Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
53
Bátasmíði í
Stykkíshólmi
Frá höfninni í Stykkishólmi. Morgunbiaðia/Ámi
24. - Dc7 25. g3?
Hvítur getur í raun gefist upp
eftir að svartur nær að tvöfalda
hrókana á b línunni. Síðasta von
hans var 25. Hbl.
25. - Hb5 26. Hbl - Heb8 27.
Hxb5 - Hxb5 28. Hel - Kf7
29. He5 - Ha5 30. Db4 - Hb5
31. Da4 - g6
Tímamörkunum er náð og það
er ljóst að vinningurinn hleypur
ekki í burtu frá svörtum í þessari
þægilegu stöðu.
32. Kf2 - Kf6 33. h4 - Db6
34. Ke2 - h5 35. Kd2 - Hb2
36. Hel - Kf7 37. Hcl - a6
38. Ke3 - Hb5 39. Kd2 - Ke7
Hér virðist liggja beint við að
leika 39. — a5 og nota hrókinn
sem fangavörð hvítu drottningar-
innar. Eftir það ætti svartur í
raun drottningu á móti hrók, en
vinningurinn er samt ekki auðs-
óttur eftir 40. Hel — Dc7 41.
He5. Sævar leikur því biðleikjum
á meðan hann leitar einfaldari
leiða.
40. Hel - Kf6 41. He5 - Hbl
42. Hel - Hxel 43. Kxel - a5
Nú er komin upp merkileg
staða. Þó drottningar séu á borð-
inu eru það kóngamir sem útkljá
skákina, rétt eins og um _ peð-
sendatafl væri að ræða. í því
einvígi stendur svartur með pál-
mann í höndunum, því hann getur
ávallt sett hvít í leikþvingun með
því að leika drottningu sinni.
Hvítur getur hins vegar aðeins
hreyft kónginn, aðstaða hans
versnar því jafnt og þétt og endar
með liðstapi.
44. Ke2 - Kf5 45. Kf3 - Da6
46. Kf2 - Kg4 47. Kg2 - Db6
48. Kf2 - Kh3 49. Kf3 - Kh2
50. Kf2 - Da6 51. Kf3 - Kgl!
52. g4 - Kh2 53. gxh5 - gxh5
54. f5 - exf5 55. Kf4 - Kh3
og hvítur gafst upp.
FRÍKIRKJAN i Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta kl. 14. Þeir sem á þessu
vori minnast 50 ára fermingaraf-
mælis mæta til guðsþjónustu.
Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl 8
YTRI-Njarðvíkurklrkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Gróa
Hreinsdóttir. Ath. breyttan
messutíma. Sr. Þorvaldur Karl
Helgason.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 14. Að henni lokinni verður
aðalfundur safnaðarins og verð-
ur boðið upp á kaffiveitingar á
fundinum. Nk. þriðjudag kl. 20.30
er almenn samkoma. Hollending-
urinn Eugéne Poppe segir þá frá
merku boðunarátaki sem unnið
er að í Hollandi og fleiri löndum.
Kaffi á eftir. Sr. Örn Bárður Jóns-
son.
H VALSN ESKIRKJ A: Guðsþjón-
usta kl. 14.30. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Ferming kl.
13.30. Sr. Tómas Guðmundsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Ferm-
ing kl. 11. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Fermingarbarn
Börkur Jónsson, Laugalandi í
Holtum. Organisti Andrés Páls-
son. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
10.30. Organisti Jón Ólafur Sig-
urösson. Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
Stykkíshólmi.
ÞEIR eru ekki fáir smærri bát-
arnir sem hafa bæst við flota
Stykkihólms undanfarið. Því er
orðin knýandi nauðsyn að fá
handa þeim einhvern þann stað
í höfninni sem veitir þeim skjól.
Að því er nú unnið af hrepps-
nefnd og hafnarstjórn.
Auk þess sem þessir bátar eru
aðfluttir eru þeir einnig smíðaðir
hér heima og þar hefír lagt gjörv-
asta hönd á Kristján Guðmundsson
skipasmíðameistari, sem að þessari
iðn hefír unnið í rúm 40 ár hér í
Hólminum. Fyrst hjá Skipasmíða-
stöð Stykkishólms og svo í eigin
stöð sem hann reisti fyrir nokkrum
árum þar sem hann kom sér upp
afdrepi til að smíða bátana inni og
hefír unnið vel að því síðan. Hann
er enn á fullri ferð í skipasmíðinni
og með báta í smíðum sem eiga
eftir að koma bæjarbúum og þeim
sem þeirra njóta til góða. Kristján,
sem nú er yfír 75 ára, lætur ekki
deigan síga og gengur enn af sama
krafti til vinnu sinnar.
— Árni
Hallarbyiting!
IshöUin
flytur um hom
eðatvö...
... frá Hjarðarhaga
að Melhaga 2, gegnt Melaskóla.
Þar bjóðum við sem fyrr okkar rómuðu
ísrétti, bæði til að taka með sér eða borða
á hinum nýja, glæsilega stað.
Við bjóðum ykkur velkomin til okkar í
vesturbæinn, að kynnast nýrri búð og ís
eins og hann gerist bestur.
Á Hallærisplaninu er lítíl íshöll
(eiginlega íssetur) sem er opin næstum allan sólarfuinginn.
Ef þú átt leið um rúntinn eigum við ísætt haliarinnar eins og hún
leggur sig, alian hefðbundinn ís og skyndibita að auki. Nú veistu
hvað til bragðs skal taka ef þig hungrar í miðbænum
- gómsætan ísrétt.
í Kringlunniverður konunglegur ís
Um mitt næsta sumar mun rrýtt sendiráð íshallarinnar verða opnað í
nýjustu verslunaimiðstöðinni í Reykjavík, Kringlunni. Þarverða á
boðstólum sériegir ísréttir okkar, léttir smáréttir og spennandi nýjungar
(sem em svo spennandi að þær em leyndarmál ennþá), akkúrat það
sem fjölskykian þarf í innkaupafeiðinni.
í shöllin hefur umboð erlendra ísvelda
og þjónustar ísverslun um ísland allt með gæðavöm frá
viðurkenndum framleiðendum:
Kingsice of Copenhagen,
Mixit, sælgætis- og hnetusölukerfið,
FlavorMaker, bragðarefurinn,
H.D.Sheldon, ísvélar fra H.C. Duke & Son inc.
AGA Cones int. kramariiús,
Underground Icecream og fleiri.
íshöllin
- þar sem ísævintýrin gerast.
ÍSHÖIJ IN
Melhaga 2 • Hallærisplani •Skrifstofa Aðalstræti 7, s: 21121