Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
Egilsstaða-
flugvöllur
boðinn út
í sumar
VIÐ gildistöku laganna um flug-
málaáætlun þann 1. júli næst-
komandi eykst framkvæmdafé
Flugmálastjórnar í ár úr 69 miUj-
ónum í 140—150 milljónir kr. Á
næsta ári verður framkvæmda-
féð 240—250 milljónir kr.
Egilsstaðaflugvöllur er fýrstur á
flugmálaáætluninni. Pétur Einars-
son flugmálastjóri segir að 60
milljónum verði varið til fram-
kvæmda þar. Hann sagði að haflst
yrði handa við völlinn í sumar. í
júlí yrðu boðnar út framkvæmdir
við burðarlag á 600 metra flug-
braut. Hún þyrfti síðan að síga í
eitt ár.
Reykjavík;
Hundaeig-
endur í
vanskilum
FYRSTA aprfl síðastliðinn áttu
150 hundaeigendur eftir að
greiða 5.400 króna árgjald til
heilbrigðiseftirlitsins vegna
hunda sinna.
Hundaeigendur fengu viku frest
til að greiða gjaldið og sagði Oddur
Rúnar Hjartarsson framkvæmda-
stjóri heibrigðiseftirlitsins á
Reykjavíkursvasðinu að hundaeftir-
Iitsmenn hefðu kannað aðstæður
hjá um þriðjungi eigenda og yrði
því haldið áfram. „Margir hlupu til
og greiddu strax gjaldið án þess
að til þess kæmi að hundamir væru
teknir," sagði Oddur. Tvo hunda
þurfti þó að flarlægja til geymslu
og fá eigendur tíu daga frest til að
gera upp skuld sína. Ef það bregst
er hundurinn aflifaður.
Alltaf eru nokkur brögð að því
að hundar séu ekki skráðir og sagði
Oddur að tfu hundar hefðu fundist
síðustu vikumar.
Launanefnd
fundar aft-
ur í dag
LAUNANEFND ASÍ og VSÍ kom
saman til fundar í gærmorgun
tfl þess að úrskurða um launa-
hækkanir nmfram það, sem
kveðið er á um i kjarasamningi
aðfla frá því i desember, en vísi-
tala framfærslukostnaðar i aprfl
fór 1,33% fram úr þeim mörkum,
sem gert var ráð fyrir i samn-
ingnum. Engin niðurstaða varð
af fundi nefndarinnar og hefur
annar fundur verið ákveðinn í
dag.
1,5% samningsbundin launa-
hækkun kemur til framkvæmda um
næstu mánaðarmót, 1. júní. Launa-
nefiid ASÍ og VSÍ hefur það
verkefni með höndum að meta verð-
lagsþróun og úrskurða um launa-
hækkanir, sé verðbólga meiri en
reiknað er með í kjarasamningum
aðila. Verði niðurstaða nefndarinn-
ar sú, að bæta beri hækkun
framfærsluvísitölunnar að fullu,
hækka laun um 2,85% um næstu
mánaðarmót. Tveir frá hvorum að-
ila sitja í nefndinni og hefur ASÍ
farið með oddaatkvæði í henni frá
upphafi, þar sem ávallt hefur verið
samstaða um úrskurði nefndarinn-
ar.
Þær stúlkur er komust i úrslit. Frá vinstri: Kristín Lúðviksdóttir, sem lenti í þriðja sæti, Þorbjörg Bjarnadóttir, sem lenti í öðru sæti og
sigurvegarinn Bertha María Waagfjörð. Lengst til hægri stendur Magnús Hreggviðsson, stjómarformaður Nýs Lifs.
Bertha María Waagfjörð
kjörín ljósmyndafyrir-
sæta Elite og Nýs Lífs
BERTHA María Waagfjörð, 16
ára, var kjörin \jósmyndafyrir-
sæta Elite og Nýs Lifs i veitinga;
húsinu Broadway i fyrrakvöld. í
öðru sæti varð Þorbjörg Bjarna-
dóttir, 18 ára, og í þvi þriðja lenti
Kristin Lúðvíksdóttir, 17 ára.
Þetta er í flórða sinn sem Nýtt
Líf stendur fyrir vali á ljósmynda-
fyrirsætum fyrir hönd Elite. Trudy
Tapscott, einn af framkvæmda-
stjórum Elite, var viðstödd val
stúlknanna að þessu sinni, en und-
anfarin þijú ár hefur eigandi Elite,
John Casablanca, komið sjálfur til
að krýna nýjar ljósmyndafyrirsæt-
ur. Magnús Hreggviðsson, sijómar-
formaður Nýs Lífs, sagði að
Casabianca hefði forfallast að þessu
sinni vegna gamalla meiðsla, sem
tekið hefðu sig upp á ný.
Bertha María mun væntanlega
halda utan til Sikileyjar næsta haust
ásamt fulltrúa frá Nýju IJfi þar sem
úrslitakeppnin fer fram. Þeim
fimmtán stúlkum, sem komast í
úrslit á Sikiley, mun öllum bjóðast
að starfa sem fyrirsætur á vegum
Elite. Þær Þorbjörg og Kristin
munu fá atvinnutækifæri hjá Elite
í París, óski þær þess.
Síðasta sumar komst íslenski sig-
urvegarinn, Snæfriður Baldvins-
dóttir, í hóp þeirra fímmtán stúlkna
sem komust í lokaúrslit. Jafnframt
fyrirsætustörfum, hefur Snæfríður
stundað menntaskólanám. Þær
stúlkur, sem hafa komist f úrslita-
keppni Nýs Lífs og Elite hingað
til, hafa allar unnið sem ljósmynda-
fyrirsætur.
Morgunblaðið/KGA
Sigurvegari keppninnar, Bertha María Waagfjörð, eftir að úrslit
höfðu verið kynnt á Broadway ásamt Halldóri Jónssyni gullsmið.
Menntamálaráðuneytið:
Markviss uppbygging tölvu-
væðingar í skólakerfiuu hafin
Tölvum komið upp í öllum skólum og kennarar þjálfaðir í notkun þeirra
„MEÐ þessum tillögum má segja að markviss tölvuvæðing skólakerf-
isins sé hafín, enda ekki seinna vænna,“ sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra á fundi með fréttamönnum, þar sem tillögur
um stefnumótun í tölvumálum skólakerfisins voru kynntar. Tillögum-
ar gera meðal annars ráð fyrir að komið verði upp tölvum í öllum
skólum landsins, uppbygging tölvuvæðingarinnar verði samræmd
og tölvunotkun i skólum verði skipulögð þannig að sú þjálfun sem
nemendur fá, nýtist þeim beint f atvinnulífinu. Á fjárlögum þessa
árs er gert ráð fyrir 7 tfl 8 milljónum króna framlagi ríkisins tfl
þessara mála, og er miðað við að ríkið standi straum af helmingi
kostnaðar á móti sveitarfélögum.
Að sögn Sverris Hermannssonar
ákvað hann, er hann tók við emb-
ætti menntamálaráðherra, að
endurskoða þá steftiumörkun í
tölvuvæðingu skólanna, sem unnið
hafði verið að frá 1982 og var Jó-
hann P. Malmquiast, prófessor,
ráðinn til þess verks. í október 1986
skipaði ráðuneytið starfshóp til að
vera Jóhanni til aðstoðar við tillögu-
gerð um stefnumótun í tölvumálum
skólakerfisins. í starfshópnum áttu
sæti Hörður Lárusson, deildarstjóri
í menntamálaráðuneytinu, Jóhanna
Axelsdóttir kennari, Jón Þór Þór-
hallsson, forstjóri skýrsluvéla ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar og Yngvi
Pétursson, lektor við Kennarahá-
skóla íslands. Starfsmaður nefiid-
arinnar var ráðin Agla Sigurðar-
dóttir tölvunarfræðingur. Tillögur
nefndarinnar liggja nú fyrir og eru
í meginatriðum sem hér segin
Komið verði tölvum á allar kenn-
arastofur þannig að kennarar
þjálfist í að nota þær í starfi sínu.
Áhersla skuli lögð á tölvuna sem
hjálpartæki í kennslu. Aflað verði
hugbúnaðar erlendis frá til skoðun-
ar og til aðlögunar aðstæðum hér.
Gerðar verði frekari tilraunir með
notkun LOGO í skólastarfí, en það
er forritunarmál, sem er sérstak-
lega gert til notkunar við kennslu.
Einnig verði kannað með hvaða
hætti unnt er að nýta gagnabanka
í skólum. Þá er lagt til að kannað
verði hvort unnt sé að efla sam-
starf heimila og skóla á sviði
tölvufræslu. Tölvunotkun í skólum
verði skipulögð þannig að sú þjálfun
sem nemendur fá nýtist þeim beint
í atvinnulifínu. Lagt er til, að
menntun kennara í tölvunotkun og
tölvufræðum verði efld. Unnið verði
markvisst að því að nýta tölvutækn-
ina við ýmiss verkenfni tengd
sfjómun skóla. Lögð verði áhersla
á að ná sem hagkvæmustu kjörum
við innkaup á tölvubúnaði. Loks er
lagt til að komið verði á fót starfs-
hópum til að vinna að framkvæmd
tillagnanna og að áætlunin í heild
verði endurskoðuð að tveimur árum
liðnum.