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma hjá aug-
lýsingadeild Mbl. merkt: „Boston —3166“.
Bátur til sölu
Shetland 570,19 fet, 90 Hp Crysler.
Upplýsingar í símum 46336, 687372 og 46350.
* • ^ Bladburðarfólk óskast!
4 Jl j }1*' AUSTURBÆR Lindargata 1 -38 o.fl. Hverfisgata 63-115 o.fl. p vú $
1 Upt0nnIi(iibib
Ennlausssetí:
11 6.-2.7.-9.7.-16.7.-23.7.-3.9.-
10.9.-24.9.-S.10.
Lausum sætum fækkar með
hverjumdegi.
Verðfrákr.
20.550.-
í 2 vikur (meðalverð miðað við
hjón með 2 böm undir 12 ára).
MuniA Fnklúbbinn á Costa del
Sol undírstjóm Hemma Gunn.
Aöeins fyrir Útsýnarfarþega.
Heimsreisur:
Kína
Califomía
Hawaii
Heimsborgir
ogfarseðlarum
víða veröld.
Munið raðgreiðslur
Viðskiptavinir eigá þess kost
nú sem áður að greiða eftir-
stöðvar ferðakostnaðar með
VISA raðgreiðslum.
Einnig bendum við á af-
borgunarfeiðina „Sparið upp
i farið“ með VISA
Við lánum þér jafnmikið í
jafnlangan tíma og þú spar-
aðirfyrir brottför.
Hæsti kaupmáttur
áferðalögumog
Friklúbbshlunnindi
HHtri
kostur
Sími 26611