Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 52
82
MÖRGOWBtAÖÍÖ' 'LAÐGARDÁGtJS'lSWf‘fé^f
Afleikirnir voru
dýrir í New York
Skák
Margeir Pétursson
Það voru há verðlaun í boði í
öllum styrkleikaf lokkum á New
York Open skákmótinu í síðasta
mánuði. Hæstu verðlaun í efsta
flokki voru 20.000 dalir, eða
því sem næst áttahundruð-
þúsund ísl. krónur og verð-
launasjóðurinn í heild nálgaðist
átta milljónir íslenskar. Þó
þessar fjárhæðir séu með því
hæsta sem þekkist á skákmót-
um, þykja þær þó ekki sérlega
umtalsverðar vestra, þar sem
margfalt hærri verðlaun eru
veitt á golf- og tennismótum.
Markmið mótshaldarans, Jose
Cuchi, innflytjanda á spánskum
varningi til Bandaríkjanna, er
að verðlaunasjóðurinn verði ein
milljón Bandaríkjadaia, eða
tæpar fjörutiu milljónir ísl.
króna.
Þrátt fyrir að það Cuchi eigi
langt í land með að ná því mark-
miði nýtur mót hans mikilla
vinsælda hjá skákmönnum, sem
sézt bezt á því að af 92 þátttak-
endum í efsta flokknum voru
hvorki meira né minna en 45 stór-
meistarar. Jafnmargir slíkra hafa
ekki áður teflt saman á móti, ef
Ólympíumót eru undanskilin. Það
var því hart barist um verðlaunin
og jafnvel heimsfrægir stórmeist-
arar, svo sem Portisch og
Smyslov, unnu ekki til neinna
verðlauna.
Átta íslendingar tóku þátt í
mótinu, við Helgi Ólafsson í efsta
flokki, þar sem tefldu skákmenn
með 2400 stig og hærri, fimm
tóku þátt í flokki 2200-2400 stiga
og Þráinn Vigfússon tók þátt í
1600-1800 stiga flokknum þar
sem hann vann 1200 dali, sem
dugði vel fyrir ferðakostnaðinum.
Keppnin í efsta flokki ein-
kenndist af því að keppendur á
efstu borðunum voru ófúsir til að
taka áhættu. Þar sem stigahæstu
þátttakendumir áttust við var því
fullmikið um stutt jafntefli. Helgi
Ólafsson byijaði vel á mótinu, en
eftir afskaplega klaufalegt tap
fyrir júgóslavneska alþjóðameist-
aranum Damljanovic náði hann
sér ekki á strik. Ég byijaði hins
vegar illa en hrökk að lokum í
gang eftir margra mánaða óstuð
og fékk sex vinninga úr sjö skák-
um. Til þess þurfti talsverða
heppni, t.d. vann ég gjörtapaða
skák af Damljanovic, ef hann
hefði ekki verið í tímahraki hefði
ég verið búinn að gefast upp.
Þetta fleytti mér alla leið upp í
efsta sætið þegar tvær umferðir
voru eftir af mótinu. í næstsí-
ðustu umferð tókst mér að halda
jafntefli í erfiðri skák gegn Sax
frá Ungveijalandi, en landi hans
Adoijan náði aleinn forystunni
með því að vinna afskaplega
furðulega skák af Murei frá ísra-
el, þar sem mátti ekki á milli sjá
hvor væri taugaóstyrkari. Þó Ad-
oijan hafi áður fallið í yfirlið við
slíkar aðstæður hélt hann nú ró
sinni og með jafntefli í síðustu
umferð við Christiansen tryggði
hann sér efsta sætið. Ég hafði
vonast eftir að fá hvítt gegn Ad-
oijan í lokaumferðinni, en fékk
hins vegar aftur svart, nú gegn
Bandaríkjameistaranum Yasser
Seirawan. Hann hafði af og til
sparað kraftana með stuttum
jafnteflum á meðan ég tefldi allar
skákir í botn og er skemmst frá
því að segja að mér tókst ekki
fyllilega að jafna taflið, þótt litlu
hefði munað. í endataflinu sýndi
Seirawan síðan sína sterkustu hlið
og vann sér inn 15 þúsund dali,
eða jafnvirði 600 þúsund ísl.
króna, en ég féll niður í hóp þeirra
sem skiptu á milli sín 9-14. verð-
launum.
Röð efstu manna:
1-2. Adotjan (Ungveijalandi) og
Seirawan (Bandaríkjunum) 8 v.
af 11 mögulegum.
3-8. Spassky (Frakklandi), Christ-
iansen, Federowicz, Kudrin
(Bandaríkjunum), Spraggett
(Kanada) og Sax (Ungveijalandi)
7 '/2V.
9-14. Margeir Pétursson, Miles
(Englandi), Barlov (Júgóslavíu),
Benjamin, Lein og Rohde (Banda-
ríkjunum) 7 v.
15-28. Smyslov (Sovétríkjunum),
Portisch og Csom (Ungveijal-
andi), Hansen (Danmörku),
Gheorghiu og Suba (Rúmeníu),
Lobron (V-Þýzkalandi), Murei og
Gutman (ísrael), Cvitan og Damlj-
anovic (Júgóslavíu), Rodriguez
(Perú), Dlugy og Browne (Banda-
ríkjunum) 6'/2V.
Helgi Ólafsson hlaut 5 vinninga.
Við íslendingar áttum mjög
frambærilega fulltrúa í flokki
2200- 2400 stiga, en reynsluleysi
háði okkar mönnum, nema Sæv-
ari Bjamasyni, sem stóð sig
frábærlega vel og sigraði ásamt
þremur öðrum. I þessum flokki
voru fyrstu verðlaunin tíuþúsund
dalir, eða nálægt 400 þúsund ísl.
krónum og 100 skákmenn, víðs
vegar að úr heiminum, vom mætt-
ir til leiks. Þar á meðal var fjöldi
gallharðra atvinnuskákmanna, til
marks um það 20 alþjóðlegir
skákmeistarar í keppendahópn-
um.
Sævar hlaut ö'Avinninga sem
gaf tæpa flmm þúsund dali í aðra
hönd. Jafnir honum vom þeir
Salazar, Chile, Edelman, Banda-
ríkjunum og Ljubisavljevic,
Júgóslavíu, en sá síðamefndi náði
að snúa vonlausu endatafli í vinn-
ing í síðustu umferð, er taugar
andstæðingsins bmgðust. Þegar
Sævar Bjarnason sigraði í B-
flokki á New York Open
skákmótinu um páskana.
teflt er um háar fjárhæðir og lítill
tími eftir á klukkunni er stundum
hægt að vinna í lottóinu á strætó-
miða.
Af hinum íslendingunum í
þessum flokki er það að segja að
þeir Hannes Hlífar Stefánsson,
Jón Garðar Viðarsson og Jóhann
Þórir Jónsson hlutu þijá og hálfan
vinning, en þeir Jón Kristinsson
og Ásgeir Þór Ámason þijá vinn-
inga. Jóhann Þórir má vel við sinn
árangur una, því samkvæmt
íslenskum skákstigum hefði hann
átt að tefla í lægri flokki, en hin-
ir ollu vonbrigðum. Sævar
Bjamason var sá íslendinganna
sem reið feitustum hesti frá New
York mótinu. Verðlaun hans em
líklega þau hæstu sem íslenskur
skákmaður hefur fengið á einu
skákmóti. Síðan Sævar varð al-
þjóðlegur meistari árið 1985 hefur
hann ekki náð sér á strik, en er
nú líklega farinn að venjast titlin-
um. Hann teflir ekki mjög hvasst
en hefur ávallt haft auga fyrir
fmmlegum möguleikum til að
bæta stöðuna. Skákin sem hér fer
á eftir var tefld í næstsíðustu
umferð og það var því mikið í
húfí. Andstæðingur Sævars er
kunnur ungverskur alþjóðameist-
ari, sem er afar vel lesinn í
bytjanafræðunum. Hann reyndist
lflca vel heima í frönsku vöminni
og fékk þægilega stöðu, en þegar
þurfti að fara að tefla taflið reynd-
ist Sævar algjör ofjarl hans.
Ungveijinn gróf sína eigin gröf
með því að kviksetja drottningu
sína á a4 þar sem hún varð að-
eins áhorfandi að bardaganum.
Sannaðist þar hið fomkveðna að
betra sé að tefla lélega stöðu vel
en góða stöðu illa.
Hvítt: Perenyi (Ungveijalandi)
Svart: Sævar Bjarnason
Frönsk vöm
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 -
Bb4 4. e5 — c5 5. a3 — Bxc3+
6. bxc3 - Re7 7. Dg4 - 0-0.
Sævar hættir sér ekki út í
flækjumar sem koma upp eftir
7. - Dc7 8. Dxg7 - Hg8 9.
Dxh7 — cxd4, sem er mun algeng-
ari leið.
8. Rf3 - Rbc6
Nýtt tízkuafbrigði er 8. — f5
9. exf6 — Hxf6 10. Bg5 — Da5!?,
þannig tefldi t.d. Þröstur Þór-
hallsson með svörtu gegn Dan
Hansson í einvígi þeirra um
Reykjavíkurmeistaratitilinn í ár.
9. Bd3 — f5 10. exf6 (fram-
hjáhlaup) Hxf6 11. Bg5 - Hf7
12. Bxe7 - Hxe7 13. Dh4 - h6
14. 0-0 - c4 15. Bg6 - Df8?!
Það er eðlilegra að reyna strax
að létta á stöðunni með uppskipt-
um, sbr. skákina Kuindzhi-Dvor-
etsky, sovézku 1. deildarkeppn-
inni 1973 sem tefldist: 15. — Bd7
16. Hael - Be8 17. Dg3 - Bxg6
18. Dxg6 — De8 og svartur jafn-
aði taflið.
16. Hael - Df6 17. Dg3 - Bd7
18. Re5 — Be8 19. Bxe8 —
Hexe8 20. Rxc6?
Opnun b línunnar gefur svarti
kost á mótspili, en Ungveijinn
ofmat næsta leik sinn. í staðinn
hefði hvítur haldið þægilegri stöðu
með þvi að leika 20. He3.
20. - bxc6 21. Dd6 - Hac8 22.
f4 - De7 23. Db4?!
Hvítur hefur misst fmmkvæði
sitt og hefði átt að sætta sig við
23. Dxe7 - Hxe7 24. Hbl.
23. - Hb8 24. Da4?
Hvítur kviksetur drottningu
sína með þessum óheppilega leik.
Enn var jafntefli að hafa með 24.
Dxe7 - Hxe7 25. f5. Þar fuku
fimmþúsund dalir.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11.00
árdegis. Organleikari Jón Mýrdal.
Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Breiöholtsskóla
kl. 14. Organisti Daníel Jónasson.
Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Æskulýðsfélags-
fundur þriðjudagskvöld. Félags-
starf aldraöra miðvikudagseftir-
miðdag. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Messa kl. 14.00 í Kópavogs-
kirkju. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Dómorgan-
isti leikur á orgel kirkjunnar í 20
mín. fyrir messuna.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 14. Ástráður Sigur-
steindórsson guðfræðingur
prédikar. Sr. Jón Isfeld þjónar
fyrir altari. Félag fyrrverandi
sóknarpresta.
FELLA- og Hólakirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hjartarson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Skírn.
Guðspjallið í myndum. Smá-
barnasöngvar og barnasálmar.
Afmælisbörn boðin sérstakiega
velkomin. Framhaldssaga. Við
píanóið Pavel Smíd. Guðsþjón-
usta kl. 14. Fermd verður Áníta
Rut Ásmundsdóttir, Lækjarási
4, Reykjavík. Altarisganga.
Fríkirkjukórinn syngur undir
stjórn organistans. Kvenfélags-
kaffi í Oddfellow-húsinu að
lokinni messu. Mánudagur 18.
maí: Tónleikar í Fríkirkjunni kl.
20.30. Félagar í Alouette-tríóinu
frá New York leika tónlist eftir
Telemann, Hovaness, de Bois-
mortier, Persichetti og Gordon
Jacob. Stella Amar leikur á óbó
og enskt horn og Andrew Cordle
á fagott. Leikið verður á selló í
Guðspjall dagsins:
Jóh. 16.: Sending heilags
anda.
einu verkanna. Sr. Gunnar
Björnsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Aðalfundur Grensássókn-
ar verður mánudaginn 18. maí í
safnaðarheimilinu kl. 18. Sr. Hall-
dór S. Gröndal. Sr. Halldór S.
Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænamessa kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kaffisala
kvenfélagsins verður í Domus
Medica kl. 15.
BORGARSPÍTALINN: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifs-
son.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Arni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. (Vinsamlegast
athugið breyttan messutíma.)
Prestur sr. Sig. Haukur Guðjóns-
son. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga (ath.
sumartími). Þriðjudag: Bæna-
guðsþjónusta kl. 18. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugardag: Félags-
starf aldraðra. Lagt af stað í
Keflavíkurferðina (í dag) kl. 11.30
frá kirkjunni. Sunnudag: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Þriðjudag og
fimmtudag: Opið hús fyrir aldr-
aða kl. 13—17. Miðvikudag:
Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SEUASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 11 árdegis (ath.
breyttan messutíma). Prestur sr.
Gylfi Jónsson. Organisti Ólafur
Finnsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 11 (ath. breytt-
an messutíma). Organisti Sig-
hvatur Jónasson. Prestur Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
KIRKJA óháða safnaðarins:
Guðsþjónusta kl. 14. Altaris-
ganga. Sr. Þórsteinn Ragnars-
son.
SAFNAÐARRÁÐ Reykjavíkur-
prófastsdæmis: Aukafundur
verður í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju sunnudag 17. maí kl.
18.00. Dómprófastur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delfía: Safnaðarguðsþjónusta kl.
14. Ræðurmaður Sam Daniel
Glad. Almenn guðsþjónusta kl.
. 20. Ræðumaður Hallgrímur Guð-
mannsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugardög-
um þá kl. 14. í maímánuði verður
stutt bænahald eftir lágmessuna
kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
mocca H 11
KFUM & KFUK, Amtmannsst.:
Almenn samkoma kl. 20.30.
„Nýtt hjarta". Ræðumenn sr.
Arnfríður Guðmundsdóttir og
Gunnar M. Sandholt. Bænastund
kl. 20.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun-
arsamkoma kl. 11. Ofurstahjónin
Runar syngja og tala. Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Norsk þjóðhátíð
kl. 20. Gotfred Runar ofursti og
Live kona hans frá Noregi stjórna
og tala og fer hátíðin fram á
norsku. Nk. mánudagskvöld
verður síðasta samkoma með
þeim hjónum að þessu sinni.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa á Mosfelli kl. 14. Hesta-
menn fjölmenna á gæðingum
sínum til messu. Sr. Birgir Ás-
geirsson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarnefnd.
KAPELLA St. Jósefssystra f
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ingólfur Guð-
mundsson messar. Aðalsafnað-
arfundur að lokinni guðsþjón-
ustu. Sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14. Heimsókn Sel-
foss-safnaðar. Sr. Sigurður
Sigurðarson prédikar og annast
altarisþjónustu ásamt sóknar-
presti. Kirkjukaffi í Fjarðarseli
eftir messu. Sr. Gunnþór Inga-
son.