Morgunblaðið - 16.05.1987, Síða 70
1* v»
iCTf ir *r
Boltinn rúllar af
stað um helgina
■’air \/ » ■ *r 1 r k 1 >r , t fCtfi
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
íslandsmótið 2. deild:
ÍBÍ
ísfirðingar voru í miklu basli í
fyrra og rétt sluppu við fall. Þeir
hafa nú ráðið nýjann þjálfara,
Helga Ragnarsson, sem bundnar
eru miklar vonir við. ísfirðingar
hafa einnig misst nokkra af eldri
leikmönnum sínum eins og Jón
Oddsson, Hauk Magnússon og
Rúnar Vífilsson. Þeir byggja nú al-
farið á heimamönnum og er liðið
mjög ungt. Þeir verða sennilega í
sama basli og í fyrra.
ÍBV
ÍBV hafnað í neðsta sæti 1.
deilar í fyrra og féll í 2. deild. Eyja-
menn hafa nú fengið frammherj-
ann marksækna, Tómas Pálsson,
til að þjálfa liðið. Hann lék með
Selfyssingum í fyrra. Lið Eyja-
manna var talið reynslulítið í 1.
deildinni í fyrra en nú hafa þeir á
að skipa sama mannskap og ættu
að vera reynslunni ríkari. Það verð-
ur erfitt að sækja þá heim. Þeir
gætu þó átt í basli í upphafi móts
vegna þess að nokkrir leikmanna
þeirra hafa átt við meiðsli að
stríða.
• íslandsmótið f knattspyrnu hefst um holgina og verður leikin heii
umferð í 2. deild karla.
KS
Siglfirðingar undir stjórn Gú-
stafs Björnssonar urðu í 6. sæti
deildarinnar í fyrra. Gústaf verður
áfram með liðið og þekkir sig nú
betur nyrðra. KS verður með sama
lið og í fyrra, nema að Mark Duffi-
eld hefur snúið heima aftur úr
Garðinum. Heimavöllurinn hefur
ávallt verið þeim sterkur og svo
verður einnig í ár. Siglfiröingar
varða iíklega um miðja deild.
Selfoss
Selfyssingar náðu fjórða sæti
deildarinnar í fyrra og eru greini-
lega á uppleiö. Magnús Jónatans-
son hefur nú tekið við þjálfun
liðsins og er þekktur fyrir allt ann-
að en slæmt gengi. Selfossliðið
hefur misst Tómas Pálsson og Sig-
urð Halldórsson en það ætti ekki
að koma að sök þar sem þeir hafa
á að skipa góðum mannskap. Sel-
foss ætti að vera í toppbaráttunni.
Víkingur
Víkingar náðu ekki að tryggja
sér 1. deildarsætið í fyrra eins og
margir höföu spáð. Þeir verða þó
að teljast líklegir til þess nú þar
sem þeir hafa endurheimt sovéska
þjálfarann, Juri Sedov. Besti leik-
maður þeirra í fyrra, Andri Mar-
teinsson, hefur nú yfirgefið þá og
gengið til liðs við KR og Elías Guð-
mundsson hefur fylgt Magnúsi
Jónatanssyni á Selfoss. Víkingar
hafa á að skipa jöfnu og góðu liði.
Þróttur
Þróttur hafnaði i sjöunda sæti í
fyrra. Gengi þeirra var mjög slakt
framan af en undir lokin og forð-
uðu þeir sér frá falli. Fyrrum
leikmaður Þróttar, Gunnar Ingva-
son, þjálfar nú liðið. Þróttur hefur
fengið nokkra nýja leikmenn. Þeir
hafa þó misst sinn besta leikmann
frá í fyrra, Kristján Jónsson, sem
gekk í Fram. Þróttur veröur líklega
um miðja deild.
Breiðablik
Breiðabliksmenn féllu úr 1. deild
í fyrra og hafa örugglega hug á
að endurheimta sæti sitt aftur. Jón
Hermannsson verður áfram þjálf-
ari liðsins. Blikarnir hafa nú misst
Guðmund Val Sigurðsson til Þórs,
en hafa endurheimt Guðmund
Baldursson sem lék á Möltu. Að
öðru leiti verður liðið skipað sömu
leikmönnum og í fyrra. Blikarnir
verða að teljast líklegir til að endur-
heimta sæti sitt í 1. deild að ári.
Meistarakeppni KSÍ:
Fram og ÍA leika
á Skaganum á morgun
íslandsmeistarar Fram og bik-
armeistarar ÍA leika á Akranesi á
morgun f meistarakeppni KSÍ.
Leikurinn fer fram á grasvellinum
og hefst klukkan 18.
Fram lék ágætlega í Reykja-
víkurmótinu, en missti titilinn til
Vals, tapaði fyrst fyrir Val í riðla-
keppninni og síðan í úrslitunum.
Liðið er vel undir átök sumarsins
búið og sem fyrr er vörnin sterk
sem og miðjan. En erfitt verður
að fylla skarð Guðmundar Torfa-
sonar og Guðmundar Steinssonar
í framlínunni. Pétur Ormslev lék
frammi í úrslitum Reykjavíkur-
mótsins, en hann verður fjarri
góðu gamni á morgun, þar sem
hann tekur út leikbann.
Skagamenn sigruöu í öllum leikj-
um sínum í Litlu bikarkeppninni
með miklum mun og fengu aðeins
eitt mark á sig. Liðið virðist smella
vel saman og er líklegt til stórræða
í sumar.
Meistarakeppnin fer nú fram í
19. sinn. Fram hefur oftast allra
sigrað eða fimm sinnum og á nú
möguleika á sigri þriðja árið í röð,
ÍBK hefur oröið meistari meistar-
anna fjórum sinnum, Víkingur, ÍBV
og Valur tvisvar hvert félag, UBK
og ÍA einu sinni ásamt KR, sem
sigraði í fyrstu meistarakeppninni
1969.
Guðmundur Haraldsson,
milliríkjadómari, dæmir leikinn á
Skaganum á morgun.
ÍSLANDSMÓTIÐ f knattspyrnu
hefst um þessa helgl og verður
spiluð heil umferð í 2. deild karla.
Keppni þar verður öruggiega eins
spennandi f ár og oftast áður. ÍR
* *’!eikur nú f fyrsta skipti f 2. deild
og verður fróðlegt að fylgjast
með gengi þeirra f sumar. Leiftur
frá Ólafsfirði sigrði f 3. deild og
kom með ÍR upp f 2. deild. Úr 1.
deild f fýrra féllu Breiðablik og
ÍBV.
Morgunblaðið hefur ákveðið að
útnefna mann hvers leiks og mun
veröaluna þann leikmann í mótslok
sem oftast verður kjörinn „Maður
leiksins" í sumar.
Hér á eftir fer smá úttekt á 2.
deildarliðunum og spáð er um
gengi þeirra í sumar. Við byrjum á
nýliðunum úr ÍR.
ÍR
IR-ingar leika nú í fyrsta sinn í
í 2. deild. Liðið náði athyglisverð-
um árangri í 3. deild í fyrra undir
stjórn Heimis Karlssonar, sem
einnig þjálfar liðið í ár. ÍR-ingar
stoppuðu aðeins eitt tímabil í 3.
deild. Þeir hafa á að skipa svo til
sama liði og í fyrra. Það gæti orð-
ið erfitt tímabil framundan hjá
þeim, sérstaklega á útivöllum.
Heima eiga þeir eftir að hirða
mörg stig. Þeir verða líklega í neðri
hluta deildarinnar.
Leiftur
Leiftur sigraði í 3. deild eftir
úrslitaleik við (R. Dvöl Ólafsfirðinga
í 3. deild var aðeins eitt ár því
1985 léku þeir í 2. deild og endur-
heimtu þeir því sæti sitt. Óskar
Ingimundarson er þjálfari liðsins
eins og í fyrra og þekkir því vel til
sinna manna. Hann leikur einnig
með liðinu. Litlar breytingar hafa
verið hjá þeim. Ólafsfirðingar gætu
átt erfitt uppdráttar í sumar en
heimavöllurinn er þeim mikilvæg-
ur.
Einherji
Einherji náði sínum besta ár-
angri í 2. deild í fyrra, fimmta
sæti. Þeir hafa nú misst Njál Eiðs-
son sem þjálfaði og lék með þeim
í fyrra. Hann leikur nú í 1. deildinni
með Val og er skarð hans vand-
fyllt. Við þjálfuninni hefur tekið
heimamaður, Aðalbjörn Björns-
son, og verður fróðlegt að fylgjast
með gangi liðsins undir hans
stjórn. Einherji verður líklega í
neðri hluta deildarinnar.
Leikir í 2. deild
1. umferð
16/5 kl. 18.00
17/5 kl. 14.00
17/5 kl. 14.00
17/5 kl. 14.00
18/5 kl. 20.00
2. umferð
22/5 kl. 20.00
23/5 kl. 14.00
23/5 kl. 14.00
23/5 kl. 14.00
23/5 kl. 14.00
3. umferð
r 30/5 kl. 14.00
30/5 kl. 14.00
31/5 kl. 14.00
31/5 kl. 14.00
1/6 kl. 20.00
4. umferð
5/6 kl. 20.00
5/6 kl. 20.00
5/6 kl. 20.00
6/6 kl. 14.00
6/6 kl. 14.00
5. umferð
12/6 kl. 20.00
13/6 kl. 14.00
13/6 kl. 14.00
14/6 kl. 20.00
16/6 kl. 20.00
ð.umferð
119/6 kl. 20.00
19/6 kl. 20.00
20/6 kl. 14.00
20/6 kl. 14.00
21/6 kl. 16.00
7. umferð
26/6 kl. 20.00
26/6 kl. 20.00
26/6 kl. 20.00
27/6 kl. 18.00
29/6 kl. 20.00
8. umferð
4/7 kl. 14.00
4/7 kl. 14.00
4/7 kl. 14.00
4/7 kl. 14.00
5/7 kl. 14.00
9. umferð
11/7 kl. 14.00
11/7 kl. 14.00
15/7 kl. 20.00
15/7 kl. 20.00
15/7 kl. 20.00
(R — Einherji
KS-ÍBl
Víkingur R. — Leiftur
ÍBV — Selfoss
Þróttur R. — UBK
KS — Einherji
ÍBf —Selfoss
ÍR — Þróttur R.
UBK —VíkingurR.
Leiftur—IBV
Einherji — ÍBÍ
ÍBV-UBK
Þróttur R. — KS
Selfoss — Leiftur
Víkingur R. — ÍR
KS —VíkingurR.
IR-ÍBV
UBK — Selfoss
ÍBÍ — Leiftur
Einherji — Þróttur R.
ÍBV-KS
Selfoss —ÍR
Leiftur — UBK
Þróttur R. — IBÍ
Víkingur R. — Einherji
KS — Selfoss
Þróttur R. — Víkingur R.
ÍBl-UBK
Einherji — ÍBV
ÍR — Leiftur
Leiftur —KS
ÍBV — Þróttur R.
UBK-ÍR
Selfoss — Einherji
Víkingur R. — ÍBÍ
ÍBÍ-ÍR
KS-UBK
Einherji — Leiftur
Víkingur R. - ÍBV
Þröttur R. — Selfoss
ÍBV-lBl
IR-KS
UBK — Einherji
Leiftur—ÞrótturR.
Selfoss — Víkingur R.
10. umferð
18/7 Kl. 14.00
18/7 kl. 14.00
18/7 kl. 14.00
18/7 kl. 14.00
18/7 kl. 14.00
H.umferð
24/7 kl. 20.00
25/7 kl. 15.00
25/7 kl. 14.00
25/7 kl. 14.00
25/7 kl. 14.00
12. umferð
28/7 kl. 20.00
29/7 kl. 20.00
29/7 kl. 20.00
29/7 kl. 20.00
29/7 kl. 20.00
13. umferð
6/8 kl. 19.00
7/8 kl. 19.00
7/8 kl. 19.00
8/8 kl. 14.00
8/8 kl. 14.00
14. umferð
14/8 kl. 19.00
15/8 kl. 14.00
15/8 kl. 14.00
15/8 kl. 14.00
15/8 kl. 14.00
15. umferð
20/8 kl. 19.00
22/8 kl. 14.00
22/8 kl. 14.00
22/8 kl. 14.00
22/8 kl. 14.00
16. umferð
28/8 kl. 19.00
28/8 kl. 19.00
29/8 kl. 14.00
29/8 kl. 14.00
29/8 kl. 14.00
17. umferð
5/9 kl. 16.00
5/9 kl. 14.00
5/9 kl. 14.00
5/9 kl. 14.00
5/9 kl. 14.00
18. umferð
11/9 kl. 18.00
13/9 kl. 14.00
13/9 kl. 14.00
13/9 kl. 14.00
13/9 kl. 14.00
ÍBÍ-KS
Einherji — ÍR
UBK - Þróttur R.
Leiftur — Víkingur R.
Selfoss — ÍBV
Þróttur R. — ÍR
Selfoss — ÍBÍ
Einherji — KS
VíkingurR, —UBK
ÍBV — Leiftur
ÍR — Víkingur R.
ÍBÍ — Einherji
KS — Þróttur
UBK-ÍBV
Leiftur — Selfoss
VíkingurR, —KS
Þróttur R. — Einherji
Selfoss — UBK
Leiftur —ÍBÍ
ÍBV-lR
ÍR —Selfoss
ÍBÍ — Þróttur R.
KS-ÍBV
Einherji —VíkingurR.
UBK —Leiftur
Víkingur R. — Þróttur R.
UBK-ÍBÍ
Selfoss — KS
ÍBV — Einherji
Leiftur— ÍR
KS — Leiftur
l'R-UBK
IBÍ —VikingurR.
Einherji — Selfoss
Þróttur R. — ÍBV
(R-ÍBÍ
UBK-KS
Leiftur — Einherji
Selfoss — Þróttur R.
ÍBV—VíkingurR.
Þróttur R. — Leiftur
ÍBl-lBV
KS-lR
Einherji —UBK
VíkingurR. —Selfoss