Morgunblaðið - 16.05.1987, Page 60
- A
vqo t írirr'A(7<T AnTT*> T nifiA T£n/TIH70?/
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
t
Móðir mín og amma okkar,
EMILÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Grettisgötu 27,
Reykjavík,
andaðist fimmtudaginn 14. maí.
Amalía Sverrisdóttir,
Gróta Gunnarsdóttir,
Steinn Sigurðsson.
t
Sonur okkar og bróðir,
FRIÐRIK KÁRASON
símaflokksstjóri,
Dalseli 8,
Reykjavlk,
sem lést 10. maí sl. í Landakotsspítala veröur jarðsunginn frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. mai kl. 13.30.
Sigrún Guðdís Halldórsdóttir,
Kári Páll Friðriksson,
Áslaug Lilja Káradóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
frá Rafnseyri,
Skólavegi 10,
Vestmannaeyjum,
lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 14. mai.
Þórarinn Gunnlaugsson
og börn.
t
Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar,
SÚSANNA M. GRÍMSDÓTTIR,
Hávallagötu 35,
Reykjavik,
lést í Borgarspítalanum fimmtudaginn 14. maí.
Sveinbjörn K. Árnason,
Stefanía Sveinbjörnsdóttir,
Erna S. Mathiesen,
Karólína B. Sveinbjörnsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ARNDÍSAR FINNBOGADÓTTUR,
Kvisthaga 10,
Reykjavik.
Kristinn Tryggvason
og systkini hinnar látnu.
t
Alúðarþakkir færum við öllum þeim vinum og ættingjum fjær og
nær sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför manns-
ins míns, föður, tengdafööur og afa,
GUÐMUNDAR GUÐVARÐARSONAR,
Brekkustíg 12,
Kristrún Valdimarsdóttir,
Þórdis Ágústa Guðmundsdóttir.Guðmundur Örn Sverrisson,
Guðrún Valdis Guðmundsdóttir,Atli Bryngeirsson,
Kári Ingi Atlason, Atli Ingi Atlason.
t
Alúðarþakkirfyrir auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR,
Kleppsvegi 28.
Jón Hallgrimsson,
Sigurgrímur Jónsson, Sigrún Scheving,
Erlen Jónsdóttir, Matthias Gislason,
Elín Jóna Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGURLAUGAR M. JÓNSDÓTTUR,
Langholtsvegi 97,
Erlingur Brynjólfsson, Sirrý Laufdal,
Jón Brynjólfsson, Sjöfn Ólafsdóttlr,
Guðrún Brynjólfsdóttir, Eggert Kr. Jóhannesson
og barnabörn.
Jóhann Hauks-
son — Minning
Hugljúfar minningar sækja
sterkt á hugann þfegar kær bróðir
okkar er horfinn yfir móðuna miklu,
svo snögglega kvaddur til landsins
sem bíður okkar allra.
Þung voru þau orð að heyra, að
hann Jóhann bróðir væri dáinn.
Jóhann var fæddur 24. júlí 1944,
sonur hjónanna Steinunnar Jó-
hannsdóttur frá Löngumýri í
Skagafirði og Hauks Vigfússonar
frá Hellissandi og búa þau nú þar.
Eftirlifandi eiginkona Jóhanns er
Anna Aradóttir frá Dalvík. Bjuggu
þau þar lengst af en nú síðustu árin
í Ásbúð 8, Garðabæ. Eignuðust þau
þijár dætur, Steinunni, Dórótheu
Elvu og Bjameyju.
Jóhann var húsasmiður að
mennt, en starfsævi hans var þó
mest bundin sjónum og vann hann
þá yfirleitt sem matsveinn. Fór svo
að hann stofnaði hinum djúpa svefni
á heimleið úr sínum síðasta róðri.
Minningin um Jóhann er björt
og fögur. Hann var iðjusamur og
ósérhlífínn með öllu. Minningar lið-
inna ára ljóma af hressileika hans
og dugnaði. Á heimili sínu var hann
sannur eiginmaður og faðir.
Það er erfitt að sjá á eftir sínum
nánustu, sem að manni fínnst að
ættu skilið að lifa áfram með okkur
við að skapa og móta tilveruna. En
hinn almáttugi kallar oft til sín
góða drengi og svo hefur verið nú.
Megi styrkur Guðs vaka yfír fjöl-
skyldu Jóhanns og öðrum ástvinum
hans, til að létta þeim hina miklu
sorg.
Kveðjur til syrgjandi foreldra
okkar. Sérstakar lcveðjur sendum
við mágkonu okkar og dætrum,
með þeirri vissu að áfram muni sá
hreinleiki og dugnaður, sem þær
hafa ætíð sýnt, fylgja þeim og
styrkja í lífí þeirra.
Guð blessi ykkur.
Systkini og makar.
Jónína Egils-
dóttír—Kveðjuorð
Fædd 10. ágúst 1928
Dáin 11. maí 1987
Þegar Guðni hringdi og sagði
mér lát Jónínu eiginkonu sinnar,
kom það miklu róti á hug minn.
Þó kom þessi frétt mér ekki á
óvart. Ég vissi að hún hafði verið
mikið veik í marga mánuði og háð
erfitt veikindastríð.
Hugurinn reikar aftur í tímann.
Það eru orðin meira en 40 ár síðan
kynni okkar hófust. Jónína var
fædd á ísafirði 10. ágúst 1928,
dóttir hjónanna Hrafnhildar Eiðs-
dóttur og Egils Jónssonar, og ólst
þar upp í stórum systkinahópi. Árið
1946 kom hún til Siglufjarðar og
hóf vinnu hjá Prentsmiðju Siglu-
fjarðar. Jónína var lagleg ung
stúlka og geislaði af gleði og hlýju.
Við kynntumst fljótlega og urðum
góðar vinkonur og höfum æ síðan
haldið góðu sambandi þó fjarlægð
skildi að. Gott var að eiga ungl-
ings- og manndómsár á Siglufirði.
Samgöngur voru ekki miklar á
þessum árum en félagslíf meðal
bæjarbúa var fjölbreytt og gott og
aðfluttu fólki vel tekið og veit ég
að Jónína eignaðist marga góða og
trausta vini.
Fljótlega eftir komuna til Siglu-
flarðar kynntist Jónína mannsefni
sínu, Guðna Gestssyni, syni hjón-
anna Gests Guðjónssonar skipstjóra
og Rakelar Pálsdóttur, og gengu
þau í hjónaband 20. febrúar 1950
og eignuðust 4 böm. Þau eru Rak-
el f. 22. mars 1948, dó 10 ára
gömul, Gestur f. 1949, Hrafnhildur
f. 1951 og Egill f. 1952. Eins og
áður segir misstu þau hjónin elsta
bam sitt, Rakel, aðeins 10 ára
gamla og má geta nærri hversu
þungt áfall það var. Þung voru spor
mín þegar ég fór þangað heim
nokkrum dögum síðar og er mér í
fersku minni hversu sterk Jónína
var. Hennar hald og traust var trú-
in og máttur bænarinnar og fullyrði
ég að það hafi hjálpað henni yfir
marga erfiðleika.
Fyrir u.þ.b. 6 vikum heimsótti
ég Jónínu á heimili hennar en þá
var hún heima um tíma. Við áttum
indæla stund saman. Hún talaði um
bamabömin sín og sýndi mér mynd
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
t
Þakka hjartanlega sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginkonu minnar,
SVANLAUGAR LÖVE,
Reynimel 86,
formanns Kattavinafálagsins.
Sérstakar þakkir vil ég færa öllum þeim sem styrktu byggingar-
sjóð Kattholts.
Gunnar Pátursson.
af nýfæddum sonarsyni sínum sem
hún hafði ekki séð, því faðir hans,
Egill, er búsettur með Qölskyldu
sína í Ameríku. Henni auðnaðist
þó að sjá bamið stuttu áður en hún
dó því Egill kom með fjölskylduna
til landsins. Þessi síðasta samveru-
stund okkar Jónínu verður mér
minnisstæð. Heimilið hennar var
fallegt og hlýlegt eins og alltaf
áður. Jónína var mikil húsmóðir og
móðir. Eiginmaður hennar, böm og
bamaböm, áttu hug hennar allan
enda reyndust þau henni öll vel í
erfiðri baráttu síðustu mánuðina.
Gagnvart sjúkdómi sínum virtist
mér hún róleg og æðralaus.
Nú er komið að kveðjustund. Ég
vil að lokum þakka vinkonu minni
samfylgdina og tryggðina öll þessi
ár og votta eftirlifandi ástvinum
hennar innilegustu samúð.
Kveðja frá Pali og sonum okkar.
Ásta Einarsdóttir
Leiðrétting
í minningargrein um Áslaugu
Sigurgeirsdóttur hér í blaðinu á
fímmtudag varð sú prentvilla í einu
orði að þar stóð g í stað f. Því hljóð-
aði setningin: gerðum milli húsa
hefur fækkað_en hér átti auðvit-
að að standa ferðum milli húsa
hefur fækkað o.s.frv.