Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAI 1987
51
x sýnir hvar skera á neðan við Græðlingur tilbúinn til töku af
blaðöxl. hnýði.
Dalíur
Margt fínlegt og viðkvæmt í
meðförum hefur að bjóða fegurð.
Svo er með dalíur sem hafa mik-
inn fjölbreytileika varðandi
blómgerð og vart sést fegurri
„hönnun" á blómi og á pompon-
dalíum (ekki boltadalíum) sem er
eins og fínasta víravirki.
Dalíur eru ættaðar frá Mexíkó
eins og blessuð kartaflan enda
eiga þessar tvær jurtir það sam-
eiginlegt að þola ekki ffost. Einnig
má segja að laufgerð þeirra sé
ekki óáþekk.
Dalían er rótarhnýði sem er
eins konar fóðurbirgðastöð. Þessi
birgðastöð safnar næringu að
sumrinu og geymir til næsta vors
þegar ræktun hefst að nýju. Þá
er ekki fyrir hendi rótametið sem
teygir sig út frá plöntunni í leit
að næringu. Þar sem fæðurætum-
ar (rótametið) eru grunnt undir
jarðvegsyfírborðinu er mjög gott
að gefa plöntunni fljótandi áburð.
Þegar dalíuhnýðin koma í versl-
anir á vorin í skrautlegum
umbúðum er erfitt fyrir þann sem
ekki þekkir afbrigðin sem á boð-
BLÓM
VIKUNNAR
Umsjón:
Ágústa BJÖmadóttlr
stólum em að velja þau réttu.
Þeir sem em að kaupa hnýði í
fyrsta sinn láta oft freistast af
glansmyndum utan á pökkunum.
Það sem er hvað mest áríðandi
að hafa í huga er að kaupa þau
afbrigði sem em fljótust til að
blómstra því allar dalíur em fal-
legar, bara mismunandi fallegar.
Það getur munað allt að tveimur
mánuðum hve dalíur em fljótar
að blómstra og fer það eftir af-
brigðum. Það er því fróðlegt fyrir
kaupandann að spyija kaup-
manninn um þetta atriði. Það
verður nefnilega að gera ráð fyrir
að kaupmaðurinn þekki þá vöm
sem hann er að selja, annars á
hann ekki að hafa hana á boðstói-
um. Sumar verslanir em með
ráðgjafa sem veita góða ráðgjöf
um slík efni.
Dalíur þarf að forrækta. Það
fer eftir aðstæðum hvers og eins
hvenær sú forræktun hefst. Ef
reiknað er með að rækta þær úti
í garði á skjólgóðum stað, að sjálf-
sögðu, þá em margir sem gróður-
setja þær í fyrstu viku júnímánað-
ar. Ef kalt gróðurhús er fyrir
hendi má hugsa sér að forræktun-
in hefjist fyrstu vikuna í apríl.
Er þá hnýðið sett í pott sem rúm-
ar það rétt sæmilega, umpotta svo
í stærri pott um 1. maí til að
gefa rótunum betra rými. Það
hindrar að rætur verði eins hring-
vafðar inn í pottinum. Ef það
skeður þarf að losa um rætumar
svo þær taki rétta stefnu út í jarð-
veginn við gróðursetningu. Áður
en plantað er út í garðinn er gott
að vökva plöntumar vel því þá
verða rætumar mýkri og með-
færilegri og skemmast síður.
Nauðsynlegt er að binda plöntum-
ar upp og þá er gott að hafa
bambus við höndina.
Ef einhver hefur áhuga á að
rækta dalíur i glerhúsi er nauð-
synlegt að gæta að hitastiginu.
Mörgum hættir til að hafa of heitt
í glerhúsum yfirleitt. Dalíur þola
þetta illa og spíra og stilkurinn
verður linur og stendur vart undir
sér. Þess vegna fara dalíur illa í
samfélagi við ýmsar aðrar plönt-
ur, sem þola og/eða þurfa meiri
hita.
Oft vaxa margir stilkar frá
sama hnýði. Þá er rétt að láta
ekki fleiri en tvo vaxa upp en
bijóta hina af. Síðan má nota þá
sem græðlinga. Það þarf bara að
skera með beittum hníf rétt fyrir
neðan blaðöxl (sjá meðf. mynd).
Þessir græðlingar eru settir t.d. í
vel rakan vikur þar sem þeir róta
sig á ca. 20 dögum. Þá em þeir
settir í litla potta með góðri mold
og mynda þeir þá hnýði yfir suma-
rið. Látið þá aldrei þorna og ekki
heldur mynda blóm en hættið að
vökva áður en fer að fijósa að
haustinu. Þannig geymast hnýðin
í pottum yfir veturinn. Gleymið
ekki að nafnmerkja plönturnar.
Þegar fer að líða á sumarið
skal varast að nota verkfæri til
að hreinsa illgresi í kringum dalí-
ur. Þið verðið að nota guðsgaff-
lana pakkaða inn í gúmmíhanska
ef ekki vill betur. Þetta er vegna
rótanna sem liggja svo gmnnt
undir yfirborðinu.
Gróðurríkt sumar.
Kristinn Helgason
Munið sjónvarpið kl. 18 —
Grænmetisþáttur.