Morgunblaðið - 16.05.1987, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
61
Pétur Ásbjörnsson „tjaldbúi“, til vinstri, tók við peningrinum fyr-
ir hönd Rrýsuvikursamtakanna.
7
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Asgeir Ingimundarson formaður Þroskahjálpar Suðurnesja, til vinstri, tók við peningagjöfinni fyr-
ir hönd Þroskahjálpar. Með honum eru Guðmundur Halldórsson gjaldkeri Óðins, í miðjunni, og
Kristján Ingibergsson formaður Óðins, til hægri.
Lionsklúbburinn Óðinn:
Gáfu 580 þúsund tíl líknarmála
Keflavik.
LION SKLÚBBURINN Óðinn
gaf tæplega 600 þúsund krónur
til líknargjafa nýlega. Þeir aðil-
ar sem þessar peningagjafir
fengu, voru Þroskahjálp Suður-
nesja, Krýsuvíkursamtökin og
elliheimilið Hlévangur í
Keflavík. Fjárhæð þessi var
afraksturinn af nýstárlegu
happdrætti sem þeir Lions-
félagar gengust fyrir um jólin.
Þroskahjálp fékk 300 þúsund
krónur og verður þeirri fjárhæð
varið til að koma upp aðstöðu
utan þéttbýlis fyrir þroskahefta
þar sem þeir geta dvalið einhvem
tima. Kiýsuvíkursamtökin fengu
200 þúsund krónur, en samtökin
beita sér fyrir að koma upp með-
ferðarheimili fyrir unga vímu-
efnaneytendur í Krýsuvíkurskóla.
Við þetta tækifæri sagði Birgir
Asgeirsson, fulltrúi Krýsuvíkur-
samtakanna, að menn væru að
vonast til að geta opnað staðinn
í haust. Elliheimilið Hlévangur
fékk svo 80 þúsund krónur til
kaupa á sófasetti.
Aðalvinningurinn í happdrætt-
inu var bifreið og auk þess tvö
myndbandstæki. Gefnir voru út
1.000 miðar sem seldir voru á
1.000 jcrónur og seldust þeir allir
upp. A undanfömum árum hafa
félagar í Óðni beitt sér sérstak-
lega til að hjálpa þeim sem minna
mega sín í þjóðfélaginu eða hafa
orðið fyrir skakkaföllum af ýms-
um ástæðum. Má þar nefna að
um hver jól taka þeir sig til og
aðstoða fólk sem þarf á hjálp að
halda.
BB
Minning:
Bjarnþór Þórðar-
son kennari
Fæddur 3. september 1912
Dáinn 24. apríl 1987
Ég kynntist Bjamþóri Þórðarsyni
fyrst fyrir utan sýningargluggann
á Gamla bíói. Hann var þar með
Astu Sigurðardóttur, sem hann
kallaði lærisveinku sína. Sjálfsagt
hefur ekkert okkar átt fyrir bíó svo
við tókum tal saman. Bjamþór
fæddist 3. september 1912 á Grenj-
um í Álftaneshreppi á Mýrum. Hann
var sonur Þórðar bónda þar og síðar
hótelhaldara í Borgamesi, Þórðar-
sonar á Hömmm í Hraunhreppi
Benediktssonar. Móðir hans var
Þórdís Bjamþórsdóttir, Bjamason-
ar, sem lengi bjó í Knarramesi, og
Sesselju Soffíu Níelsdóttur.
Listamenn em margir í ættum
Bjamþórs, í móðurætt er hann
fjórði ættliður frá Guðnýju frá
Kömbmm og systursonur Ásgeirs
Bjarnþórssonar listmálara. Hann
stundaði tungumálakennslu mikinn
hluta ævinnar en var þó ekki kenn-
aramenntaður en tók stúdentspróf
utan skóla. Fór orð af því hversu
vel hann talaði frönsku svo um það
mynduðust þjóðsögur. Hann varð
túlkur hjá enska hemámsliðinu þeg-
ar það kom hingað og seinna því
ameríska. Hann starfaði í franska
sendiráðinu á þeim tíma sem Hemy
Voillery stjómarfulltrúi réð þar
ríkjum. Hann fékkst nokkuð við
þýðingar og þýddi m.a. Á valdi
vínguðsins, eftir Charles Jackson,
sem Helgafell gaf út 1948 og má
þar sjá hversu orðhagur hann var.
Hann kunni ógrynni ljóða og var
sjálfur hagmæltur og sló þá á létta
strengi. Hann ferðaðist til Frakk-
lands 1966 og lét vel yfir þeirri för
og sjálfsagt hefur hann ekki verið
í vandræðum með frönskuna.
Bjamþór bjó í Þingholtsstræti
28, sem kallað var „Hússtjóm",
þegar það brann til kaldra kola á
aðfangadagskvöld 1957 og varð
hann þá fyrir sámm skaða. Hann
var ekki heima um kvöldið en missti
eigur sínar, þar á meðal bækur
sínar allar.
Bjamþór Þórðarson var hár mað-
ur og grannur og bar sig fyrirmann-
lega og hélt því þó elli sækti hann
heim nokkuð snemma. Hann var
ætíð vel búinn. Maður hitti hann
oft á leið um miðbæ Reykjavíkur
eða þá á kaffihúsum, annað hvort
á Adlon, en á þessum ámm áttu
Silli og Valdi aðra hverja veitinga-
stofu í bænum og hétu allar Adlön
— eða þá á Laugavegi 28B, þar sem
hann sat löngum. Manni fannst
hann vita alla hluti milli himins og
jarðar. Hann var ljúfmenni í sjón
og raun og einn þeirra manna sem
settu svip á bæinn. Síðustu árin
hafði hann minna þrek til að vera
á ferli og minnið var ekki jafn gott
og áður, en ef hann fékk heimsókn
rifjaði hann oft upp vísur og sló
ekki hendinni á móti vindli með
kaffínu. Hann lést 24. apríl á elli-
heimilinu Gmnd í Reykjavík.
Jóhann Már Guðmundsson
V
Krossar á leiði
Framleiði krossa
á leiði.
Útvega skilti ef með þarf.
Uppl.ísíma 73513.
Hótel Saga Síml 12013
Kveðjuorð:
Erlingur E Hjaltested
24. apríl síðastliðinn var afí okk-
ar, Erlingur Eysteinn Hjaltested,
jarðsunginn í Dómkirkjunni. Hann
fæddist í Reykjavík 10. janúar árið
1907. Afi var sonur hjónanna
Bjama Hjaltested prests og kenn-
ara og konu hans, Stefanie Önnu
Hjaltested, sem bjuggu við Suður-
götu 7 í Reykjavík.
Afi lauk námi í jámsmíðaiðn í
vélsmiðjunni Héðni árið 1929 en
hóf síðan störf hjá íslandsbanka,
sem skömmu síðar var breytt í
Útvegsbanka íslands. Þar starfaði
afí samfle}d.t til 1. febrúar 1967 sem
bankaritari.
Árið 1933 kvæntist hann eftirlif-
andi ömmu okkar, Guðríði Sigur-
björgu Hjaltested. Byggðu þau
síðan sitt eigið heimili í Karvavogi
43 í Reykjavík og býr amma þar
enn.
Afí var góður afi og mikill bama-
vinur. Eftir vinnu hjá Útvegsbank-
anum helgaði hann sig garðinum
sínum í Karfavogi þaðan sem við
krakkamir höfum margar minning-
ar að geyma um afa okkar og hve
vænt honum þótti úm garðinn
ásamt ömmu.
Afi hafði mikinn áhuga á knatt-
spymuiðkun okkar krakkanna og
studdi okkur mikið því hann hafði
miklar taugar til Knattspymufé-
lagsins Víkings, en þar stunduðum
við okkar áhugamál með stuðningi
frá afa.
Við kveðjum afa okkar í góðri
trú um að dauðinn og ástin séu
vængimir sem bera góðan mann
burt, og amma, Guð blessi þig og
varðveiti því að söknuðurinn er þér
og okkur mikill.
Bamabömin í Huldulandi 5
Mig langar að minnast Erlings
E. Hjaltested, en hann var einn
góðvina foreldra minna. Gaman var
að koma á heimili hans og Lóu,
konu hans. Þau voru einstaklega
gestrisin og góð heim að sækja.
Það kom stundum fyrir að ég færi
þangað ásamt móður minni og
manninum mínum og nutum alls
hins besta á heimilinu. Vil ég þakka
þeim hjónum Lóu og Erlingi fyrir
það traust og vináttu sem þau jafn-
an sýndu móður minni. Fjölskyld-
unni votta ég og eiginmaður minni
innilega samúð.
Ágústa
Blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri
V^terkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamióill!