Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 26

Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 16. MAÍ 1987 væri í hreppsnefnd, einn væri kjör- inn af starfsfólki og síðan ættu ijármagnseigendur einn stjómar- mann. Hann sagðist ekki trúa því að þessir menn sem nú hefðu kom- ist jrfír meirihluta í Frosta með 50,006% virks hlutafjár ætluðu sér að dreifa valdi. Fékk ekki bréf Ragnar Þorbergsson sagðist hafa starfað frá því hann kom til Súða- víkur 15 ára gamall og greitt öll sín gjöld til sveitarfélagsins. Hann sagði að sér kæmi það mjög á óvart, að hvorki hann né kona hans hefðu fengið bréfið frá Frosta hf. með tilboði um kaup á hlutabréfum. Síðan sneri hann sér að málefnum Frosta hf. og sagði að Börkur Aka- son hefði viljað stjóma fyrirtæki sínu sjálfur og honum hefði ekki verið sama hveijir störfuðu hjá hon- um. Nú væri þetta orðið öðruvísi. Nú væri svo ólundarlega og illa að málum staðið að einsdæmi væri. Nú er lítil klíka að komast yfír allt í Súðavík. Hann sagðist aumkva ákveðna menn. Góða drengi, sem þekkja ekki til mála, og vita ekki hvað að baki býr. Spurning um mann- réttindi Óskar Elíasson vildi mótmæla því að um valdabaráttu tveggja manna væri að ræða. Hann sagði að oddvit- inn hefði aldrei viljað svara sér til um, hvað að baki byggi, að vilja fara einn með völd hreppsins í stjóm Frosta. Nú væri það komið í Ijós. Hann ætlaði sér að ráða öllu. Þetta er fyrst og fremst spuming um mannréttindi okkar hér í byggðar- laginu sagði hann. Ráðinn til 6 mánaða Ingimar Halldórsson fram- kvæmdastjóri Frosta sagðist ekki vilja blanda sér í deilur innan hreppsnefndar um málefni Frosta hf. Hann sagðist halda að það hefði verið upphaf einhverrar mikillar ógæfu að hann skyldi hafa verið búsettur úti á ísafirði þegar stjóm Frosta kom að máli við hann og bauð honum starf framkvæmda- stjóra á síðasta ári. Hann sagðist háfa verið upphaflega ráðinn til 6 mánaða og hefði hann sett tvö skil- yrði. Að hann yrði búsettur á Isafirði á meðan reynslutíminn stæði og að hann fengi bifreið til umráða. Hann sagði að sá tími hefði mnnið út í mars og síðan hefði verið unnið að framtíðarskip- an mála. Hinsvegar sagðist hann vera reiðubúinn til að hverfa nú þegar frá störfum fyrir fyrirtækið ef Súðvíkingar óskuðu þess. Búið að selja Hann sagði að skeytið frá Guð- mundi Heiðarssyni hefði komið of seint og þá hefði að auki verið búið að selja öðmm mestallt hlutaféð. Þá gat hann þess að Magnús Þor- gilsson hefði óskað eftir því að Frosti tæki einbýlishús upp í kaup á hlutabréfum, en stjómin hefði hafnað því. Heiðar Guðbrandsson var ekki rekinn eins og staðhæft hefur verið, heldur hefði átt að brejrta starfssviði hans, en Heiðar ekki viljað Una því og þess vegna hætt. Hann sagði að sér hefði verið tekið vel af öllum sínum samstarfs- mönnum, því hefði honum sámað þegar hann væri nú borinn þungum sökum. Að því væri látið liggja að hann hefði komið hér eins og þjófur að nóttu til að stela fyrirtæki. Við það ætti hann erfítt að sætta sig. 30 milljónir undir borðið Heiðar Guðbrandsson sagði að Tog hf. væri eingöngu pappírsfyrir- tæki sem nota ætti til að kaupa ijármuni hluthafanna. Það sem Iægi á bak við kaupin á Frosta væri það að þeir væm að semja um kaup á nýjum skuttogara í staðinn fyrir Bessa. Þá fengju þeir greiddar 30 milljónir króna undir borðið. Þaðan kæmu peningamir til að greiða hlutabréf pappírsfyrirtækisins. Hann sagði að nær væri að gefa íbúum Súðavíkur þessa upphæð. Að lokum sagði hann að það væri ætlun Auðuns Karlssonar að stela Frosta hf. og Álftfirðingi hf. Óvægin apart- heid-stefna Halldór Jónsson bað menn að minnast þess þegar íranskeisara var steypt af stóli — þá vom öll vandamál írans honum að kenna. Sama var upp á teningnum í Kína þegar fímmmenningaklíkunni var steypt. Á sama hátt virtist að allt sem aflaga færi í Súðavík væri Auðuni Karlssjmi að kenna. En getur Auðunn staðið á bak við alla hluti? Getur hann allstaðar verið? Hann sagði að umfjöllunin í §öl- miðlum um málefni Frosta hf. hefði verið með eindæmum. En Helgar- pósturinn ætti þó öll metin. Þar hefði lýsandi frásögn tveggja manna úr plássinu verið borin uppi af rætni og illmælgi í götustráka- stíl. Sér fyndist að í Súðavík væri rekin óvægin apartheid-stefna. Hann spurði fólk hvort það tryði því að slík rætni og níð sem borið væri á þá sem fyrir atvinnulífínu stæðu yrðu til að fólk fengist til að setjast að í Súðavík. Peningar Súðvíkinga Elías Þorbergsson hreppstjóri vildi fá að vita hvemig Togsmenn ætluðu að fjármagna hlutabréfa- kaupin. Sagðist hafa heyrt um að kaupa ætti nýtt skip. Ef þar væru einhveijirpeningar í spilinu þá ættu Súðvíkingar þá og gætu keypt hlutabréfín fyrir peningana. Auðveldara að splundra en byggja upp Ólafur Þ. Þórðarson þingmaður Framsóknarflokksins varaði við hatrömmum deilum í svo litlu bæj- arfélagi. Hann sagði að auðveldara væri að splundra en byggja upp. Benti hann á að Halldór Magnússon sveitarstjóri og Börkur Ákason hefðu alltaf verið á öndverðum meiði í pólitík. Það hefði þó ekki komið í veg fyrir að þeir gætu unn- ið saman að hagsmunamálum byggðarlagsins. Hann benti á að Tog hf. hefði ekki verið stofnað fyrr en 23. apríl, en þó hefði ekki verið tekið tillit til tilboðs sem kom í lok febrúar. Hann talaði um bandarískar leikreglur, þar sem menn hefðu meirihluta eða ekkert. Hlutabréf fyrir milljón Ragnar Þorbergsson tók aftur til máls og ítrekaði að sér hefðu ekki verið boðin hlutabréf í Frosta hf. til kaups. Sagðist hann hefðu kejrpt hlutabréf fyrir að minnsta kosti eina milljón ef honum hefði gefíst kostur á því. Stór orð fallið Steinn Ingi Kjartansson sveitar- stjóri sagði að lausiing hefði komið upp þegar Börkur Ákason seldi hlut sinn í Frosta hf. og flutti burt. Síðan hefðu mörg stór orð fallið, en þó væri leið til sátta. Skoraði hann á málsaðila að leita lausnar og sagð- ist reiðubúinn að endurskoða alla afstöðu sína til málsins ef það gæti orðið til að liðka fyrir lausn á vanda- málinu. Tillaga hreppstjórans Elías Þorbergsson hreppsstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu: Ég legg til að fundurinn fordæmi þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í sambandi við sölu Frosta hf. á eigin hlutabréfum til Togs hf. Tillaga skólastjórans Helgi J. Hauksson skólastjóri lagði fram eftirfarandi tillögu: Legg til að fundurinn taki ekki til at- kvæðagreiðslu tillögu Elíasar Þorbergssonar, en skora á aðila málsins að leita allra leiða til sátta og meðal annars að fá utanaðkom- andi óháðan og traustan aðila til milligöngu. Tillaga Helga var felld með 28 atkvæðum gegn 19. Síðan var til- laga Elfasar samþykkt með 33 atkvæðum gegn 16. - Úlfar Mörg slys hafa orðið á fjórhjólum 1000 hjól komin til landsins UMFERÐARRÁÐ vekur athygli á að síðustu vikur hafa orðið mörg slys á svokölluðum fjór- hjólum — sum þeirra alvarleg. E.t.v. þarf þetta ekki að koma á óvart. Engin veltigrind er á þjól- unum og þar af leiðandi eru ökumenn þeirra gjörsamlega óvarðir ef eitthvað ber út af. Við bætist að fæstir hafa hjálm á höfði. Algengustu slysin verða með þeim hætti að menn ætla sér um of í „klifri" á hjólunum, þannig að þau sporðreisast og ökumenn lenda und- ir þeim. Afleiðingar eru beinbrot, höfíiðáverkar, brákaðir hryggjarlið- ir og margháttuð önnur meiðsl. Umferðarráð varar því við gá- leysilegri notkun Qórhjóla og hvetur ökumenn þeirra eindregið til þess að nota hjálm. Minnt er á að nýlega gengu í gildi reglur um torfæru- tæki þar sem m.a. er kveðið á um að ökumenn þeirra skuli hafa öku- réttindi. Einnig að þeim megi ekki aka í almennri umferð og ekki fljrtja á þeim farþega. Þá eru í reglunum ákvæði um að skrá skuli torfæru- tæki og þess vegna á að vera á þeim skráningamúmer og skrán- ingarskírteini skal ávallt hafa meðferðis í akstri. Skráningar- skyldan leiðir til þess að nú ber eigendum torfærutækja skylda til að kaupa ábyrgðartryggingu vegna tjóna og slysa er þau kunna að valda. Umferðarráð ítrekar að frestur til að skrá torfærutæki rann út 1. maí sl. Mun nú lögregla sjá til þess að eftir reglum verði farið í þessum efnum, þ. á m. að stjómendur Qór- hjóla hafí tilskilin réttindi. Jafti- framt eru foreldrar og forráðamenn unglinga sem torfærutækjum aka minntir á að hér er um hættuleg „Ieikföng" að ræða. Sú viðvörun á reyndar við ökumenn þeirra á öllum aldri. (Fréttatilkynningf) Nú á að skrá fjórhjól sem torfærutæki. Á myndinni er Hjálmtýr Júliusson, bifreiðaeftirlitsmaður á Selfossi, að leggja siðustu hönd á skoðun og skráningu Xb-202.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.