Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
Bandaríkjaf orseti:
Aðstoð við skæru-
liða bar á góma
— á fundi með Fahd, konungi Saudi-Arabíu
Washington, Reuter.
RONALD Reagan Bandarikja-
forseti sagði á miðvikudag, að
Fahd, konungur Saudi-Arabíu,
hefði vakið máls á stuðningi
stjórnar sinnar við skæruliða i
Nicaragua á fundi í Hvíta húsinu
fyrir tveimur árum. Marlin Fitz-
water, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, sagði i gær að innan veggja
Hvíta hússins hefði aldrei verið
litið svo á að það bryti í bága
við bann Bandaríkjaþings við
hernaðaraðstoð við kontra-
skæruliða að mælast til þess að
þriðji aðili legði fram fé.
Reagan sagði fréttamðnnum, að
hann hefði ekki beðið Saudi-Arabíu-
konung að aðstoða skæruliða. „A
það mál var ekki minnst fyrr en
Fahd skýrði sjálfur frá því, að stjóm
hans hefði sent skæruliðum fé,“
sagði Reagan.
Robert McFarlane, fyrrum ör-
yggisráðgjafí, sagði við yfirheyrslur
á mánudag, að land 2 eins og hann
nefndi það og almennt er talið vera
Saudi-Arabía, hefði sent skærulið-
um eina milljón dollara á mánuði
eftir að Bandaríkjaþing bannaði
aðstoð við þá. Neitaði hann því, að
Bandaríkjastjóm hefði haft milli-
göngu um aðstoðina en sagði, að
Reagan hefði fagnað fréttinni þegar
hann fékk hana.
Fitzwater sagði við blaðamenn í
Hvíta húsinu að aldrei hefði verið
„iitið á það sem ólöglegt að hvetja
eitthvert þriðja ríki til að aðstoð,
hvort sem hún var hemaðarleg eða
í mannúðarskyni". Hann sagði að
í Hvíta húsinu væri talið að lög
hefðu ekki verið brotin. Fitzwater
neitaði því jafnfram að Reagan
hefði nokkm sinni hvatt eitthvert
þriðja ríki til að aðstoða kontra-
skæraliða og honum hefði ekki verið
kunnugt um að starfsfólk sitt hefði
mælst til slíks.
Feminists gain positions in iceiana
REYKJAViK, lceland (Af') IVirnc Miníiilw 8»efiiftri«»uf
Hcniiannsson <>n «Snrvl;iy coiicwied dcfcat »n lcdftiid a g«.n<ta|
elw'lion, Íeavmg kft vviug feministí. Lifcdy ío )u>ld L*al«r.<i* of
twwer in negnhatiotiK »<> u>rrn >i nuw gnvci nmeni ■
Thc center nct.l nnilHion Ht5r»nA»»sson s I i.igti'sstttt l
and Uie conservattve lntlei>m<im:e Party wncrgwl * i»H *»l ieatj,
in»he63 seat AlUnng. Icdand a ^rtiarnenl.
'jjje {'tto partiihi hdd a toial a» .y» ácath m outgimg
oarliamcm, whic»i al ihat tmie l oniamed <>«> u>mr>
1 Herrmanri&ion <o;u-wle<i sliortiy Udore uli v»U'» frotn •y*uí
tlay s deetion were connlwl <»f »hts> ^arih Aflantie islaiul na»t< n .->
940 nix) neoolí’ t <>i <XK» were cligihle tn vdo. .
*‘I cxpect I >iil i>c bandmg m my rcsignation oft T iicsday.
Herniannssott«<»»<!rcj>or»ers.
Hwnnimswm ran tnoslly ‘»> an ecotinmtojdoth.nn. «»>•( H
crwlit for bríngini* inflation «iown frotn I K> P<:»**n» »» ‘**5'3 u* u
^ThHeHwmg'woínens AHianec doabted iu> huhlmg U* si* :srats
and smd it won U.c right 1» euícr the goveTOtnen ■ *adcr» d
maior partieri acknowlwigwi tbc rt inmiHis wwild likety bold jj*
ííilance of }x>wcr íu ncgnliatioiis IkMwcwi centnr xigW ami
icli wing jwtliwi.
Ewninisis wct c johilUtnt Siutdny ,
••Tbe }>eoi>lo h;»'Cdwnawlwl tlial ihc t Vt*m*.wi »' Ali.am c cnlua
povtmmtw." KrWto ltolMnrs'ltilíir snafccswnman lor
B wtticli morto HMH 1» 19« wl«> >1 11« l.ml
"We wiii consiiior ftvory mfvr, Imt u :& ioo ivnly to t* II vfcliat fcmu
of sov<?mn>t'".l v iil'l'i' tonnml.” f.!s !tal!<íors<l«nr
The fcmintHÍs whtisc 10 poreent of H»c vo?e >a.-> dou»>k U»wr
sliarr in t!« Íar l 8<:»er«l cfi vlioo i» IIM, >»»■ <<* jUjjM" **»
diíal wouldlmhij'.licr pay for woro. o anihinurnvjidío.iafwrviccs
Tiic «»vrrr.ii»i cmililion s defval vas noc fcWHfty ,0 ‘t
eloction splil in lliií Inrlopcntlitnct' l’iirtv, lcclumi s tarfci-l, 1*'»
fiíThencwpi<ív, fmiii'li'iííiý Aiúiri fSutlrwirolssMi.»clinrtiiiMlK
viilwan ot !l,i'li ‘lc|>co'lc<icc Carty. chalkcl »«. ««« al «>c
. . . t.rt_<_ „vw,.,víA \s.Í!imitft \i'l'f'ti 'iirrstíí
AmocíoIuc J Ptom
nimnortnra o. Iccland'a lcfl-wlna Wnmetfa AHIance ocl.b.ate Ihetr
Kvennalisti vekur athygli á Kyrrahafi
FRAMMISTAÐA Kvennalistans í nýafstöðnum
Alþingiskosningum hefur víða vakið athygli. í
gær barzt Morgunblaðinu úrklippa úr blaðinu
Pacific Daily News, sem gefið er út á Kyrrahaf-
seynni Guam. Útsíða blaðsins var lögð undir
frásögn AP-fréttastofunnar af úrslitum kosn-
inganna og var fréttin skreytt með stórri mynd
af kátum Kvennalistakonum á sigurstund.
Efnahagsbati eykur sig-
urlíkur Ihaldsflokksins
London, frá Valdimar Unnari Valdimars
Hyni, fréttaritara MorgunbiaðsinB.
Ihaldsflokkurinn nýtur nú góðs
af því í kosningabaráttunni hér í
Bretlandi að uppgangur er ótví-
ræður á ýmsum sviðum efnahagslí-
fsins. Eru það ekki síst nýjustu
upplýsingar um fjölda atvinnu-
lausra sem gefið hafa íhalds-
flokknum byr undir báða vængi.
Nýjustu tölur um atvinnuleysi hér
í Bretlandi sýna að atvinnulausum
hefur nú fækkað tíunda mánuðinn í
röð. Eru nú rúmlega 3,1 milljón
manna á atvinnuleysisskrá og hefur
þeim því fækkað um 36 þúsund
síðastliðinn mánuð. Síðastliðið hálft
ár hefur breskum atvinnuleysingjum
fækkað að meðaltali um 26 þúsund
á mánuði, samkvæmt opinberum
tölum. Eru íhaldsmenn að vonum
ánægðir með þessa þróun og segja
hana bera þess glöggt vitni að efna-
hagsstefna ríkisstjómarinnar sé farin
að skila umtalsverðum árangri. Yo-
ung atvinnumálaráðherra sagði á
fimmtudag að þessar nýjustu tölur
sýndu að atvinnuleysi í Bretlandi
drægist nú saman með meiri hraða
en í nokkra öðru iðnvæddu ríki.
Stjómarandstæðingar segjast taka
öllum upplýsingum um atvinnuleysi
með varúð þar sem stjómvöld hafa æ
ofan í æ breytt þeim reglum sem
notaðar hafi verið við útreikninga á
atvinnuleysi. Segja talsmenn Verka-
mannaflokksins og Bandalags ftjáls-
Margaret Thatcher
Reuter
lyndra og jafnaðarmanna að slíkar
breytingar hafi orðið þess valdandi
að atvinnuleysi sé stórlega vanreikn-
að og sé það í raun mun meira en
opinberar tölur gefa til kynna.
Einnig segja stjómarandstæðingar
að það skjóti óneitanlega skökku við,
að ríkisstjómin skuli telja sér það til
tekna er atvinnulausum fækkar um
einhveija tugi þúsunda þegar ljóst
sé að atvinnulausum hafi fjölgað um
rúmar 2 milljónir síðan ríkisstjóm
Margaretar Thatcher komst til valda,
um 20 þúsund að meðaltali á viku
hverri.
Noregur:
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA laxeldisstöðin Mauran-
ger Laks a/s hefur fengið fyrir-
mæli um að slátra allri
framleiðslu sinni, um einni miljj-
ón seiða, vegna nýrnaveiki.
Óttast er að veikin, sem er smit-
sjúkdómur, kunni að breiðast út og
því hefur fyrirtækinu verið settir
úrslitakostir. Getur það haft gjald-
þrot í for með sér þar sem fyrirtæk-
ið fær engar skaðabætur.
íhaldsmenn birta kosningastefnu-
skrá sína á þriðjudag í næstu viku
en sitja auðvitað ekki auðum höndum
fram að því. Þessa dagana halda til
dæmis skoskir íhaldsmenn flokksþing
sitt í Peth í Skotlandi og er ljóst að
íhaldsflokkurinn ætlar að nota sér
það þing til að hrinda af stað kosn-
ingabaráttu sinni á landsvísu. Thatc-
her hefur þegar varað flokksmenn
við of mikilli bjartsýni og sagt að hún
geti komið Ihaldsflokknum f koll,
hvergp megi gefa þumlung eftir í
baráttunni.
Á sama tíma og athyglin beinist
að þingi skoska íhaldsflokksins þeyt-
ast leiðtogar Bandalags fijálslyndra
og jafnaðarmanna þeir David Owen
og David Steel, landshoma á milli.
Þeir tvímenningar hafa undanfama
daga haft þann háttinn á að sækja
heim ýmsar borgir hér í landi, heilsa
upp á heimamenn og halda blaða-
mannafundi til að kynna stefnu
Bandalagsins. Niel Kinnock, formað-
ur Verkamannaflokksins, hefur
troðið svipaðar slóðir, hafa þessir leið-
togar því tekið daginn snemma að
undanfömu þótt ekki séu þær alltaf
uppörvandi fréttimar, sem blasa við
þeim á síðum morgunblaðanna.
Þannig vom til dæmis birtar í gær
niðurstöður tveggja skoðanakann-
ana, sem benda til þess að íhalds-
flokkurinn muni vinna með
umtalsverðum yfírburðum i komandi
kosningum og halda traustum þing- ■
Reuter
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, og kona hans,
Glenys, leggja upp i lestarferð í
upphafi kosningabaráttunnar í
Bretlandi.
meirihluta. Munu nýjustu upplýsing-
ar um batnandi efnahagshorfur og
fækkun atvinnulausra tæplega gera
annað en styrkja stöðu íhaldsflokks-
ins enn frekar og auka líkur á stjóm-
arsetu hans þriðja kjörtímabilið í röð.
Milljón sýktra
seiða slátrað
Tryggingar bæta ekki tjónið þar
sem því er fyrirskipað að slátra
framleiðslu sinni. Hefðu seiðin hins
vegar drepist í keijunum hefði það
fengið bætur.
Ellefu laxeldisstöðvar við Harð-
angursQörð era nú undir ströngu
eftirliti vegna veikinnar í Mauran-
ger Laks. Enn sem komið er hefur
sjúkdómsins ekki orðið vart hjá
þeim.
Deilt um mál Garys Hart:
Kemur kynlíf sljórnmála-
manna almenningi við?
Washington, Reuter.
ÞAÐ HEFUR vakið miklar deilur
í Bandaríkjunum að Gary Hart
skyldi ákveða að hætta við að
sækjast eftir útnefningu Demó-
krataflokksins til forsetakosn-
inga í Bandarikjunum vegna
umfjöllunar fjölmiðla. Deilt er
um rétt stjórnmálamanna til að
eiga sitt einkalff og mörk lög-
mætrar rannsóknarblaða-
mennsku.
Spurt er hvort kynlíf frambjóð-
enda sé þeirra mál, eða hvort réttur
almennings til upplýsingar nái inn
í svefnherbergið.
Einnig hefur verið vakið máls á
því hvort blaðamenn geti með rétti
njósnað með frambjóðenda. Sú var
raunin með blaðamenn dagblaðsins
Miami Herald, sem fylgdust með
Hart þegar hann hitti ljóshærðu
leikkonuna Donnu Rice í húsi sínu
í Washington.
Hart dró sig út úr slagnum um
útnefningu flmm dögum eftir að
Miami Herald greindi frá því að
harðgiftur frambjóðandinn hefði
varið nóttinni með Rice. Hart stað-
hæfði að hún hefði farið út um
Blaðamenn Miami Herald sátu
um þetta hús Garys Hart i Was-
hington til að komast að þvi hvort
hann ætti sér hjákonu.
bakdyr án þess að blaðamennimir
hefðu tekið eftir og sofíð annars
staðar.
En ekkert lát varð á deilunum
og steininn tók úr þegar dagblaðið
Washington Post sagði að Hart
hefði gerst sekur um hjúskaparbrot
með annarri konu. Og Hart, sem
ætíð hefur borið á móti því að hann
sé „flagari", dró sig í hlé.
Uppljóstranimar um Hart ganga
þvert á þegjandi samkomulag
blaðamanna í Washington um að
greina ekki frá rekkjubrögðum for-
seta eða forsetaframbjóðenda.
Blaðamenn í Hvíta húsinu vissu að
forsetamir Warren Harding,
Franklin Roosevelt, John Kennedy
og Lyndon Johnson hefðu haldið
fram hjá, en létu það ekki fara
lengra. Kynlíf var talið utan dag-
skrár og óviðkomandi almennri
umræðu.
En nú era breyttir tímar.
í upphafí stuttrar kosningabar-
áttu sinnar var Hart spurður hreint
út á blaðamannafundi hvort hann
hefði gerst sekur um hórdóm. Þetta
var rétt eftir að fréttin um Donnu
Rice birtist.
Hart kvaðst ekki þurfa að svara
þessu og bætti við: „Strákar, til er
nokkuð, sem heitir drenglyndi."