Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
29
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Rekstrarafgangnr
6,2 milljónir króna
Húsavík.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Þingeyinga fyrir árið 1986 var
haldinn 7. maí sl. á Húsavík.
Fundinn sátu um 120 fulltrúar,
auk félagsstjórnar og varastjórn-
ar.
Fram kom í ræðum stjómarfor-
manns, Baldvins Baldurssonar, og
kaupfélagsstjóra, Hreiðars Karls-
sonar, að rekstur félagsins hefði
gengið nokkru betur en næstu árin
þar áður, og varð nú rekstraraf-
gangur kr. 6,2 milljónir, sem að
hluta má þakka minni verðbólgu
og lægri fjármagnskostnaði.
Fjárfestingar félagsins á árinu
námu nál. 24 milljónum króna og
lausafjárstaða var lengstum erfið.
Mikil umræða varð um rekstur
félagsins og þó einkum verzlunar-
starfsemina, og greint var frá starfi
nefnda, sem að þeim málum höfðu
unnið á árinu. Margir tóku til máls
og ýmsar hugmyndir voru fram
bornar.
Uthlutað var úr Menningarsjóði
KÞ styrkjum til karlakórsins
Hreims og Sumarbúða við Vest-
mannsvatn, kr. 65.000 til hvors
aðila.
Böðvar Jónsson og Egill Gústafs-
son höfðu lokið kjörtíma sínum í
stjóm og vom endurkjömir.
Fundurinn samþykkti tillögu frá
Bárðdæladeild þess efnis, að skipuð
skyldi þriggja manna nefnd til að
endurskoða samþykktir félagsins í
heild. Er henni ætlað að ljúka störf-
um fyrir deildarfundi á næsta ári.
Aðalfundur Mjólkursamlags KÞ
var haldinn á Húsavík 12. maí.
Hlífar Karlsson samlagsstjóri
greindi frá þvi í skýrslu sinni, að
innvegin mjólk árinu 1986 hefði
orðið 6.789.168 1 frá 126 innleggj-
endum. Rúmlega 99% mjólkurinnar
fóru í fyrsta flokk og meðalfita var
3,96%.
Starfsemi samlagsins gekk vel á
árinu og kostnaðarhækkanir hlut-
fallslega litlar, enda tókst að greiða
bændum fullt mjólkurverð án að-
stoðar verðmiðlunarsjóðs. Birgðir
osta hafa þó farið vaxandi og em
áhyggjuefni.
Fimm framleiðendur hlutu viður-
kenningu fyrir frábær mjólkurgæði.
— Fréttaritari
Rauði kross Islands:
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða kross
Islands heldur námskeið í skyndi-
hjálp í Ármúla 34 (Múlabæ).
Námskeið þetta hefst miðviku-
daginn 20. maí nk. kl. 20.00 og
stendur yfir í fimm kvöld.
Leiðbeinandi á námskeiðinu verð-
ur Guðlaugur Leósson. Á námskeið-
inu verður leitast við að veita sem
almennasta þekkingu um skyndi-
hjálp. Meðal annars verða kennd
viðbrögð við öndunarstoppi, bein-
brotum og bmna og sýnd myndbönd
um ýmsa þætti skyndihjálpar.
Talið er nauðsynlegt að fólk fari
á slíkt námskeið á þriggja ára fresti
til að halda þekkingunni við.
Námskeiði þessu lýkur með verk-
efni sem hægt er að fá metið í
ýmsum skólum og er þátttaka öllum
heimil.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 387. þáttur
Haraldur Guðnason í Vest-
mannaeyjum skrifar mér svo:
„Sæll og blessaður, Gísli Jóns-
son.
Enn sem fýrr þakka ég þætti
þína í Mbl. Nú fara útlendu ferða-
langamir að koma sem sumir
nefna túrhesta og þykir fyndið.
Þá er talað um ferðaiðnað. Mér
skilst að iðnaður sé oftast tengdur
ýmiskonar framleiðslu. Kann bet-
ur við ferðaþjónustu, eða eigum
við að segja ferðamannaþjónusta?
í útvarpi og blöðum er oft sagt
að mál bíði dómsmeðferðar. Er
ekki nóg að segja að mál bíði
dóms?
Áhafnarmeðlimur fínnst mér
ljótt orð.. Oft er átt við skipverja
(ef limurinn er til sjós). En ef
hann er í flugáhöfn? Flugliði? Er
það nothæft?
Orðafar morgunpósta_ þykir
stundum miðlungi gott. I ágúst
sl. var talað um að taka sjansa
og horfa í apparöt.
26.2. Talað um nemendur sem
„verða að fá meira kennslu-
magn“. Það er eiginlega magnað
þetta magn af öllum sköpuðum
hlutum.
í umfjöllun vígslu flugstöðvar-
innar: „Er þig ekki farið að hlakka
til“, og 14. janúar 1986: „Þeim
kvíðir fyrir“ (morgunpóstur).
„Gæmóttin" þeirra í fjölmiðlun-
um þótti furðulegt málblóm. í
útvarpsleikriti fyrir nokkru kom
svo „fyrragær" útúr einum leikar-
anum, og er þá komið nokkurt
samræmi.
í útvarpi kom þessi setning:
„Þar sem skipið kæmi til með að
verða staðsett." Hvemig mundir
þú, Gísli, orða þetta? Sumir ættu
kannski að fara „til endurhæf-
ingu“ (o.fl. dæmi lík).
Nú er víst ekki við hæfi lengur
að tala eða skrifa um kaup og
sölu, allt er markaðssett. Eitthvað
„dúkkaði upp“ í útvarpi í fyrra-
dag.
Ekki kann ég við það, að sum-
ir stjórnendur útvarpsþátta bjóða
„góða kvöldið", segja „takk fyrir“
og „ókey“ og jafnvel „bæbæ“
(sumir þeirra stjórnendur svokall-
aðir). Oft furðar mig á því, að
stjómendur unglingaþátta fá að
leika lausum hala í fjölmiðlum
með tilgerð og allskonar bull.
Hættum nú nöldri í bili. „Nú
er vorið gengið í hönd“ (ein fjöl-
miðlafjólan).
Bestu kveðjur og gleðilegt sum-
ar.“
★
Bestu þakkir færi ég líka Har-
aldi fyrir bréf hans fyrr og síðar
og hug hans til móðurmálsins.
Mun ég nú reyna að víkja að sum-
um_ efnisatriðum í bréfi hans.
Ég er víst að einhveiju leyti
ábyrgur fyrir túrhestunum. Þetta
er gamansöm eftirlíking á því
fyrirbæri sem Helgi Hálfdanarson
kallar þjóðskýringu, en Halldór
Halldórsson kenndi mér í skóla
að nefna alþýðuskýringu (þýðing
á þ. Volksetymologie). Þetta er
svona í stíl við það, þegar kerling-
amar breyttu operation, í merk-
ingunni uppskurður, aðgerð, í
opinsjón (þegar sést í allt opið!)
og niveakrem í nefjakrem. Þeim
var ekki kunnugt um að niveus
á latínu er snjóhvítur, en vissu
hins vegar að sumir báru téð krem
á nefíð á sér.
Ég hef margsinnis mælt með
orðinu ferðaþjónusta (eða ferða-
útvegur) í staðinn fyrir túrisma.
Og má ég þá skjóta því hér inn,
að gefnu tilefni, að nú hefst
ferðatíðin fyrir alvöru, ekki
ferðavertíðin. Það er hreint með
ólíkindum hvemig búið er að mis-
þyrma orðinu vertíð í öllum
mögulegum samsetningum,
líklega fyrst til þess að reyna að
þýða enska orðið season. Menn
hafa jafnvel talað um knatt-
spymuvertíð og kosningavertíð.
Ver í vertíð merkir veiðistöð.
Þar af koma samsetningar eins
og verbúð, vermaður og marg-
nefnd vertíð, þ.e. tíðin þegar
menn fara í verið og em í verinu.
Það er orðtak að allir séu ógiftir
í verinu, en það er önnur saga.
Vetrarvertíð lauk núna á mánu-
daginn var, þá var lokadagur.
Daginn eftir hófst vorvertíð.
Við getum svo sagt að á sumr-
in sé ferðatíð og knattspymutíð,
en á vetuma skíðatíð og hand-
boltatíð. „Ferðavertíð" og „skíða-
vertíð" og annað af því sama tæi
er bull.
Ég er ekki nógu fróður um
dómgæslu og réttarfar til þess að
svara spurningunni um dóm og
dómsmeðferð. Bið ég sérfróða
menn í hópi lesenda að svara
þessu.
Orðið meðlimur (d. medlem,
þ. Mitglied) þykir mér afar leiðin-
legt. Ég nota það aldrei sjálfur
og ráðlegg nemendum mínum að
sniðganga það eftir föngum.
Sjálfsagt er að nota orðið skip-
veiji, þegar það á við, og ég held
að flugliði dragi býsna langt um
menn í áhöfn flugvéla.
Um tökuorð úr ýmsum annar-
legum málum er ekki hægt að
gefa neina algilda, einfalda reglu.
Slík orð hafa borist inn í málið
frá öndverðu, og ekki hvarflar að
mér að bannfæra þau öll. En auð-
vitað verður í því efni að gæta
mikils hófs. Og getum við ekki
sett eftirfarandi lágmarksskilyrði:
Tökuorð skal því aðeins fá þegn-
rétt í máli okkar, að það lagi sig
að íslenskum framburðar-, beyg-
ingar- og stafsetningarreglum?
Síðan kemur til smekkur og við-
horf að öðru leyti. Hvers konar
stíl erum við að skrifa, hátíðlegan
eða hversdagslegan, bókmál eða
talmál?
Mér fínnst koma til greina að
nota orðin apparat (flt. apparötj
og sjans (séns), svona í vissum
samböndum og stíltegundum. Og
svo er hér í lokin kveðskapur eft-
ir K.N., auðvitað til gamans, en
ekki til eftirbreytni hér heima á
Fróni!
Hættu að dansa og gætni gleym,
griptu sjansið maður.
Taktu kvensu og töltu heim.
Tell your friends to do the same.
Og um hund (sem ekki skildi
íslensku!):
Beija og skamma þyrfti þig,
þrællinn grimmi, svei þér.
Hættu að gjamma og glefsa í mig,
go to hell and stay there!
Meira um bréf Haralds Guðna-
sonar síðar.
Meinatæknafélag íslands 20 ára:
Afmælissýning í Tanngarði um helgina
Meinatæknir að störfum.
MEINATÆKNAR vinna að rann-
sóknum sem notaðar eru við
greiningu og meðferð sjúkdóma.
Rétt 20 ár eru frá því Meina-
tæknafélag íslands var stofnað
og eru nú 360 skráðir í félagið.
Meinatæknar starfa á rann-
sóknastofum sjúkrahúsa, heilsu-
gæslustöðva, í Blóðbankanum og
víðar. Meinarannsóknum hefur
fleytt fram á þeim 20 árum sem
liðin eru frá því meinatæknar stofn-
uðu félag. Áður fyrr voru gerðar
fáar rannsóknir, sem fólust aðallega
í smásjárskoðun og einfaldari efna-
greiningu. Nú er öldin önnur. Þróun
í aðferðafræði og tækjabúnaði hef-
ur leitt til nákvæmari og markviss-
ari rannsókna — og mun fleiri.
í sýklafræði er leitað að bakterí-
um sem valda sjúkdómum, er þar
skemmst að minnast leitar að salm-
onellabakteríu í fermingarveislu-
gestum í Dölum.
í veirufræði er unnið að sjúk-
dómsgreiningu, með ræktun og
mótefnamælingu.
Tilgangur með ónæmisfræði-
rannsóknum er að fylgjast með
varnarkerkfi líkamans, greina
ónæmisbilun og ofnæmi.
Meinatæknar í Blóðbankanum
flokka blóð sjúklinga og blóðgjafa,
mæla mótefni og gera smitsjúk-
dómarannsóknir.
Með rannsóknum í meinefna-
fræði er fylgst með efnaskiptum
og vökvajafnvægi líkamans og
starfsemi ýmissa líffæra svo sem
nýma, lifrar, hjarta og kirtla.
Rannsóknir í blóðmeinafræði
leggja gmnn að greiningu á blóð-
sjúkdómum og eftirliti og meðferð
ýmissa sjúkdóma, bæði góðkynja
og illkynja. Meinatæknar á rann-
sóknastofu í lífeðlisfræði gera
rannsóknir á starfsemi hjarta,
lungna, nýma, maga og fleira. Þeir
em við hjartaþræðingar og gera
hjartalínurit.
Meinatæknar í líffærameina-
fræði meðhöndla veíjasýni sem
tekin em í skurðaðgerð eða við
krufningu.
í ísótóparannsóknastofu em
gerðar rannsóknir á blóðsýnum og
fólki með geislavirkum efnum.
Meinatæknar skoða í rafeinda-
smásjá það sem ekki er hægt að
greina með venjulegri smásjá. Með
þeim er hægt að rannsaka innri
líffæri fmmanna.
Á rannsóknastofu Krabbameins-
félags íslands í fmmufræði er leitað
að krabbameinsfmmum í sýnum frá
leghálsi kvenna, lungum, bijóstum
og fleiri sýnum.
Með litningarannsóknum má
fínna orsök andlegra og líkamlegra
galla. Þá fínnast æ fleiri tengsl
milli illkynja sjúkdóma og litninga-
breytinga.
Við þetta vinna meinatæknar og
margt fleira. Til að kynna þessi
störf verður haldin sýning í húsi
Læknadeildar við Vatnsmýrarveg í
Reykjavík, Tanngarði, laugardag-
inn 16. maíkl. 16—18 ogsunnudag-
inn 17. maí kl. 14—18.
Þar gefst tækifæri til að kynnast
störfum meinatækna, sjá þá að
störfum og á myndum á vinnustöð-
um.
Tilvalið tækifæri fyrir nemendur
í framhaldsskólum að kynna sér
starfíð og aðra þá sem vilja fræðast.
En meinatæknar sinna fleiru en
rannsóknum. Dæmi um það má sjá
á sýningunni. Þar sýna listamenn
úr röðum meinatækna verk sín,
olíumálverk, grafík, vefnað, gler-
myndir og skúlptúr.
Sýningin er öllum opin.
Kvenfélags-
kaffi í Odd-
fellow-húsinu
Á sunnudaginn, 17. maí, verður
barnaguðsþjónusta í Fríkirkjunni
í Reykjavík og hefst að vanda kl.
11.00. Kl. 14.00 sama dag verður
guðsþjónusta í kirkjunni. Safnað-
arprestur prédikar og þjónar fyrir
altari, en Fríkirkjukórinn syngur
undir stjórn organistans, Pavel
Smíd. Fermd verður Aníta Rut
Ásmundsdóttir, Lækjarási 4,
Reykjavík.
Að lokinni messu bjóða kvenfélags-
konur Fríkirkjunnar eldri kirkjugest-
um til kaffídrykkju í Oddfellow-hús-
inu. Er ekki að efa, að þar verður
vel og rausnarlega að verki staðið.
Það er von okkar, að sem flestir vel-
unnarar Fríkirkjunnar leggi leið sína
í Oddfellow-húsið á sunnudaginn
kemur. Kaffídrykkjan hefst klukkan
rúmlega þijú.
(Frá Fríkirkjunni í Reykjavík)