Morgunblaðið - 12.06.1987, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
5
Þróunarfyrir-
tæki í líf-
tækniiðnaði
í deiglunni
STEFNT er að stofnun þróunar-
fyrirtækis í lífefnaiðnaði og yrði
starfsemi fyrirtækisins í fyrstu
einkum í tengsium við fiskiðnað
og beinast annars vegar að
lífefnavinnslu úr sjávarfangi og
hins vegar að notkun ensíma í
fiskiðnaði. Gert er ráð fyrir að
hlutafé fyrirtækisins þurfi að
vera um 8 milljónir.
Greint er frá því í nýjasta frétt-
bréfí Iðntæknistofnunar, að stefnt
sé að stofnun þessa fyrirtækis í
framhaldi af rannsóknarverkefni
Qögurra stofnana, Iðntæknistofn-
unar, Rannsóknarstofnunar físk-
iðnaðarins, Raunvísindastofnunar
og Líffræðistofnunar Háskólans;
„Ensímvinnsla úr íslenskum hráefn-
um.“
Hugmjmdir um stofnun fyritæk-
isins voru nýverið kynntar á fundum
með fulltrúum ýmissa iðnfyrir-
tækja, sem sýnt hafa þessum
rannsóknum áhuga og er ætlunin
að ieita samstarfs við aðila í þessum
atvinnugreinum um stofnun fyrir-
tækisins.
Líftæknifyrirtækinu tilvonandi
verður ætlað að starfa að þróun á
framleiðslu ensíma úr hveraörver-
um og fiskúrgangi og sölu þeirra.
Auk þess yrði unnið að þróun og
notkun ensíma og annarra líftækni-
legra aðferða í fískiðnaði og öllum
matvælaiðnaði með innlendan
markað í huga til að byrja með, en
útflutning þegar fram sækir. Fyrir-
tækinu verður ætlað að hafa með
höndum tilraunavinnslu, tilrauna-
notkun, markaðsrannsóknir, og
ráðgjöf og þjónustu í líftækniiðn-
aði. Fjölmargar framleiðsluhug-
myndir úr áðumefndu rannsóknar-
verkefni liggja fyrir. Þær sem
lengst eru komnar eða á það stig,
að unnt sé að meta markaðshæfni
þeirra eru: Ensímblanda úr þor-
skinnyflum, trypsín úr þorskinnyfl-
um, próteasi úr thermus hverabakt-
eríu og ensímpakki úr skrápflett-
ingu skötu.
Góöar stundlr
meö MS sam
lokum -hvar
og hvenær
sem er.
DANÍEL ÓLAFSSON HEILDVERSLUN, VATNAGÖRDUM 26-28,
STABBURET MARMELAÐI MORGUN, KVÖLD OG MIÐJAN DAG.
S tabbutet
APPELSÍNUMARMELAÐIÐ
ER KOMIÐ Á KRUKKUR!
EN BRAGÐIÐ ER ÓBREYTT!
Hefur þú átt í erfiðleikum með að finna
uppáhalds appelsínumarmelaðið þitt í
búðarhillunum að undanförnu? Skýringin
felst í nýjum umbúðum.
Stabburet appelsínumarmelaðið er
komið á krukkur. Norsku framleiðendun>
ir fara þó ekki of geyst í glervæðlnguna og
hafa apríkósumarmelaðið áfram á dósum
næstu misserin.
Pessi ánœgjulegu umbúðaumskipti
koma alls ekki niður á bragðinu og því
síður verðinu. Því hafa Norðmenn lofað
og Norðmenn vita að það er ijótt að segja
ósatt.
Mjólkursamsalan