Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1987
23
Ljósmynd/Kjartan Jónsson
Vatnsburður. Hluti hins daglega
lífs. Hann er tákn fyrir margar
byrðar konunnar i Afríku.
alveg eins og þær eru án tillits til
fijósemi og að eilíft líf sé ekki kom-
ið undir því að eiga afkomendur, er
í raun og veru fagnaðarboðskap-
ur.
Vegna þess að konur hafa verið
sá hópur í þjóðfélaginu, sem búið
hefur við lökust kjör, hafa margar
kirkjur og kristniboðsfélög lagt
mikla áhersiu á að leggja sitt af
mörkum til að bæta hag kvenna.
Fjöldi kvennahópa hefur verið
stofnaður um allt land og njóta
margir þeirra stuðnings frá ríkis-
stjóminni, sem hvetur mjög til að
starf til hjálpar konum verði eflt.
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga er þátttakandi í þessu starfi
í Pókothéraði. Þar em nú starfandi
7 kvennahópar eða framfarahópar
eins og þeir em jafnan kallaðir, þar
sem konum er kennt að lesa og
skrifa, pijóna og sauma, um hrein-
læti, heilbrigt mataræði, umhirðu
ungbama auk boðskaparins góða,
sem kennir þeim, að þær séu full-
verðugar manneskjur. Allt þetta
hjálpar til að bæta stöðu kvenna
og um leið heimilanna, þó að hægt
fari.
Ýmislegt hefur áunnist. í þeim
hémðum landsins, þar sem skóla-
ganga hefur verið fyrir hendi í
marga áratugi, em nú konur, sem
hafa langskólagöngu að baki. Sum-
ar þeirra em í stöðum sem karl-
menn skipuðu eingöngu fyrir
fáeinum áratugum. Nú er það ekki
lengur sjaldgæft, að konur séu
skólastjórar og nokkrar em jafnvel
forstjórar, nokkuð sem var óhugs-
andi fyrir fáum ámm. Nú situr
meira að segja kona á þjóðþingi
landsins og í heimsborginni Nairóbí
er nú starfandi rauðsokkuhreyfing!
Ljós mynd/Kj' artan Jónsson
Súsana, söngglöð Pókot-
kona. Kristindómurinn gaf
henni nýtt sjálfsmat. Hún
eignaðist sjálfsvirðingu. í
Kristi eignaðist hún nýtt líf.
innantóma lífi hefur mér liðið vel
og líf mitt hefur verið allt annað.
Nú sendi ég bömin mín í skóla og
ég borga sjálf allt, sem greiða þarf
fyrir þau.“ „Hvað segir maðurinn
þinn við þessu?“ „Hann sér mikla
breytingu á mér og heimilinu til
batnaðar og það er hann ánægður
með, en honum líkar ekki að ég
skuli ekki vilja taka þátt í fylliríun-
um eins og áður. Þess vegna er
hann mest hjá hinni konunni, sem
bmggar vín fyrir hann. Oft er mér
og kristindómnum kennt um, ef
eitthvað kemur fyrir, en ég hef
fundið Sannleikann og ég get ekki
hafnað honum."
Konan kúgnð á íslandi?
Tal um að hallað sé á rétt kvenna
á íslandi bliknar gjörsamlega þegar
vandamál kvenna í Afríku em skoð-
uð.
Súsana
Konan í kirkjunni. „Hvers vegna
valdir þú að verða kristin," spyr ég.
„Vegna þess að ég gerði mér um
síðir ljóst, að þar var Sannleikann
að finna. Þar var ég virt, ég eignað-
ist frið í hjarta og lærði að lifa á
góðan hátt. Áður fyrr var lítið hugs-
að um framtíðina. Enginn hirti um
að senda bömin í skóla og allt sner-
ist um vín og svall. Nú hef ég séð
að þetta var tilgangslaust og eyði-
lagði líf mitt. I drykkjuveislunum
„gleymdist" hver var giftur hverjum
og allir sváfu hjá öllum. Eftir að
ég ákvað að snúa baki við þessu
„Bara húsmóðir?!“ segja menn á
íslandi. Sumir draga í efa gildi
þessa mikilvægasta starfs í þjóð-
félaginu, en manngildi konunnar
er yfirleitt ekki vefengt.
Manngildi konunnar í Afríku
stendur hins vegar víða mjög höll-
um fæti.
Líður ekki öllum illa, ef þeir em
einskis metnir og njóta ekki ástar
og virðingar, hvar sem þeir búa á
j arðarkringlunni?
Höfundur er kristniboði I
Kenýu og hefur um lengri tima
sent Morgunblaðinu pistla um
land og þjóð.
TIL DANMERKUR
FYRIR 8.500 KR.!
Norræna félagið efnir til leiguflugs til Danmerkur í sam-
vinnu við Norræna félagið í Danmörku. Flogið verður
frá Keflavík mánudaginn 29. júní kl. 17:30 til Árósa og
komið til baka frá Árósum laugardaginn 9. júlí kl. 5:45
að morgni. Fargjald fram og til baka fyrir fullorðna er
kr. 8.500.- en kr. 7.000,- fyrir börrí. Við fargjaldið bæt-
ist svo flugvallarskattur.
Enn eru nokkur sæti laus í þessa ferð.
Hér er tvímælalaust um að ræða ódýrustu utan-
iandsferð sumarsins.
Frá Árósum er mjög auðvelt að fara t.d. yfir sundið til
Svíþjóðar. Einnig eru þægilegar lestarferðirfrá Árósum
til Kaupmannahafnar og svo er auðvitað hægt að leigja
sér bifreið og aka sjálfur.
Norræna félagið getur vísað fólki á ferðaþjónustuaðila,
sem séð geta um framhaldsfar, bílaleigubíla, gistingu
o.s.frv.
Allar frekari upplýsingarveitirskrifstofa Norræna félags-
ins í símum 10165 og 19670.
NÝ ÞJÓIMUSTA
Vegna jarðvegsskipta við fyrirtæki okkar í Sundaborg munum við
í sumar selja tjaldvagna, hjólhýsi og kerrur í og við stórt tjald sem
við höfum reist á lóð Bílanausts við Borgartún 26. Tjaldið stendur
á bak við húsið við hliðina á Bílasölunni Braut.
Viö bjóöum:
Hjólhýsi - ensk og þýsk, bæði ný og notuð. Við tökum eldri upp í ný.
Tjaldvagna - danskir Camp-Let, nýir og notaðir. Tökum eldri upp
í nýja.
Kerrur - ýmisskonar, nýjar og notaðar frá Víkurvögnum o.fl.
Fjórhjól - við kaupum og seljum fjórhjól af öllum gerðum, ný og
notuð.
Ný og notuð
hjólhýsi
Nýjar og notaðar
fólksbíla og
jeppakerrur
Gísli Jónsson og Co. hf.
Borgartún 26, sími 626644.