Morgunblaðið - 16.05.1987, Side 72
V^terkurog
k_J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Stefnir í12
milljón kr.
Lottóvinning
* jrfslendingar hafa
slegið heimsmetið
„ÞAÐ stefnir allt í að 1. vinn-
ingur verði ekki undir 12
milljónum króna að þessu
sinni“, sagði Aðalsteinn Sig-
urðsson, talsmaður Lottós
5/32, er hann var spurður um
sölu Lottóraðanna I þessari
viku. Eins og kunnugt er voru
5,8 milljónir í pottinum í
síðustu viku, sem ekki gengu
út og bætast þvi við upphæðina
sem dregin verður út í kvöld.
Aðalsteinn sagði að salan í
•^þessari viku hefði verið þrefold
- upp á hvem dag miðað við venju-
lega viku. „Þetta þýðir að íslend-
ingar eru búnir að slá heimsmet
í sölu á Lottómiðum á þessum
fímm mánuðum sem liðnir eru frá
því Lottóið hóf göngu sína. Meðal-
salan á mann í landinu er komin
í 50 krónur, en sambærileg tala
frá Bandaríkjunum, þar sem þetta
er gamalgróinn og vinsæll leikur,
er 26 krónur á íbúa,“ sagði Aðal-
steinn.
Morgunblaðið/Ol. K. M.
VIÐ UPPHAF VIÐRÆÐNA
ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins hóf viðræðunum var Friðrik Sophusson. Þorsteinn sagði að
stjórnarmyndunarviðræður sínar síðdegis í gær með því þarna hefði verið um að ræða gagnlegar könnunarviðræð-
að ræða við fulltrúa Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hanni-. ur. Fundurinn stóð í rúmar fjórar klukkustundir.
balsson og Jóhönnu Sigurðardóttur. Með Þorsteini í Sjá frétt á bls. 2.
Reuter/Max Scherer.
Hannes Hlífar lagði Búlgarann Belchev að velli í gærdag.
Heimsmeistaramót unglinga 1 skák;
Hannes Hlífar
vann fimmtu
skák sína í röð
* ‘3
HANNES Hlífar Stefánsson vann sína fimmtu skák í röð á
Heimsmeistaramóti unglinga í skák í Austurríki og er áfram
einn í efsta sætinu. Guðfríður Lilja Guðmundsdóttir vann einn-
ig skák sina í 5. umferð mótsins í gær og er um miðjan hóp í
kvennaflokki.
Hannes vann Belchev frá Búlg-
aríu í fimmtu umferð mótsins.
Að sögn Guðmundar Siguijóns-
sonar, fararstjóra ungmennanna,
tefldi Hannes skákina vel og
þjarmaði hægt og örugglega að
Búlgaranum. Hannes er því með
5 vinninga en næstur kemur Hol-
lendingurinn Loeh de Wely með
4,5 vinninga og tefla þessir tveir
saman í 6. umferðinni í dag.
Guðfríður Lilja vann Davies frá
Wales og er með 2,5 vinninga.
Efst í stúlknaflokki er Bojkovic
frá Júgóslavíu með 4,5 vinninga.
ISAL kaupír fyrsta
íslenska iðnróbótann
ÍSLENSKA álfélagið hf. staðfesti í gær pöntun á iðnró-
bóta frá fyrirtækinu JHM, almenn tækniþjónusta sf., og
mun það vera fyrsti íslenski róbótinn, sem tekinn er í notk-
un í iðnaði hér á landi. Verðmæti róbótans er um 4 miiljónir
króna og er gert ráð fyrir að hann verði settur upp í álver-
inu í Straumsvík í september á þessu ári.
Jón Hjaltalín Magnússon verk-
fræðingur, sem hannaði róbótann,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að tækið yrði notað til að setja á
sjálfvirkan hátt kraga utan um
tinda á rafskautum, áður en þau
eru sett í kerin. „Þetta er, að því
ég best veit, fyrsti íslenski róbót-
inn sem tekinn er í notkun í iðnaði
hér á landi. Við urðum þama hlut-
skarpari í samkeppni við norsk
og þýsk fyrirtæki, sem buðu svip-
aðan búnað, en tæknimönnum
ÍSAL þótti íslenska lausnin betri
og hagkvæmari," sagði Jón Hjal-
talín.
Hann sagði að á vegum fyrir-
tækisins hefði verið unnið í tæpt
hálft ár að hönnun róbótans, en
beðið hefði verið eftir staðfestingu
frá Alusuisse í Sviss á kaupunum
og barst sú staðfesting í gær eins
og áður segir. „Við höfum verið
að vinna að nokkrum verkefnum
á sviði sjálfvirkni í samvinnu við
Landssmiðjuna hf., en Lands-
smiðjan mun sjá um samsetningu
og uppsetningu á þessum iðnró-
bóta í ÍSAL,“ sagði Jón.
Hann sagði að róbótinn væri
nokkuð stór um sig, en hann sam-
anstæði af palli undir rúllu með
kragalínu, mótor sem drægi efnið
að rúllunni, klippum sem klippa
efnið í hæfílega kraga og sjálf-
virkum róbóta, sem beygði efnið
utan um tinda rafskautsins og
festi það þar. „Að sögn Ragnars
Halldórssonar, forstjóra ÍSAL, er
þetta liður í áframhaldandi tækni-
væðingu álverksmiðjunnar og þeir
hjá ÍSAL eru mjög ánægðir með
að íslensk fyrirtæki skuli geta
boðið lausnir, sem standa framar
erlendum fyrirtækjum að þeirra
áliti,“ sagði Jón Hjaltalín enn-
fremur.
Varðandi möguleika á að setja
slíka iðnróbóta á markað erlendis
sagði Jón að ekki væri ólíklegt
að einhveijar álverksmiðjur er-
lendis gætu séð sér hag í að setja
upp svona róbóta og unnið væri
að því að koma upplýsingum um
þessa íslensku lausn á framfæri
við erlendar verksmiðjur.
Hæstíréttur staðfestí skilorðs-
bundinn dóm fyrir manndráp
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm undirréttar og dæmdi ungan
pilt í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi, en pilturinn varð öðrum
pilti að bana með því að stinga hann með hnifi. Skilorðsbindingu í
málum þar sem dæmt er til lengri fangelsisvistar en 1 árs hefur
ekki verið beitt til þessa hér á landi, en mál þetta var um margt
sérstætt.
Pilturinn á við sjúkdóm að etja
og er mikil stríðni að útliti sínu.
Vegna þessa kom til orðaskipta og
átaka milli hans og annars pilts
fyrir utan skemmtistaðinn „Villta,
tryllta Villa“ við Skúlagötu í sept-
ember 1985. Lyktaði samskiptum
þeirra svo að pilturinn dró upp
vasahníf og stakk hinn með honum.
í niðurstöðum Sakadóms Reykja-
víkur í október síðastliðnum sagði,
að málið væri mjög sérstætt og
óvenjulegt. Kæmi þar til hinn ungi
aldur ákærða annars vegar og hins
vegar það samspil tilfínningalegs
ójafnvægis, sem rekja megi til sjúk-
dóms hans, og óhappaatvika, sem
leiddu til hins örlagaríka verknaðar
hans. Fangelsun hefði alvarleg áhrif
á persónuþroska hans, aðlögun,
nám og nánast alla hans framtíð.
Undirréttur dæmdi piltinn því til
fjögurra ára fangelsisvistar, skil-
orðsbundið, og hefur Hæstiréttur
nú staðfest þann dóm.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
amir Magnús Thoroddsen, Guð-
mundur Skaftason, Guðrún
Erlendsdóttir og Þór Vilhjálmsson
og Amijótur Bjömsson prófessor.